Morgunblaðið - 26.10.1984, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
7
arinnar hefði ætíð verið sjónarspil
því skilyrðin um að gengið yrði að
tillögum VSÍ væru fáránleg. Að-
spurður um, hvernig ASÍ myndi
haga viðræðum við VSÍ í fram-
haldi af þessu, sagði hann: „Við
höfum fyrst og fremst hugsað um
það að tryggja kaupmáttinn. Það
er minna mál hvort hækkanir
telja fleiri eða færri prósentur. Ég
er hræddur um að fóik fáist ekki
til að leggja áfram á sig þá byrði
sem lögð hefur verið á frá í maí
1983. Það verður ekki gert aftur á
þessum áratug, ef þetta mistekst
núna.“
Magnús sagði ennfremur að far-
ið væri að skoða hvaða félög væru
komin með verkfallsheimildir. Það
væri a.m.k. gert ráð fyrir þvi inn-
an Rafiðnaðarsambandsins að
afla heimilda á næstu dögum til
þess að hafa þær við hendina ef á
þyrfti að halda.
Guöjón Jónsson
formaður Málm- og
skipasmiðasambandsins:
Látum ekki setja
okkur skilyrði
„MÉR sýnist að það verði gengið til
viðræðna um þessi drög og hug-
myndir VSÍ. En það verður náttúru-
lega gengið í þær viðræður með því
hugarfari að menn eru ekki ásáttir
við það eins og það liggur fyrir og
vilja gera á því breytingar. Það er
enginn ■ okkar röðum ásáttur við
þetta plagg og við látum ekki setja
okkur nein skilyrði um að niðurstöð-
urnar skuli aðeins vera þetta plagg
og ekkert annað,“ sagði Guðjón
Jónsson formaður Málm- og skipa-
smiðasambands íslands.
Guðjón sagði ennfremur, að þeir
tækju engum kostum eða fyrir-
fram skilyrðum um samninga. Það
þýddi ekkert fyrir ríkisstjórnina
að setja slík skilyrði. Hann sagði
ljóst vera, að kaupmáttinn á árinu
1985, sérstaklega eftir mitt árið,
yrði að leiðrétta. Hann sagði að
lokum: „Ég tel að aðilar eigi að
snúa sér að að ræða um þetta til
að ná þessu saman."
GuÖmundur J.
Guðmundsson formaður
V erkamannasambandsins:
Málin standa nú
mun verr
„ÉG TEL alla stöðuna mun verri eft-
ir þessa úrslitakosti ríkisstjórnarinn-
ar. Ég reikna með að VSÍ hangi í
þessu eftir yfirlýsingar ríkisstjórnar-
innar og það er Ijóst að þetta hefur
hleypt meiri hörku í allt saman,"
sagði Guðmundur J. Guðmundsson
formaður Verkamannasambands fs-
lands.
Guðmundur sagðist telja að það
væri orðið tímabært að fara að
vígbúast, en þeir hefðu viljað
losna við að beita verkfallsvopn-
inu í lengstu lög. Hann sagði sam-
stöðuna gegn tillögu ríkisstjórnar-
innar hafa verið algjöra á fundi
miðstjórnar ASÍ í gær, menn
hefðu verið þar yfir sig hissa og
átt erfitt með að skilja hvað
stjórnvöld væru að fara. Hann
sagði að lokum, að sér litist svo á
að málin stæðu mun verr eftir en
áður.
Tilefni til að
hlaupa frá málinu
*
— segir m.a. í ályktun ASI um yfir-
lýsingu ríkisstjórnarinnar
Hér fer á eftir ályktun miðstjórnar Alþýðusambands fslands sem
samþykkt var í gær:
„A fundi miðstjórnar Alþýðusambands fslands í dag var eftirfarandi
ályktun samþykkt samhljóða:
Verkalýðshreyfingin hefur að
undanförnu ítrekað lýst vilja
sínum til þess að meta skatta-
lækkanir sem ígildi launahækk-
ana og samþykkt að ganga til
viðræðna við atvinnurekendur
og ríkisstjórn um raunhæfar
skattalækkanir og aðhaldsað-
gerðir í verðlagsmálum sem
ásamt kauphækkunum tryggi
raunverulegan kaupmátt á
samningstímanum. Síðast í gær
var þetta áréttað með fundar-
samþykkt formanna landssam-
banda innan ASÍ.
I gegnum fjölmiðla bárust þær
fréttir í gærkvöldi og morgun að
ríkisstjórnin hefði gert sam-
þykkt þar sem skattalækkanir
eru skilyrtar því að gengið sé að
umræðuhugmyndum VSl
óbreyttum. Af þessu verður ekki
annað skilið en fyrri yfirlýsingar
ríkisstjórnarinnar hafi verið
einber sýndarmennska og nú sé
búið til tilefni til þess að hlaupa
frá málinu. Slíkt atferli er eng-
um til sóma. Vinnuveitendasam-
band tslands hefur ekki sett úr-
slitakosti heldur lýst sig reiðu-
búið til viðræðna. Til þeirra við-
ræðna hljótum við að ganga. Á
það mun síðar reyna hvaða orð
ríkisstjórnar standa.
6.Virðingarfyllst,
f.h. Alþýðusambands fslands
Ásmundur Stefánsson.“
Verslunarbankinn fær
full réttindi til
gjaldeyrisviðskipta
VERSLUNARBANKI fslands hefur
nú fengið full réttindi til gjaldeyris-
viðskipta.
Að sögn Kristjáns Oddssonar,
bankastjóra, fékk bankinn í des-
ember í fyrra takmörkuð réttindi
til að versla með erlendan gjald-
eyri og takmörkuðust þau við-
skipti við þjónustu við námsmenn
og ferðamenn, svo og stofnun inn-
lendra gjaldeyrisreikninga. „Með
bréfi Seðlabankans 19. október eru
bankanum veitt alhliða gjaldeyr-
isréttindi, sem hafa það í för með
sér að hægt verður að bjóða við-
skiptamönnum bankans þjónustu
vegna inn- og útflutningsverslun-
ar,“ sagði Kristján. „Við höfum
sóst eftir þessu lengi, en þvi miður
getum við ekki hafið þessa þjón-
ustu strax. Þjálfun starfsfólks,
tölvuvæðing og annar undirbún-
ingur tekur langan tima, en við
stefnum að þvi að hefja þessa
starfsemi í áföngum á næsta ári,“
sagði Kristján.
Verslunarbankinn og Útvegs-
bankinn hafa haft nána saravinnu
á sviði gjaldeyrisviðskipta og
kvaðst Kristján reikna með
áframhaldi á því, enda hefði það
gefist mjög vel.
99
Minni innlánsaukning í sam-
bandi við stöðu atvinnuveganna“
— segir Jónas Haralz, bankastjóri
„ASTÆÐAN er fyrst og fremst sú,
að verulegur hluti starfsemi Lands-
bankans fer fram utan Reykjavík-
ur,“ sagði Jónas Haralz, bankastjóri
Landsbankans, er hann var inntur
skýringa á því hvers vegna innláns-
aukning bankans væri mun minni
en margra annarra banka. „Innláns-
aukning utan Reykjavíkur er helm-
ingi minni en á Reykjavíkursvæðinu
á þessu ári. Landsbankinn er með
30 afgreiðslustaði utan Reykjavíkur
og þegar jafn erfiðir tímar eru í sjáv-
arútvegi og nú er, þá kemur það
fram bæði í innlána- og útlánatölu.
Útlánaaukning Landsbankans, sem
þó er minni en flestra annarra
banka, eru mun meiri úti á landi en
í Reykjavík, en innlánaaukning að
sama skapi minni. Þeir bankar, sem
fyrst og fremst starfa í Reykjavík,
þar sem hefur verið uppgangur, hafa
mestu innlánsaukninguna. Sú aukn-
ing hefur fengist með því að auka
útlánin, því þessir bankar eru einnig
með mestu útlánaaukninguna."
Jónas Haralz sagði, að Lands-
bankinn væri ekki að verða undir í
þeirri samkeppni sem staðið hefur
um sparifé landsmanna. „Þessi
þróun var áður en samkeppnin
kom til sögunnar," sagði hann.
„Þegar illa árar hjá atvinnuvegun-
um þá kemur það skýrast í ljós hjá
Landsbankanum, því bæði innlán
og útlán bankans eru mjög mikið í
tengslum við atvinnulífið. Þegar
vel árar þá er alltaf tiltölulega
meiri innlánsaukning hjá Lands-
bankanum en öðrum bönkum,"
sagði Jónas Haralz að lokum.
15 ára stúlku nauðgað
EYRIR NOKKRU varð 15 ára gömul stúlka fyrir fólskulegri árás í Breiðholti,
henni nauðgað og hótað öllu illu ef hún skýrði frá ódæðinu. Sextán ára
gamall piltur hefur viðurkennt verknaðinn.
Málavextir eru þeir, að eftir
skólaball fékk pilturinn far með
stúlkunni í leigubíl þar sem hann
kvaðst eiga heimili skammt frá
hennar. A leikvelli skammt frá
heimili hennar gerði pilturinn sig
líklegan við stúlkuna, en hún vildi
ekkert með hann hafa. Kom til
átaka með þeim sem enduðu með
því að stúlkan féll til jarðar og
skall harkalega á steini og hlaut
slæma áverka, skarst á höfði og
augabrún.
Skömmu síðar kom pilturinn
fram vilja sínum eftir að hafa haft
í hótunum við stúlkuna, sem
komst skömmu síðar heim til sín
en var svo skelfd, að hún þorði
ekki í fyrstu að skýra foreldrum
sínum frá atburðum af ótta við
hefnd piltsins. En svo fór að hún
skýrði frá málavöxtum og var
málið umsvifalaust kært. Piltur-
inn var handtekinn og játaði á sig
verknaðinn og var gert að sæta
geðrannsókn.
PAJERO SUPER WACON
Hinn vinsæli lúxusjeppi
MITSUBISHI
{ PAJERO
HELSTU MAL 2ja d.
hjOlahaf 23SO 2695
HEILOARLENCO 3920 4600
RRFIDD 1680 1680
VECHAO 235 235
HÆO 1880 1965
EICIN ÞYNCD 1395 1620
PAJERO
SUPER W.
ÍSr^Four Wbeei Dnve
mm
PAJERO styttri gerð,
fáanlegur með Turbo-dieselvél
IhIheklahf
Laugavegi 170-172 Sími 21240
FJOLHÆFASTA
FARARTÆKIÐ Á LANDI