Morgunblaðið - 24.06.1984, Side 1
142. tbl. 71. árg.
Hvalveiðikvótinn
40%minni 1985
Buenos Aires, 23. júní. AP.
Alþjóðahvalveiðiráðið ákvað á fundi sínum, sem lauk í höfuðborg
Argentínu í gærkvöldi, að draga verulega úr hvalveiðum á næsta ári,
og var niðurstöðum fundarins fagnað mjög af náttúruverndar-
mönnum og Greenpeace-samtökunum.
Ákvörðun ráðsins að minnka
veiðar á öllum hvaltegundum úr
9.600 dýrum á þessu ári í rúm
6.000 dýr á því næsta, eða um
40%, kemur fyrst og fremst illa
við Sovétmenn og Japani.
Ráðið samþykkti með 22 at-
kvæðum gegn sjö, auk þess sem
sjö þjóðir sátu hjá, að leyfa veið-
ar á 4.224 hrefnum í suðurhöf-
um á næsta ári, miðað við 6.655
í ár. Það eru einkum Japanir og
Sovétmenn sem stundað hafa
hrefnuveiðar i suðurhöfum, við
suðurskautið.
Sú ákvörðun ráðsins að banna
allar búrhvelaveiðar á næsta ári
er einnig áfall fyrir Japani, sem
veitt hafa um 400 dýr árlega.
Árið 1982 ákvað Alþjóða-
hvalveiðiráðið að banna hval-
veiðar frá og með 1986. Þrjár
helztu hvalveiðiþjóðir heims,
Sovétmenn, Japanir, og Norð-
menn, hafa mótmælt banninu
og eru því ekki bundnir af því,
en eru hins vegar undir miklum
þrýstingi annarra ríkja, þ.á m.
Bandaríkjanna, og náttúr-
verndarsamtaka, að hætta veið-
um.
Norðmenn unnu smásigur á
fundinum er nægur stuðningur
reyndist ekki fyrir hendi við til-
lögu um minnkun hrefnuveiða
við Noreg, og er kvóti næsta árs
því óbreyttur frá því sem nú er,
eða 635 dýr.
Líbanon:
Urslitafundur um
nýja herskipan
Bikfaya, 23. jlíní. AP.
VIÐ BAKRADDIR drynjandi
byssukjafta og sprengjuhvella
kom þjóðstjórnin saman til úr-
slitafundar um öryggisráðstafan-
ir til að binda endi á níu ára
borgarastríð í Líbanon.
Bardagar brutust skyndilega
út í Beirút snemma í morgun og
stóðu linnulaust í fimm stundir.
Vopnaskakið fjaraði út skömmu
eftir að fundur stjórnarinnar
hófst. Einn maður týndi lífi
a.m.k. og 45 særðust, þ.á m. þrír
hermenn og þrír lögreglumenn.
Búist var við að stjórnin
kynnti yfirgripsmikla öryggis-
áætlun fyrir Beirút og næsta
nágrenni að loknum fundinum.
Einnig að skipaður yrði nýr yf-
irmaður hersins í stað Ibrahim
Tannous hershöfðingja.
Málamiðlunartillaga um nýja
skipan yfirstjórnar hersins ger-
ir ráð fyrir stofnun sex manna
herráðs, sem í sitji foringjar úr
röðum helztu fylkingar líbönsku
þjóðarinnar. Ráðið stýri síðan
m.a. viðreisn hersins, sem klofn-
að hefur í borgarastríðinu.
Gandhi baðst
fyrir í Gullna
musterinu
Nýja Delhí. 23. júní. AP.
INDIRA Gandhi, forsætisráð-
herra Indlands, kom í dag f
Gullna musterið í Amritsar í
Punjab-fylki, mesta helgistað
síkha í landinu, til að biðjast
fyrir og dvaldi þar í um hálfa
klukkustund.
Frú Gandhi hefur sætt ámæli
stjórnarandstæðinga fyrir að
heimsækja ekki musterið, en
fyrir nokkrum dögum var það
vettvangur bhóðugra bardaga
öfgasinna af trúflokki síkha og
stjórnarhermanna.
Á föstudag setti Indira
Gandhi lög, sem heimila að
handtaka hryðjuverkamenn í
Punjab-fylki án þess að leiða þá
fyrir dómstóla í allt að tvö ár.
Síkhar í Punjab krefjast auk-
Indira Gandhi, forsætisrádherra
Indlands.
inna réttinda, trúarlegra og
stjórnmálalegra, og hafa að
undanförnu gripið til vopna til
að árétta þær kröfur.
88 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Launráð öfgasinnaðra hægrimanna í E1 Salvador:
Myrða átti banda-
ríska sendiherrann
Wa.shington, 23. júní. AP.
BANDARÍSKA leyniþjónustan
fékk veður af því í síðasta mán-
uði, að öfgasinnaðir hægri
menn í El Salvador hefðu í
hyggju, að ráða Thomas Picker-
ing, sendiherra Bandaríkjanna í
landinu, af dögum, og var því
háttsettur stjórnarerindreki,
Vernon Walters að nafni, send-
ur til viðræðna við Roberto
d’Aubuisson leiðtoga hægri
manna þar, í því skyni að af-
stýra tilræðinu. Fundur þeirra
átti sér stað 18. maí. Þetta er
haft eftir ónafngreindum
bandarískum embættismanni í
dag.
Heimildarmaður AP sagði að
mennirnir, sem grunaðir eru um
ráðabruggið, væru félagar í
Arena-flokknum, sem d’Aubuis-
son er í forystu fyrir, en hann
kvaðst ekki vita hvort d’Aubuis-
son hafi í raun staðið í tengslum
við þá, þótt grunur léki á því.
Roberto d’Aubuisson bauð sig
fram í forsetakosningunum í E1
Salvador í mars og maí sl., en
tapaði fyrir Jose Napoleon Du-
arte, frambjóðanda kristilegra
demókrata, sem nú er forseti
landsins. D’Aubuisson og sam-
herjar hans hafa sakað banda-
rísku Ieyniþjónustuna um að
hafa stutt framboð Duartes og
segja, að sá stuðningur hafi ráð-
ið miklu um úrslit kosninganna.
Ætlunin var að hefna þessa
stuðnings með því að ryðja
bandaríska sendiherranum úr
vegi, en afskipti Walters komu í
veg fyrir það.
Frú Strauss
lést í bílslysi
Munchen, 23. júní. AP.
MARIANNE Strauss, eigin-
kona Franz-Josefs Strauss,
hins kunna stjórnmálaforingja
í Bæjaralandi í Vestur-Þýska-
landi, lést í bílslysi í nágrenni
Múnchen aðfaranótt laugar-
dags. Hún var 54 ára að aldri
og þau höfðu verið gift í 27 ár.