Morgunblaðið - 08.07.1984, Side 1
80 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
154. tbl. 71. árg._____________________________________SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1984________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ríki við
Persaflóa
ræða her-
samvinnu
Manama, Bahrain, 7. júlí. AP.
Hermálafulltrúar samstarfsráðs
ríkja við Persaflóa (CCC) komu sam-
an til vidræðna í dag til að taka sam-
eiginlega afstöðu gagnvart árásum
írana á flutningaskip á alþjóðasigl-
ingaleiðum.
Er markmið fundarins að
freista þess að gera samræmda
heráætlun verði ráðist á eitthvert
ríkjanna við Persaflóann að sögn
saudi-arabísks embættismanns. 1
hinu róttæka dagblaði Al-Rai
A-am er gengið enn lengra og full-
yrt að þau 6 ríki sem eiga aðild að
samstarfsráðinu eigi þess engan
annan kost en verjast ásókn írana.
Bélivía:
Verkfallið
framlengt
U Paz, Bólivíu, 7. júlí. AP.
Verkalýðsleiðtogar ákváðu í dag
að framlengja allsherjarverkfallið
í Bólivíu fram yfir helgi.
Þó eru deiluaðiljar að vinna
að því að binda enda á verkfall-
ið, sem valdið hefur skorti á
brauði og bensíni. Óttast verka-
lýðsleiðtogar að dragist verk-
fallið á langinn gæti það leitt til
þess að herinn taki völdin í sín-
ar hendur í landinu.
Atvinnumálaráðherrra Bóli-
víu sagði í dag að samkomulag
hefði náðst um mörg veigamikil
atriði og því vonaðist stjórnin
til að verkalýðsfélögin aflýstu
verkfallinu. Talsmaður verka-
lýðsfélaganna sagði hins vegar
að það yrði ekki gert fyrr en
samið hefði verið um launa-
hækkun og -bætur, enda væri
verðbólgan nú 760%.
Samsæri
í Panama
l'anamaborg, 7. júlí. AP.
MANUEL Antonio Noriega hers-
höfðingi, sem er yfirmaður heraflans
í Panama og er almennt álitinn
valdamesti maður landsins, staðfesti
í gær, að orðrómur, sem verið hefur
á kreiki um að reynt hafi verið að
steypa honum af stóli, væri á rökum
reistur.
Noriega hitti blaðamenn að
máli á flugvellinum í Panamaborg
er hann sneri heim eftir tveggja
vikna ferðalag til Evrópu og Isra-
els. Hann sakaði Julian Melo
Borbua ofursta og einn af æðstu
mönnum hersins í landinu um að
hafa skipulagt valdaránið og kvað
það hafa misheppnast vegna þess
að aðrir yfirmenn í hernum hefðu
reynst sér trúir.
Melo var handtekinn 1. júlí sl.
og sakaður um að hafa lagt á ráð
um glæpsamlegt atferli. Hann
hefur nú verið látinn laus gegn
tryggingu, en rannsókn fer fram á
ákærunum gegn honum.
Harðorð ummæli breskra blaða f kjölfar Dikko-málsins:
Réttindi erlendra sendi-
fulltrúa verði endurskoðuð
London, 7. júlf. AP.
STJÓRNVÖLD í Nígeríu segjast
munu heimila 22 manna áhöfn
bresku farþegaþotunnar, sem
kyrrsett var í Lagos í gær, að fljúga
henni úr landi þegar Bretar hafa
látið áhöfn nígerískrar flugvélar,
sem kyrrsett hefur verið á
Stanstead-flugvelli í London, lausa.
og leyft henni að fljúga með vélina
heim.
Lögreglan í London handtók
áhöfn nígerísku vélarinnar vegna
þess að talið er að einhverjir í
hópnum séu viðriðnir misheppn-
að rán á Umaru Dikko, fyrrum
samgönguráðherra Nígeríu.
Reynt var að smygla honum
meðvitundarlausum úr landi í
gámi sem merktur var sendiráði
Nígeríu í London, en tollverðir
opnuðu gáminn þar sem honum
fylgdu ekki nauðsynleg skjöl.
Dikko er einn höfuðandstæð-
inga núverandi herforingja-
Mondale ræðir
við þriðju konuna
Wa.shington, 7. júlí. AP.
WALTHER Mondale, sem keppir að útnefningu sem forsetaefni demó-
krata, ræddi í gær við ríkisstjórann í Kentucky, Mörtu Layne Collins, en
hún þykir koma til greina sem varaforsetaefni hans.
Eftir fundinn sagði Mondale
að þau Marta hefðu einkum rætt
um innanríkismál s.s. mennta-
mál. Hrósaði Mondale henni og
kvað hana dæmi um mikilhæfan
leiðtoga. Marta, sem kjörin var
ríkisstjóri í Kentucky í fyrra, er
fyrsta konan sem gegnir því
embætti þar.
Hún er þriðja konan, sem
kemur til greina sem varafor-
setaefni Mondales, en hann hef-
ur alls átt viðræður við 7 stjórn-
málamenn um þetta mál.
Gary Hart gagnrýndi Mondale
í dag fyrir að hafa of hátt um
þær viðræður sem hann hefur
átt við hugsanleg varaforseta-
efni. „Vaninn er sá að halda
þeim leyndum," sagði Hart.
Hann sagði ennfremur að þótt
hann sæktist ekki eftir að verða
varaforsetaefni demókrata væri
„ákaflega erfitt" að neita því
boði.
Martha Layne Collins.
stjórnar í Nígeríu, sem rændi
völdum um síðustu áramót, og
eftirlýstur í heimalandi sínu, þar
sem hann er sakaður um spill-
ingu. Stjórnvöld í Nígeríu neita
því hins vegar að þau hafi staðið
á bak við mannránið.
Auk áhafnar nígerísku vélar-
innar voru nokkrir einstaklingar
af öðru þjóðerni, þ.á m. þrír
Bretar og einn ísraelsmaður,
handteknir í London í gær vegna
rannsóknar málsins. Press
Association í London hefur eftir
áreiðanlegum heimildum að
þrautþjálfaðir málaliðar frá
lsrael hafi verið ráðnir til að
standa að ráninu á Dikko og hafi
þrír fsraelsmenn gætt gámsins,
sem Dikko var hafður í haldi í.
Mikil reiði er ríkjandi í Bret-
landi vegna Dikko-málsins og í
leiðurum dagblaðanna þar í
morgun eru stjórnvöld í Nígeríu
harðlega fordæmd. Telja blöðin
að taka þurfi reglur um réttindi
erlendra sendiráðsmanna til
gagngerar endurskoðunar og
rifja í því sambandi upp atburð-
ina við sendiráð Líbýu 17. apríl
sl., er þarlendur sendiráðsmaður
skaut breska lögreglukonu til
bana en fékk að fara óáreittur úr
landi.