Morgunblaðið - 24.06.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 1984
5
Sjónvarp mánudag kl. 21.15:
Rússlands-
ferðin
Það er ekki oft sem mælskulistin
er á dagskrá sjónvarpsins. Úr því
verður bætt, að nokkru leyti, á
mánudaginn kl. 21.15 þegar sýnd
verður klukkustundarlöng banda-
rísk heimildamynd um for þriggja
amerískra ungmenna til Sovétríkj-
anna, þar sem þau háðu kappræður
við sovéska jafnaldra sína.
Við komuna þangað komust þau
að raun um að skoðanir viðmæl-
enda voru ærið ólíkar á ágæti
stjórnarfars í heiminum. Þegar
Amerikanarnir vildu fá viðhlít-
andi svör um mannréttindi, kúgun
sértrúarsöfnuða, innrásina í Afg-
anistan og yfirgang við pólskt
verkafólk, spurðu rússnesku stúd-
entarnir um atvinnuleysi í Banda-
ríkjunum, ólæsi, kynþáttamisrétti
og ógnun vígbúnaðar.
Kappræður af þessu tagi eru á
vegum bandarísks mælskufélags
en sovéska stúdentaráðið sá um
andmælendur. Þær hafa verið
haldnar árlega síðastliðin ellefu
ár.
Framleiðandi myndarinnar
Wayne Ewing telur að áhorfendur
fái einstaka innsýn í hugi sovésks
almennings og viðbrögð hans við
því hvað Vesturlandabúar telja
satt og rétt.
íslenskur þýðandi er Árni
Bergmann.
-(
Frá Moskvu.
Rás eitt kl. 9.05:
Danska skiMkonan Cecil Bödker.
Jerútti
heimsækir
Hunda-Hans
Morgunstund barnanna er á
dagskrá rásar eitt kl. 9.05. Stein-
unn Bjarman byrjar lestur sög-
unnar „Jerútti heimsækir
Hunda-Hans“. þetta er fjórða bók-
in í þessum flokki og fjallar um
tvo krakka. Þau búa i Kaup-
mannahöfn, en síðan ákveður fað-
ir þeirra að kaupa eyðibýli á Jót-
landi. Þangað flytur öll fjölskyld-
an og börnin kynnast búálfinum á
bænum.
Sagan er eftir dönsku skáldkon-
una Cecil Bödker. Hún er frekar
þekkt sem ljóðskáld, en hún hefur
einnig samið margar barnasögur,
og bók hennar „Evas ecko“ kom til
álita við verðlaun Norðurlanda-
ráðs.
Sagan um Jerútta og Hunda-
Hans er sú fjórða sem Steinunn
Bjarman þýðir og flytur í útvarp-
ið. Fyrri bækurnar voru allar í
sama flokki.
Sjónvarp kl. 21.35:
Phyllis og Rick á alvarlegu augnabliki.
Dularfull kynni
Þriðji þátturinn í framhaldsflokknum „Sögur frá
S-Afríku“, eftir smásögum Nadine Gordimer, verður
á dagskrá sjónvarpsins í kvöld. Hann fjallar um
miðaldra ekkju, Phyllis, sem vinnur á bensínstöð í
fínni hverfum Jóhannesarborgar. Þótt hún sé ein-
manna og fátæk getur hún ekki hugsað sér að virða
svarta samverkamenn sína sem jafningja og vini.
Phyllis kynnist ungum manni sem fljótlega flytur
inn til hennar. En hann hegðar sér á marga vísu
undarlega og þegar fram líða stundir vekur það ugg
konunnar.
Aðalhlutverk leika Trix Pienaar, Dannay Keogh,
Sam Williams. Leikstjóri er Lynton Stephenson en
Óskar Ingimarsson íslenskaði.
Jyk&í
1201
Á sama tíma og hópferðirnar til Rimini, Sumarhúsa í Danmörku, Sæluhúsa i Hollandi, Dubrovnik,
Grikklands og víðar eru nær allar uppseldar bryddum við upp á nýjum og stórglæsilegum
ferðatilboðum. Og nú er um að gera að grípa gæsina meðan hún gefst - hér kynnum við
y ferðamöguleika sem eiga fáa sína líka.
Beint flug með Flugleiðum
PARIS
flug og bíll frá kr. 9.870
Já, ótrúlegt en satt - við bjóðum beint flug til Parisar og
bilaleigubí I í eina, tvær eða þrjár vikur á þessu stórglæsilega
verði, frá kr. 9.870, miðað við fjóra farþega í eina viku á
bílaleigubíl I A-flokki.
Og nú er auðvelt að fylgjast með úrslitunum I
Evrópukeppni landsliða í beinum útsendingum. Hver veit
nema þú fáir að upplifa og taka þátt í margra daga sigurvimu
Frakka - það yrði áreiðanlega ógleymanleg Iffsreynsla.
Brottfarardagar:
Júnf: 30.
Júlf: 7., 14.
Inniiallð i verði: Flug, bilaleigubíll, tryggingar og
söluskattur. Móguleiki er á að taka bílinn f París, skila honum
f Luxemborg og fljúga þaðan heim.
Allar nánari upplýsingar um mismunandi verð eftir
tegundum bíla og lengd feröa eru veíttar á skhfstofunni.
Vinsamlegast athugið að aðeins fá sæti eru til ráðstðfunar
á ofangreindum brottfarardðgum.
Sólarrútan
9. til 30. júlí
I þessari ævintýraferð til Italiu sameinum við fróðlega og
bráðskemmtilega rútuferð með góðum ferðafélðgum - og 10
daga afslöppun i sólinni á eftir.
Ferðatilhögun:
9. júlí: Flogið til Rimini og dvalið þar i góðu yfiriæti í tvo
11. júlf: Ekið suöur hina stórbrotnu Adriahafsströnd italíu
til fallegs fiskimannabæjar, Silvia Marína, og dvalið þar um
nóttina.
12. júli: Haldið upp fjöllin og komið niður i Sorrento við
Napóliflóann. Þaðan er örstutt til nokkurra nafntoguðustu
staða Ítalíu - eyjunnar Capri, Pompey, Vesúvíusar og til
stórborgarinnar Napólí. I Sorrento er dvalið í 4 daga.
16. júli: Ekið til Rómar, borgarínnar eilífu, þar dvalið f 3
daga, og það sem hún hefur upp á að bjóða kannað.
19. júll: Ekið aftur til Rimini og nú er slakað á við fyrsta
flokks aðstæður f 10 sólríka daga, áður en haldið er aftur
heim.
30. júK: Heimför.
Ávallt er gist á fyrsta flokks hótelum með morgunverði.
Fararstjóri: Svavar Lárusson.
Verð kr. 31.500 á mann i tveggja manna heibergi.
Knattspymuférð
Stuttgart* Anderlecht orcinc I
Feyenoord * Man. Utd. Cll oll lo !
á stórmóti í Rotterdam *
Síðustu sæti sumarsins:
Grlkkland
26. júní - 2 sæti laus
3. júlí - 4 sæti laus
17. júli - 3 sæti laus
24. júlí - 4 sæti laus
18. sept. - 6 sæti laus
25. sept. - 6 sæti laus
Asgeir
Sigurvinsson,
Stuttgart
Jesper Olsen,
Man. Utd.
Það verður meiriháttar knattspyrnuveisla í Rotterdam í
Hollandi helgina 17.-21. ágúst, með þátttöku fjögurra
stærstu liða Evrópu og margra snjöllustu knattspymumanna
heims.
Flogið er til Amsterdam og gist þar allar nætumar á góðu
hóteli, vel staðsettu gagnvart llflegu næturlifinu. Ekið er til
Rotterdam á leikina (um 1 klst. akstur).
Verð aðeins 11.600.-
Innifalið: Rug, gisting með morgunverði, flutningur á leiki,
miðar á leiki.
Sæfuhús í Hollandi
24. ágúst - laus sæti
31. ágúst - laus sæti
september - laus sæti
Rimini
9. júli - örfá sæti laus
19. júlí - 6 sæti laus
30. júlí - 2 sæti laus
30. ágúst - laus sæti
Oubrovnik
örfá aukasæti eru ennþá laus I nokkrar ferðir.
Danmörk
Sumarhúsin öll uppseld en nokkur sæti laus I flug og bil f
sumar.
Sovétríkin
17. ágúst - 6 sæti laus
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 A 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 1« - SÍMAR 21400 * 23727