Morgunblaðið - 19.06.1984, Qupperneq 30
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1984
<> 1839 ♦
Árið 1839 tókst f rumherjanum, Charles Goodyear að gera
gúmmí að iðnaðarhæfu hráefni
Fyrirtækið, sem ber nafn hans, var stofnað áríð 1898, og
starfrækir nú 110 verksmiðjur um víða veröld, enda stærsti
gúmmíframleiðandi heims.
Goodyear hjólbarðaverksmiðjurnar hafa ávallt verið
leiðandi á sviði tækniþróunar og nýjunga í framleiðslu
hjólbarða af öllum stærðum.
Hugsaðu um eigið
og annarra
Verulegur hluti sjóslysa
vegna mistaka áhafna
Skipuð alþjóðleg nefnd til að semja kröfur
um menntun, þjálfun og vaktstöðu áhafna
ÞRJÁR alþjóðlegar stofnanir,
Alþjóðasiglingamálastofnunin,
Matvælastofnun Sameinuðu
þjóðanna og Alþjóðavinnu-
málastofnunin, hafa komið sér
saman um að setja á stofn
samstarfsnefnd til að vinna að
samningu alþjóðlegra krafna
um menntun, þjálfun og
vaktstöðu áhafna fískiskipa.
Hjálmar R. Bárðarson, sigl-
ingamálastjóri, sagði í samtali
við Morgunblaðið að komið hefði
í ljós að verulegur hluti sjóslysa
orsakaðist af mistökum áhafna,
og talið væri að skortur á þjálf-
un væri aðal ástæða þess. Sagði
hann engan vafa leika á um
nauðsyn aukinnar menntunar
og þjálfunar áhafna fiskiskipa.
Hjálmar hefur verið beðinn
um að vera í kjöri sem annar af
tveimur fulltrúum Alþjóðasigl-
ingamálastofnunarinnar, en
kosið verður um það í júlí.
Fyrsti fundur nefndarinnar
verður í júlí og er þá að sögn
Hjálmars gert ráð fyrir að sam-
in verði drög að kröfum sem síð-
an verða send til viðkomandi
stofnana til athugunar og að ári
er búist við að annar fundur
verði haldinn til að ganga frá
kröfunum.
Leiðrétting
í afmæliskveðju til Guðjóns
Guðmundssnar, fv. rekstrarstjóra
Rafmagnsveitna ríkisins, í blaðinu
á sunnudaginn stendur að hann
hafi byrjað hjá RARIK árið 1937,
en hann byrjaði þar 1947. Börn
Guðjóns og konu hans, Helgu Sig-
urðardóttur, eru fimm, fjórar
dætur og einn sonur.
Dregið í happdrætti
Krabbameinsfélagsins
DREGIÐ var í happdrætti Krabbameinsfélagsins að kvöldi 17. júní:
Mercedes Benz bifreið: 134638
Honda Civic bifreið: 15476
Bifreiðar fyrir 320 þús. kr:
24626 110133 140151 170004
Sinclair Spectrum heimilistölvur:
4657 37377 65638 104132 125356 155893
10770 37975 72532 105068 129883 157130
14058 56644 73540 107662 139123 157189
14109 59052 85091 109122 141298 169276
14387 59835 88339 113486 146820 172747
15069 61148 89708 114769 149118
27305 63139 91055 115571 149718
29900 63892 96129 119686 151849
35074 65539 97023 120730 153975
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu Krabba-
meinsféiags Reykjavíkur að Tjarnargötu 4, 4. hæð, sími 19820.
Krabbameinsfélagið þakkar landsmönnum veittan stuðning.
Málning hinna
vandlátu
Utanhússmálning
Olíulímmálning 18 litir
PSKMA-DBI hentar vel bæði á nýjan og málaöan stein.
PERMA-DRI er í sérflokki hvað endingu á þök snertir.
KEN-DRI notast á alla lágrétta og áveðursfleti áöur en málað er.
(silicon)
Næsta sending
hækkar um 10%
Greiðslukjör. Sendum í póstkröfu.
Smiðsbúð
Smiðsbúð 8, Garðabæ.
Sími 91-44300.
Siguröur Pálsson.