Morgunblaðið - 19.06.1984, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
137. tbl. 71. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Persaflóastrfðið:
Er sóknin mikla
loks yfirvofandi?
Þessa skriðdreka, sem eru
sovésk smíði, segjast írakar
hafa tekið herfangi af írön-
um. íranar virðast nú loks
ætla að gera alvöru úr stór-
sókninni gegn írökum, sem
búist hefur verið við í all-
nokkurn tíma. Segja þeir að
„sjálfboðaliðar“ flykkist nú
til vígvallanna við borgina
Basra þar sem einhver mesta
fóikorrusta allra tíma muni
brátt fara fram.
AP
Manama, London, Kairó, 18. júní. AP.
GÍFURLEGUR lidssafnaður ír-
anskra sjálfboðaliða var í dag fluttur
að víglínunni syðst á vígstöðvunura
og þykir það benda til, að stórsókn
írana gegn írökum, sem beðið hefur
verið lengi, sé nú á næstu grösum.
Hussein, Jórdaníukonungur, kvaðst
í gær reiðubúinn til að senda jórd-
anska hermenn írökum til hjálpar.
Iranska útvarpið sagði í dag, að
„þúsundir eldheitra hugsjóna-
manna“ flykktust nú að víglínunni
skammt frá borginni Basra í Irak
en þar hafa íranir safnað saman
um 400.000 manns að því talið er.
Verður það megintilgangur vænt-
anlegrar sóknar að einangra borg-
ina. Persaflóafréttastofan, sem
aðsetur hefur í Bahrain, segir, að
frá Bagdað streymi hermenn og
háskólastúdentar til víglínunnar
og greinilegt, að írakar telji ír-
önsku sóknina yfirvofandi. írakar
hafa heitið því að „gjöreyða" ír-
anska sóknarhernum og treysta í
því skyni ekki síst á ný, sovésk
flugskeyti og Super Etendard-
flugvélarnar frönsku.
Búist hafði verið við, að „Sóknin
mikla“ eins og íranir kalla hana
yrði gerð 5. júní sl. en af henni
hefur ekki orðið og er talið, að
ágreiningur með klerkunum sjálf-
um annars vegar og klerkunum og
herforingjunum hins vegar hafi
valdið. Sagt er, að allmargir
klerkanna vilji binda enda á stríð-
ið og blóðsúthellingarnar til að
unnt verði að koma efnahagnum
aftur á réttan kjöl.
Noregur:
Vöxtur í
laxeldinu
Osló, 18. júní. Frá Pcr A. Borglund,
fréttaritara Mbl.
EFTIRSPURN eftir norskum laxi vex
stöðugt og verðið fer einnig hækkandi.
Kemur þetta fram hjá Thor Listau,
sjávarútvegsráðherra Norðmanna,
sem nú er staddur f Parfs á mikilli
matvörukaupstefnu, SIAL, þar sem
norskir útflytjendur hafa látið mikið
að sér kveða.
Listau segir, að í ljósi þessarar
þróunar muni aðstæður og ytri kjör
fiskeldisins verða bætt til að unnt sé
að anna eftirspurninni eftir norsk-
um laxi og sjóbirtingi.
„Á þessu ári verður framleiðslan
af laxi 25 til 26.000 tonn, sem eru að
útflutningsverðmæti um 1,3 millj-
arðar kr. (um 4,3 milljarðar ísl. kr.).
Vöxturinn á markaðnum sýnir, að
við höfum verið of strangir og var-
kárir en nú ætlum við að breyta lög-
unum um fiskeldið í frjálsræðisátt.
Bara það, sem af er árinu, höfum við
veitt 100 ný rekstrarleyfi fyrir fisk-
eldisstöðvum og það er enginn endir
á umsóknunum," sagði Listau.
Hussein, Jórdaníukonungur,
sagði í gær, að ef írakar færu
fram á það myndu Jórdanir koma
þeim til hjálpar og berjast við hlið
þeirra á vígvellinum. Sagði hann,
að íranskur sigur í styrjöldinni
yrði „skelfilegri martröð" en
nokkurn gæti órað fyrir. Ríkis-
stjórnin í Kuwait skoraði í dag á
Bandaríkjastjórn að selja henni
Stinger-loftvarnaflaugar til að
geta varist hugsanlegum árásum á
landið. Skoraði hún jafnframt á
SÞ að nota hléið, sem nú væri á
átökum í Persaflóastríðinu, til að
reyna að semja frið.
íranska flugvélin, sem rænt var
í innanlandsflugi í íran sl. föstu-
dag, fór í dag frá borginni Luxor í
Egyptalandi og stefndi til Parísar.
Eru flugræningjarnir átta, fimm
hermenn og þrír óbreyttir borgar-
ar.
Mikil átök voru í gær með verkfallsmönnum í Bretlandi og lögreglumönnum
og slösuðust í þeim 57 manns. Meðal þeirra var Arthur Scargill, hinn herskái
leiðtogi námamanna, sem hér er studdur brott af tveimur sjúkraliðum. Var
farið með Scargill í sjúkrahús þar sem gert var að sári, sem hann hafði hlotið
á höfði. AP
Bretland:
Alvarleg átök
í námaverkfalli
London, 18. júní. AP.
Riddaraliðslögregla barðist í dag við
6.500 námamenn, sem reyndu að
hindra með valdi að vinna færi fram í
koksverksmiðju í Yorkshire.
Átökin í dag eru þau mestu í verk-
falli námamanna til þessa og voru
um 130 manns handteknir víðs vegar
um Bretland. Alvarlegust voru þau
við koksverksmiðju í Yorkshire þar
sem um 4.000 lögreglumenn börðust
við 6.500 verkfallsmenn. Þau hófust
með því að verkfallsmenn réðust inn
I verksmiðjuna og vildu loka henni
en þegar lögreglan skarst í leikinn
tóku þeir á móti henni með grjót-
kasti. Beitti þá lögreglan riddaraliði
gegn verkfallsmönnum og gat þann-
ig komið i veg fyrir að verksmiðj-
unni yrði lokað.
Að minnsta kosti 57 manns slösuð-
ust í dag, jafnt verkfallsmenn sem
lögreglumenn, og þar á meðal Arth-
ur Scargill, leiðtogi námamanna.
Scargill sagðist sjálfur hafa fallið í
götuna fyrir skildi lögreglumanns en
félagar hans, verkfallsmenn, sögðu
að lögreglumenn hefðu lamið hann
með kylfum. Lögreglan segir hins
vegar, að hann hafi bara runnið til
og fallið án þess nokkur kæmi nærri
honum.
Turner tekur
við af Trudeau
OtUwa, Kanada, 18. júní. AP.
SÍÐASTLIÐINN laugardag var kos-
inn nýr formaður Frjálslynda flokks-
ins f Kanada. Heitir hann John Turn-
er og var áAur fjármálaráðherra f
stjórn Trudeaus en sagði af sér emb-
ætti. Turner mun taka við forsætis-
ráðherraembættinu af Trudeau eftir
tæpan hálfan mánuð.
Turner bar sigurorð af öðrum
keppinautum sínum á þingi Frjáls-
lynda flokksins en helstur þeirra
var Jean Chretien, orkumálaráð-
herra. Þegar Turner fagnaði kjör-
inu sagði hann, að helstu stefnum-
ál stjórnar hans yrðu „aukin at-
vinna, aukinn hagvöxtur og aukið
traust Kanadamanna á framtfð
lands og lýðs“. Turner situr ekki á
þingi en ekkert er þó í vegi fyrir
því að hann taki við forsætisráð-
herraembættinu. Búist er við, að
hann komi um kring aukakosning-
um í einhverju öruggu kjördæmi
eða efni til almennra kosninga.
Sjá nánar á bls. 18.