Morgunblaðið - 26.10.1984, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
Steindór starfar
með fimm bílum
FIMM bflstjórar á Bifrciöastöð
Steindórs fcngu atvinnuleyfi til
leigubflaaksturs við síðustu úthlutun
og munu þeir reyna að halda áfram
rekstri stöðvarinnar fyrst um sinn, á
meðan verið er að kanna rekstrar-
grundvöll fyrir áframhaldandi starf-
semi.
Með dómi Hæstaréttar í byrjun
júlí sl. féllu úr gildi atvinnuleyfi
leigubílstjóra, sem gefin voru út á
stöðina, en samgönguráðuneytið
veitti bílstjórum á stöðinni frest
til að stunda leiguakstur fram til
11. október sl., og var sá frestur
síðan framlengdur fram yfir síð-
ustu úthlutun, sem veitt var í
fyrradag. Bifreiðastjórar á Stein-
dóri hættu svo í gær akstri þeirra
leigubifreiða, sem ekið hafa hjá
stöðinni að undanskildum þeim
fimm, sem fengu leyfi. Á fundi,
sem haldinn var í stjórn Steindórs
í gær var ákveðið að kanna
Áfengi og tóbaki
stolið á Akranesi
Akrmnesi, 25. oklóber.
Innbrot var í útsölu Áfengis- og
tóbaksverzlunar ríkisins hér á
Akranesi síðastliðna nótt, og er
talið að töluverðu magni af áfengi
og tóbaki hafi verið stolið. Lög-
reglan á Akranesi hefur rannsókn
málsins með höndum en ekkert
hefur enn komið fram sem upplýst
getur innbrotið. Talið er að inn-
brotið hafi verið framið á milli 1
og 5 síðastliðna nótt. Lögreglu-
þjónn á vakt varð var við að brotin
hafði verið upp hurð á afgreiðslu
verzlunarinnar og farið þar inn.
Ekki er að fullu ljóst hve miklu
var stolið, en jafnvel er talið að
það sé um töluvert magn að ræða.
grundvöll fyrir áframhaldandi
rekstri stöðvarinnar, en ljóst er,
að ekki verður unnt að halda
rekstrinum áfram til lengdar með
fimm bifreiðum, þótt það verði
reynt fyrst um sinn.
„Þetta er millibilsástand," sagði
Sigurður Sigurjónsson, fram-
kvæmdastjóri og stjórnarformað-
ur Steindórs í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Við erum að gera
okkur vonir um að þessu sjötíu ára
gamla fyrirtæki, brautryðjanda í
leigubílaakstri hér á landi, verði
skapaður rekstrargrundvöllur til
að starfa áfram, enda ekki um það
deilt að þörf er fyrir áframhald-
andi starfsemi stöðvarinnar,"
sagði Sigurður.
Deila BÍ og útgefenda:
Sáttafundur í dag
Ríkissáttasemjari hefur boðað
samninganefndir Blaðamannfé-
lags íslands og biaðaútgefenda til
sáttafundar klukkan 16 í dag. Síð-
asti fundur deiluaðila var haldinn
á þriðjudag.
Morgunblaftið/Júlfus
Lögregluþjónn við skotvopnin sem fundust við nýja útvarpshúsið I gærkvöldi.
Byssurnar fundust
við útvarpshúsið
BYSSURNAR, sem stolið var úr
verzluninni Vesturröst aðfaranótt
miðvikudags, fundust liggjandi
skammt frá nýja útvarpshúsinu
laust fyrir klukkan 20 í gær-
kvöldi. Ókunn rödd hringdi í DV
og sagði að byssurnar lægju við
útvarpshúsið. Þegar var hringt í
lögregluna og fór hún á staðinn
og fann byssurnar vafðar í lak.
Auk þess fannst nokkurt magn
skota í íþróttatöskum, auk ann-
ars þýfis. Augljóst virtist, að byss-
urnar hefðu legið þama skamma
stund þegar þær fundust.
Alls var tíu byssum — sex
rifflum og fjórum haglabyss-
um, stolið úr verzluninni Vest-
urröst. Logreglan í Reykjavík
notfærði sér heimild í lögum til
þess að taka skotvopnin í sína
vörzlu, þar sem eigendur verzl-
unarinnar hafa ekki þótt sýna
næga aðgæzlu. Síðastliðinn vet-
ur var haglabyssunni, sem not-
uð var við vopnaða ránið við
útibú Landsbankans við Lauga-
veg, stolið úr Vesturröst.
Nýi kraninn losar lyf
Morgunbl&ðiA/Júlíus
VERKFALLSSTJÓRN BSRB veitti í gær leyfi til uppskipunar úr ms. Álafossi, sem lá við bryggju í
Sundahöfn. Var þar skipað upp lyfjum og heilsugæslubúnaði. Við uppskipunina var hinn nýi krani
Eimskips notaður í fyrsta sinn, og að sögn kunnugra reyndist hann vel við verkið. Á meðfylgjandi mynd,
sem tekin var síðdegis í gær má sjá er verið var að losa skipið.
Símaþjónusta við Djúp:
Deilan komin til
kasta sýslumanns
HJÁ sýslumannsembættinu á ísa-
firði fer nú fram rannsókn á verk-
fallsaðgeróum BSRB á símstöð-
inni á ísafirði en eins og fram
hefur komið í Mbl. virðir BSRB
ekki úrskurð Kjaradeilunefndar
um að símstöðin skuli opin í þrjá
tíma á dag fyrir almenna síma-
Íijónustu við þá fjóra hreppa við
safjarðardjúp sem búa við hand-
virkan síma.
Póst- og símamálastjóri
óskaði eftir rannsókninni í
fyrradag og að gerðar yrðu við-
eigandi ráðstafanir til að úr-
skurður Kjaradeilunefndar nái
fram að ganga. Ólafur K.
Ólafsson fulltrúi sýslumanns
hóf í gær rannsókn málsins
með yfirheyrslum yfir síma-
stúlkum. Sagði hann að rann-
sókn lokinni yrði tekin ákvörð-
un um framhald þess. Jón
Skúlason póst- og símamála-
stjóri sagðist ekki hafa óskað
eftir rannsókn á neitunum
BSRB og símamanna um að
fara eftir úrskurðum Kjara-
deilunefndar við viðgerðir á
síma og telex í Reykjavík. Sagði
hann að Póstur og sími væri
skuldbundinn til að fara eftir
úrskurðum Kjaradeilunefndar
en vonaðist til að málin leyst-
ust áður en lengra væri haldið.
Úrskurðir Kjaradeilunefndar
varðandi símamál sem BSRB
hefur gert ágreining um og
neitað að virða voru sumir
hverjir a.m.k. samþykktir sam-
hljóða í Kjaradeilunefnd . Mbl.
er kunnugt um að svo var um
úrskurðina um fyrirkomulag
telexþjónustu og viðgerðir á
bilunum í jarðsímakerfum og
sjálfvirkum stöðvum.
Ók rúma 200
km til að komast
í samband við fólk
ísafirði, 25. október.
GÍFURLEG óánægja er meðal íbúa
ísafjarðardjúps með afskipti BSRB
af ákvörðun kjaradeilunefndar um
að símstöðin á fsaflrði skuli vera
opin fyrir símaþjónustu við sveita-
hreppana fjóra, sem í Djúpinu eru,
þrjá tíma á dag. Mjög erfiðlega
gengur að afla upplýsinga um málið,
þar sem símasambandslaust er við
alla bæina. En bóndi þaðan, sem
fréttaritari hitti í dag, sagðist hafa
þurft að aka yflr 200 kflómetra til að
komast í sambandi við fólk.
Hrepparnir norðan Djúpsins ná
ekki sambandi við ísafjörð og í
slysa- eða veikindatilfellum þarf
jafnvel að aka að Kirkjubóli í
Langadal, þar sem símstöð hér-
aðsins er. Þar á að vera neyðar-
vakt, að sögn Pósts og síma, en
engar ráðstafanir hafa verið gerð-
ar til að einhver sé við símann á
stöðinni á Kirkjubóli ef heimafólk
er utan dyra við vinnu sína. Allt
að 250 kílómetrar eru frá fjærstu
byggð til ísafjarðar og verða
bændur þá að aka þá leið eða bíða
á milli ferða hjá Djúpbátnum til
að fá nauðsynjar. En báturinn
gengur tvisvar í viku.
Vitað er um mann sem hefur
verið í talstöðvarsambandi við
fólk á þessum stöðum og hefur
hann getað aðstoðað fólk við að
koma nauðsynjum á Djúpbátinn.
Nú hefur heyrst að umdæmis-
stjóri Pósts og síma á ísafirði
hyggist láta taka stöð þessa niður,
þar sem hún brjóti i bága við fjar-
skiptalög. Er að heyra að mikil
reiði sé í fólki ef stöðva á þennan
eina tengilið Djúpmanna við
laekna og aðra neyðarþjónustuað-
ila meðan mörg hundruð kílómetr-
ar skilja á milli að hægt sé að
koma til hjálpar ef hætta steðjar
að Úlfar
BSRB-menn hafa sýnt ótrú-
lega stífni og ófyrirleitni
segir Albert Guðmundsson fjármálaráðherra Sibíð^Seltí^fífun
Morgunblaðið fór í prentun seint í upphaflega krafan. Þetta kalla
„ÞAÐ VERÐUR ekkcrt lagt fram
af okkar hálfu. Við bíðum eftir
gagntilboði frá þeim,“ sagði Albert
Guðmundsson, fjármálaráðherra, í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins skömmu fyrir sáttafund
ríkisins og BSRB, sem hófst í
gærkvöldi. Á fundi með frétta-
mönnum fyrr um daginn höfðu for-
ystumenn BSRB ítrekað þá skoðun
sína, að þeir teldu fjármála-
ráðherra eiga næsta leik í stöð-
unni. Sáttafundurinn stóð enn er
gærkvöldi.
Aðspurður um þá skoðun
BSRB-manna, að hann ætti
næsta leik í stöðunni sagði fjár-
málaráðherra m.a.: Þeir eru
búnir að segja þetta allan tím-
ann og hafa svo verið að skila
gagntilboðum, sem eru af sömu
stærðargráðu og upphaflega
krafan. Það lítur bara ekki út
fyrir að þeir vilji semja. Þrátt
fyrir tilslakanir ríkisins höfum
ég ekki samningaviðræður. Mér
liggur við að kalla þetta algjört
einræði af þeirra hálfu. Þeir
haga sér eins og valdhafar."
Fjármálaráðherra var spurður
hvort hann ætti von á að raun-
hæft gagntilboð kæmi frá
BSRB-mönnum á fundinum.
Hann svaraði því til að samn-
inganefnd ríkisins biði eftir ein-
hverri hreyfingu frá samninga-
nefnd BSRB. „Til að hægt sé að
semja verða báðir aðilar að setj-
ast niður og tala saman. Við bíð-
um því eftir að einhver hreyfing
komi frá þeim. Við höfum í einu
og öllu komið fram við þá á full-
komlega heiðarlegan hátt, án
þess að hafa fengið hreyfingu í
rétta átt á móti. Þetta gengur
ekki svona Iengur. Fólk verður
bara að fá að vita, að þeir eru
með svo ótrúlega stífni og ófyr-
irleitni að engu tali tekur, og
slíkt gengur auðvitað ekkí ef
samningar eiga að takast," sagði
Albert Guðmundsson.