Morgunblaðið - 23.06.1984, Side 20

Morgunblaðið - 23.06.1984, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1984 Björgunin á Eiríksjökli Sighvatur Blöndahl, Skúli Jón Sigurðarson og Þórður Sigurðsson koma fyrstir manna að flakinu á Eiríksjökli. % Björgun Bretanna tveggja á Einksjökli í fyrrinótt: „Gud minn góður þeir eru lifandi!“ Morgunblaöið/RAX EKKERT lífsmark var að sjá við flak bresku flugvélarinnar efst í jökulbung- unni þegar Morgunblaðsmenn flugu yfir slysstaðinn í rúmlega 1600 metra hæð í Eiríksjökli um kl. 04 í fyrrinótt. Flakið var í fyrstu heldur ógreinilegt þar sem það lá á hliðinni í hvítri auðninni og sneri nefinu í suður. Slóðin eftir það lá 60—70 metra niður eftir bungunni, rétt eins og vélin hefði runnið aftur á bak upp jökulinn. Báðir vængirnir voru brotnir af en héngu við flakið, sömuleiðis stélvængirnir, sem voru brotnir upp. Mótorinn var mölbrotinn og mótorhlífarnar farnar af. Áttu nokkra tugi metra eftir til ad komast yfír jökulinn Sólin var komin upp í norðri — miðnætursólin, sem þeir Michael Dukes og Francis Sikora höfðu ætlað að njóta í Grímsey á lengsta degi ársins. Þeir hafa líklega ekki verið nema 30—40 metrum of lágt, annars hefðu þeir náð yfir jök- ulbrúnina. Eftir að við höfðum hringsólað yfir jökulbungunni í um hálfa klukkustund hafði sólin hækkað það mikið á norðurhimn- inum að flakið baðaðist í sólskin- inu og kastaði skugga af því niður eftir jökulbreiðunni. I kringum það var engin spor að sjá, engin merki um að þar hefði nokkru sinni verið nokkuð kvikt. Það hvarflaði ekki að neinum um borð í Morgunblaðsvélinni TF-GTM að þeir Dukes og Sikora hefðu haft tíma til að átta sig á því að þeir hefðu skollið í jökulinn. Um tíu mínútum fyrir fimm skaust Gæsluþyrlan TF-GRÓ upp frá jökulrótunum og lenti nokkur hundruð metrum vestan við slysstaðinn. Þrír menn stukku út og hröðuðu sér frá þyrlunni, sem hófst strax á loft aftur og hvarf eins og smyrill inn í skýjabreið- una, sem huldi allt nema sjálfa hábunguna. Þeir tóku stefnuna rakleiðis á flakið og fóru býsna hratt yfir enda vanir menn á ferð. Það voru þeir Sighvatur Blöndahl, ritstjóri og Flugbjörgunarsveitar- maður, sem stjórnaði björgun- Flakið á Eiríksjökli í dagrenningu í gærmorgun, þannig var aðkoman er þremenningarnir komu á slysstaðinn og tók Þórir Sigurðsson þá þessa mynd. Fyrst í stað datt þeim ekki í hug að menn væru lifandi innanborðs. arsveitarhópnum er fór á slysstað- inn, Skúli Jón Sigurðarson, for- stöðumaður Loftferðaeftirlitsins, og Þórður Sigurðsson, yfirlög- regluþjónn í Borgarnesi. „Guð minn góður, þeir eru lifandi!“ Þegar þeir voru um það bil hálfnaðir kom GRÓ aftur upp úr skýjunum og setti af aðra þrjá menn. Tíu mínútum síðar voru þeir fyrstu þrír komnir að flaki bresku vélarinnar. Þeir byrjuðu á að skoða feril vélarinnar upp eftir jöklinum. Skúli Jón fór niður fyrir flakið, Þórður upp fyrir og Sig- hvatur vestur fyrir það. Úr lofti voru þeir eins og litlir rauðir dílar og ekki að sjá að þeir hefðu orðið varir við neitt lífsmark. En þá sáum við úr vélinni fyrir ofan hvar þeir tóku skyndilega undir sig stökk og hlupu að bresku vél- inni. Skúli hafði heyrt stunu. Hann leit til Sighvats, sem einnig hafði heyrt eitthvað undarlegt og horfði spurnaraugum á Skúla á móti. Úr augum beggja mátti lesa: Varst þetta þú? Svo heyrðu þeir aðra stunu og Skúli sagði stundarhátt: „Guð minn góður, þeir eru lif- andi!“ Líklega hefur engum þeirra orð- ið jafn brugðið um ævina. Á jökl- inum var tíu stiga frost og dálítill skafrenningur. Þar höfðu slasaðir menn, illa klæddir til jöklaferða, hafst við í átján klukkustundir og helsta von þeirra, neyðarsendi- tækið sem Dukes hafði strax eftir slysið sett framan á mótorinn, hafði ekki farið í gang. Það vissi hann þó ekki fyrr en síðdegis í gær. Sighvatur kom að flakinu fyrst- ur þremenninganna. Dukes sat í flugmannssætinu og heilsaði hon- um: „Sæll, ertu björgunarsveitar- maður?" Kraftaverk Sighvatur játti því. „Þetta verð- ur allt í lagi núna,“ sagði hann. Flugmanninum var mjög létt og hresstist talsvert við. Þeir voru hólpnir! Sikora var alblóðugur og átti afar erfitt með mál, enda kjálka-, kinnbeins- og nefbrotinn og skorinn og skrámaður að auki. Hann hafði einnig kalið nokkuð á fótum. Hann tuldraði samhengis- laust, sagðist ekki hafa lent í neinu slysi en virtist engu að síður gera sér fulla grein fyrir því, sem var að gerast í kringum hann á jöklinum. Hvorugur þeirra hafði þó hugmynd um hvar þeir voru staddir. Þremenningarnir fóru strax að hlú að slösuðu mönnunum. Það fór um þá undarleg kennd — sam- bland af gleði, undrun og ... þeir vissu eiginlega ekki hvernig þeim leið. Vissulega höfðu þeir gert sér vonir um að finna lifandi menn þegar þeir stukku út úr Gæslu- þyrlunni en þeir höfðu allir marg- „Það var ekkert lífsmark að sjá“ Morjfunblaðið/KEE Jón E.B. Guðmundsson við vél sína TF-OLI á Reykjavíkurflugvelli í gær. — sagöi Jón E.B. Guðmundsson, sem fann flak bresku vélarinnar úr lofti á TF-OLI „ÞAÐ hefur verið um kl. 1.45, að ég kom auga á bresku vélina, þar sem hún var vestarlega í miðbungu Eiríksjökuls. Við renndum eiginlega beint á flak- ið eftir að við komum yfír jökul- inn. Það var ekkert lífsmark að sjá og við urðum engra hreyf- inga varir þótt við sveimuðum yfír flakinu þar til kl. 3.30,“ sagði Jón E.B. Guðmundsson er blm. Mbl. ræddi við hann í gær. Það var Jón, sem fann flakið af bresku vélinni, þegar hann flaug fjögurra sæta Beechcraft-vél sinni, TF-OLI, yfír Eiríksjökul. Jón bauð Flugmálastjórn að- stoð sína síðdegis í fyrradag og var um kl. 23 beðinn að fljúga með litla endurvarpsstöð upp í Húsafell. Ætlunin var að koma henni fyrir á toppi fjallsins Strúts til þess að auðvelda fjar- skipti á milli björgunarmanna og stjórnstöðvarinnar. Ekki tókst þó að koma sendinum upp fyrr en í gærmorgun. „Ég lagði upp frá Húsafelli kl. 1.07,“ hélt Jón áfram. „Ekki veit ég hvernig þær upplýsingar bár- ust, en okkur var sagt að sæist á topp jökulsins. Það var mjög þungskýjað á þessum slóðum svo ég flaug í suðurátt að Skjaldbreið og Hlöðufell, þar sem ég vissi að bjart var yfir. Þaðan fór ég upp yfir jökulinn. Ég var með tvo björgunarsveit- armenn í vélinni til þess að hjálpa mér að skyggnast um og við komum svo að segja strax auga á flakið á jöklinum. Skýja- farið var mjög sérstakt. Ofanfrá séð líktist jökullinn lítilli skyrslettu í stórri skál. Þykkir og háir skýjabakkar allt um kring." Jón sagðist ekki hafa verið fyllilega viss í sinni sök fyrst er hann sá flakið, en eftir að hafa snúið við og rennt sér lægra yfir staðinn sannfærðist hann og lét tafarlaust vita. „Það var dálítið erfitt að átta sig í þeirri birtu, sem þarna var,“ sagði Jón. „Vél- in, jökullinn svo og skýin, allt var þetta hvítt og erfitt að átta sig á þessu í fyrstu. Ekki hjálp- aði til, að ókyrrð var í loftinu. Þetta voru síður en svo þægi- legar aðstæður."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.