Morgunblaðið - 23.06.1984, Side 48

Morgunblaðið - 23.06.1984, Side 48
OPIÐALLA DAGA FRÁ KL. 11.45 - 23.30 AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆTI. SlMI 11633 LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Kunnu ekki á neyðar- sendinn BRETARNIR tveir, sem bjarg- að var af Eiríksjökli, reyndust vera með lítinn neyðarsendi í vélinni hjá sér og höfðu meira að segja keypt hann sérstak- lega fyrir íslandsförina. Hins vegar reyndust kaupin á send- inum til lítils gagns því menn- irnir kunnu ekki að nota hann. Þegar þeim var bjargað í fyrrinótt fannst sendirinn, þar sem þeir höfðu komið honum fyrir á stéli vélarinnar. Töldu þeir hann koma að bestum not- um þar. Sendirinn var hins veg- ar ekki í gangi og sendi því ekki frá sér nein merki. Töldu Bret- arnir hann fara í gang af sjálfu sér, en tæki sem þessum verður að kveikja sérstaklega á. Ég get ekki þakkað ykkur íslendingum nógsamlega - segir Laraine Dukes, eiginkona Michael Dukes, sem bjargað var ásamt felaga sínum af Eiríksjökli í fyrrinótt „Ég get ekki þakkað ykkur ís- lendingum nógsamlega. Þið hafið gert allt sem í ykkar valdi hefur staðið. Þeir fundust báðir iifandi, sem var vart hugsanlegt og eru ekki í lífshættu og ég á engin orð til að lýsa tilfinningum mínum,“ sagði Laraine Dukes, eiginkona annars flugmanns bresku flugvélarinnar, Hvítingjalaxarnir á Laxalóni kynþroska — Tekst að rækta upp hvítan laxastofn? HVÍTINGJALAXARNIR (albinóarnir) sem Laxalónsbænd- ur rækta í laxeldisstöð sinni eru orðnir kynþroska, bæði hrygnurnar og hængarnir. Hrygna þeir í fyrsta skipti f haust og í febrúar eða mars á næsta ári kemur f Ijós hvort afkvæmi þeirra verða hvítingjar eða laxar með venjulegu litarafti. 1 júlí í fyrra var sagt frá þessum afbrigðilegu löxum á Laxalóni hér í Morgunblaðinu og fleiri hvítingjum f nátt- úrunni, en Laxalónsbændur fengu þessa laxa, sem eru 400 talsins, fyrir tiiviljun við klak á hrognum úr einni hrygnu úr EUiðaánum. Þeir halda hvítingjunum sér í eldistjörn og ætla að gera tilraun til að rækta upp sérstakan hvítingja- stofn. Þeir telja að slíkur fiskur muni seljast á hærra verði til manneldis en venjulegur lax. I fyrrahaust voru hrogn úr venjulegum Elliðaárlaxi frjóvguð með hvítingjalaxi á Laxalóni en út úr því komu eingöngu venjulegir laxar. Hvítingjar eru þekkt afbrigði hjá vatnafiskum en ná aldrei að mynda sérstaka stofna þar sem liturinn gerir fiskana að eftirsóttri og auðveldri bráð í náttúrunni. Þegar hvítingjarnir voru til umræðu hér í blaðinu í fyrra hafði fjöldi fólks samband við blaðið og lét vita um ýmis- legt hvítt í náttúrunni sem það hafði séð eða heyrt um. Hafði blaðið meðal annars spurnir af hvítum svartfuglum, æðarfuglum og fleiri fuglategundum, hvftum krækiberjum og hvítu blágresi svo eitthvað sé nefnt. Starfsmenn á Laxalóni með einn sprækan hvít- mgja. Morgunblaðið/KEE. sem fórst á Eiríksjökli, er Morgun- blaðið náði sambandi við hana á heimili hennar seint í gærkveldi. „Auðvitað langar mig til að sjá hann“ „Ég veit ekki núna hvort ég fer til íslands. Ég hef ekki ennþá get- að talað við manninn minn, en vonast til að geta gert það á morg- un og þá ákveð ég hvort ég fer eða ekki. Éf ég fer, þá fer ég á mánu- daginn, en það byggist á því hvað Michael segir þegar ég get talað við hann. Hann er með meðvitund og að sögn lækna er hann ekki í lífshættu. Ég á iitla dóttur og það er spurning hvort ég geri ekki meira gagn hér heima, þegar svona stendur á. Ég hef ekki trú á að Michael verði mjög lengi og vona að hægt verði að flytja hann hingað til Englands hið fyrsta. Auðvitað langar mig til að sjá hann sem fyrst, en það fer í raun eftir því hvað hann vill, þegar ég ræði við hann, hvort ég fer eða ekki,“ sagði Laraine Dukes. „Vil aldrei þurfa að lifa aðra eins nótt“ í gærkveldi hafði hún beðið eftir símtali við mann sinn, sem ekki gat af orðið. „Ég frétti að þeir væru fundnir kl. 6.30 í morgun. Þá var ekki hægt að segja meira en að þeir væru báðir lifandi og með meðvitund og að annar þeirra væri meira slasaður en hinn. Við urðum að bíða til 10.30 til að fá vitneskju um hvor væri hvor. Ég frétti ekki um slysið fyrr en kl. 8 á fimmtudagskvöldið, því ég hafði verið með börnin hjá móður minni og enginn vissi hvar hægt væri að ná í mig. Ég vil aldrei þurfa að lifa aðra eins nótt og þessa, þar til fréttirnar bárust um að þeir væru lifandi. Ég hef alltaf treyst á kunnáttu Michaels sem flugmanns. Hann er góður og öruggur flugmaður, um það ber öllum saman. Hann teflir ekki á tvær hættur og gerir ekkert sem getur ógnað öryggi hans og annarra. Núna hefur eitthvað far- ið úrskeiðis, sem ég kann ekki enn neina skýringu á. Slysin gera ekki boð á undan sér,“ sagði hún. „Tíu af tíu mögulegum“ „Hann hefur alltaf langað til að gera þetta,“ sagði hún um ástæðu farar þeirra félaga hingað til lands. „Hann vildi fara og sjá Grímsey og miðnætursólina. Það var einhver sem kveikti í honum með því að segja að þetta væri nokkuð sem hann yrði að sjá. Skil- yrðin voru góð til fararinnar, því þó ég sé þessu ekki mjög kunnug held ég að júní/júlí séu bestu mánuðirnir til að fljúga til fs- lands. Ég veit að það er mjög vel hugs- að um hann á íslandi. Læknisað- stoð er fysta flokks og það hefur allt verið gert fyrir þá, sem í mannlegu valdi er, eftir að þeir komu á spítalann, og ég efast ekki um að það var gert allt frá fyrstu stundu, er vitað var að vélin var týnd og leit hófst, enda tókst björgunin vel. Þið fáið því hvað mig snertir, tíu af tíu mögulegum. En mestu skiptir að þetta fór vel. Allt er gott, sem endar vel,“ sagði Laraine Dukes að lokum. Sjá mcðal annars í miðopnu viðtöl við fijð- ur Francis Sikura og móður Laraine Dukes.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.