Morgunblaðið - 26.10.1984, Qupperneq 1
64 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
206. tbl. 71. árg.
FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Enn dregur „Flick-hneykslið** dilk á eftir sér:
Barzel þingforseti
sagði af sér embætti
Vilja Marcos frá
Nokkur reiði greip um sig á Fil-
ippseyjum, er hlutlaus rannsókn-
arnefnd um morðið á stjórnar-
andstöðuleiðtoganum Aquino taldi
sig ekki geta bendlað Marcos for-
seta við ódæðið. Á meðfylgjandi
mynd má sjá u.þ.b. 6000 manna
útifund í höfuðborginni Manila í
dag. Hrópaði fólkið vígorð að for-
setanum og krafðist afsagnar
hans.
Símamynd AP.
Löghald lagt á eigur
samtaka námumanna
Bonn, 25. oklóber. AP.
KAINEK Barzel, forseti vestur-
þýska þingsins, hefur sagt af sér því
embætti vegna ásakana um að hafa
þegið mútur upp á 1,7 milljónir
marka af Flick-fyrirtækjasamsteyp-
unni. Flick-málið er enn í rannsókn
og ýmsir stjórnmálamenn tengjast
því.
Alfred Dregger, formaður þing-
flokks kristilegra demókrata,
flokks Barzels, las upp uppsagn-
arbréf hans á þingflokksfundi, en
Barzel fór huldu höfði og blaða-
fulltrúi hans sagði hann veikan
heima. í bréfi Barzels stóð m.a. að
hann hefði sagt af sér vegna hins
óskaplega pólitíska- og andlega
álags sem Flick-málið hefði í för
með sér. Stóð að hann yrði og að
segja af sér til að þingið gæti
starfað eðlilega undir stjórn nýs
forseta.
Þetta er í annað skiptið sem
þingforseti í Vestur-Þýskalandi
hættir vegna hneykslismáls, en
Rainer Barzel
árið 1969 sagði Eugen Gersten-
mayer af sér eftir að hafa verið
sakaður um vafasöm fjármála-
umsvif. Barzel hefur ætíð neitað
því að hafa þegið mútur af Flick.
Sjá nánar á bis. 21.
Presteránið:
Höfuðpaurinn
háttsettur í
lögreglunni?
V.rsjá, 25. oklóber. AP.
PÓLSKA herstjórnin tilkynnti í dag, að
þrír menn hefðu verið handteknir og
sakaðir um aðild að ráni prestsins
Jerzy Popieluszko á Töstudaginn. Einn
mannanna er starfsmaður í pólska inn-
anríkisráðuneytinu, en Iftið er vitað um
hina tvo sem sagðir eru hafa verið f
vitorði með þeim fyrrgreinda. Prestur-
inn er enn ekki kominn í leitirnar og
Jozef Glemp, æðsti maður pólsku
kirkjunnar, óttast að hann kunni að
hafa verið myrtur.
Glemp hefur krafist þess af
stjómvöldum að þau hraði rannsókn
málsins og geri niðurstöðurnar heyr-
inkunnar og dragi ekkert undan.
Sendi Glemp frá sér yfirlýsingu um
málið og kom á óvart að hún var
lesin bæði f útvarpi og sjónvarpi.
Ráöa menn af því, að yfirvöld óttist
viðbrögð almennings því Popieluszko
var ekki einungis einn vinsælasti
prestur Póllands, heldur opinber og
eldheitur stuðningsmaður „Sam-
stöðu".
Jerzy Urban, talsmaður pólsku
herstjórnarinnar, sagði f dag, að
sönnunargögn hefðu fundist i bifreið
aðalsakborningsins, m.a. hár sem
talin eru úr höfði prestsins. Starfs-
menn í innanríkisráðuneytinu sem
ekki vildu láta nafna getið, sögðu að-
alsakborninginn vera lögreglumann
með umtalsverðan titil.
Londoii. 25. oklóber. AP.
DÓMSTÓLL úrskurðaði í
dag að löghald skyldi lagt á
eigur og sjóði samtaka
brezkra kolanámamanna þar
sem samtökin skirrtust við
að greiða 200 þúsund sterl-
ingspunda sekt er þau voru
dæmd í nýlega fyrir að boða
verkfall án þess að bera það
áður undir félagsmenn. Er
þetta annað áfallið sem sam-
tökin verða fyrir á tveimur
dögum, en í gær aflýstu
námuverkstjórar fyrirhuguðu
verkfalli, sem stöðvað hefði
allar kolanámur landsins.
Talið er að í sjóðum samtak-
anna séu allt að átta milljónir
sterlingspunda. Hefur endur-
skoðunarfyrirtækinu Price Wat-
erhouse í London verið falið að
gera sjóðina upptæka.
Skömmu eftir úrskurð dóm-
stólsins fór Anne Scargill, eigin-
kona leiðtoga námamanna,
Arthur Scargill, í höfuðstöðvar
samtakanna í Sheffield, hirti
þar skjalabunka og ók á brott án
þess að gera starfsfólki grein
fyrir ferðum sínum.
Leiðtogar námamanna og
stjórn kolanámanna komu sam-
an til fundar í dag þar sem reynt
Frægur vís-
indamaður
landflótta
Stokkhólmí. 25. október. AP.
SÆNSK STJÓRNVÖLD hafa stað-
fest, að heimsfrægur sovéskur vís-
indamaður hafi óskað eftir hæli sem
pólitískur flóttamaður I Sviþjóð.
Nafn mannsins hefur þó ekki verið
gefið upp. Hann mun hafa gefið sig
fram við sænsku lögregluna I lok síð-
ustu viku. Lögreglan, útlendingaeft-
irlitið og utanríkisráðuneytið vildi
ekki tjá sig um málið að svo stöddu.
verður að finna leiðir til lausnar
deilunni. Til átaka kom við ýms-
ar kolanámur í Norður-Englandi
með þeim afleiðingum að 17
lögregluþjónar slösuðust.
4 skipum
sökkt í
Persaflóa
BaKhdad. frak. 25. október. AP.
TAI.SMADl'R herráðs íraka greindi
frá því í dag, að herþotur hefðu ráðist á
skipalest við mynni hafnarinnar t ír-
önsku borginni Bandhar Khomeini og
sökkt fjórum skipum. Eigi lét hann
þess getið hvort um erlend kaupskip
eða írönsk sjóhersfley væri að ræða.
Umræddur talsmaður bætti við,
að Irakar hefðu mikinn hug á því að
auka til muna umsvif sín gegn skipa-
ferðum í Persaflóa, einkum og sér i
lagi á leiðinni milli Khargeyju og
Bandhar Khomeini. íranir hafa
sjálfir svarað í sömu mynt, ráðist á
skip vítt og breitt um Persaflóa, síð-
ast 19. október, er herþotur þeirra
sökktu skipi frá Panama og drápu
um leið þrjá sjómenn og særðu sjö
til viðbótar úr áhöfn skipsins.
Bardagar voru enn miðsvæðis á
víglinunni og gumuðu báðir stríðsað-
ilar af mannvígum í liði andstæð-
inganna. Yasser Arafat leiðtogi PLO
hefur lagt fram tillögu um frið í
stríðinu, en sérfræðingar telja
hverfandi horfur á því að deiluaðilar
hafi áhuga á því.
Frakkar um „sprengjumálið**:
Úlfaldi úr mýflugu
Lundúnuin, 25. október. AP.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Breta, sagði í ræðu í full-
trúadeild breska þingsins í dag, að
„sprengjuirálið" umtalaða er lög-
regluhundar fundu sprengju sem
einn af öryggisvörðum Francois
Mitterrand Frakklandsforseta
hafði komið fyrir til að kanna ör-
yggisgæslu bresku lögreglunnar,
hefði verið hið „leiðinlegasta og
alvarlegasta mál,“ og að Frakkar
yrðu krafðir nánari svara um
hvernig svona lagað gæti átt sér
stað. í tilkynningu frá franska
sendiráðinu sagði að um mikinn og
leiðan misskilning hefði verið að
ræða, en Bretar og sérstaklega
bresk blöð, hefðu gert allt of mikið
úr málinu.
„Það hefur verið gerður úlfaldi
úr mýflugu,” sagði í tilkynningu
frá franska sendiráðinu sem
fullyrti auk þess að sprengjunni
hafi verið komið fyrir með vit-
und breskra lögreglumanna og í
gríni hafi hinir bresku og
frónsku öryggisverðir rætt sín á
milli um að prófa þefskyn
sprengjuleitarhundanna." í yfir-
lýsingu frá franska utanríkis-
ráðuneytinu var auk þess fullyrt
að það væri ekkert hæft í yfir-
lýsingum Breta um að öryggis-
verðinum franska hafi verið
skipað að kanna öryggisgæsluna.
Stjórnvöld beggja landa hafa
þó lagt á það áherslu að málið
megi alls ekki verða til þess að
draga úr gildi heimsóknar Mit-
terrands til Bretlands sem hefur
verið hin gagnlegasta. Á hinn
bóginn breikkaði gjáin á milli
bresku og frönsku öryggisþjón-
ustanna, en síðasta hámark
kuldans þar á milli var I júní
síðastliðnum, á efnahagsþinginu
í Lundúnum, en þá stukku bresk-
ir öryggisverðir á tvo af lífvörð-
um Mitterrands og afvopnuðu
þá.