Morgunblaðið - 26.10.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUft 26. OKTÓBER 1984
5
Auður og Halldér Laxnes.
Söfnuðu
hlutafé
fyrir 5,1
milijón
LOKIÐ er hlutafjársöfnun hjá ís-
lenzka útvarpsfélaginu og að sögn
Ólafs Haukssonar, eins forráða-
manna félagsins, söfnuðust 5,1 millj-
ón króna. Aðstandendur félagsins
höfðu sett sér það lágmark að safna
tveimur milljónum króna og hámark
5,1 milljón.
KAUPMÁTTUR GREIDOS TlMAKAUPS MIOAÐ VIÐ
VfSUÖUJ nUMFÆKSUJKOSntMMR
isao-100
BARNA- OG UNGUNGADEILD
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22
SÍMI FRÁ SKIPTIBORDI 45800.
Hrafn Gunnlaugsson
Ný framkvæmda-
stjórn
Listahátíðar
— Kvikmyndahátíd
haldin í maí
Ný framkvæmdastjórn Listahátíð-
ar í Reykjavík 1986 tók nýlega til
starfa. Formaður hennar er Hrafn
Gunnlaugsson, en hann er fulltrúi
Reykjavíkurborgar í stjórninni,
varaformaður er Kristinn Hallsson,
fulltrúi menntamálaráðuneytisins.
Aðrir í stjórninni eru Birgir Sigurðs-
son rithöfundur, Kristín Jóhannes-
dóttir leikstjóri og Stefán Baldurs-
son leikhússtjóri, kjörinn af fulltrúa-
ráði Listahátíðar.
Ákveðið hefur verið að halda
næstu kvikmyndahátíð í vor, frá
18. til 26. maí, en þá er skólum
u.þ.b. að ljúka. Að þessu sinni
verður kvikmyndahátíðin haldin í
Austurbæjarbíói sem hefur núna
þrjá sýningarsali.
Ólafur Hauksson sagði að há-
markinu hafi verið náð vonum
fyrr en félagsmenn hefðu búizt
við. Á þriðja hundrað manns hafa
lofað að kaupa hluti i félaginu og
verður framhaldsstofnfundur fé-
lagsins haldinn á þriðjudag, 30.
október. Hann kvað menn nú vera
með í skoðun, hvaða útvarpssenda
hentugast væri að kaupa, en ann-
ars myndu menn bíða átekta og
sjá hverjar breytingar yrðu á
frumvarpi því, sem fyrir Alþingi
liggur um breytingar á útvarps-
lögum.
Þróun kaupmáttar
Á þessu línuriti sést þróun kaupmáttar greidds tímakaups miðað við
vísitölu framfærslukostnaðar. Árið 1980 er kaupmátturinn sagður 100
og síðan er línan dregin eftir því. Tekið er mið af verkamönnum,
verkakonum og iðnaðarmönnum.
Þetta línurit sýnir bestur en flest annað hve kaupmátturinn
hrundi þegar óðaverðbólgan var sem mest frá síðari hluta árs 1982
fram á árið 1983.
Þegar efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar tóku að hafa áhrif
á þriðja ársfjórðungi 1983 stöðvaðist hrun kaupmáttarins og síðan
hefur hann haldist og frekar aukist en hitt.
Bókaútgáfan Vaka:
Endurminningar
Auðar Laxness
VÆNTANLEG er á markaðinn frá
bókaútgáfunni Vöku endurminn-
ingar Auðar Sveinsdóttur Laxness,
bókin ber heitið Á Gljúfrasteini.
Bókina hefur Edda Andrésdóttir
skrifað í samvinnu við Auði, og er
hún byggð á viðtölum og dagbókum,
sem Auður hefur haldið.
Bókin fjallar um líf Auðar sem
fléttast eðlilega saman við feril
nóbelskáldsins Halldórs Laxness,
en þau gengu í hjónaband á að-
fangadag 1945.
„Bókin spannar tímabilið frá
fæðingu hennar 1918 allt til þessa
dags,“ sagði Ólafur Ragnarsson,
bókaútgefandi í samtali við Mbl.
„Hún fjallar um uppvöxt hennar,
eril unglingsáranna og fyrstu
kynni þeirra Halldórs. Auður
fjallar um lífið á Gljúfrasteini,
ferðalög þeirra hjóna, nóbelshá-
tíðina og allt það sem henni fylgdi.
Auður segir mjög hispurslaust
og líflega frá og við sögu kemur
fjöldi manna bæði innlendra og
erlendra. Ég held að það sé óhætt
að fullyrða að þessi bók varpi nýju
ljósi á líf Auðar og Halldórs,"
sagði Ólafur ennfremur.
Bókin er talsvert á þriðja
hundrað síður að stærð og hana
prýða fjöldi mynda.
A morgun er
fyrsti vetrardagur
og viö erum
auövitaö byrjuö
aö taka fram
vetrarfötin
fyrir
börn og unglinga.
Vorum að taka
upp
úlpur, jakka, peysur, boli,
buxur og skó.