Morgunblaðið - 13.07.1984, Page 1
56 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
158. tbl. 71. árg.____________________________________FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 1984_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ragnar í Smára látinn
Ragnar Jónsson í Smára
RAGNAR í Smára er látinn. Hann
fékk hægt andlát að kvöldi mið-
vikudagsins 11. júlí. Ragnar hefur
átt við vanheilsu að stríða og dvalizt
í Borgarspítalanum, en hélt upp á
áttræðisafmæli sitt 7. febrúar sl. og
var þá umkringdur ættingjum og
stórum vinahópi.
Ragnar Jónsson var einn þeirra
manna, sem setti mestan svip á
þjóðlíf okkar um og eftir miðja
öldina. Hafði afskipti af stjórn-
málum og einarða forystu í
menningarmálum, svo að ekki
verður til annars jafnað um hans
daga. Hann var annar aðaleig-
andi og forstjóri Smjörlíkisgerð-
arinnar Smára og jafnan við
hana kenndur, þó að bókaútgáfa
hafi verið aðalstarf hans. Undir
forystu hans varð Helgafell leið-
andi forlag hér á landi og alkunn-
ugt víða.
Ragnar í Smára bar ekki
marga titla, en áhrif hans voru
þeim mun meiri og umsvif hans í
þjóðlífinu með þeim hætti, að
hann var eins konar ríki í ríkinu,
hafði öðrum mönnum meiri áhrif
á þróun menningar og listar. Og
afskipti hans af stjórnmálum og
þjóðfélagsþróun voru einatt ör-
lagarík, ekki sízt þegar hann gekk
fram fyrir skjöldu og gerðist
helzti stuðningsmaður Kristjáns
Eldjárns fyrir forsetakosn-
ingarnar 1968 og stjórnaði kjöri
hans.
Ragnar Jónsson lætur eftir sig
börn og eiginkonu, Björgu Ell-
ingsen.
Einar Ragnar Jónsson var
fæddur 7. febrúar 1904 í Munda-
koti á Eyrarbakka, sonur hjón-
anna Guðrúnar Jóhannsdóttur
frá Mundakoti og Jóns Einars-
sonar hreppstjóra, sem ættaður
var úr Skaftafellssýslu. Þau eign-
uðust fimm börn. Eyrarbakki var
mikil verzlunarmiðstöð á Suður-
landi á uppvaxtarárum Ragnars,
en dönsk áhrif sterk. Félags- og
menningarlíf var öflugt og tón-
listarlíf fjölbreytt.
Ragnar hleypti heimdraganum
16 ára að aldri og fór til Reykja-
víkur til náms. Hann settist í
Verzlunarskólann og brautskráð-
ist úr honum eftir tveggja vetra
nám, í maí 1922, en réð sig þá til
Smjörlíkisgerðarinnar Smára,
sem hann hefur æ síðan verið
kenndur við. Upp úr þessu fer
Ragnar að kynnast menningarlíf-
inu í höfuðborginni, enda hafði
hann fengið veganesti í þeim efn-
um úr foreldrahúsum. Hann
kynnist Erlendi i Unuhúsi og
verður nákominn fjölmörgum
helztu listamönnum landsins,
eins og frægt er orðið. Þá kynnt-
ist Ragnar m.a. Halldóri Laxness
og Þórbergi Þórðarsyni og er
samstarf þeirra sérstakur þáttur
íslenzkrar menningar á þessari
öld. Hann verður einnig mikill
stuðningsmaður myndlistar-
manna og fyrstu myndirnar, sem
hann kaupir, eru eftir Ásgrím
Jónsson. Hann var einn af helztu
hvatamönnum að stofnun Tón-
listarskólans alþingishátíðarárið
1930, en stofnar síðan, ásamt öðr-
um, Tónlistarfélagið sem mark-
aði tímamót í tónlistarlífi hér á
landi. Samstarf þeirra Ragnars
Jónssonar og Páls ísólfssonar
markaði ekki síður þáttaskil í
tónlistarsögu landsins, enda al-
kunnugt.
Afskipti Ragnars í Smára af
bókaútgáfu hófust á síðara hluta
fjórða áratugarins, en fyrir þá
starfsemi er hann kunnastur.
Ragnar hefur gefið út fjölmörg
verk eftir helztu rithöfunda þjóð-
arinnar, hann var útgefandi Hall-
dórs Laxness, Davíðs og Tómasar,
Þórbergs, Gunnars og Steins
Steinarrs. Þá var Ragnar fyrsti
útgefandi velflestra skálda og rit-
höfunda yngri kynslóða. Hann
var útgefandi tímaritsins Helga-
fells, síðar Nýs Helgafells og voru
þau áhrifarikustu menningar-
tímarit síns tíma.
Alþekkt er myndlistargjöf
Ragnars til Alþýðusambands ís-
lands og útgáfa hans á listaverk-
um og listaverkabókum.
Lífsskoðun Ragnars í Smára
fólst í þessum orðum: ,Auður er
hvorki góður né vondur, það er
afstaða mannsins til auðsins, sem
er annað hvort góð eða vond.“
Árið 1982 kom út á vegum
Listasafns ASÍ og Lögbergs bók
um Ragnar Jónsson, Ragnar í
Smára. Hún er mikið heimildar-
rit um þennan svipmikla menn-
ingarfrömuð og sérstæða per-
sónuleika. Þar eru höfð eftir
Halldóri Laxness eftirfarandi orð
um Ragnar Jónsson: „Ragnar
hefur einhverja djúprætta samúð
með mannlegu lífi. Hann hefur
ekki getað lifað öðru vísi en
styrkja það, sem hann hefur verið
sannfærður um að hafi verið gott.
Þetta hefur verið aflvélin í per-
sónuleika hans. Verk sem hann
hefur unnið íslenzkri endurreisn
hefði enginn annar getað unnið.
Menn eins og Ragnar eru tilvilj-
un; nánast eitthvert happ í
mannlegu félagi."
Morgunblaðið sendir öllum
ástvinum Ragnars í Smára inni-
Iegar samúðarkveðjur um Ieið og
það þakkar honum langa og góða
samfylgd.
Mondale velur Ferraro
fyrir varaforsetaefni
St. Paul, Minnesota, 12. júlí. AP.
WALTER MONDALE tilkynnti í dag að hann hefði valið
Geraldine Ferraro, fulltrúadeildarþingmann frá New York,
varaforsetaefni sitt, er gengið verður til forsetakosninga í
nóvember nk.
„Ég veit hvað þarf til að vera
góður varaforseti — ég gegndi nú
einu sinni því embætti sjálfur. Ég
leitaði að besta varaforsetanum og
fann Ferraro," sagði Mondale, er
hann tilkynnti val sitt.
F’erraro og Mondale brostu út
að eyrum er þau töluðu við frétta-
menn og réttu upp hendurnar til
að innsigla samning sinn. „Allt er
mögulegt í Ameríku, ef maður
bara keppir að því. Ég er sammála
Fritz (gælunafn Mondales) um að
ég sé gott dæmi um ameríska
drauminn," sagði Ferraro.
Auk þess að vera fyrsta konan
sem valin er varaforsetaefni, er
hún dóttir innflytjanda frá Ítalíu,
barðist sjálf til mennta og frama
og er þriggja barna móðir. Það er
von stuðningsmanna Mondales að
þessi persónueinkenni hennar
dragi að sér marga kjósendur sem
sjá sjálfa sig í henni.
Jesse Jackson sagðist ánægður
með val Mondales og kvað það
stórt skref í sögu Bandaríkjanna.
Hann sagði að Mondale hefði sýnt
hugrekki með því að taka þessa
ákvörðun. Skoðanakannanir sýna
þó að ekki sé liklegt að kvenvara-
forsetaefni breyti nokkru um
möguleika Mondales til að sigra
Ronald Reagan í forsetakosning-
unum, en Reagan hefur enn 7%
meira fylgi.
Walter Mondale og Geraldine Ferraro brosa út að eynim, eftir að Mondale
tilkynnti val sitt. AP-símamynd.
Mitterrand
vill þjóðar-
atkvæði
Paris, 12. júlf. AP.
FRANCOIS Mitterrand, Frakk-
landsforseti, fór að dæmi fyrirrenn-
ara síns, Charles de Gaulle, og lagði
persónulegt álit sitt að veði með til-
lögu um stjórnarskrárbreytingu þess
efnis að málefni einkaskóla verði
borin undir þjóðaratkvæði.
Mitterrand lagði einnig fram til-
lögu fyrir þingið, um að völd for-
seta yrðu aukin á þá lund, að hon-
um yrði heimilt að leggja stórmál
undir þjóðaratkvæðagreiðslu. Ef
tillagan verður samþykkt, fer hún
sjálf fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hóta lokun
allra hafna
London, 12. júlí. AP.
MARGRÉT Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, sagði í dag, að
slæm staða efnahagsmála í landinu
og lækkun pundsins væri mikið til
verfalli námamanna og hafnar-
verkamanna að kenna. Hafnar-
verkamenn, sem njóta stuðnings
járnbrautastarfsmanna og sjó-
manna, hafa nú hótað að loka höfn-
um fyrir öllum inn- og útflutningi
um helgina.
Fulltrúar
Nígeríu
brottrækir
London. 12. jnlí. AP.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Breta, Sir
Geoffrey Howe, tilkynnti í dag að
tveimur starfsmönnum sendiráðs
Nígeríu í Bretlandi hefði verið vísað
úr landi vegna hugsanlegra tengsla
við meint rán á Umaru Dikko í síð-
ustu viku.
Howe sagði að gripið hefði verið
til brottvísunar sendiráðsmann-
anna, þar sem breskum yfirvöldum
hafði verið meinað að yfirheyra þá
vegna ránsins á Dikko. Sendiherra
Nígeríu, Haldu Hananiya, flaug í
skyndi til heimalands síns til við-
raéðna við yfirvöld og tilkynnti
fyrir brottför að hann myndi snúa
aftur. Howe sagði hins vegar, að
hann teldi óviðeigandi að Hanan-
iya kæmi aftur til Bretlands.
Stjóm Nígeríu sagði að hún
myndi grípa til viðeigandi gagn-
ráðstafana.