Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984
Islensk
hárgreiðsla í
„Interbeaute“
MYND af hárgreiðslu eftir
Báru Kemp, hárgreiðslumeist-
ara og eiganda Hárs og snyrt-
ingar, birtist í nýjasta hefti
tímaritsins „Interbeauté".
Tímaritið er gefið út af „Int-
ercoiffure", alþjóðlegum sam-
tökum hárgreiðslumeistara og
þykir það mikil viðurkenning
að fá verk sín birt í því. Bára
Kemp er meðlimur í „Inter-
coiffure", en í samtökin hafa
tíu íslenskir hárgreiðslumeist-
arar hlotið inngöngu. Ljós-
myndina í „Interbeauté", sem
birtist á heilsíðu tók Friðþjóf-
ur Helgason ljósmyndari.
Ljósmyndin
sem birtist í
„Interbeauté".
ÁTTU BÍL
FRÁ HEKLU ?
í ÁGÚSTMÁNUÐI GEFUM VIÐ
10% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTT
Á EFTIRTÖLDUM VÖRUM í
ALLA BÍLA SEM VIÐ
HÖFUM UMBOÐ FYRIR
Dæmi um verð:
Kerti....Frákr. 40+10%
Platínur ...
Kveikjulok .
Viftureimar .
Tímareimar
Loftsíur . . .
Smursíur . .
Bensínsíur .
Þurkublöð
Bremsuklossar -
Bremsuborðar -
Bremsudælur . -
Vatnsdælur .. -
VIÐURKENND VARA
í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
'*nr
wm
II V, ■
50+ 10%
95+ 10%
45+10%
145+ 10%
195+ 10%
155+10%
35+ 10%
75+ 10%
285+ 10%
110+ 10%
440+ 10%
410+ 10%
Auói
ik
[hIhekla
| Laugavegi 170-172 Sír
VHF
Sími 21240
o
vP
>
T1
w
Eiginkona Konstantins Chernenkos, Anna Dmitrievna Chernenko, bar
fyrir linsur erlendra sjónvarpsmyndavéla fyrir skömmu. Hér eru þau
hjón á götu úti í Moskvu.
Kíkt undir huluna
yfir fjölskyldulífi Chernenkos:
Sonurinn leikur
vestræna slagara
á banjó — eigin-
konan fer í bíó
Moskva, AP.
EINKALÍF ráðamanna í Sovét-
ríkjunum er svo vandlega falið
hverjum og einum, aö stundum
mætti ætla að ekki væri um venju-
lega menn að ræða. Eiginkonur,
börn og frændfólk, þess er vandlega
gætt að allur almenningur fái ekkert
um það fólk að vita, hvað þá hvernig
fólk það er, hvaða áhugamál það hef-
ur og svo framvegis. Er Konstantin
Chernenko var skipaður aðalritari
sovéska kommúnistaflokksins var í
upphafi sami huliðshjálmurinn yfir
skyldmennum hans og einkalífi. En
þá brá svo við, að vestrænum frétta-
stofum tókst að afla dálítilla upplýs-
inga um fjölskyldu hans og hagi
hennar.
Hinn 72 ára gamli Konstantin
Chernenko er giftur maður. Sumir
segja meira að segja að hann sé
tvígiftur, en um það er deilt. Nú-
verandi eiginkona hans heitir
Anna Dmitrievna Chernenko, sögð
á sjötugsaldri. Hafi Chernenko átt
aðra konu áður, er lítt eða ekkert
um hana vitað. I æviágripi opin-
beru sem gefið hefur verið út í
Sovétríkjunum um Chernenko, er
ekki minnst einu orði á fjölskyldu
hans. Anna Chernenko er sögð hin
hressasta kona, mikill áhugamað-
ur um kvikmyndir og ber mjög
fyrir brjósti framgang sovéskrar
kvikmyndagerðar. Ónafngreindur
heimildarmaður í Moskvu sagði
það tíðum gerast að eiginkonur
annarra ráðamanna í Sovétríkjun-
um færu á kvikmyndasýningar
sem Anna Chernenko hefði haft
veg og vanda að koma um kring.
Hún er einnig sögð mikil leikhús-
kona. Fleiri ónafngreindir vel upp-
lýstir tíðindamenn í Moskvu voru
á einu máli um þessi atriði.
Dóttir á Chernenko sem heitir
Yelena Konstantinova Chernenko.
Það vakti athygli vestrænna
fréttamanna í Moskvu fyrir
skömmu, að grein í flokksmál-
gagninu Pravda var merkt Y.
Chernenko. Ritstjórn Prövdu stað-
festi að hún væri dóttir aðalritar-
ans og starfaði við Marx/Lenin-
stofnunina. Meira var ekki hægt
að grafa upp um hana.
Chernenko á að minnsta kosti
einn son, sumir segja tvo, og sá lítt
kunnari sé mögulega frá fyrra
hjónabandinu, hafi það þá á annað
borð verið fyrir hendi. Hulduson-
urinn ku heita Albert Chernenko
og starfa sem yfirmaður áróðurs-
deildar kommúnistaflokksins í
síberísku borginni Tomsk. Sá sem
vestrænir fréttamenn telja sig
hafa haldbærari vitneskju um er
Vladimir Chernenko. Hann er tal-
inn vera sonur aðalritarans og
starfar við kvikmyndaeftirlit
stjórnarinnar, Goskino. Er frétta-
menn hringdu og spurðu um Vlad-
imir, tjáði starfsmaður þeim þar,
að vissulega ynni Vladimir Chern-
enko hjá Goskino, en hvort hann
væri sonur Konstantins væri sov-
éskt innanríkismál og því þýddi
lítið að spyrja um það. Þeir
ónafngreindu heimildarmenn sem
áður er getið um sögðu hins vegar
að Vladimir væri afar viðkunnan-
legur og gott væri að vinna með
honum. Hann léki á banjó í frí-
stundum og vestrænir slagarar
kæmu fyrir hjá honum.
Um Chernenko sjálfan er lítið
vitað og orðrómur hefur verið á
kreiki sem lítið er byggjandi á.
Það sem mönnum er hvað mest
hugleikið um Chernenko eldra nú,
er heilsa hans, sem virðist afar
bágborin þegar hann kemur fram
opinberlega. Ýmsir vestrænir
læknar telja trúlegt að hann eigi
við einhvers konar öndunar-
sjúkdóm að glíma. En persónuleik-
inn er hulinn leyndardómum.
Sögusagnirnar segja ekki neitt.
Hver man ekki eftir því þegar
Jury Andropov tók við völdum og
hann var sagður drekka skoskt
viskí, leika tennis og hlusta á
bandarískar „big band“-hljóm-
sveitir af hljómplötum. Ekki al-
deilis, það kom á daginn.