Morgunblaðið - 26.10.1984, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
17
Kaupmenn:
„Man ekki jafn margar
innistæðulausar ávísanir“
„Það er ekki fyrr en núna allra
síðustu daga, sem manni virðist vera
farið að harðna i dalnum hjá fólki,“
sagði Gunnar Snorrason, kaupmað-
ur í Hólagarði, þegar hann var innt-
ur eftir því í g*r, hvort kaupmenn
hefðu orðið varir við að verkfall
BSRB væri farið að hafa áhrif i
vcrslunarhætti og vöruframboð.
„Hins vegar má segja að mat-
vörukaupmenn fjármagni þetta
verkfall hjá BSRB, að því leyti að
notkun krítarkorta hefur stórauk-
ist meðan á því hefur staðið,"
sagði Gunnar.
„Þá man ég ekki i annan tíma
eftir því að inn hafi komið jafn
mikið af innstæðulausum ávísun-
um og jafnvel fölsuðum og svo er
mikið um það að fólk biðji okkur
um að hafa biðlund með sér fram
yfir verkfall.
Vöruskortur er ekki farinn að
segja til sín svo að nokkru nemi,
einstaka matvörutegundir, sem
koma ferskar á hverjum degi, t.d.
bananar, eru á þrotum en annars
er nóg af öllu,“ sagði Gunnar.
Hann kvaðst ekki hafa orðið var
við að fólk hamstraði vörur, helst
væri til þess tekið að meira væri
keypt af heilum dilkum en venju-
lega og svo „tóbaki, sama hvað það
heitir". En eins og flestum mun
kunnugt eru vinsælustu vindl-
ingategundirnar nær með öllu
uppseldar og fátt eftir af tóbaki
annað en nokkrar tegundir vindla
og píputóbaks, sem njóta nú
skyndilegra vinsælda reykinga-
manna.
„Vel birgir af öllu
sem máli skiptir“
„Hér hafa orðið sáralitlar
merkjanlegar breytingar og ég
held að verkfallið þyrfti að standa
í a.m.k. hálfan mánuð til viðbótar
áður en hægt er að fara að tala um
alvarlegan vöruskort í verslunum,
alltjént hvað varðar matvöru,"
sagði Stefán Friðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri Vörumarkaðarins.
„Reyndar eru heildsalarnir
orðnir uppiskroppa með nokkrar
vörutegundir, þ.á m. sykur og
hveiti, en við erum vel birgir af
þessum vörum og öllu sem máli
skiptir. Það gæti þó farið að stytt-
ast í það að hveitibrauðin kláruð-
ust og líka nýtt grænmeti og
ávextir, en við eigum ennþá epli og
appelsínur.
Heimilistæki á borð við ísskápa,
frystikistur, myndbandatæki og
þess háttar, sem fást ekki tollaf-
Ólympíumótið í bridge
hefst á sunnudaginn
SJÖUNDA ólympíumótið í bridge
hefst nk. sunnudag í Seattle í
Bandaríkjunum. Spilað er bæði í
opnum flokki og kvennaflokki, 55
þjóðir senda sveitir til keppni í opna
Viðurlög vegna
vangreidds sölu-
skatts reiknuð
30. október
DAGBLÖÐIN birtu í gær auglýsingu
frá fjármálaráðuneytinu þess efnis
að viðurlög myndu falla á söluskatt
fyrir septembermánuð 1984 hafi
hann ekki verið greiddur í síðasta
lagi 25. þ.m. Síðdegis í gær barst
síðan fréttatilkynning frá fjármála-
ráðuneytinu þar sem segir: „Er verk-
fall BSRB hófst hinn 4. október sl.
hafði skattyfirvöldum ekki tekist að
dreifa söluskattsskýrslum til sölu-
skattsgreiðenda. Af þessum sökum
svo og því að innheimtumenn geta
aðeins veitt mjög takmarkaða þjón-
ustu á meðan verkfall BSRB varir,
hefur fjármálaráðherra ákveðið að
viðurlög vegna vangreidds sölu-
skatts fyrir septembermánuð verði
ekki reiknuð fyrr en að kvöldi 30.
október nk. í stað 25. október eins
og verið hefði við venjulegar aðstæð-
ur.“
Árni Árnason framkvæmda-
stjóri Verslunarráðs Islands sagði
í gær í samtali við Morgunblaðið
að enn væri ekki ljóst hver endan-
leg áhrif verkfallsins yrðu. „En
samkvæmt upplýsingum fjár-
málaráðuneytisins þá hefur verið
frestað að beita viðurlögum a.m.k.
til 30. október. Dragist verkfallið
hins vegar á langinn verður sá
dagur heldur ekki raunhæfur og
ljóst er að einhver frestur verður
gefinn eftir að verkfalli lýkur til
þess að hægt sé að ganga frá upp-
gjöri og greiðslu söluskattsins án
þess að komi til viðurlaga. Póstur-
inn hefur verið notaður til þess að
koma gögnum til skila og þau
embætti sem veita greiðslu á sölu-
skatti viðtöku eru lokuð þannig að
mönnum eru í raun og veru allar
bjargir bannaðar,“ sagði Árni
Árnason.
greidd, eru hins vegar á þrotum og
það fer að verða fátæklegt um að
litast í þeim deildum verslana því
að kaupmenn eru farnir að selja
sýnishornin."
Stefán kvaðst ekki hafa orðið
var við að fólk væri að draga sam-
an seglin í innkaupum, en sagði
aukningu í krítarkortaviðskiptum
vera verulega. „Það má segja að
það sé heldur þyngra yfir öllu en
vant er, en að verslun sé þó að
mestu eðlileg enn sem komið er,“
sagði Stefán Friðfinnsson.
Listamiðstöðin:
Santiago
Harker
SANTIAGO Harker frá Col-
ombiu opnar á morgun ljós-
myndasýningu í Listamiðstöð-
inni við Lækjartorg. Á sýning-
unni, sem nefnist „Hulið“, eru 17
ljósmyndir um mannlíf í Bogota,
fæðingarstað höfundar. Santi-
ago Harker er verkfræðingur að
mennt, en hefur undanfarin ár
ferðast víða og tekið ljósmyndir.
Sýning hans verður opin daglega
frá kl. 14—18, en henni lýkur 4.
nóvember.
Ljómnywl Árni Sæber*
flokknum, en 24 þjóðir keppa I
kvennaflokki.
Bæði mótin eru tvískipt: fyrst er
eins konar undankeppni, þar sem
allir spila við alla, en í seinni hlut-
anum munu átta efstu þjóðirnar
spila útsláttarkeppni um þrjú
efstu sætin. Sveitunum 1 opna
flokknum er skipt í tvær fylkingar
í undankeppninni, A og B, og kom-
ast fjórar efstu úr hvorri fylkingu
áfram í úrslitin.
tsland sendir sveit til þátttöku 1
opna flokknum, og var liðið valið
eftir langa landsliðskeppni í
sumar. Liðið skipa: Guðlaugur R.
Jóhannsson og Örn Arnþórsson,
Guðm. Sv. Hermannsson og Björn
Eysteinsson, Símon Símonarson
og Jón Ásbjörnsson, en fyrirliði án
spilamennsku er Björn Theódórs-
son, forseti Bridgesambands Is-
lands.
Að vanda eru Bandaríkjamenn,
Frakkar og ftalir taldir sigur-
stranglegastir. ttalir og Banda-
ríkjamenn hafa löngum einokað
baráttuna um heimsmeistaratitil-
inn, en Frakkar eru núverandi
Ólympíumeistarar og Evrópu-
meistarar.
Franska liðið skipa gamal-
reyndar kempur, m.a. Szarc,
Chemla og Perron, en þessir þrír
voru í síðasta ólympíuliði Frakka.
Bandaríska liðið er einnig ljón-
sterkt, skipað margföldum heims-
meisturum, Þeim Hamman —
Wolff, Goldman — Soloway og
Anderson — Brachman. Þetta er
traustvekjandi sveit á pappírun-
um, en samkomulagið í sveitinni
er víst ekki upp á marga fiska og
gæti það haft sitt að segja um
frammistöðuna nú. Liðstjórinn
Brachman gerði sér lítið fyrir í
sumar og rak alla sveitarfélaga
sína, en hann hefur fjármagnað
liðið og keypt sér þar með stöðu í
því. Mótið nú er það síðasta sem
þessi hópur spilar saman.
Aðrar sveitir sem gætu blandað
sér í baráttuna eru Brasilía, Pól-
land, Noregur, Pakistan, Svíþjóð,
Danmörk, Indónesía og Taiwan.
í kvennaflokki búast menn al-
mennt við sigri Bandaríkjamanna,
en Bretar og ítalir gætu vissulega
blandað sér í baráttuna líka.
SUMIR VERSLA DÝRT -
AÐRIR VERSLA
HJÁ OKKUR
Gæði
VtSA
Folaldahakk
AÐEINS
.00
pr. kg.
Kindaha ikk 1 4: C.00 kJ Pr-kg-
Reykt úrbeinað folaldakjöt ] AÐEINS 148,-’
Folalda 1 “> .00
hamborgarar X^pr sti
stk!
með brauði
Lambakjöt
í 1/1 skrokkum
niðursagað
AÐEINS
Ný svið Rækjur lkg.
65ÍS 198"
Opið til kl. 19.00 í kvöld
Opið á laugardag til 13.00 í Austur
en kl. 16.00 í Starmýri
AUSTURSTRÆT117 STARMÝRI 2