Morgunblaðið - 12.08.1984, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984
IÞINGHLÉI
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
„Þ
egar spurt er um
kaup og kjör þá
skiptir máli, hvort
þjóðartekjur —
það sem til skiptanna er — hafa
vaxið um 16 til 17%ellegar minnk-
að um 5%. Svo fráleitt sem það er
að ráðast á lífskjör almennings f
mesta góðæri, þegar þjóðartekjur
hafa tekið stökk upp á við, þá get-
ur á hinn bóginn verið með öllu
óhjákvæmilegt að ieggja einhverj-
ar byrðar á meginþorra þegnanna,
þegar óviðráðanleg ytri áföll lækka
skiptaverðmæti þjóðarteknanna.
— Þetta verða menn m.a. að hafa í
huga ef dæma á af einhverri
sanngirni um efnahagsráðstafanir
ríkisstjórna...“
Einhver kynni að halda að
klausan hér að ofan sé höfð eftir
talsmanni núverandi ríkis-
stjórnar og fjalli um efnahags-
ráðstafanir á líðandi stund. Svo
er þó ekki. Þetta er kafli úr for-
ystugrein Þjóðviljans, „mál-
gagns sósíalisma, þjóðfrelsis og
verkalýðshreyfingar", 8. október
1982, þegar Alþýðubandalagið
var enn í ríkisstjórn og krukkaði
reglubundið í verðbætur launa á
þriggja mánaða fresti. Þessi orð
eru enn ekki tveggja ára gömul.
Þau falla þó illa að þvi „hlut-
verki" sem Þjóðviljinn leikur á
líðandi stund. En tvískinnungur-
inn hefur löngum kunnað vel við
sig á þeim bæ.
Fyrir réttum tveimur árum,
eða 4. ágúst 1982, stóð Þjóðvilj-
inn í því upp fyrir axlir og eina
ferðina enn að undirbúa jarðveg
fyrir verðbótaskerðingu launa.
Þá er tíundað þvert yfir forsíðu
að hætta sé á 3ja milljarða
viðskiptahalla og 80% verðbólgu
(sem raunar fór upp í 130% á
fyrsta ársfjórðungi 1983). Orð-
rétt segir í forsíðufrétt blaðsins:
„Á fyrri hluta þessa árs nam
vöruskiptahallinn við útlönd
nær 900 milljónum króna, eða
nær fjórðungi af öllum vöruút-
flutningnum. Horfur eru á, að
hallinn á vöruskiptajöfnuðinum
verði á þessu ári ekki undir 5%
af þjóðarframleiðslu ... Við
þetta bætist verulegur halli á
þjónustuviðskiptum, þannig að
viðskiptahallinn á árinu stefnir
nú í 9%. Frá áramótum til júni-
loka versnaði gjaldeyrisstaða
bankanna um 830 milljónir
króna ... Án sérstakra ráðstaf-
ana má búast við að viðskipta-
hallinn verði einnig á bilinu
7—9% á næsta ári, og rýrnun
„Þá var öldin
önnur...“
Hér má líta þrjár forsíðufyrir-
sagnir úr Þjóðviljanum frá árinu
1982, þegar Alþýðubandalagið
var enn í ríkisstjórn og reiknaði
„ytri áfoll“ í þjóðarbúskapnum
til kjaraskerðingar. Þá settu
ráðherrar flokksins upp lands-
föðursvip út í þjóðfélagið. Nú er
það ygglibrúnin sem gildir, enda
er forystumönnum Alþýðu-
bandalagsins kappsmál að kom-
ast inn úr kuldanum, í velgju
stjórnarráðsins og ráðherrasósí-
alismans.
■ ..jjimiy,
í / a ' j i > J / jr/
- •" * * ' tJLá zJ
Miövikudagur 4. ágúst 1982 —174. Ibl. 47. árg.
Dökkar horfur kynntar á fundi forsætisráðherra
með samráðsaðilum í gær:
„TUhæfulaus tllbdnlngur". tagðl Gunnar Thoroddsen á fundl meft
fulltruum samtaka atvinnullfsins I Ráftherrabdstaftnum I gærmorgun
um frett Morgunblaftsms sl. fösludag þar sem sagt var aft tillaga um al-
gjört afnám verftbdta l septemher nk. og runnln vært undan rlfjum dr.
Gunnart hefftt verift rædd I rlkisstjörnlnnl. Ljdsm. Tlmtnn. GE.
Hætta á 3 mUjörðum í við-
skiptahalla og 80% verðbólgu
Lækkun þjóðartekna 5-6% — Raunminnkun kaupmáttar 3-4%
Víðtækar ráðstafanir
Vörn gegn atvinnu-
leysi, viðskiptahalla
yiri Þjóðhagsspá, sem forsaetisráðherra
i ietur lagt fram á Alþingi, og unnin er af Þjóð-
hagsstofnun, kemur fram að gert er ráð fyrir, að
þjóðartekjur á mann minnki um 5% á þessu ári
og síðan ennumrösklega4% á naestaári.eða
samtals um 9% á tveimur árum. Til saman-
burðar er vert að geta þess, að síðast þegar
þjóðartekjur okkar lækkuðu svo nokkru nemur,
sem var árið 1975 um 7% á mann, þá hækkuðu
þær strax aftur næsta ár um 5%. .
. .
9% samdráttur þjóðartekua
Með landsföðursvip eða ygglibrún:
Alþýðubandalag inn-
an stjórnar og utan
viðskiptakjara getur enn aukið
hallann...“
Alþýðubandalagið, sem sat í
ríkisstjórn 1982, átti ráð undir
rifi hverju gegn vaxandi við-
skiptahalla og erlendri skulda-
söfnun, sem þá þegar kostaði i
greiðslubyrði yfir 20% útflutn-
ingstekna. Nauðsynlegt var að
bregðast við af festu, ef ekki átti
að skapast „pólskt ástand“ á Is-
landi, eins og formaður þess
mun hafa komizt að orði. Og
festan fólst m.a. í skerðingu
kaupmáttar, helmingun verð-
bóta á laun. Það átti að kljást við
viðskiptahallann um kaupmátt-
inn. „Helmingun verðbóta á sér
stað 1. desember og gæti orðið
sem nemur 8%,“ segir Þjóðvilj-
inn er hann kunngerir viðbrögð
við 5—6% lækkun þjóðartekna.
Skömmu síðar setti Alþýðu-
bandalagið fram huglhyndina
um fjögurra ára neyðaráætlun,
hvorki meira né minna, vegna
„ytri áfalla“.
Síðan árið 1981, er undirbún-
ingur hófst að neyðaráætlun I
Alþýðubandalaginu, hafa marg-
háttuð „ytri áföll“ bætzt þjóðar-
búinu:
• Þorskafli, sem var yfir 450
þúsund tonn 1981, verður innan
við 250 þúsund tonn 1984.
• Útflutningsframleiðsla er tal-
in hafa minnkað um 11,3% 1982
og 3,3% til viðbótar 1983. Sam-
kvæmt spám verður útflutnings-
framleiðsla 1984 7% minni en
1981.
• Verðþróun útflutningsvöru
hefur verið óhagstæð. Verð hef-
ur farið lækkandi á freðfiski í
Bandaríkjunum. Verð á óverkuð-
um saltfiski var fjórðungi lægra
í dollurum í lok árs 1983 en 1981.
Verðfall hefur einnig orðið á
rækju, hörpudiski, fiskimjöli og
lýsi.
• Aflasamdráttur og verðfall
sjávarafurða hafa enn skekkt
rekstrarstöðu fyrirtækja í sjáv-
arútvegi, einkum útgerðar.
• Þjóðhagsstofnun spáir
óhagstæðum viðskiptajöfnuði
1984 sem svarar 2.560 m.kr., eða
sem nemur 7,5% af útflutnings-
tekjum og nær 4% af þjóðar-
framleiðslu.
• Erlendar skuldir teljast um
60% af þjóðarframieiðslu.
Greiðslubyrði þeirra etur upp
23—25% af útflutningstekjum.
• Þjóðarframleiðsla hefur rýrn-
að um 12—14% á þremur árum.
• Ríkissjóður stefnir I 1.000
m.kr. rekstrarhalla 1984.
Fyrir tveimur árum staðhæfði
Þjóðviljinn í forystugrein, að
það gæti verið með öllu óhjá-
kvæmilegt, þegar óviðráðanleg
ytri áföll lækka skiptaverðmæti
þjóðarteknanna, eins og blaðið
komst að orði, að leggja byrðar á
allan þorra fólks. Þá sat Alþýðu-
bandalagið I ríkisstjórn. Ráð-
herrar þess settu upp landsföð-
ursvip út I þjóðfélagið. Vandinn
hefur vaxið á ýmsan hátt síðan,
þó sigrar hafi einnig unnizt, ekki
sízt í hjöðnun verðbólgu og góðu
atvinnustigi. Það heyrist þó ann-
að hljóð úr horni Alþýðubanda-
lagsins en á valdaárum þess.
Þjóðmálin horfa öðru vísi við séð
úr stjórnarandstöðu en úr
stjórnarráði!
í þinghléi eru forystumenn
flokka á faraldsfæti, inn til dala
og út til nesja. Það heyrir til að
heilsa upp á „háttvirta kjósend-
ur“. Það er af hinu góða, jafnvel
þótt sömu mennirnir lýsi sömu
eða svipuðum hlutum á gjörólík-
an hátt, eftir því hvort þeir eru
inni í hitanum eða úti í kuldan-
um, pólitískt séð.
Það gæti verið skondið að
klippa saman filmubúta í sjón-
varpinu, þar sem forystumenn
Alþýðubandalagsins setja ann-
arsvegar upp landsföðursvip en
hinsvegar á sig ygglibrún ófriðar
í þjóðfélaginu. Sýna mætti
árangurinn I þættinum: Úr
grínmyndasafni sjónvarpsins.
Stefin Friðbjarnarson er þing-
tréttaritari Morgunbiadsins og
skrifar að staðaldri um stjórnmál í
blaðið.
Bandaríska skipið Northwind að störfum. Skipið verður til sýnis næstkomandi
þriðjudag og miðvikudag.
Verður til sýnis í Sundahöfninni
US CGG Northwind, ísbrjótur og haf-
rannsóknaskip bandarísku strandgæsl-
unnar, er að koma úr rannsóknaleið-
angri á norðurslóðum og mun dvelja hér
dagana 13.—17. ágúst til að hvíla áhöfn
og einnig til að skipuleggja næsta rann-
sóknaleiðangur.
Þetta kemur fram í frétt sem Mbl.
hefur borist frá Menningarstofnun
Bandaríkjanna þar sem ennfremur
segir að á meðan skipið dvelji hér,
verði reynt að finna tækifæri fyrir
áhafnarmeðlimi að keppa við tslensk
íþróttalið í knattspyrnu og körfubolta.
Yfirmaður skipsins er W. A. Castre,
flotaforingi, og eru á skipinu 21 yfir-
maður og 165 sjóliðar.
Helsta verkefni skipsins er að vera
ísbrjótur, en það hefur einnig verið
notað til alhliða rannsóknaverkefna á
norðurslóðum og á suðurheimskaut-
inu.
Skipið verður til sýnis fyrir almenn-
ing við Sundahöfnina í Reykjavík
þriðjudaginn 14. ágúst og miðvikudag-
inn 15. ágúst milli kl. 14 og 16 báða
dagana.
Heimahöfn Northwind er Wilm-
ington I Norður-Karólínu, en skipið
hefur komið nokkrum sinnum áður til
Reykjavíkur.
Hefurðu PLÁSS fyrir þennan?
æfingabekkur
í heimahús
Verö
aðeins
kr. 13.224
ÍL 1 & r
utiuf
Glæsibæ, sími 82922.