Morgunblaðið - 23.06.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1984
47
Þorsteinn tryggði UBK
sigur á KA á Akureyri
„MÉR fannst sigurinn öruggur og
aldrei í hættu eftir aö við skoruö-
um markið. Það kom mér mikið á
óvart hve KA-menn rifust mikiö (
leiknum er á móti blós og hefur
þaö vafalaust haft áhrif á leik
þeirra,“ sagöi Þorsteinn Geirs-
son, Blikamaöur, er tryggöi liöi
sínu sigur (1:0) á KA í 1. deildinni
í knattspyrnu í gærkvöldi á Akur-
eyri. Þorsteinn skoraöi markiö á
30. mín. Fékk sendingu á víta-
teigslínu fyrir miðju marki, lagöi
knöttinn fyrir sig og skoraði meö
fallegu skoti efst í bláhorniö.
Birkir markvöröur réö engan veg-
inn viö skotið.
Er Blikarnir skoruðu haföi mark
legiö nokkuö lengi í loftinu því þeir
höföu sótt mun meira nokkuð þar
á undan. Jafnræöi var meö liöun-
Staðan
STAÐAN er
eftir leik KA
ÍA
ÍBK
Þróttur
Víkingur
KA
UBK
Fram
Þór
Valur
KR
þannig í 1. deildinni
og UBK í gærkvöldi.
7 5 11 12:4 16
7 4 3 0 7:3 15
7 2 4 1 9:6 10
7 2 4 1 11:10 10
8 2 3 3 11:12 9
8 2 3 3 6:7 9
7 2 1 4 8:10 7
7 2 1 4 7:11 7
7 1 3 3 4:6 6
7 1 3 3 7:13 6
Elkjær
til Verona
Frá Ib Björnbak, fréttamanni Mbl. í
Danmörku.
DANSKI landsliösmaöurinn,
Preben Elkjær Larsen, hefur
nú verið seldur frá Lokeren til
Verona sem leikur í 1. deild-
inni á Ítalíu. Verona greiddi
um 48 milljónir íslenskar
krónur fyrir kappann og er þá
eftir aö taka inn í dæmiö laun
hans og allan bónus. Mörg liö
hafa veríö á eftir Elkjær en nú
er þeim eltingaleik lokiö meö
sigri Verona.
um framan af og átti KA þá tvö
ágæt færi en síðar voru Blikar
sterkari fram aö markinu. KA
pressaöi svo siöustu tíu mín. hálf-
leiksins.
Á 13. mín. skaut Hinrik Þór-
hallsson föstu skoti beint úr auka-
spyrnu rétt utan teigs rétt yfir
markiö. Á 19. mín. óö Steingrímur
Birgisson upp kantinn og upp aö
endamörkum, gaf á Njál Eiösson
sem var í „þröngu“ dauöafæri en
varnarmenn björguöu.
KA pressaði mikiö eftir aö Blik-
arnir skoruöu og á 42. og 43. mín.
áttu þeir þokkaleg færi. Friðrik
Friöriksson, markvöröur UBK, fór í
„sólarlandaferö“ út í teiginn í fyrra
skiptiö, náöi ekki boltanum sem
barst til Njáls en varnarmenn
björguöu góöu skoti hans á mark-
teig. Steingrímur skaut svo langt
framhjá úr þröngu færi. Óheppinn
aö skora ekki.
Ormarr Örlygsson, KA-maöur,
sagöi eftir leikinn aö grátlegt heföi
veriö aö sigra ekki í þessum leik.
„Þaö skipti sköpum aö nýta ekki
færin tvö undir lok fyrri hálfleiks-
ins. Heföum viö skoraö þá heföi
þaö vafalaust breytt leiknum tals-
vert. Þaö er leiöinlegt aö vinna
ekki — nú erum við komnir í
ströggl, heföum viö náð aö sigra
heföum við komist í mjög rólega
stööu í deildinni,'1 eins og Ormarr
oröaöi þaö.
Leikmenn hófu síöari háifleik
Heimsmet
SOVÉSKA stúlkan Margarita
Ponomaryova setti í gær nýtt
heimsmet í 400 m grindahlaupi.
Hljóp vegalengdina á 53,58 sek. á
móti í Kiev. Landa hennar, Anna
Ambrazene, átti gamla metiö —
sem var 0,44 sek. lakara.
undir Ijúfum tónum Hallbjarnar
kántrýkóngs Hjartarsonar af
Skagaströnd og hefur þaö sjálf-
sagt haft slæm áhrif á leikmenn —
því síöari hálfleikurinn var frekar
daufur.
Þau fáu færi sem sköpuöust í
seinni hálfleik voru engin dauöa-
færi og flest eign Breiöabliks.
Þeirra best var færi sem Jón Ein-
arsson fékk á 77. mín. þegar
markvöröur KA fór í úthlaup en
missti af knettinum — sem Jón
fékk innan vítateigs en varnar-
menn náöu aö bjarga skoti hans á
markteig.
Akureyrarvöllur 1. deild, KA-UBK 0:1 (0:1)
Mark UBK: Þorsteinn Geirsson á 30. mín.
Gult spjald: Þorsteinn Hilmarsson UBK.
Ahorfendur: 890
Dómari: Óli Ólsen og var slakur. Heföi mátt
nota spjöldin meira.
EINKUNNAGJÖFIN: KA: Birkir Kristinsson 5,
Ormarr Örlygsson 6, Friöfinnur Hermannsson
5, Ásbjörn Björnsson 5. Erlingur Kristjánsson
7, Njáll Eiösson 5, Steingrímur Bírgisson 6,
Gústaf Baldvinsson 6, Hinrik Þórhalisson 5.
Hafþór Kolbeinsson 5, Mark Duffield 6, Bjarni
Jónsson (vm.) 5. UBK: Friörik Friöriksson 5.
Benedikt Guömundsson 5, Ómar Rafnsson 6,
Loftur Ólafsson 6, Vignir Baldursson 5, Þor-
steinn Geirsson 6, Jóhann Grétarsson 6. Jón
Einarsson 6, Ingólfur Ingólfsson 6, Sigurjón
Kristjánsson 5, Jón Gunnar Bergs (vm) 4 og
Þorsteinn Hilmarsson (vm) 3.
— RBE/SH.
• Siguröur T. Sigurösson
Jónsmessumót
í KVÖLD fer fram árlegt
Jónsmessumót ( Grafarholti.
Leiknar veröa 12 holur í
„foursome". Ræst veröur út á
öllum teigum samtímis kl.
20.30. Skráning keppenda og
upphitun fer fram kl. 18.00 til
20.00. Aö leik loknum eöa um
ki. 23.00 veröur náttveröur og
verölaunaafhending fyrir öll
mót fulloröinna í maí og júní,
sem lokið er. Síöan veröur
dansaö fram eftir nóttu. Á
morgun fer fram hjóna- og
parakeppni. Hetst sú keppni
kl. 13.00.
Minolta mill-
ion-golfmót
ÞRIÐJUDAGINN 26. júní verö-
ur haldiö opiö mót í Grafar-
holti, Minolta Million.
Bakhjarl þessa móts er Júlí-
us P. Guöjónsson, sem er um-
boðsmaöur fyrir Minolta-
myndavélar á íslandi. í verö-
laun veröa vandaðar Minolta-
myndavélar. Sérstaklega skal
bent á verölaun fyrir besta
skor, en þar er um aö ræöa
reflex-myndavél, sem kostar
um 12.000.
Leiknar veröa 18 holur með
forgjöf. Ræst verður út frá kl.
13.00. Þátttakendur skrái sig í
Golfskálanum í Grafarholti í
símum 82815 og 84735.
Sigurður slasaðist í
stangarstökki i Köln
— getur ekki farið að keppa aftur fyrr en eftir hálft ár
„SIGURÐUR getur fyrst fariö aö
stökkva aftur eftir hálft ár. Hann
er ákveöinn í aö láta þetta ekki
alltof mikiö á sig fá og byrja aftur
þegar hann veröur oröinn góöur
af þessu,“ sagöi Guðrún Guö-
mundsdóttir, eiginkona Siguröar
T. Sigurössonar stangarstökkv-
ara, í samtali viö Morgunblaöiö í
gær frá Köln, en Siguröur slasaö-
ist í stangarstökkskeppni þar í
borg í fyrrakvöld.
„Þetta var hans fyrsta stökk í
keppninni. Hann haföi veriö slæm-
ur í hné í rúma viku en hvílt og taldi
sig vera góöan. Og hann varö
einskis var í aöhlaupinu, en um leiö
og hann ætlaöi aö spyrna sér upp
kom skellurinn og reyndar mildi aö
ekki fór verr,“ sagöi Guörún.
Hún sagöi aö slitnaö heföu sinar
í vinstra hné og heföi Siguröur ver-
iö fluttur samstundis á sjúkrahús,
þar sem hann gekkst undir upp-
skurö síöar um kvöldiö. Er fóturinn
nú í gifsi frá tá og upp í nára og
veröur svo næstu vikurnar. Verður
Siguröur í sjúkrahúsinu næstu
tvær vikurnar.
„Jú, hann er svekktur, sem eöli-
legt er, en samt bjartsýnn á aö
hann veröi byrjaöur aö stökkva á
ný eftir hálft ár eöa svo. í millitíö-
inni notar hann tímann til að
styrkja líkamann aö ofanveröu,“
sagöi Guörún.
Siguröur er heldur óheppinn aö
veröa fyrir þessum skakkaföllum,
því hann hefur lagt hart aö sér siö-
asta áriö i þeirri von aö sigrast á
lágmarki til þátttöku i Ólympíuleik-
unum í sumar, og var eigi fjarri því
er hann slasaöist.
— ágás.
Þið eruð í banni — þið eruð ekki í banni:
„Mannleg mistök
r:
reyKjavlK 3R/3FI
7? r947
úú
Knattspyrnusanoand isianos
iprottanlastöölnni LaugardaL
reyKjaviK.
„ÞETTA stafaði af mannlegum
mistökum hér á skrifstofunni,"
sagöi Björn Vilmundarson,
skrifstofustjóri ÍSÍ, í samtali
við Morgunblaöiö í gær, en ÍSÍ
sendi nokkrum félögum skeyti
þess efnis ( fyrradag aö þau
heföu veriö dæmd í keppnis-
bann þar sem þau heföu ekki
staðiö ( skilum á kennslu-
skýrslum fyrir áriö 1983, sem
reyndist svo ekki rétt varðandi
tvö félögin.
Knattspyrnufélögin, sem
fengu slík skeyti voru Þróttur
Reykjavík, Fylkir, Vestri á isa-
firöi og Óöinn. Þaö kom svo í
Ijós aö Fylkir og Vestri höföu
bæði sent inn sínar kennslu-
skýrslur fyrir talsvert löngu.
Þróttarar aftur á móti gengu frá
sínum málum í gær, þannig aö
keppnisbanni var aflétt af félag-
inu þegar í staö. Engin starf-
semi er hjá Óöni í ár.
„Öll liö áttu aö vera búin aö
skila kennsluskýrslum fyrir 15.
apríl, svo þegar kominn var 25.
maí og skýrslur vantaöi frá
mörgum félögum víös vegar um
landiö var ákveöið aö gripa
þyrfti til róttækra aögeröa,“
sagöi Björn Vilmundarson í
gær. Björn sagöi aö um síöustu
helgi heföi verið unniö endan-
legt úrtak — um þaö hvaöa fé-
lög ættu enn eftir aö skila
skýrslum. „Hermann Guö-
mundsson, framkvæmdastjóri
ÍSÍ, vann listann og fór síöan í
frí. Viö töldum aö þessi fjögur
félög heföu ekki staöiö í skilum
þar sem þau voru á listanum og
framkvæmdastjórn ÍSi sam-
þykkti aö senda þeim umrætt
skeyti. Þaö var ekki athugaö
nánar hvort skýrslur frá þeim
væru komnar inn.
Allar kennsluskýrslur sem
berast eru síöan sendar til
Björns Magnússonar í mennta-
málaráöuneytinu. Þaö má vera
aö þessar skýrslur hafi veriö
sendar beint til hans; ef ekki
hefur bara gleymst aö skrá þær
hér hjá okkur,” sagöi Björn
Vilmundarson.
Björn sagöi aö mál sem þessi
kæmu upp á hverju ári, þaö
virtist þurfa eitthvaö róttækt til
aö fá menn til aö skila skýrslun-
um.
— SH
|þád tlLKynnist yaur ner med ao Ker.rs LuSKyrs u fr'
iþrottafe Laginu fyLki barst a rettuir. tin.a cg er
þvi umrÆtt keppnisoann a rnisskiLningi oyggt
virdlngarfyLLst.
lþrottasamband isLands
COL nlL
• Ljósrit af skeytinu sem iSÍ sendi félögunum: „Þar sem þér hafiö
ekki oröiö viö tilmælum vorum í skeyti 25. maí aö skila kennslu-
skýrslum 1983 er félag yöar hér með sett ( keppnisbann og hefur
stjórn KSf verið tilkynnt um þaö.“
I þar sem þer hafld ekki ordid vid tilmælum vorum i skeyti 25 mai
um ad skila kennsluskyrslum 1983 er felag ydar her med sett i kep'þn-
isbann og hefur stjorn ksi verid tilkynnt um þad.
virdingarfyllst
iþrottasamband dslands
• „Það tilkynnist yöur hér meö aö kennsluskýrsla frá íþróttafélaginu Fylki barst á réttum tíma og er
því umrætt keppnisbann á misskilningi byggt.“ Skeyti ÍSÍ til KSÍ í gær.