Morgunblaðið - 26.10.1984, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGiiR 26. OKTÓBER 1984
13
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Ný ríkisstjórn í fsrael.
ísrael:
Róttækar efnahags-
málatillögur stjórnar-
innar sæta gagnrýni
- en líkast til myndi stjórnarsamstarf
ekki stranda á efnahagsmálunum
STJÓKNIN í fsrael undir forsæti Shimon Feres hefur nú verið við völd í
tæpa tvo mánuði og vitaskuld er á svo skömmum tíma varasamt að draga
ályktanir um hvernig henni muni farnast á kjörtfmabilinu.
Yitzak Moda’i, fjármálaráð-
herra hefur lagt fram tillög-
ur i efnahagsmálum sem er
vitanlega ætlað að rétta að ein-
hverju leyti ömurlega fjárhags-
stöðu og draga úr óðaverðbólg-
unni í landinu, sem mun í síð-
asta mánuði hafa farið í milli
600—700 prósent. í tillögum
Moda’i fólst meðal annars að
niðurskurður verði á opinberum
framkvæmdum, skattur á bíla
verði hækkaður stórlega svo og á
fyrirtæki. Einstaklingsskatta-
stigi hækki sömuleiðis. Dregið
verði stórlega úr útlánum til
framkvæmda og launahækkanir
verði frystar, svo og verðlag um
óákveðinn tíma. Gert er ráð
fyrir að hætt verði niðurgreiðsl-
um á ýmsum nauðsynjavörum og
niðurgreiðslur almennt lækkað-
ar.
Þessar hugmyndir vöktu strax
og þær voru settar fram mikla
gagnrýni og innan stjórnarinnar
var ekki einhugur um þær. Dav-
id Levy, aðstoðarforsætisráð-
herra, sagði að kæmi þó ekki
væri nema hluti þessara ráðstaf-
ana til framkvæmda mundi það
þýða „gjaldþrot heimilanna" vítt
og breitt um landið.
Histadrut, stærstu verkalýðs-
samtökin í ísrael, lýstu því einn-
ig yfir fljótlega eftir að Moda’i
kynnti þessar ráðstafanir, að
þau myndu ekki styðja skilyrð-
islaust tillögur ríkisstjórnarinn-
ar. Forystumenn verkalýðssam-
takanna hafa þó látið á sér
skilja, að launafólk innan sam-
takanna geri sér grein fyrir því,
að það þurfi að taka á sig byrðar
svo að efnahagur landsins verði
réttur við. Á hinn bóginn sagði i
tilkynningu Histadrut að svo
harkalega væri vegið að lág- og
millilaunafólki i þessum tillög-
um að engu tali tæki.
ísraelar hafa og leitað mjög
eftir þvi við Bandaríkjamenn, að
fá þaðan að minnsta kosti einn
milljarð dollara og það tafar-
laust. Shimon Peres forsætisráð-
herra og Reagan Bandaríkja-
forseti ræddu þetta á fundum
sem þeir áttu með sér í október
öndverðum, þegar Peres fór í
heimsókn til Bandaríkjanna.
Trúlega munu Bandarikjamenn
þó halda að sér höndum með
fjárhagslegar skuldbindingar
fram yfir forsetakosningar og
munu reyna að leiða hjá sér
þrýsting ísraela en gefa i stað
þess fagurlega orðaðar yfirlýs-
ingar um áframhaldandi stuðn-
ing við þá.
Þrátt fyrir skelfilegan efna-
hagsvanda sem ísraelar glíma
við og þarf ekki að fjölyrða um,
eru stjórnmálasérfræðingar
þeirrar skoðunar flestir, að efna-
hagsmál muni ekki verða þau
mál sem kunni að gera ríkis-
stjórninni hvað erfiðast fyrir,
þótt svo sé látið í veðri vaka.
Afstaðan til Líbanonmálsins
og þó fyrst og fremst Vestur-
bakkans og landnemabyggða
þar, svo og greinir með Seph-
ardim-gyðingum og Ashkenazi-
gyðingum, verði öllu flóknara
viðfangs.
Eins og fram hefur komið í
greinum um ísrael er grundvall-
arskoðanamunur með Verka-
mannaflokknum og Likud til
Líbanonmálsins. Verkamanna-
flokkurinn vildi tafarlausan
brottflutning herja frá S-Líban-
on, en Likud hefur viljað fara
hægar i sakirnar og í kosninga-
baráttunni notuðu Likud-menn
þetta mál óspart til að benda á
að Verkamannaflokkurinn væri
óábyrgur. Nú þegar Peres hefur
setzt í stól forsætisráðherra hef-
ur hann sjálfsagt og flokksbræð-
ur hans komizt að þeirri niður-
stöðu, að að flytja ísraelska her-
menn á brott frá þessu lands-
væði er hægara ort en gjört, að
minnsta kosti í þeirri mynd sem
hann hugsaði sér.
Og á meðan halda ibúar S-Lib-
anon áfram að gera israelskum
eftirlitsstarfið erfitt og i viku
hverri berast fregnir um að isra-
elskir hermenn hafi verið skotn-
ir þar til bana eða sprengdir i
loft upp. Fjáraustur ísraela í
gæzlustarfið i Suður-Líbanon
hefur verið mikill eins og geta
má nærri og orðið meiriháttar
baggi á máttlitjum efnahag
landsins.
0t á við hefur verið reynt að
halda landnemabyggðamálinu á
lágu nótunum, en ekki þarf mik-
ið út af að bera, og þá gæti hrikt
i innviðum stjórnarinnar sem
eru kannski ekki eins traustir og
æskilegt væri. Shimon Peres og
Yitzak Shamir hafa báðir lagt
rnikla áherzlu á það i málflutn-
ingi sínum, að efnahagsmálin
séu það sem fyrst verður að
vinna í. Önnur mál verði þá að
bíða betri tíma hvort sem
mönnum líkar betur eða verr.
Stjórnmálaskýrendur segja
ennfremur að þeir Peres og
Shamir eigi í reynd ekki sjö dag-
ana sæla, þvi að innan ríkis-
stjórnarinnar sé hver höndin
upp á móti annarri og harð-
skeyttastir í gagnrýni á allar
gerðir hennar séu þeir David
Levy sem áður er nefndur og það
gamla hörkutól Ariel Sharon,
fyrrv. varnarmálaráðherra.
Raunar sýnir samsetning stjórn-
arinnar að þar hefur verið reynt
að sætta menn við við ýmis sjón-
armið með því að afhenda þeim
ráðuneyti og ráðherrastóla, i
þeirri von að það lægi óánægj-
uraddir þeirra og geri þeim ljóst
að nú sé tími til kominn að
bretta upp ermarnar og vinna í
alvöru. Áaaron Gafny, fyrrver-
andi diplómati og fylgdarmaður
minn, sagði við mig þegar ég var
í ísrael síðast: „Þú veizt að þar
sem tveir Gyðingar eru saman
komnir eru þrjár mismunandi
skoðanir." Þetta geta Gyðingar
sagt sjálfir í spaugi, en myndu
kannski ekki taka því jafn glað-
lega ef það gerðu aðrir. Þar sem
25 ráðherrar sitja í stjórninni
eru skv. því um 37 mismunandi
skoðanir innan stjórnarinnar
um hvert mál. Það þarf mikil
klókindi og mikla lagni til að
stjórna í slíkri stjórn.
(Heimildir: Jerusalem Post,
Newsweek o.fl.)
Jóhanna Kristjónsdóttir er blm. í
erlendri fréttadeild Mbl.
FASTEIGNASALAN __
LORUNa
SIMAR: 29766 & 12639
Erum fluttir
í Hafnarstræti 11
Opiö í dag kl. 9—18
Líttu við og fáðu söluskrá — ný söluskrá
daglega.
Sími 29766
1
2ja herb. íbúöir
Vesturbær 2ja—3ja herb. 75 fm íbúð í steinhúsi. Verð 1450
þús.
Njálsgata Ágætis kjallaraíbúð með sér inng. og sér hita. Ca. 40
fm. Verð 1100 þús.
Seljavegur Mikiö endurnýjuö rúmgóö íbúö, gott útsýni, ca. 60
fm. Verð 1250 þús.
Skúlagata Lagleg íbúö í kjall. Talsvert endurnýjuö, ca. 55 fm
Verð 1200 þús.
Spóahólar Mjög góö ibúö, fallegar innréttingar, ca. 65 fm.
Verö 1450 þús.
3ja herb. íbúðir
Asparfell Ca. 80 fm íbúö, nýlegar innréttingar. Fallegt útsýnl.
Verö 1700 þús.
Engihjalli Einstaklega falleg, 2 svalir, gott útsýni, ca. 90 fm.
Verö 1750 þús.
Hagamelur Mjög góö íbúö, öll sér, parket á öllum gólfum, ca. 70
fm. Verö 1800 þús.
Hraunstígur Hf. Risíbúö, ekkert undir súö. þribýli í rólegri götu.
Fallegt útsýni. Ca. 85 fm. Verö 1500 þús.
Hraunteigur Björt kjallaraibúð, snýr í suður. Nýjar eldhúsinn-
réttingar. Stutt i sund, fallegur garöur. Ca. 80 fm. Verö 1650
þús.
Krummahólar Ca. 90 fm íbúö i lyftublokk. Bílskýli. Verö 1700
þús.
Krummahólar Falleg ibúö í lyftublokk. Mikiö útsýni, ca. 85 fm.
Verð 1600 þús.
Slóttahraun fbúö í tvíbýli, allt sér, gengiö inn á jafnsléttu, ca. 80
fm. Verö 1650 þús.
4ra herb. íbúðir
Barónsstígur 2 íbúðir ca. 106 fm í sama stigahúsi, nýlegt
steinhús. Verö 1950 þús.
Frakkastígur Önnur hæö í gömlu en nýuppgerðu húsi. 3 íbúðir
á stigagangi. Ca. 90 fm. Verö 1750 þús.
Herjólfsgata Hf. Ágæt íbúö á fallegum staö, gott útsýni, ca. 100
fm. Verö 1800 þús.
Sólvallagata Rúmgóö íbúö, stofa og 3 herb. ca. 100 fm. Verö
1800 þús.
Stórar íbúðir
Glæsileg íbúó Ca. 160 fm íbúö í Hólahverfi. Suöursvalir og
bílskúr. Verö 2,7 millj.
Hamraborg Góö íbúö á fyrstu hæö, fjögur svefnherb., ca. 126
fm. Verö 2,3 millj.
Einbýlishús
Erluhólar Glæsilegt hús á góöum útsýnisstaö. Á neðri hæö er
séribúö 2ja herb. Bílskúr. Eignin er alls um 300 fm. Verö 6,2
millj.
Grettísgata Þetta er Iftiö hús, kjallari, hæö og ris, ca. 60 fm
grunnfl. Verö 1500 þús.
Heiðvangur Hf. Reisulegt hús í fallegri byggö, ca. 300 fm alls.
Verö 5,5 millj.
Hrísateigur Þrilyft einbýli meö faliegum garöi, bílskúr, ca. 200
fm. Verð 4,2 millj.
Mýrarás Einlyft hús á fullbúinni lóö, lagnir aö blómaskála meö
potti, (er til), ca. 170 fm + 50 fm bílskúr. Verö 4,2 millj.
I smíðum
Ásbúó Gb. Húsiö er langt komið, þaö eru 2 íbúðir ca. 75 fm og
ca. 200 fm. Bílskúr ca. 50 fm og möguleiki á sundlaug í kjallara.
Verð 4,5 millj.
Frostaskjól Falleg endaraöhús, tilb. undir tréverk, 2 hæöir og
kjallari, ca. 230 fm alls. Verö 3,6 millj.
Kársnesbraut Sérhæö og bilskúr. Teikningar á skrifstofu, ca.
120 fm. Verö 1950 þús.
lÓLAFUR GEIRSSON, VIÐSK.FR. GUÐNI STEFÁNSSON, FRKV.STJ
ÞORSTEINN BRODDASON SÖLUSTJ.