Morgunblaðið - 08.07.1984, Side 7

Morgunblaðið - 08.07.1984, Side 7
voor t ttYt p <jTrr> a .-ttyt/-*e~-r<o rrT/-» * MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1984 HUGVEKJA eftir séra Guðmund Óskar Ólafsson Það er sumarlegur textinn, sem guðspjallið leggur okkur til á þessum sunnudegi í júlí- byrjun, fjallar um sauðina eitt hundrað, og einn þeirra, sem týndist, en kom í leitirnar. Og Jesús segir að það hafi verið fagnað og glaðst þegar týndur var fundinn og eins muni gleði verða á himni yfir einum synd- ara er snúi sér og iðrist. Stundum hefur gert þannig hretviðri á íslandi á miðju sumri að lömbin sem ennþá voru á hálfgerðum brauðfótum þoldu ekki biturleikann sem allt í einu kom inn í sólskinið, sum þeirra heimti bóndinn aldrei af fjalli fyrir bragðið, öðrum var bjargað af kapp- sömum eigendum. Adam Smith skrifaði eitt sinn um hirðana í Júdeu á þessa leið: „Þú mætir þeim, þar sem þeir hallast fram á stafinn og horfa vökulum augum í kringum sig, þeir eru veðurbitnir og þreytu- legir, slitnir af vökum og lýj- andi umsjá hjarða sinna. Og maður skilur í vetfangi hversvegna þjóðin gaf konungi sínum hirðisnafn, tákn for- sjárinnar og maður skilur hversvegna Kristur notaði sjálfur nafnið, sem tákn sjálfsfórnarinnar. Jesú sagði þessa dæmisögu um týnda sauðinn, þegar farísearnir voru að hneykslast á því að hann borðaði mat sinn með svonefndum syndurum. Synd- arar voru að dómi farísea ein- skonar samfélagshópur, sem varast bar. Þeir héldu ekki lögmálið og í skiptum við þá giltu ákveðnar reglur: Treystu þeim aldrei fyrir fjármunum, gerðu aldrei samninga við þá, trúðu þeim ekki fyrir leynd- armáli og borðaðu ekki einu sinni í nánd við þá. Var það nema von að farísearnir sýndu fyrirlitningu sína, þegar Jesús gerði þetta fólk að borðfélög- um sínum. Það er ekki svo erf- itt að skilja þetta ástand, ef við setjum það í samband við aðferðir í ýmsum löndum, jafnvel á okkar tímum, þar sem fólki er mismunað eftir ákveðnu mynstri á grundvelli trúar eða pólitískra skoðana, að ekki sé talað um litarhátt- inn, sem löngum hefur skipt fólki í æðri og lægri hópa. Aft- ur á móti getur verið erfiðara að greina á sjálfum sér og sín- um eigin viðhorfum, þann lær- dóm, sem sagan flytur. Samt erum við áreiðanlega full af fordómum, dýrkum þau lögmál mörg hver, sem samfélagið setur okkur og hefur mótað okkur með og metum oft margt eftir því sem hið ytra segir til um, og skiljum okkur frá því sem særir augað eða áunnar kenndir. Farísearnir brugðust ókvæða við af því að lærisveinar Jesú þvoðu sér ekki um hendurnar fyrir mat- inn. Jesús kaliaði faríseana hræsnara fyrir bragðið. Vit- anlega var hann þá ekki að andmæla þvottinum sem slík- um, heldur því að gera þennan þátt í erfikenningunni að sálu- hjálparatriði. Að þvo sér og bursta tennurnar eru hvort tveggja þarflegar athafnir, en verra er þegar slíkt verður að mælistiku sem við leggjum á manneskjuna og gildi hennar frammi fyrir Guði og mönn- um. Það er ömurlegt, þegar við getum ekki litið á meðmann- eskju okkar bróðuraugum, get- um ekki borðað með henni, og átt samfélag við hana, nema hún brúki borðsiðina okkar og hátternið til hins ýtrasta. Handþvotturinn hjá gyðingum var ekki heilbriðgisathöfn, heldur flókið atferli til að ná hreinsun fyrir augliti Guðs, annars var hætta á að óhreini andinn Shibta skærist í leik- inn. Gætum við ekki heyrt Jesúm hrópa: Hlustið á mig. “Ekkert er það fyrir utan manninn, sem inn i hann fer er geti saurgað hann, heldur það sem út fer af manninum.“ Gagna- svæðið er veröld víð Stundum er sagt: Það er hugarfarið sem gildir. Snotur orð, en þó jafnframt hættuleg í og með. Það getur nefnilega enginn séð hugarfarið og það er stundum afar hentugt. Og þegar við förum að róta og grafa þarna innra í hugarfar- inu þá kennir margra grasa, þar eru óskir og hneigðir, frumskógur ólíkra kennda, elsku og fjandskapar, sjálf- girni og fórnfýsi og reynist harla erfitt að hafa stjórn á. En sem betur fer sagði Jesús aldrei, að allt væri undir þess- um flækjugróðri komið. Hreinn er sá einn að hans áliti, sem ekki er upptekinn við að þvo sínar eigin hendur og ytri háttu, heldur sá sem er upp- tekinn af meðmanneskju sinni. Hinar gjafmildu hendur eru þær einu, sem eru hreinar. Vilbeforce, sá maður, sem öðrum fremur er þakkað það að þrælahaldið var afnumið i Bretlandi, var eitt sinn spurð- ur hvort hann hefði bjargað sálu sinni. Þá svaraði hann: „Ég hef verið svo upptekinn við að reyna að bjarga öðrum að ég hafði nær gleymt að ég hefði sjálfur sál.“ Kannski minnir þetta á kunn orð helgr- ar bókar: „Hver sem vill bjarga lífi sínu mun týna því, en hver sem týnir lífi sínu mín vegna, hann mun finna það.“ Auðvitað viljum við ekki hafa á okkur óhreinindi frammi fyrir Drottni og víst er kristindómur hreinsunarlind- in. En flekkina má fjarlægja á tvennan veg: Það má láta þá hverfa í þvotti og það má einn- ig púðra og mála yfir þá. Þegar Jesús situr til borðs með synd- urum þá er hann ekki að horfa á fingurna á þeim til að gá hvort þeir hafi fylgt siðunum eða séu með sorgarrendur, heldur horfir hann beint inn í hjörtu þeirra og sér þá eins og vanbúin lömb rásandi og óviðbúin að taka við hregginu í vorharðindum. Og hann segir: Vertu ekki hrædd litla hjörð því að föður yðar hefur þóknast að gefa yð- ur ríkið. Og hann horfir á þá, sem taka við orði hans, trúa honum og treysta, börnin sem eiga þá einu sönnu iðrun, sem einhvers virði er, að úthella hjarta sínu fyrir honum og vænta kærleika hans. Og hann lítur af þeim, óhreinum og syndugum flokki og til hinna, sem höfðu hengt von sína á mannasetningar og ytri reglur: „Ég segi yður, það mun verða meiri gleði á himnum yfir ein- um syndara, sem gjörir iðrun, heldur en yfir 99 réttlátum, sem ekki þurfa iðrunar við.“ Mættum við ekki út frá þessum lærdómi sem sagan um frávillta sauðinn flytur, vænta þess og vona, að krist- indómurinn okkar hvorki sé né verði hin púðraða tegundin, þar sem yfirborðið kannski gljáir en mismununin og hrok- inn býr undir. Það var nefni- lega um slíka guðrækni sem Jesús hafði hin hörðu orðin um varaheiðrun og hjartaharðúð. Á okkar tímaskeiði, sem kallað hefur verið öld óviss- unnar, þá er þess ekki að vænta að Guð gefi okkur neinn kristilegan einkennisbúning, sem frágreini okkur með sér- stökum dýrmætum frá þeim sem eiga þann búning ekki skilinn. Hið eina einkennis- tákn sem Guð getur merkt á sínu týnda barni til að finna það, er ákall frá hjartanu til hans. Við erum svo misjöfn að skoðunum og gerð á flestan veg að reglur á þessu sviði eða hinu geta aldrei sameinað okkur í einhvern útvalinn hóp. Hið eina sem sameinar er elska Guðs, sem úthellt er í hjörtun, sem hann leitar sinna týndu barna. Og kærleiki hans er ætið opnir armar og ávextir þess ættu að vera að þínir armar verði einnig þannig í lífinu. Og ef þú lokar örmum þínum utan um þennan kær- leika aðeins til að njóta hans, í stað þess að gefa, þá muntu finna að þú heldur aðeins utan um sjálfan þig og ert týndur á ný og Guði fjarlægur. En hvort sem við erum þvegin eða óþvegin að heimsins áliti, þá er eitt víst í veröld óvissunnar að Guð leitar þín, því hann hefur mælt: „Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn hefur auðsýnt oss að vér skulum kallast Guðs börn og það erum vér.“ „Ég er kom- inn til að leita að hinu týnda og frelsa það.“ )>MIDSTOÐ ÆWm VERÐBRÉFA- VIÐSKIPTANNA VILTU AUKA * TEKJUR ÞÍNAR UM 34%, 44%, 72%? HVERNIG ER ÞETTA HÆGT? Hið opinbera lítur silfrið mismunandi augum. — Þannig greiðir þú tekjuskatt af launum þínum — en ekki af vaxtatekjum. AÐFERÐ TIL TEKJUAUKNINGAR: FJÁRLOSUN Minnka fjárbindingu neyslufjárfest- / \ ingum og setja í sparifjár- festingu. 4, 1 milljón Fé til sparifjárfestinga er því samtals. Vz milljón = IV2 millión Ef ofangreind fjárupphæð er ávöxtuð t.d. í verð- tryggðum veðskuldabréfum sem gefa í dag um 12% raunvexti á ári, gæti dæmið litið þannig út: ♦ Skattskyld laun Hjón&2börn Nettó laun eftirskatta Hækkun tekna v/span fjárfestinga Hækkun tekna % 750.000 536.500 180.000 34% 500.000 404.800 180 000 44% 250.000 250.000 180 000 72% OG - ÞAÐ SEM MEIRA ER: Þessar tekjur eru skattfrjálsar og verðtryggðar, en það er ekki sjálfgefið með launatekjur í dagv SÖLUGENGIVERÐBRÉFA 9. júlí 1984 Sparískírteini 09 happdrættislán ríkissjóðt Ar-flokkur Sölugengi pr. kr. 100 1970-2 17.415,64 1971-1 15.879,46 1972-1 14.392,37 1972-2 11.582,91 1973-1 8.704,35 1973-2 8.430,04 1974-1 5.440,14 1975-1 4.275,18 1975-2 3.191,66 1976-1 2.944,79 1976-2 2.389,22 1977-1 2.122,16 1977-2 1.818,92 1978-1 1.438,89 1978-2 1.162,02 1979-1 978,69 1979-2 754,88 1980-1 651,07 1980-2 499,93 1981-1 427,37 1981-2 314,51 1982-1 299,68 1982-2 221,43 1983-1 170,37 1983-2 110,54 1974-D 5,319,50 1974-E 3.796,59 1974-F 3.796,59 1975-G 2.427,33 1976-H 2.236,94 1976-1 1.702,53 1977-J 1.519,64 1981-1. fl 329,28 Avöxlun-1 Dagafjöldi arkrafa | til innl.d. Innlv. í Seölab. 5.02.84 5,80% 5,80% 5,80% 5,80% 5,80% 5,80% 5,80% 5,80% 5,80% 5,80% 1 ár 1 ár 2 ár 3 ár 3 ár 4 ár 66 d. 196 d. 66 d. 66 d. 196 d. 66 d. 181 d. 196 d. 241 d. 196 d. Innlv. í Seölab. 25.03.84 5,80% 61 d. Innlv. í Seölab. 25.03.84 5,80% 5,80% 5,80% 5,80% 5,80% 5,80% 5,80% 5,80% 5,80% 5,80% 5,80% Innlv. i £ 8,00% 8,00% 8,00% 8,00% 8,00% 8,00% 8,00% 61 d. 226 d. 66 d. Veðskuldabréf — verðtryggð Sölugengi m.v. 2 afb. á ári Nafnvextir (HLV) Avöxtun umfram verðtr 1 ár 95.46 4% 10.75% 2 ár 92.56 4% 10.87% 3 ár 91,27 5% 11,00% 4 ár 88.94 5% 11.12% 5 ár 86,67 5% 11.25% 6 ár 84.49 5% 11.37% 7 ár 82,36 5% 11.50% 8 ár 80.32 5% 11.62% 9 ár 78.34 5% 11,75% 10 ár 76,45 5% 11,87% 11 ár 74.61 5% 12.00% 12 ár 72,87 5% 12,12% 13 ár 71.17 5% 12.25% 14 ár 69,57 5% 12.37% 15 ár 68.03 5% 12.49% 1 ár 1 ár 2 ár zre a. 106 d. 196 d. 96 d. Veðskuldabréf óverðtryg gð Sölug.m/v 1 afb a ari 18% 20% (Hlv) 21% Þak 20% 232 d. 1 ár 84 85 86 82 1 ár 82 d. 2 ár 72 74 75 69 1 ár 232 d. 3 ár 62 64 65 58 1 ár 142 d. 4 ár 54 56 57 49 >lab. 20.03.84 5 ár 48 51 52 43 142 d. Sölug.m/v (Hlv) Þak 142 d. 2 atb a ári 21% 20% 1 ár 142 d. 1 ár 88 90 90 87 1 ár 261 d. 2 ár 78 80 80 75 2 ár 141 d. 3 ár 68 70 71 64 2 ár 262 d. 4 ár 60 62 63 56 1 ár 292 d. 5 ár 54 56 58 49 Daglegur gengisútreikningur Vcrðbréfamarkaóur Fjárfestingarfélagsins Lækjargötu12 101 Reykjavik lónaóarbankahúsinu Simi 28566

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.