Morgunblaðið - 12.08.1984, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984
53
Texti og myndir:
Anna Bjarnadóttir
um leið og þeir voru farnir að
fljúga flugvélum.
Fyrsta flugferð hans sjálfs var
fyrir nokkrum árum með lítilli
einkaflugvél til Sviss. „Við þurft-
um að koma fugli úr landi og vor-
um með hann í kattartösku sem
Ingrid átti, hún ræktar ketti. Það
var lagt af stað af íþróttaleikvangi
og lent á flugvellinum í Köln seint
að kvöldi. Við sögðumst vera á leið
til Sviss, ekki með neinn farangur
og allt var í lagi. Snemma daginn
eftir lögðum við af stað með lög-
lega flugpappíra, skildum töskuna
eftir á flugvelli í Sviss og flugum
aftur heim. 188 flugmínútur til
Sviss," sagði hann, og glotti við
endurminninguna.
Húbner hafði góð sambönd og
gat útvegað mönnum fugla og fékk
þóknun fyrir. Hann verslaði þó
aldrei með íslandsfálka. „Ég man
hvað ég varð hissa þegar ég sá
safn Ciesielskis fyrst," sagði hann.
Þjófur komst inn um þennan þakglugga og fullorðnir foreldrar Liittgers
komu ekki auga á hann.
„Um 10 fálkar af öllum stærðum
stóðu í röð eins og trappa. Ég trúði
varla mínum eigin augum. Mér
bauðst einu sinni geirfálki til
kaups fyrir gott verð en hafði ekki
efni á honum. Ef ég hefði keypt
hann þyrfti ég ekki framar að
skipta um fugla."
Húbner er með tvo ránfugla í
garðinum á bak við raðhúsið sitt í
útjaðri Kölnar. Það slitnaði upp
úr vinskapnum við Ciesielski-
fjölskylduna árið 1982 eftir að
Ciesielski sagði Húbner hafa stol-
ið fálkum frá sér. Ingrid Húbner
fékk þá nóg og sagðist ekki vilja
sjá þetta fólk framar. „Það var ei-
líft vesen í kringum Ciesielski,"
sagði hún. „Alltaf verið að koma
með nýja fugla hingað í garðinn,
þeir látnir standa í nokkra daga
og svo skipt aftur. Sumir voru
veikir og aðrir drápust." Einu
sinni fundust tveir dauðir, stolnir
fálkar í frystikistunni hjá Húbner
en hann sagði að einhver óvin-
veittur sér hefði komið þeim þar
fyrir til að koma óorði á sig.
Baly, sem allir nema Ingdrid
Húbner virðast vissir um að sé að-
alþjófurinn, fékk skilorðsbundinn
dóm fyrir innbrot hjá Ciesielski og
fálkaþjófnað fyrir tæpum þremur
árum. Hann sagði þá að Húbner
hefði sagt sér að brjótast þar inn.
Baly og Ciesielski hafa síðan sæst
og sumir telja að Ciesielski hafi
sent hann til íslands í sumar og
fyrri ferðir. Ingrid Húbner heldur
ekki.
„Ciesielski veit að strákurinn
kjaftar frá,“ sagði hún.
En „strákurinn" hefur enn ekki
kjaftað frá og segist ekki þora það
fyrir sitt litla líf. Hann segist
óttast menn sem hika ekki við að
drepa konurnar sínar. Það beinir
athyglinni að manni nefndum
Bernberger, sem hefur verið í
ræktunarfélagi með Ciesielski.
Bernberger þessi hefur mjög góð
sambönd í Tyrklandi og hefur
veiðileyfi þar. Hann stundar
gróskumikla fálkarækt og kallar
ekki allt ömmu sína. Vorið 1978
vildi svo illa til að ungur, v-þýskur
aðstoðarmaður hans hrapaði í
klettum þegar hann var að klifra
eftir eggjum. Bernberger sá slysið
í sjónauka. Ungi maðurinn var
víst mjög fær klifrari en hafði
skömmu áður en hann dó nefnt
ólöglega heróinsölu í sambandi við
Bernberger í bréfi. Ilona Isabella
Bernberger, 26 ára eiginkona
Bernberger, skrifaði móður sinni
um slysið og var ekki alveg í rónni.
Hún hélt dagbók og skrifaði hjá
sér um ferðir þeirra hjóna. Síð-
ustu dagana sem hún lifði rigndi
mikið en svo stytti upp. Hún var
mjög góð sundkona og fékk sér
sundsprett í Svartahafi. Þar
drukknaði hún og var grafin í
skyndi.
Bernberger er nú giftur þremur
tyrkneskum konum, sem allar
hjálpa við fuglaræktunina. Hann
hefur verið nefndur í sambandi
við vopnasmygl í Júgóslavíu og
Fisher, aðstoðannaður Niesters, hjá varðhundunum.
Niesters i tali við Bali eftir að hann var dæmdur í eins árs fangelsi.
var kærður fyrir arnarsmygl i
V-Þýskalandi í nóvember 1983.
Scheglmann tók geirfálka trausta-
taki á heimili hans í V-Þýskalandi
á meðan Baly var á íslandi og nú
er víst heldur fátt um fálka í
ræktunarfélagi þeirra Ciesielski.
Þjófar og
þjóðhöfðingjar
Annar maður, sem eitt sinn var
í ræktunarfélagi með Ciesieslski,
heitir Horst Niesters. Hann rekur
opinn dýra- og fuglagarð, sem
kaupsýslumaður frá Miðaustur-
löndum á, i Hellenthal, ekki langt
frá landamærum V-Þýskalands og
Belgiu. Niesters ræktar meðal
annars hvíthöfðaerni, en þeir eru i
skjaldarmerki Bandarikjanna.
Þegar Ronald Reagan, Banda-
ríkjaforseti, heimsótti V-Þýska-
land fékk Helmut Schmid, sem þá
var kanslari, tvo hvíthöfðaerni hjá
Niesters til að gefa forsetanum.
Hvithöfðaernir, sem John F.
Kennedy gaf Þjóðverjum þegar
hann kom til Berlinar, eru nú i
vörslu i garðinum hjá Niesters.
Hann á einnig íslandsfálkann
Elbis, sem flaug á heimssýning-
unni í Berlin árið 1937, en Elbis
gamli er uppstoppaður.
Niesters er önnum kafinn mað-
ur, svo mjög að símanúmerið í
bilnum hans er prentað á virðu-
legt nafnspjald auk tveggja ann-
arra númera. Hann er stoltur
maður og segist vilja gera allt sem
i sinu valdi stendur til að stöðva
þjófnað og ólögleg viðskipti með
villt dýr og fugla. Hann barðist
fyrir merkingu fugla árið 1976 og í
fyrra tók hann af skarið þegar
fuglaþjófnaður i V-Þýskalandi fór
að ofbjóða honum og safnaði sam-
an peningum til að bjóða fyrir
upplýsingar sem gætu leitt til
handtöku þjófanna. Hann fékk
8000 þýsk mörk og auglýsti í blöð-
unum.
„Skömmu seinna fékk ég upp-
hringingu," sagði hann. „Mér var
sagt að koma á vissan stað i
Frankfurt en gjörsamlega bannað
að láta lögregluna vita. Ég hafði
þó samband við Scheglmann hjá
tollgæslunni. í Frankfurt var mér
sagt að fara á skemmtistað í
skuggahverfinu, þar sem eintómar
hórur og hórkarlar héldu til. Þeg-
ar þangað kom mætti mér maður i
bláum jakkafötum og við settumst
niður. Ég hafði lagt bílnum fyrir
utan og allt í einu stóð lögreglan
við hann. Maðurinn tók fram hnif
og hótaði að skera af mér nefið ef
lögreglan kæmi inn. Ég greip
skammbyssuna mina og sagðist
fylla hann af blýi ef hann gerði
mér mein. Lögreglan setti miða á
bílinn og fór, ég hafði lagt ólög-
Ronald Reagan þakkar Niesters
fyrir hvíthöfðaernina.
(Mynd úr safni H. Niesters.)
Móðir Ernst LUttgers Iftur eftir fugl-
unum á meðan sonurinn ferðast.
lega. Scheglmann kom og settist
hjá okkur en maðurinn var orðinn
hræddur og vildi ekkert segja.
Seint um kvöld hringdi síðan
hjá mér síminn og mér var bent á
að fara í einbýlishús uppstoppar-
ans Schlupp í Núrnberg. Þegar
þangað kom hafði allt í húsinu
verið eyðilagt: hausar höfðu verið
skornir af fuglum og styttum,
verðmætt, austurlenskt teppi
hafði verið skorið í tætlur,
Schlupp var rifbeinsbrotinn og
það hafði verið skorið framan af
nefi móður hans. Tveir menn voru
handteknir og settir í fangelsi.
Þeir voru þjófarnir og annar
þeirra gaf mér upplýsingarnar."
Það er ekki auðhlaupið að því að
brjótast inn hjá Niesters. Garður-
inn er veglega girtur og gífurlegt
aðvörunarkerfi er ávallt í sam-
bandi. Átta stórir og grimmilegir
hundar gæta líka fuglanna.
Peter Baly hræddi hann þó dá-
lítið þegar hann sagði honum eftir
réttarhöldin í Daun að Polachek
hefði sagt sér að hann gæti útveg-
að kaupendur fyrir hvíthöfðaerni
Niesters ef Baly kæmist yfir þá.
Niesters er lærður kokkur og
rak áður matsölustað í Eifel-
héraði. Þar var allt skreytt með
uppstoppuðum fuglum og lifandi
ránfuglar stóðu á spýtum fyrir
utan. Matsalan gekk ekki vel og
hann seldi staðinn öðrum fálka-
áhugamanni, Wilhelm Linz frá
Köln. Hann verslar með leðurvör-
ur og annað slíkt fyrir fálka-
áhugamenn.
Niesters má ekki vamm sitt
vita. Það þótti því pínlegt í vor
þegar uppstoppaður fálki fannst
falinn í vélarrúmi bílsins hans
þegar hann var á ferð yfir landa-
mæri Belgíu og V-Þýskalands.
Fisher, aðstoðarmaður hans, ók
bílnum og Niesters sagðist ekkert
um fuglinn vita. Skömmu áður en
veiðitíminn hófst i Miðausturlönd-
um í fyrra fundust 36 ólöglegir
förufálkar i farangri Shaids prins
frá Sameinuðu furstadæmunum.
Prinsinn hafði verið hjá tann-
lækni í Aachen. Sagt var að Ciesi-
elski hefði útvegað honum fuglana
en maður, sem innréttar Mercedes
Benz-bíla fyrir prinsinn, sagði að
fálkarnir hefðu komið úr Hell-
enthal. Niesters var áður í þjón-
ustu konungsfjölskyldunnar i Abu
Dhabi og fylgdist með fálkakaup-
um þeirra. Sambandið slitnaði
þegar kaup og sala á fálkum i Mið-
austurlöndum jukust. Hann fór þó
þangað suður eftir með konuna i
fyrra til að vera viðstaddur brúð-
kaup tengdasonar Shaids en sá ku
einmitt vera mesti fálkaáhuga-
maðurinn í fjölskyldunni.