Morgunblaðið - 08.07.1984, Blaðsíða 39
Bridge
Arnór Ragnarsson
Bridgedeild
Skagfirðinga
Þriðjudaginn 3. júlí var spilað
í tveim 16 para riðlum, sem sýnir
stöðuga fjölgun þeirra sem taka
þátt í sumarspilamennsku deild-
arinnar. Efst urðu þessi pör:
A-riðill:
Sigmar Jónsson —
Vilhjálmur Einarsson 247
Vilhjálmur Sigurðsson —
Þráinn Sigurðsson 235
Albert Þorsteinsson —
Stígur Herlufsen 234
Bragi Bragason —
Ragnar Hermannsson 231
B-riðill:
Jón Viðar Jónmundsson —
Sveinbjörn Eyjólfsson 244
Arnar Ingólfsson —
Magnús Eymundsson 244
Óli Kristinsson —
Ragna Ólafsdóttir 234
Haukur Hannesson —
Valdemar Þórðarson 227
í frétt frá 26. júní féllu niður
nöfn Halldórs Magnússonar og
Valdemars Elíassonar, en þeir
félagar voru í öðru sæti í B-riðli
með 197 stig. Eru þeir beðnir af-
sökunar á því. Næst verður spil-
að þriðjudaginn 10. júlí. Til þess
að ná skráningu þarf að mæta
fyrir klukkan 19.30 í Síðumúla
35.
Sumarbridge
Það er víst farið að verða
óhætt að treysta því að ávallt sé
„fullt" hús í Sumarbridge.
68 pör mættu til leiks sl.
fimmtudag og var að venju spil-
að í 5 riðlum. Úrslit urðu þessi
(efstu pör):
A-riðill:
Baldur Árnason —
Sveinn Sigurgeirsson 274
Rósa Þorsteinsdóttir —
Sigrún Pétursdóttir 255
Eggert Benónýsson —
Sigurður Ámundason 248
Ragnar Björnsson —
Þórarinn Árnason 220
B-riðill:
Anton R. Gunnarsson —
Friðjón Þórhallsson 193
Ásthildur Sigurgíslad. —
Lárus Arnórsson 190
Jón Viðar Jónmundsson —
Halldór Árnason 189
Jóhann Ólafsson —
Ragnar Þorvaldsson 170
C-riðill:
Leif Österby —
Sigfús Þórðarson 201
Jóhann Bogason —
Jóhann Hinrik 170
Daníel Jónsson —
Sigmundur Stefánsson . 169
Júlíus Snorrason —
Sigurður Sigurjónsson 168.
D-riðill:
Ragna Ólafsdóttir —
óli Kristinsson 254
Guðmundur Baldursson —
Jón Baldursson 248
Hermann Lárusson —
Hrólfur Hjaltason 246
Björn Jónsson —
Þórður Jónsson 240
E-riðill:
Kristinn Rúnarsson —
Oddur Jakobsson 122
Högni Torfason —
Steingrímur Jónasson 120
Arnar Ingólfsson —
Magnús Eymundsson 116
Meðalskor í A- og D- riðli vnr
210, í B- og C- riðli 156 og 108 í
E-riðli.
Athygli vekur frammistaða
þeirra Antons og Friðjóns. Þeir
virðast óstöðvandi í Sumar-
bridge, vinna hvert kvöldið á
fætur öðru.
Eftir 8 kvöld er staða efstu
manna í Sumarbridge þessi:
Anton R. Gunnarsson 16,5
Friðjón Þórhallsson 16,5
Páll Valdimarsson 11
Leif Österby 10
Tómas Sigurjónsson 9
Ragna Ólafsdóttir 9
Sveinn Sigurgeirsson 8
Sumarbridge er nú hálfnað.
Lokið er að spila 8 kvöld af
16—17 kvöldum sem fyrirhuguð
eru.
Alls hafa 940 manns mætt
þessi 8 kvöld, sem gerir 118
manns á kvöldi að meðaltali. Það
eru 59 pör.
Meðalþátttaka væri hærri,
hefðu ekki fótboltaleikir í sjón-
varpi dregið úr aðsókn tvö kvöld-
in fyrr í sumar.
Hermann Lárusson mun nú
taka við keppnisstjórn næstu 3
kvöldin í Sumarbridge af ólafi
Lárussyni. Heimasími Her-
manns er: 41507.
Minnt er á að öllu spilaáhuga-
fólki er velkomin þátttaka, með-
an húsrúm leyfir (um 70 pör há-
marksþátttaka á kvöldi). Keppni
hefst í síðasta lagi kl. 19.30.
Bolungarvík:
Sjóstangaveiðimót Sæfara
Kolungarvík, 6. júlí.
í DAG og á morgun stendur
sportbátafélagið Sæfari á ísafírði fyrir
sjóstangaveiðimóti hér í ísafjarðar-
djúpi. A miðin er sótt frá Bolungarvík
til að stytta siglingartíma bátanna.
Þátttakendur í þessu móti eru 17,þar
af fímm konur, sem allar eru frá Isa-
fírði, en þátttakendur eru frá ísafírði,
Vestmannaeyjum, Akureyri og
Reykjavík. Sótt er á fjórum bátum.
Þáttakendur létu vel af afíanum er
þeir komu í land síðdegis í dag eftir
fyrri daginn.
Um klukkan 11 í morgun varð
það óhapp um borð í einum bát-
anna, Gunnari Sigurðssyni frá ísa-
firði, að einn þátttakenda, Pétur
Steingrímsson frá Vestmannaeyj-
um, fékk öngul upp fyrir agnald í
fingur. Haft var samband í land og
beðið um lækni og bát til að sækja
hinn slasaða. Vélbáturinn Guðný
frá ísafirði var á landleið og tók
hún Pétur um borð, en á móti Guð-
nýju kom hraðbáturinn Garpur frá
Isafirði með Skúla Bjarnason,
lækni. Bátarnir mættust síðan út af
Jökulfjörðum og þar var Pétur tek-
inn um borð í Garp, þar sem Skúli
læknir gerði að sárum hans. Að því
loknu óskaði Pétur eftir því að fara
aftur á miðin enda Vestmanney-
ingar þekktir fyrir annað en að gef-
ast upp. Fréttaritari náði tali af
Pétri, en hann kom í land nú síð-
degis. Var hann allur hinn hress-
asti, en kvaðst þó gera ráð fyrir að
eiga eftir að finna fyrir fingrinum,
þegar deyfingin væri almennilega
farin úr. Þetta óhapp sagði hann að
hefði tafið sig frá veiðum í tvo og
hálfan tíma.
Mótinu verður fram haldið á
morgun, en því lýkur með lokahófi
annað kvöld. Þar verða afhent fjöl-
mörg verðlaun, sem gefin eru af Is-
húsfélagi Bolungarvíkur hf. og Is-
húsfélagi Isfirðinga hf. Auk þess
verður afhentur íslandsmeistara-
bikarinn svonefndur, enn hann
kemur í hlut stigahæsta keppand-
ans úr þeim þremur mótum, sem
hafa verið haldin í sumar. Það er að
segja á Akureyri, Vestmannaeyjum
og nú á Isafirði.
— Gunnar
Tannlæknastofa
Hef opnað tannlæknastofu að Þangbakka 8,
Mjóddinni, Breiðholti, sími 75708.
Haukur ValtýsSOn,tanniæknir.
3B‘
icelandk: concrete association
STEINSTEYPUFÉLAG
ISLANDS
Ert þú farinn
að kalka í steypunni
Nú er tækifærið að bæta úr því. Samband norrænu steinsteypufélaganna efnir til
ráðstefnu 10. til 12. ágúst í sumar þar sem fjallað verður um rannsóknir á sviði
steinsteypu á Norðurlöndum.
Einn þekktasti verkfræöingur veraldar prófessor F. Leonhardt flytur inngangs-
erindi. Síðan veröur greint frá öllum rannsóknum sem unniö hefur veriö að undan-
farin þrjú ár. Fjallaö verður m.a. um: Viðgerðir, notkun trefja í steypu, kísilryk,
hágæöasteypu, þróun í burðarþolreikningum, hönnun með tölvum, mannvirkja-
gerö á heimskautasvæöum ofl.
Nánari upplýsingar veita Ríkharður Kristjánsson sími 39136 og Þórunn Ingólfs-
dóttir Ferðaskrifstofu ríkisins sími 25855 sem tekur einnig viö þátttökutilkynning-
um.
Tilkynninqar um þátttöku skulu hafa borist eigi síðar en 20. júlí.
FRABÆRT
AFMÆLISTILBOÐ
•pt-BOO
pþft/Eú'
40
A
Suðurlandsbraut 16 Sími 91 35200
TILBOÐS-
VERÐ
19.900.-
VERÐLISTA-
VERÐ
27.484.-
tö)
Husqvarna
Við seljum Husqvarna Cardinal
uppþvottavélar á sérstöku tilboösverói
vegna hagkvæmra innkaupa og I tilefni af
að Husqvarna hefur framleitt
uppþvottavélar í 40 ár.
Cardinal er „verðlaunavéi“. Tekur
borðbúnað f. 12—14 manns. Hún er
hljóðlát, þarf aóeins 7 lltra af vatni til að
þvo vel, og þurrkar vel. Hún fékk 5 F.
uppþvott, 5 F. þurrkun og 5 F. hljóð, sem er hæsta
einkunn sænsku og norsku neytendasamtakanna.
Gunnar Ásgeirsson hf.