Morgunblaðið - 26.10.1984, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
Clty of Perth 31. okt.
Bakkafoss 9. nóv.
Laxfoss 17. nóv.
Cify of Perth 29. nóv.
NEWYORK
City of Perth 29. okt.
Bakkatoss 7. nóv.
Laxfoss 15. nóv.
City of Perth 27. nóv.
HALIFAX
Laxfoss 18. nóv.
Laxfoss 18. des.
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGHAM
Alafoss 4. nóv.
Eyrarfoss 11. nóv.
FELIXSTOWE
Álafoss 5. nóv.
Eyrarfoss 12. nóv.
ANTWERPEN
Álafoss 6. nóv.
Eyrarfoss 13. nóv.
ROTTERDAM
Álafoss 7. nóv.
Eyrarfoss 14. nóv.
HAMBORG
Álafoss 8. nóv.
Eyrarfoss 15. nóv.
GARSTON
Fjallfoss 6. nóv.
USSABON
Vessel 23. nóv.
LEIXOES
Vessel 24. nóv.
BILBAO
Vessel 25. nóv.
NORDURLÖND/-
EYSTRASALT
BERGEN
Vessel 24. okf.
Skógafoss 2. nóv.
Lagarfoss 9. nóv.
Skógafoss 16. nóv.
KRISTI4NSANO
Vessel 29. okt.
Skógafoss 5. nóv.
Lagarfoss 12. nóv.
Skógafoss 19. nóv.
MOSS
Skógafoss 6. nóv.
Lagarfoss 9. nóv.
Skógafoss 20. nóv.
HORSENS
Skógafoss 8. nóv.
Skógafoss 22. nóv.
GAUTABORG
Vessel 31. okt.
Skógafoss 7. nóv.
Lagarfoss 14. nóv.
Skógafoss 21. nóv.
KAUPMANNAHÖEN
Vessel 1. nóv.
Skógafoss 9. nóv.
Lagarfoss 15. nóv.
Skógafoss 23. nóv.
HELSINGJABORG
Vessel 2. nóv.
Skógafoss 9. nóv.
Lagarfoss 16. nóv.
Skógafoss 23. nóv.
HELSINKI
Vessel 12. nóv.
GDYNIA
Vessel 14. nóv.
TORSHAVN
Skógafoss 3. nóv.
N. KÖPING
Vessel 13. nóv.
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-Iram ogtil baka
frá REYKJAVÍK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriðjudaga
frá AKUREYRI
alla fimmtudaga
EIMSKIP
*
Samningamálin milli ASÍ og VSÍ:
Björn Þórhallsson
formaður Landssambands
verzlunarmanna:
Sízt orðið til
að greiða fyrir
samningum
„MENN voru í gær tilbúnir að r«ða
þessar hugmyndir VSÍ og því kom
það á menn flata að frétta, eftir ýms-
um leiðum, samþykkt ríkisstjórnar-
innar í gærkvöldi og í morgun, þar
sem hún setur það skilyrði að það sé
gengið alfarið að hugmyndum VSÍ.
VSI setti aldrei neitt slíkt fram sem
lokaorð,“ sagði Björn bórhallsson
formaður Landssambands verzlun-
armanna.
Björn sagði ennfremur, að sér
fyndist lítið samræmi í samþykkt
ríkisstjórnarinnar og að hún hefði
sízt orðið til þess að greiða fyrir
samningum. Hann sagði ennfrem-
ur: „Ég býst við að í hugum flestra
hafi verið, að skattalækkun yrði
notuð til þess að kauphækkun í
krónum yrði minni en menn ann-
ars teldu þurfa að vera, en að ekki
væri miðað við það að peninga-
launahækkun yrði 4%, 5% eða 6%
nákvæmlega."
Aðspurður um, hvort hann teldi
að skattalækkunarleiðin væri þar
með úr sögunni sagði hann: „Við
vitum ekkert hvað tekur við. Við
viljum eiginlega helst ekki taka
mark á þessu. Við vorum með bréf
frá ríkisstjórninni og við héldum
að það væri fullnægjandi til þess
að við gætum rætt þessa hluti
saman. Við samþykktum í mið-
stjórn í dag að halda áfram við-
ræðum við VSf og ég býst við að
við komum þar á framfæri hug-
myndum um niðurskurð og það
sem þarf til að unnt verði að fram-
kvæma skattalækkanir.
Björn Þórhallsson sagði að lok-
um, að mönnum hefði brugðið
mjög við fréttimar af samþykkt
ríkisstjórnarinnar. Við hefði legið
í gærmorgun að menn hentu öllu
frá sér í fússi, en tekist hefði að
draga úr óánægjunni eftir því sem
leið á daginn.
Magnús Gunnarsson
framkvæmdastjóri VSÍ:
Um þrjár leiðir er
nú að ræða
MAGNÚS Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands sagði í samtali við
Mbl. í gærkvöldi, að boðað yrði til
samningafundar með ASf síðdegis í
dag. Hann kvað ýmislegt af því sem
fram kom í gær frá forsvarsmönnum
ASf nokkuð óraunhæft. Til dæmis
væri þar hvergi nefnt að í tilboði VSÍ
fælist, að ef framfærsluvísitalan færi
yfir ákveðna punkta, þá væri VSf
reiðubúið til að borga einn flokk í
viðbót.
Magnús sagði ennfremur að all-
ar viðmiðunartölur, sem VSÍ hefði
gefið upp með tilboðinu, væru
miðaðar við erfiðustu aðstæður.
Hann var spurður hvort hann
teldi að skattalækkunarleiðin
væri með þessu úr sögunni. „Ég
held að það sé nú um þrjár leiðir
að ræða,“ svaraði hann. „í fyrsta
lagi að við komumst að samkomu-
lagi, þó það þurfi ekki að vera efn-
islega nákvæmlega eins og tilboð
okkar, en þó þannig að ríkisstjórn-
in geti sætt sig við það. Síðan gæt-
um við sameiginlega farið fram á
að ríkisstjórnin skoðaði möguleik-
ann á að standa við sitt tilboð. f
öðru lagi getum við litið algjörlega
fram hjá skattalækkunum og far-
ið í samninga í stíl við það sem
gert hefur verið á vinnumarkaðin-
um. í þriðja lagi gætum við skoðað
aðra möguleika, sem menn hafa
ekki séð áður, en gætu orðið til
þess að við næðum sameiginlegum
markmiðum."
Magnús Gunnarsson sagði að
lokum: „Það er ljóst að við erum í
samningum og semja verðum við,
hvernig sem hlutirnir velta. Auð-
vitað hlýtur það að vera von allra
að sá samningur haldi, en verði
ekki eins og orðið hefur svo oft og
mörgum sinnum áður.“
Ásmundur Stefánsson
forseti ASÍ:
A vissan hátt
úr öðrum heimi
„ÞESSI yfirlýsing ríkisstjórnarinnar
virðist á vissan hátt vera úr öðrum
heimi og ekki í samhengi við samn-
ingamálin yfirleitt. Það er augljóst
mál, að það er útilokað fyrir ríkis-
stjórnina að leggja sig þannig á milli
aðila sem eru að semja, að hún geri
öðrum aðilanum að ganga án breyt-
inga að umræðugrundvelli, sem hinn
aðilinn hefur lagt fram,“ sagði As-
mundur Stefánsson forseti Alþýðu-
sambands íslands.
Ásmundur sagðist í gærkvöldi
vænta þess, að VSf boðaði til
samningafundar í dag. Varðandi
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
sagðist hann fyrst hafa frétt af
henni í fjölmiðlum. Hann hefði
ekki fengið hana í hendur fyrr en
hann hefði hringt í forsætisráðu-
neytið í gær og farið fram á að fá
eintak. Um efni yfirlýsingarinnar
sagði hann ennfremur: „Það eina
sem getur skýrt málið er að ríkis-
stjórnin hafi aldrei ætlað sér að
lækka skatta og að hún sé með
þessu að hlaupa frá fyrri yfirlýs-
ingum. Þessi yfirlýsing ríkis-
stjórnarinnar er í allri andstöðu
við þau viðhorf sem ríkja innan
VSÍ. VSf kynnti sínar hugmyndir
sem umræðugrundvöll og ég vænti
þess ekki að VSÍ hafi dottið í hug
að nokkur gengi að hugmyndinni
óbreyttri, en síðan stillir ríkis-
stjórnin þessu upp sem úrslita-
kostum."
Aðspurður um, hvort afskipti
ríkisstjórnarinnar hefðu hleypt
aukinni hörku í samningamálin
sagðist Ásmundur telja að svo
væri, en hins vegar taldi hann að-
ila verða að finna flöt á samning-
unum.
Magnús Geirsson for-
madur Rafiönaðar-
sambandsins:
Skattalækkunartil-
boðið sjónarspil
„ÞETI'A er allt saman hálfgerður
skrípaleikur. Ég held að skattamálið
sé úr sögunni af hálfu ríkisstjórnar-
innar og ég hef ekki neina trú á því
að þetta geti orðið, úr því sem komið
er. Það eru sett tímamörk — tafar-
laust — eða eftir sólarhring. Maður
er hættur að botna í æðri máttarv-
öldum eða forsætisráðherra. Því
miður er það eins og talað sé fyrst og
hugsað svo,“ sagði Magnús Geirs-
son formaður Rafiðnaðarsambands
íslands er hann var spurður álits á
stöðu mála.
Magnús sagði ennfremur að
hann hefði litla trú á öðru en að
skattalækkunartilboð ríkisstjóm-
Samþykkt VMSÍ og Landssambands iðnverkafólks:
Munum aldrei ganga að skil-
yrðum ríkisstjórnarinnar
HÉR fer á eftir samþykkt viðræðunefndar Verkamannasambands fs-
lands og Landssambands iðnverkafólks, sem samþykkt var á fundi við-
ræðunefnda þessara aðila í gær:
„Síðasta tilboð vinnuveitenda
gengur út frá 6,1% upphafs-
kauphækkun auk tveggja flokka
hækkana á samningstímanum.
Binnig er dregið úr verstu
göllum tvöfalda kerfisins, án
þess að afnema það.
Á móti þessu vilja vinnuveit-
endur skerðingar á núverandi
samningum. Tilboðið miðar við
að verðlag hækki um 16% frá því
nú og til júní á næsta ári, en um
19,6% til ársloka 1985.
Að baki þessum spám eru
sagðar áætlánir um 10—13%
gengislækkanir en við höfum
rökstuddan grun um að þær séu
meiri.
Þrátt fyrir skattalækkanir er
augljóst að tilboð VSf er fjarri
því að viðhalda þeim kaupmætti,
sem vinnuveitendur hafa sjálfir
sagst vilja viðhalda.
Aðalatriðin í yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar frá í gær eru
þessi:
1. Skattalækkun er skilyrt því
að launakostnaður verði ekki
meiri en tilboð VSÍ segir til um.
2. Ríkisstjórnin ætlar sjálf að
ákveða niðurskurð og/eða tekju-
öflun vegna skattalækkana.
Með skilyrðum sinum er ríkis-
stjórnin að festa í sessi verulega
rýrnandi kaupmátt á næsta
samningstima, viðhalda tvöfalda
kerfinu og ætlast til þess að við
undirritum verri samning en við
höfum nú. Það munum við aldrei
gera.
Auk þess er nú horfið frá
þeirri grundvallarforsendu að
verkalýðshreyfingin fái um það
nokkru ráðið, hvernig mætt
skuli skattalækkunum og tekur
ríkisstjórnin það nú í sínar
hendur.
Verkamannasamband íslands
og Landssamband iðnverkafólks
hafa frá upphafi lýst sig reiðu-
búin til samningsgerðar á
grundvelli skattalækkana sem
hluta af heildarsamningum til
tryggingar kaupmáttar og lækk-
unar verðbólgu.
Eins og málum er nú háttað,
stefnir kjaradeildan í óefni með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum
fyrir alla.
Ofangreindum samtökum er
ljóst að það er þjóðarnauðsyn að
ná samningum sem fyrst.
Verkamannasamband íslands
og Landssamband iðnverkafólks
lýsa sig reiðubúin til tafarlausr-
ar samningagerðar sem treystir
kaupmátt launa og telja að fara
verði nýjar leiðir út úr þeirri
sjálfheldu sem viðræðurnar eru
nú komnar í.“
Læknishúsið á Sauðár-
króki flutt úr stað
SauAárkróki, 23. október.
SL LAUGARDAG var gamla
læknishúsiö við Suðurgötu á Sauð-
árkróki flutt af grunni sínum og
sett niður til bráðabirgða sunnar
við sömu götu. Við flutninginn voru
notaðir stórvirkir kranar, sem lyftu
húsinu á flutningavagn. Gekk þessi
framkvæmd öll að óskum. Fjöldi
fólks fylgdist með þegar þetta
gamla hús, sem lengi hefur sett
svip á bæinn var flutt á braut.
Sigurður Pálsson héraðslæknir
lét reisa húsið 1901, og þar
bjuggu héraðslæknar Skagfirð-
inga til ársins 1956. Þótti húsið
bæjarprýði, enda vel við haldið
með stórum garði í kring. En á
síðari árum var því lítill sómi
sýndur og drabbaðist niður. Nýir
eigendur, sem hyggja á byggingu
verslunarhúss á lóðinni, buðu þá
læknishúsið gefins hverjum
þeim, sem vildi flytja það eða
rífa. Vaknaði þá áhugi meðal
margra, einkum þó brottfluttra
Sauðkrækinga, um að varðveita
húsið. Ekki mun ráðið frekar um
framtíð þess á þessu stigi.
Kári