Morgunblaðið - 13.07.1984, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JÚLl 1984
Fri afgreidslusal útibús Búnaðarbanka íslands á Sauðárkróki.
Sauðárkrókur:
Búnaðarbankinn 20 ára
SauAárkróki. 7. júlf.
HINN 1. júlí sl. voru 20 ár liðin frá
stofnun útibús Búnaðarbanka ís-
lands hér á Sauðárkróki. Fyrri hluta
árs 1964 tókst samkomulag um, að
bankinn yfirtæki alla starfssýslu
Sparisjóðs Sauðárkróks, sem stofn-
aður var 1886 og itti sér merka
söjfu. Við yfirtöku sparisjóðsins los-
aði bankinn varasjóð hans, um 3
millj. kr. og honum ráðstafað til
stofnunar Menningarsjóðs Spari-
sjóðs Sauðárkróks, sem lýtur stjórn
heimamanna og hefur í áranna rás
stutt margvíslega menningarstarf-
semi á Sauðárkróki og í Skagafirði.
Fyrst í stað var útibúið til húsa
í gamla sparisjóðshúsinu við Aðal-
götu, én í desember 1967 fluttist
það í nýbyggingu bankans við
Faxatorg, enda hafði starfsemin
aukist til mikilla muna. Þegar
sparisjóðurinn sameinaðist Bún-
aðarbankanum 1964 voru inni-
stæður um 37 millj. kr. en voru um
áramótin 1979/80 um 3,4 milljarð-
ar í gömlum krónum talið. Mun
innlánsaukningin á þessu tímabili
hafa verið tvöfalt meiri í útibúinu
á Sauðárkróki, en í bankakerfinu í
heild.
1. desember 1973 var opnuð af-
greiðsla bankans á Hofsósi eftir
að gerður hafði verið samningur
við Sparisjóð Hofshrepps um yfir-
töku á rekstri hans. önnur af-
greiðsla útibúsins var síðan opnuð
1978 í Varmahlíð.
Útibúið hér er stærsta útibú
Búnaðarbankans utan Reykjavík-
ur. Starfsemi þess hefur haft
ómæld áhrif til góðs á atvinnulíf
og lífshætti héraðsbúa þann tíma,
sem það hefur starfað, enda lang-
stærsta peningastofnun í hérað-
inu. Veldur þó mestu, að frá fyrsta
fari hefur því verið stjórnað af
víðsýni og miklum dugnaði.
í byrjun voru starfsmennirnir 3
en eru nú um 20. Útibússtjóri frá
upphafi hefur verið Ragnar Páls-
son, sem áður var sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Sauðárkróks. Ásamt
honum hefur Haraldur Friðriks-
son starfað við útibúið frá byrjun.
Fulltrúi útibússtjóra er Gestur
Þorsteinsson.
Kári.
Hin nýja umboósskrifstofa Brunabótafélags íslands í Hveragerði.
Hveragerði:
Brunabótafélagið opn-
ar umboðsskrifstofu
Brunabótafélag íslands opnaði
nýja umboðsskrifstofu í eigin hús-
næði að Reykjamörk í Hveragerði
þann 13. aprfl sl. með hátíðlegum
hætti.
Var boðið þangað frammá-
mönnum sveitarfélagsins og Sam-
bands sunnlenskra sveitarfélaga,
forystu Kvenfélagsins, helstu
viðskiptamönnum og fleiri gest-
um, svo og þeim iðnaðarmönnum,
er sáu um innréttingar og frágang
húsnæðisins. Ingi R. Helgason,
forstjóri Bf, bauð gesti velkomna
með stuttu ávarpi, rakti sögu um-
boðsins og útskýrði hlutverk
Brunabótafélagsins. Sérstaklega
þakkaði Ingi fráfarandi umboðs-
manni, Stefáni Guðmundssyni,
farsæl störf i þágu félagsins og
bauð velkominn til starfa nýja
umboðsmanninn, Þórð Snæ-
björnsson. Stefán Reykjalín,
formaður stjórnar BÍ, lýsti inn-
réttingasmíðinni og þakkaði iðn-
aðarmönnum gott handverk.
Sveitarstjóri, oddviti og slökkvi-
liðsstjóri og fleiri gestir tóku til
máls.
Umboðsskrifstofan er opin frá
kl. 16—18.30 hvern virkan dag
nema miðvikudaga.
(Frétulilkynning.j
Ljósm. Gunnar Hallsson.
Áhöfnin á aflahæsta bátnum, Páli Helga frá Bolungarvik, fékk 804 kg. íslandsmeistarinn, Páll A. Pálsson frá
Akureyri, lengst til hægri.
Djúpævintýri 1984:
Aflasæld á Kvíarmiði
Þuríðar sundafyllis
fnafírói, 10. jólf.
Á laugardag lauk aflasælasta
stangaveiðimóti sem haldið hefur
verið við Djúp. Þá veiddu 17 veiði-
menn tæp fimm tonn af fiski og
veiddust að meðaltali tæp 300 kg á
færi. Aflahæsti maður mótsins varð
Páll A. Pilsson frá Akureyri með 523
kg. Hann varð jafnframt fslands-
meistari í greininni eftir að vera með
flesta sigrana á þeim þrem mótum,
sem gefa stig til íslandsmeistaratign-
arinnar.
Keppnin um íslandsmeistara-
bikarinn hefst á haustmóti Akur-
eyringa, síðan kemur hvitasunnu-
mótið í Vestmannaeyjum, en
úrslitakeppnin fer síðan fram á
ísafirði um mitt sumar. Ýmislegt
skeði á mótinu eins og gengur til
sjós. M.a. fékk einn þátttakandinn
krók i fingur og gekk hann upp
fyrir agnhald og sat á beini eins og
komið hefur fram i Morgunblað-
inu. Eftir læknisaðgerð á miðunum
hélt eyjapeyinn áfram veiðum. og
varð sjötti seinni daginn. Sveit
Páls A. Pálssonar frá Akureyri
vann sveitabikar karla, veiddi 1507
kg. Sveit Jósefinu Gísladóttur frá
Ljósm. Halldór Sveinbjðrnsson.
fsafirði vann kvennabikarinn en
þær veiddu 827 kg. Aflahæsta kon-
an var Jósefína Gisladóttir með
342 kg, Kolbrún Halldórsdóttir 1.
fékk stærsta þorskinn, Pétur
Steingrímsson V. stærsta steinbft-
inn, Reynir Brynjólfsson A.
stærstu ýsuna og karfann, Birgir
Valdimarsson f. stærsta ufsann og
Jóhann Alexandersson f. stærstu
lúðuna. Jóhann Alexandersson var
með flestar fiskitegundir eða 5.
Kolbrún og Jósefína voru með
flestar tegundir af konunum eða 3,
en Kolbrún var með hærri meðal-
þyngd.
Aflahæsti báturinn varð Páll
Helgi úr Bolungarvík með 193 kg.
meðalafla á færi. fshúsfélag Bol-
ungarvíkur og fshúsfélag Isfirð-
inga gáfu glæsileg verðlaun til
mótsins.
Úlfar.
Kolbrún Halldórsdóttir ísafirði
fékk stærsta fiskinn 8,35 kg þorsk.
Ljósm. Halldór Sveinbjðrnason.
Aflahæstu sveitirnar, frá vinstri: Guðlaug Jónsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Ásgerður Halldórsdóttir og
Jósefina Gísladóttir frá ísafirði og Magnús Ingólfsson, Reynir Brynjólfsson, Jóhann Kristinsson og Páll A.
Pálsson frá Akureyri.