Morgunblaðið - 24.06.1984, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 1984
Flugleiðir:
9,5 % farþegaaukning
frá sama tíma 1983
FARÞEGAAUKNING í áætlunar-
flugi Flugleiða frá sl. áramótum
fram til 16. júní sl. nemur 9,5%, sem
eru 21.230 farþegar, en alls hefur
félagið flutt 299.000 farþega það
sem af er þessu ári. Að sögn Sigfús-
ar Erlingssonar, yfírmanns mark-
aðssviðs Flugleiða, er aukning í Atl-
antshafsfluginu tæp 18% eða 13.900
farþegar, í Evrópuflugi félagsins er
aukningin 11,4%, eða 6.340 farþeg-
ar, en í innanlandsflugi er aukningin
um 1 %. Kvaðst Sigfús telja þá aukn-
ingu vera vegna aukins fjölda er-
lendra ferðamanna hér, en ekki
vegna aukinna ferðalaga íslendinga
innanlands.
Sigfús sagði útlit fyrir næstu
mánuði vera gott, hvað bókanir
varðaði, aukning væri í bókunum
á Evrópuflugið og í Norður-
Atlantshafsflugið væri nokkuð vel
bókað bæði það sem eftir er júní-
mánaðar og í júli. Á Evrópuleiðum
félagsins er mest aukning í flugi
til Kaupmannahafnar og ösló, um
25% frá sama tíma 1983 og hefur
aukaferðum verið bætt inn í áætl-
unarflug á þessa staði. Sigfús
sagði að bókanir til Lundúna væru
svipaðar og í fyrra, þó að ekki
hefði orðið sú aukning þar á, sem
fyrri mánuðir þessa árs gáfu til-
efni til að ætla.
Engin hreyfing á skreiöarsölunni:
Erum farnir að
ókyrrast verulega
— segir Ólafur Björnsson, stjórnarformaður
„VIÐ BÍDIJM enn og erum farnir að
ókyrrast verulega. Birgðirnar hér
heima eru að sliga menn,“ sagði
Ólafur Björnsson, stjórnarformaður
Skreiðarsamlagsins, er Morgunblað-
ið innti hann eftir því hvernig gengi
að ná samningum um sölu á skreið
til Nígeríu.
ólafur sagði ennfremur, að
menn vonuðust til þess að málin
færu að skýras* og þegar fé yrði
veitt til frekari innflutnings mat-
væla til Nígeríu, kæmi væntan-
lega strax hreyfing á söluna að
nýju. Það litla, sem menn vissu
um gang mála þarna niður frá,
væri að leyfi hefðu fengizt til inn-
flutnings grjóna, matarolíu og
salts.
Viðburðarík
vika hjá
Berglindi
Johansen
Miami Beach, 22 júní.
FRÉTTARITARI ræddi í morgun
við Berglindi Johansen, fegurðar-
drottningu íslands, sem nú tekur
þátt í Miss Universe-keppninni,
hér í Miami. Það lá Ijómandi á
Berglindi og sagði hún að allt hefði
til þessa gengið að óskum, her-
bergisfélagi sinn væri Ungfrú Kan-
ada frá Toronto og fellur vel á með
þeim. Þær búa, eins og allar feg-
urðardrottningarnar, á glæsi-
legasta hóteli Miami, sem er Pa-
villon.
Berglind sagði að mjög
strangt eftirlit væri haft með
keppendum og færu þær hvergi
nema í fylgd gæslukvenna, en
þær sem allir aðrir starfsmenn
keppninnar væru mjög almenni-
legar og hjálpsamar. Vikan sem
liðin er frá því að keppendur
komu hingað hefur verið þeim
viðburðarrík og skemmtileg.
Þær eru búnar að sjá allt mögu-
legt, hafa farið á ströndina og í
sædýrasafnið, að ógleymdum
nýja dýragarðinum, þar sem
Berglind brá sér í ferð á baki
fíls. En hvar sem þær fara eru
myndavélar og kvikmyndavélar
stöðugt í gangi.
Berglind sagðist njóta ævin-
týrisins í ríku mæli og bað að
lokum fyrir bestu kveðjur til
allra heima. ,, c p
Sökk
með reisn
Sjómælingabáturinn Týr
lauk þjónustu sinni fyrir
skömmu. Varðskipsmenn
drógu hann á sjó út, settu í
hann sprengju, sem sprengdi
gat á botninn og ballestar-
tankann. „Hann sökk með
reisn," sagði Helgi Hall-
varðsson skipherra, sem tók
meðfylgjandi myndír.
Klak-, eldis- og hafbeitarstöðvamar orðnar 45:
Nokkur aukning á fram-
leiðslu fyrirsjáanleg
Fiskeldisstöðvarnar framleiddu á
síðastliðnu ári 710 þúsund göngu-
seiði, 52 tonn af eldislaxi og 36 tonn
af hafbeitarlaxi, samkvæmt áætluð-
um tölum sem Morgunblaðið fékk
hjá Veiðimálastofnun. Ekki liggur
fyrir hvað framleiðslan verður mikil
á árinu 1984 en einhver aukning
verður í framleiðslu gönguseiða. Vit-
að er um mikla aukningu 1 fram-
leiðslu á eldislaxi en mikil óvissa er
enn með hvað skilar sér af hafbeit-
arlaxi.
Stærstu framleiðendur göngu-
seiða í fyrra voru Pólarlax í
Straumsvík með 160 þúsund seiði,
Laxalón í Reykjavík með 150 þús-
und seiði og Laxeldisstöð ríkisins i
Kollafirði og Norðurlax á Laxa-
mýri með 120 þúsund seiði hvor
stöð. ísno í Lónum framleiddi 26
tonn af eldislaxi i fyrra, Sjóeldi i
Höfnum framleiddi 15 tonn og
Eldi í Grindavik 10 tonn. Laxeld-
isstöðin í Kollafirði framleiddi
mest af hafbeitarlaxi í fyrra eða
15 tonn, Pólarlax 8 tonn, Hafbeit-
arstöðin á Lárósi 7 tonn en aðrar
stöðvar minna. Á landinu eru nú
taldar vera 45 klak-, eldis- og haf-
beitarstöðvar. Þar af eru um 10
stórar eldisstöðvar, 7 stöðvar eru
með hafbeit og 3 eru með sjóeldi.
Flugslysið á
Eiríksjökli:
Sendirinn
í rannsókn
Þátttaka íslenskra tónlistarmanna
í Eurovision yrdi gód landkynning
— segir Markús Örn Antonsson, formaöur útvarpsráðs, nú er unnið að
úttekt á kostnaði við hugsanlega þátttöku íslands í keppninni
„ÞÁTTTAKA íslands í Eurovis-
ion-söngvakeppninni hefur oft
komið til umræóu á undanförnum
árum og þá í kjölfar keppninnar
hverju sinni, en hindranir verið
þar á, svo sem kostnaðarhliðin og
vitaskuld það að við höfum ekki
haft tæknilega aðstöðu til hugsan-
legrar úLsendingar héðan, færi svo
að íslendingar ynnu keppnina,"
sagði Markús Örn Antonson, for-
maður útvarpsráðs, aðspurður um
hugsanlega þátttöku íslands 1
keppninni. „En eftir síðustu
söngvakeppni var útvarpsráð al-
mennt á þeirri skoðun að íhuga
alvarlega þátttöku íslands í keppn-
inni. Hún er haldin á vegum Evr-
ópusambands útvarpsstöðva, sem
Ríkisútvarpið á aðild að og sam-
bandsstjórninni hefur verið skýrt
frá áhuga íslendinga á hugsanlegri
þátttöku.
„Nú er unnið að ítarlegri út-
tekt á hugsanlegri þátttöku
okkar, bæði hvað varðar kostnað
við að senda fulltrúa íslands
utan og við hugsanlegt keppnis-
hald hér á landi. Uttektin er
gerð í framhaldi af viðræðum
sem við Hinrik Bjarnason, yfir-
maður lista- og skemmtideildar
sjónvarpsins, áttum í vetur við
nokkra áhugasama tónlistar-
menn. í úttektinni er byggt á
upplýsingum Evrópusambands-
ins og þeirra stöðva sem hafa
haldið keppnina á undanförnum
árum.
Ég hef heyrt því fleygt að
kostnaður við að halda síðustu
keppni, sem var í Luxemborg,
hafi verið um 15 milljónir ís-
lenskra króna og hafi sú upphæð
verið allt að helmingi lægri en
við næstu keppni þar á undan,
þar sem tölvuvert var dregið úr
umfangi keppninnar, sem mörg-
um var víst farið að blöskra."
Markús örn sagði það sjón-
armið sitt og fleiri útvarpsráðs-
manna, að það ætti að vera ís-
lendingum nokkuð metnaðarmál
að taka þátt i þessari keppni, þar
sem við vildum telja okkur á
meðal Evrópuþjóða og værum
aðilar að sjónvarpsamstarfi
þeirra í milli. Hann sagðist ekki
efast um að þátttaka islenskra
hljómlistarmanna I keppninni
yrði góð landkynning fyrir ís-
land. Hann sagðist að lokum
vænta þess að niðurstöður út-
tektarinnar lægju fyrir hið
fyrsta, enda yrði að tilkynna
þátttöku í næstu keppni á kom-
andi hausti.
„ÞAÐ BENDIR allt til þess, að
sendirinn sem BreUrnir höfðu með
sér í fíugvélinni hafi bilað. Hann er
nú í okkar höndum og við munum
rannsaka hann og reyna að fínna
hvað fór úrskeiðis," sagði Skúli Jón
Sigurðarson, deildarstjóri 1 Loft-
ferðaeftirlitinu, í samtali við Mbl. í
gær.
Skúli Jón sagði Loftferðaeftir-
litið hafa bannað senda af þessari
tegund i gúmbátum í islenzkum
flugvélum í vetur, en Bretarnir
keyptu sendinn fyrir íslandsferð-
ina til að hafa í gúmbát vegna
flugsins yfir hafið til íslands. Ekki
er skylda að hafa sjálfvirka neyð-
arsenda í brezkum flugvélum.
Skúli Jón sagði, að það hefði
komið mjög flatt upp á Michael
Dukes, þegar hann sagði honum
að ekkert hefði heyrzt í sendinum,
því hann hefði talið sig hafa sett
hann f gang eftir að hafa komið
honum fyrir á mótornum. Sendar
af þessu tagi eru með borða og
segli utan um þegar borðinn er
rifinn af, á sendirinn að fara í
gang. „Þetta var allt hárrétt gert,
en sendirinn fór bara ekki í gang,“
sagði Skúli Jón.