Morgunblaðið - 23.06.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1984
27
Enn 10% tap
á útgerðinni
— segir Ólafur Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri SVN í Neskaupstað
„MÉR sýnist þessi fiskverðsákvörðun og fylgjandi aðgerðir leysa ósköp
lítinn vanda. Það er enn yfir 10% tap á útgerðinni og ekki séð fyrir
endann á því á nokkurn hátt hvernig tekið verður á þeim vanskilum,
sem hafa hlaðist upp á undanfórnum árum. Það er aðeins verið að
millifæra vandann," sagði Ólafur Gunnarsson, framkvæmdastjóri SVN í
Neskaupstað, er Morgunblaðið innti hann álits á hinu nýja fiskverði.
Ólafur sagði ennfremur, að
sér sýndist Kristján Ragnarsson
og forystumenn LÍÚ hafa metið
stöðuna þannig, að þeir kæmust
ekki lengra. Það sem virtist
skipta máli í því sambandi væri
það, að það sýnist ekki vera
meginmarkmiðið hjá þorra for-
ráðamanna útgerðarfyrirtækja
að stefna að taplausum rekstri.
Það virtist anzi ofarlega í huga
þeirra að halda bara áfram hvað
sem tautar og raular.
Ólafur sagðist ekkert geta
sagt um það, hvort Austfirð-
ingar héldu við þá ákvörðun að
stöðva flota sinn 24. júlí næst-
komandi. Menn hefðu ekkert
talað saman eftir fiskverðs-
ákvörðunina. Hitt væri annað
mál, að hún og fylgjandi aðgerð-
ir breyttu afskaplega litlu í
sambandi við möguleika manna
til að halda áfram. Kæmi hins
vegar eitthvað fram á þessum
tíma, sem verulegu máli skipti,
til dæmis hvað varðaði skuld-
breytinguna, gæti það breytt
miklu, ef greiðslustaðan lagaðist
eitthvað. I raun og veru þýddi
þessi fiskverðsákvörðun
óbreytta stöðu. Væru menn með
sameiginlegan rekstur veiða og
vinnslu, kæmi varla nægilegt úr
Aflatrygginarsjóði til að vinna
upp á móti olíuverðshækk-
uninni, síðan væri fiskverðs-
hækkunin bara til þess að auka
tapið á fiskvinnslunni. Það
kæmi ekki einn eyrir inn í sjáv-
arútveginn sem nýjar tekjur.
Þetta væri bara millifærsla á
taprekstri.
Stöðvun verður
endurskoðuð
— segir Finnur Sig-
urgeirsson, formaður
Ú tvegsmannafélags
Akraness
„ÉG GET tekið undir það með
Kristjáni Ragnarssyni,
framkvæmdastjóra LÍÚ, að þessi
fiskverðsákvörðun og meðfylgj-
andi aðgerðir eru í áttina. Þær
leysa hins vegar ekki rekstrar-
vandann,“ sagði Finnur Sigur-
geirsson, formaður Útvegs-
mannafélags Akurnesinga, í sam-
tali við blm. Morgunblaðsins.
Finnur Sigurgeirsson sagði
ennfremur, að Utvegsmannafé-
lag Akurnesinga hefði enn ekki
tekið ákvörðun um það, hvort
staðið yrði við fyrri samþykkt
félagsins um að sigla skipum fé-
lagsmanna í höfn 8. júlí næst-
komandi. Með tilliti til breyttra
aðstæðna, frestunar Austfirð-
inga og nýs fiskverðs og fylgj-
andi hliðarráðstafana, myndu
félagsmenn funda um helgina
eða á mánudagskvöld og taka
ákvörðun þar að lútandi. Að
öðru leyti vildi hann ekki tjá sig
um málið að svo stöddu.
Helga Jónsdóttir í hlut-
verki sínu í kvikmyndinni
Á hjara veraldar.
EINS og kom fram í Morgunblað-
inu í gær hafa samtökin Vinir
Völuspár ákveðið að gangast fyrir
stuðningssýningu í Háskólabíói á
kvikmyndinni Á hjara veraldar,
eftir Kristínu Jóhannesdóttur, og
mun hún hefjast á miðnætti í nótt.
Á skemmtun, sem haldin verð-
ur fyrir sýningu myndarinnar,
koma fram leikararnir Bryndís
Schram og Pétur Einarsson og
flytja þjóðlegan íslenskan fróð-
leik. Listamaðurinn Sjón lætur
sjá sig ásamt öðrum úr fram-
úrstefnuleikhúsum borgarinnar
og vonir standa til að kunnur
söngvari heiðri samkomuna.
Thor Vilhjálmsson verður
kynnir. Þessari Jónsmessunæt-
urskemmtun lýkur svo með því
að gengið verður út á Hagatorg,
þar sem fólk getur velt sér upp
úr dögginni og fengið óskir sínar
uppfylltar, ef marka má forna
þjóðtrú.
Að sögn Hilmars Arnar Hilm-
arssonar eru Vinir Völuspár
samtök fólks úr öllum áttum,
sem á það sameiginlegt að vera
mjög óánægt með þær viðtökur
sem kvikmyndin Á hjara verald-
ar hefur fengið hér á landi.
Kvikmyndin var frumsýnd vorið
1983 og er hún eftir Kristínu Jó-
hannesdóttur, sem jafnframt er
leikstjóri. Sigurður Pálsson er
aðstoðarleikstjóri og sá um
framkvæmdastjórn. I aðalhlut-
verkum eru Þóra Friðriksdóttir
og systkinin Arnar Jónsson og
Helga Jónsdóttir.
Myndin er að mörgu leyti
öðruvísi en Islendingar hafa
Jónsmessunæturskemmtun:
Á hjara veraldar
sýnd á miðnætti
vanist, að sögn Hilmars, m.a.
vegna þess að hún leggur áherslu
á drauminn og þjóðtrúna. Einnig
vegna þess að hún vekur margar
viðkvæmar spurningar, t.d. um
stöðu smáþjóðar, en veitir þó
engin svör. Áhorfendur fara
heim með spurninguna.
Til þess að myndin hefði borið
sig hefðu a.m.k. 35.000 áhorfend-
ur þurft að sjá hana hérlendis.
Reyndin varð sú að um 12.000
manns sáu hana. Hilmar sagði
að alls kyns sögur hefðu gengið
um myndina, þegar hún var
sýnd, t.d. að hún væri óaðgengi-
leg og hún væri of háfleyg fyrir
kvikmyndahússgesti almennt.
Hilmar telur að þetta kunni að
hafa dregið úr aðsókn.
Á hjara veraldar hefur verið
sýnd í Frakklandi og í Kanada
og hlaut hún góða dóma í báðum
þessum löndum. Nú er verið að
athuta markaðsöflun og er aðal-
áhersla lögð á sjónvarpsstöðvar
erlendis.
Að lokum vildi Hilmar koma
því á framfæri að aðgangseyrir í
kvöld er kr. 250 og mun ágóðinn
renna til styrktar Völuspár, —
framleiðanda kvikmyndarinnar.
Hafrannsóknastofnun:
Jón Jónsson lætur af
störfum sem forstjóri
Sjávarútvegsráðherra hefur veitt
Jóni Jónssyni, forstjóra Hafrann-
sóknastofnunarinnar, lausn frá
störfum forstjóra að eigin ósk frá 1.
júlí nk. Jón hefur veitt stofnuninni
forstöðu í þrjá áratugi en menntun
sína í fiskifræði hlaut hann við há-
skólann í Osló.
Meðal fjölmargra trúnaðar-
starfa sem Jón hefur gegnt á sviði
vísindagreinar sinnar skal helst
nefna að hann var fulltrúi íslands
í stjórn Alþjóðahafrannsókna-
ráðsins 1954, varaforseti þess
1972—1975. Formaður eða með-
limur í ýmsum vinnunefndum
ráðsins. Fulltrúi íslands í eftir-
greindum alþjóðastofnunum:
Norðaustur-Atlantshafsfiskveiði-
nefndinni, Norðvestur-Atlants-
hafsfiskveiðinefndinni, vísinda-
nefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins,
Hafréttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna, svo eitthvað sé nefnt.
Þá hefur Jón skrifað fjölmargar
greinar og ritgerðir um fiskveiðar
og fiskifræði. Jón Jónsson mun
áfram starfa við stofnunina við
ýmis rannsóknarstörf.
(FrétU(ilkynning)
SKUTBILL I FULLRISTÆRÐ
Á AÐEINS KR. 379.000
□ Farþegabíll □ Farangursbíll □ Svefnbíll
STRTION WRGQN
H : i J
Lauc ave^ )\ 170 ■172 Sími 21240