Morgunblaðið - 08.07.1984, Page 35

Morgunblaðið - 08.07.1984, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1984 35 „Ekki hægt að skoða allt landið á einni viku þó það sé ekki stórt“ — sagði franski ferðalangurinn Paul Sergent UM ÞESSAR mundir eru staddir hér á landi frönsku ferðalangarn- ir Paul Sergent og Mireille Mur- et, en þau eru bæði blind. í fylgd með þeim er aðstoðarkona þeirra og vinkona, Anne-Marie Hanrot. Paul og Mireille eru bæði búsett í París þar sem þau starfa sem nuddarar, en fylgdarkona þeirra, Anne-Marie, starfar sem barna- skólakennari. Blm. hitti ferða- langana að máli í Ásmundarsafni sl. föstudag þar sem þeir voru í skoðunarferð. Fengu þau að þreifa á höggmyndunum undir handleiðslu safnvarðar, Gunnars Kvaran. Hvað varð til þess að þið ákváðuð að leggja land undir fót og ferðast alla leið til íslands? „Við erum bæði mikið áhugafólk um fiskveiðar og sögu skipa, og sá áhugi okkar varð meðal annars til þess að reka okkur hingað," sagði Paul. Mireille sagði að Island væri land sem fáir þekktu og hefði for- vitnin m.a. rekið hana af stað. „Við heyrðum í forsetanum ykkar, Vigdísi Finnbogadóttur, í útvarp- inu, er hún kom í opinbera ferð til Frakklands í fyrra. Það var þá sem við ákváðum að láta verða af því að heimsækia ísland. Við Paul höfum þekkst si an í barnæsku og vinkona okkar, Anne-Marie, hefur ferðast með okkur vítt og breitt um Frakkland. Þar sem hún hafði aldrei komið til íslands, ákvað hún að fara með og aðstoða okkur," sagði Mireille. Eruð þið vön að ferðast til fjar- lægra landa? „Nei, ekki get ég nú sagt það,“ sagði Paul, „þetta er í rauninni í fyrsta skipti sem ég ferðast. Að vísu dvaldi ég einu sinni tvo daga á Spáni, en ég þurfti að vinna þar og gat því ekkert skoðað." „Ég hef ferðast til Sovétríkjanna, það er allt og sumt,“ sagði Mireille. Hvað finnst ykkur svo um land og þjóð? „Ég varð nú eiginlega undrandi þegar ég kom til landsins. Ég hafði nefnilega lesið um ísland sem kuldalegt land, en komst að hinu gagnstæða við komuna hingað. Veðrið hér er ekki verra en gengur og gerist í ákveðnum héruðum í Frakklandi," sagði Paul. „Ég tek undir þetta," sagði Mireille, „ég hélt að hér væri miklu kaldara en raun ber vitni. ísland virtist lika vera svo fjar- Mbl./RAX Hér sjást þau Paul Sergent og Mireille Muret þreifa á einu verka Ásmund- ar Sveinssonar. Með þeim á myndinni eru aðstoðarkona þeirra, Anne-Marie Hanrot, og Gunnar Kvaran, safnvörður í Ásmundarsal. Frönsku ferðamennirnir heimsóttu forseta fslands, Vigdísi Finnbogadóttur, í Stjórnarráðinu á föstudagsmorgun. lægt, en við komumst að öðru eftir aðeins þriggja klukkustunda flug frá Frakklandi. Við fórum að Gullfossi og Geysi, og „skoðuðum" þar gróður og jarðveg. Landslagið hér er mjög ólíkt því sem við eig- um að venjast í Frakklandi. Siðan veittist okkur sú ánægja að fá að heimsækja frú Vigdisi Finnboga- dóttur að Bessastöðum, og tók hún afar vel á móti okkur," sagði Mir- eille. Hafið þið bæði áhuga á högg- myndalist? „Já, við höfum það bæði,“ sagði Paul „en i rauninni höfum við aldrei áður komist í snertingu við höggmyndir. í frönskum söfnum eru allar höggmyndir girtar af, því Frakkar eru svo illa upp aldir að þeim er til alls trúandi. Þvi er það okkur Mireille afar kærkomið að fá að þreifa á höggmyndunum hér í Ásmundarsafni." sagði Paul. Svona í lokin, haldið þið að þið eigið eftir að koma einhvern tímann aftur til íslands? „Já, það er næsta öruggt að við komum einhvern tímann aftur hingað," sagði Mireille. „Maður nær ekki að skoða allt landið á einni viku, þó að það sé ekki stórt,“ bætti Paul við brosandi. Ljósm. Mbl. PPJ. Þessi mynd var tekin fyrir utan Hótel Loftleiðir er unnið var við að gróður- setja tré og blóm nú fyrir skömmu. Á myndinni má sjá Emil Guðmundsson hótelstjóra Hótels Loftleiða, Björn Theodórsson framkvæmdastjóra fjár- málasviðs Flugleiða, Gunnar Sigurðsson flugumferðarstjóra og Sigurð Helga- son forstjóra Flugleiða. Starfsmenn Flugleiöa, flugumferöar- stjómar og Hótels Loftleiða: Fegra umhverfið STARFSFÓLK Flugleiða, flugmála- stjórnar og Hótels Loftleiða tók sig til nú á dögunum og fegraði um- hverfi Hótels Loftleiða og Reykja- víkurflugvallar með þvf meðal ann- ars að gróðursetja tré og blóm í nágrenni við hótelið og flugvöllinn. Alls tóku um 100 manns þátt í starf- inu, sem unnið var í sjálfboðavinnu að loknum vinnudegi. „Þetta er í annað sinn sem við vinnum á þennan hátt að því að fegra umhverfið," sagði Emil Guð- mundsson hótelstjóri Hótels Loft- leiða er blaðamaður Mbl. ræddi við hann nú fyrir skömmu. Emil sagði að þessi hugmynd hefði skotið upp kollinum hjá honum og Pétri Einarssyni flugmálastjóra yfir kaffibolla vorið ’83 og undir- tektir starfsfólks hefðu strax ver- ið ákaflega jákvæðar. Sfðastliðið sumar hefðu rösklega 70 manns unnið við að gróðursetja tré og blóm og í ár um 100 manns. Emil tjáði ennfremur að Reykjavíkurborg hefði reynst mjög hjálpleg og látið í té áhöld og mannskap til aðstoðar starfs- mönnum Flugleiða, flugmála- stjórnar og Hótels Loftleiða. Þá sagði hann að flugmálastjórn hefði unnið að því að rífa niður skúra og bragga frá stríðsárunum, sem eru í nágrenni við Reykjavík- urflugvöll og að svo framarlega sem áhugi fyrir því að fegra um- hverfið héldist meðal starfsfólks- ins, yrði einum degi á hverju sumri varið til þess í framtíðinni. Akranes: Nýr forseti bæjarstjórnar Akranesi, 6. júlí. Á FUNDI bæjarstjórnar Akraness mánudaginn 25. júní sl. fór fram kosning ýmissa embættismanna innan bæjarstjórnar- innar. Guðjón Guðmundsson var kosinn forseti bæjarstjórnar í stað Valdimars Indriðasonar alþingismanns sem ekki gaf kost á sér að nýju. Valdimar hefur gegnt þessu embætti í rösk sjö ár. 1. vara- forseti var kjörinn Guðmundur Vésteinsson og 2. varaforseti Jón Sveinsson. Þá var einnig kjörið nýtt bæj- arráð og hlutu eftirtaldir kosn- ingu: Guðjón Guðmundsson, Guðmundur Vésteinsson og Ingi- björg Pálmadóttir og mun þetta vera í fyrsta skipti sem kona hlýtur kosningu sem bæjarráðs- maður á Akranesi. Meirihluta bæjarstjórnar á Akranesi mynda fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks sem hafa fimm af níu bæjarstjórnarmönnum. JG radauglýsingar — raðauglýsingar — Húsbyggjendur Getum bætt viö okkur verkefnum viö nýbygg- ingar, ennfremur leigt út efni ef óskaö er. Kristján Pétursson, húsasmíðameistari, sími 79043. Vöruútleysingar Innflytjandi tekur aö sér aö leysa út vörur í banka og tolli gegn heildsöluálagningu. Full- um trúnaöi heitið. Lysthafendur leggi upplýs- ingar inn á afgreiöslu Morgunblaðsins merkt: „Import — 0868“. Leysum út vörur ií banka, tolli og skipafélögum, undir heildsölu- álagningu. Lysthafendur leggi upplýsingar inn á afgr. Mbl. merkt: „Þinn hagur — 1618". Húsbyggjendur — verktakar Höfum til leigu háþrýstiþvottatæki, jarövegs- þjöppur, vatnsdælur, múrfræsara, múrfleyga, víbratora o.fl. HÖFDALEIGAN áhalda- og vélaleíga FUNAHÖFÐA 7, SÍMI 686171. raöauglýsingar ................■■■■....ii ..I.ii.. Við þjónum fleirum en útgeröinni Fyrirtæki, verktakar, verslanir ... Eigum á lager flestar stæröir af boröaboltum, frönskum skrúfum, tréskrúfum, plötuskrúf- um, pósidrive-skrúfum. Seljum í heildsölu og smásölu. Lítið við og kynniö ykkur okkar hag- stæöa verð. Skipasmíðastöðin Dröfn hf., Strandgötu 75, Hafnarfirði. Sími 50393.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.