Morgunblaðið - 12.08.1984, Síða 34

Morgunblaðið - 12.08.1984, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984 f f f AVOXTUNSfáSy VERÐBRÉFAMARKAÐUR Verðtryggð veðskuldabréf óskast Óverðtryggð veðskuldabréf óskast Sparifjáreigendur látið Avöxtun sf. ávaxta sparifé yðar 9% Vegna sídustu vaxtabreytinga eru ávöxtunarmöguleikar í verðbréfa- veltu okkar allt að 9% umfram verðtryggingu 30% Avöxtunarmöguleikar í óverðtryggðri verðbréfaveltu okkar eru allt að 30% Ávöxtunartími er eftir samkomulagi. Kynnið ykkur ávöxtunarþjónustu A vöxtunar s.f Óverðtryggð - veðskuldabréf v Ar 20% 21% 1 80,1 80,8 2 72,5 73,4 3 66,2 67,3 4 61,0 62,2 5 56,6 57,8 6 52,9 54,2 —Verðtryggð ------\ veðskuldabréf Ár 1 Söhig. 2 afb/ári. 95,9 6 84,6 2 93,1 7 82,2 3 91,9 8 79,8 4 89,4 9 77,5 5 87,0 10 75,2 Ávöxtun ávaxtar fé þitt betur # § § AVOXTLNSf^ LAUGAVEGUR 97 - SÍMI 28815 OPIÐ FRÁ 10 - 17 m #► ífHB! [0t$m , ** ni R Metsölublad á hverjum degi! Victoria drottning á efri árum. Óboðnir gestir í Buckinghamhöll Fyrir örfáum árum gerðist það, að ungur maður komst óséður inn um glugga í Buckinghamhöll, fór beinustu leið til dyngju drottn- ingar og bað hana um sígarettu. Það varð að sjálfsögðu uppi fót- ur og fit, þegar um komst og mikið um málið fjallað í ræðu og riti. Mönnum þótti með ólíkindum að eftirlit og öryggi við höllina væri í slíkum ólestri. En þetta er þó ekki í eina skipt- ið, sem óboðinn gestur kemst hindrunarlaust inn í höllina, það sama gerðist í tíð Victoriu drottn- ingar, langömmu Elísabetar. Victoria drottning komst til valda árið 1837, þá kornung stúlka. Fljótlega flutti drottn- ingin og hirð hennar frá Kens- ington til Buckinghamhallar. I höllinni var mikill fjöldi starfsmanna en lítið skipulag á verkaskiptingu. Sem dæmi um þá ringulreið sem ríkti má nefna, að þegar Victoria drottn- ing spurðist fyrir um hvers vegna borðsalurinn væri svo kaldur, kom í ljós að hallarbryt- inn átti að sjá um að leggja arin- inn en yfirhirðmeistarinn að kveikja eldinn. En þar sem und- irmenn þeirra gátu ekki komið sér saman um verkið var ekkert hægt að gera, og drottningin hélt áfram að matast í óupphit- uðum sal. Agaleysi var algjört og margar sögur til um hirðu- leysi og óráðsíu starfsfólks. Og eyðslan var gegndarlaus. Ein var sú regla, sem enginn vissi hvað- an var komin, að aldrei var kveikt nema einu sinni á hverju kerti. Hvað varð svo af öllum hálfu kertunum vissi enginn. Líkast til hefur einhver starfs- manna getað sparað sér kerta- kaup I sínu húshaldi. Það koma líka fyrir að gestir drottningar ráfuðu í reiðileysi á hinum löngu göngum hallarinn- ar í leit að herbergi því, sem þeim var ætlað til gistingar. En eftir að Albert prins og drottn- ingarmaður kom til hallarinnar hófst hann fljótt handa við að koma reglu á hlutina, og tók fyrir hinn gegndarlausa kostnað, sem verið hafði í húshaldi drottningar. En það varð þó óvæntur at- burður, sem varð til að opna augu manna fyrir því hirðuleysi, sem var látið viðgangast í Buck- inghamhöll. Elísabet drottning. „Strákurinn hann Jones“ Hálfum mánuði eftir fæðingu frumburðar þeirra Victoriu og Alberts, það var Victoria prins- essa, heyrði barnfóstran grun- samlegan hávaða í næsta her- bergi. Hún kvaddi til hirðsvein til að gæta að hvað þar var á seyði. Undir stórum sófa fannst piltur „harla ógeðslegur útlits" samkvæmt lýsingum í blöðum, það var „strákurinn hann Jon- es“. Mánuðum saman var ekki um annað fjallað í blöðum en kyn- lega hegðun þessa náunga, en þó var aldrei Ijóst hvað fyrir honum vakti. Strákurinn var 17 ára gamall skraddarasonur, lítill eftir aldri, og hafði hann komist yfir garðmúrinn og síðan smogið inn um glugga. Við yfirheyrslu kom í ljós, að þetta var ekki í fyrsta heimsókn kauða, tveimur árum áður hafði hann komist inn I höllina klædd- ur sótarabúningi. En í þetta sinn hafði hann dvalið í þrjá daga innan veggja Buckinghamhallar, falið sig und- ir mörgum rúmum, krækt sér í súpu og annað matarkyns af matborðum, hann hafði setið í hásæti drottningar og heyrt litlu prinsessuna gráta. Eins og gefur að skilja var mikið um mál þetta fjaliað i blöðum. í „The Times" var sagt frá því, „að strákurinn Jones“ hefði frá blautu barnsbeini verið ákaflega bókhneigður en hann væri með afbrigðum svipljótur. Og blaðið bætti við: „Oss hefur verið tjáð, að sófinn sem strák- urinn fannst undir sé hinn mesti dýrgripur, gerður af miklum ha- gleik úr ágætum efniviði og hafi verið sérstaklega fenginn handa konunglegum gestum og öðru stórmenni, er kæmi í kurteisis- heimsókn til drottningar.“ Sökudólgurinn var dæmdur til þriggja mánaða betrunarvistar fyrir tiltækið, en að þeim tíma liðnum hélt hann rakleiðis til hallarinnar aftur, en hann fannst í tíma og var settur inn aftur i aðra þrjá mánuði. Eftir þá veru var honum boðið að sýna sig á leiksviði fyrir 4£ á viku, hann hafnaði þvi boði. Skömmu siðar rakst lögreglan á hann þar sem hann var að sniglast i næsta nágrenni Buckinghamhallar. Yfirvöld höfðu þá engar vöflur á, heldur sendu strákinn til sjós án dóms og laga. Ári siðar kom skipið til Portsmouth til viðgerðar og Jon- es lagði af stað fótgangandi til London. Hann var þó tekinn fastur áður en hann komst til hallarinnar og sendur aftur til skips síns, Warspite. Þess var getið sérstaklega i blöðum „að strákurinn væri nú mun skárri útlits og hefði fitnað talsvert". Eftir það kom „strákurinn Jones“ ekki við sögu i höllinni. En frá þvi var sagt í „The Tim- es“ árið 1844, „að Jones hefði fallið í sjóinn þegar skipið var á siglingu að næturlagi á milli Túnis og Alsír". Samkvæmt bréfinu, sem einn yfirmanna á Warspite sendi blaðinu, var talið að hann hefði ekki dottið i sjóinn af slysni, heldur hafi hann kast- að sér út í Miðjarðarhafið til að sjá hvernig Ijósin á björgunar- duflinu væru. Stráknum var bjargað, hann var dreginn um borð. „Var hægt að búast við öðru af strák með slíka fortíð?" spurði blaðið í lok frásagnar. B.I.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.