Morgunblaðið - 26.10.1984, Side 59
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
59
\ftk?AKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
'nn
Hatrið léleg-
ur bandamaður
4979-9454 skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Leifur Sveinsson lögfræðingur
og forstjóri skrifar stundum í
Morgunblaðið og þá aðallega í
Lesbók. Allar eru greinar Leifs
skemmt'Iegar, sumar alveg slá-
andi góðar, eins og sú um sönglist
i Mývatnssveit. Þann 25/8 sl.
skrifaði hann Rabbið i Lesbók,
stórgóða grein. Hún byrjar svona:
„Þegar mér hefur orðið það á
undanfarin ár að lesa hatursskrif
nokkurra dagblaða gegn bænda-
stéttinni í landinu, þá hefur mér
jafnan komið í hug einkunnarorð
Alþjóðaskáksambandsins: Við er-
um allir einnar ættar (Gens una
sumus).“
Þegar Leifur hefur meðal ann-
ars rætt söluerfiðleika landbúnað-
arins bæði hér heima og erlendis
segir hann:
„Þegar þessi vandræði steðjuðu
að, hóíu hatursmenn landbúnað-
arstefnunnar upp sinn söng, héidu
sig geta aukið sölu á dagblöðum
sínum, sem rekin eru í upphrópun-
arstíl. „Hatrið er lélegur banda-
maður" var haft eftir vitrum
manni."
Öll er greinin með ágætum og
orð í tíma töluð. Hatursáróðurinn
í hinum og þessum og þessum og
hinum dagblöðum er fyrir löngu
orðinn þjóðhættulegur. Og þó
margir hafi áttað sig á því að þessi
áróður stafar af sjúkdómi eru
samt ótrúlega margir sem taka
þetta gott og gilt.
Allt frá landnámstíð gegnum ár
og aldir fram á síðustu tíma hefur
landbúnaðurinn fætt og klætt
þjóðina fyrst og fremst, enda 90%
af fæðu mannkynsins landbúnað-
arafurðir. Og enn fáum við mestan
og bestan hlutann af fæðu okkar
frá landbúnaðinum. Og dýrmætar
afurðir; ull og skinn. En það eru
breyttir tímar, landbúnaður á í
erfiðleikum, ekki bara á íslandi,
heldur líka í allri Vestur-Evrópu
og Norður-Ameríku. Efnahags-
bandalagsríkin eiga milljón tonn
af smjöri og ársbirgðir af kjöti, en
þau lönd sem vantar mat geta ekki
borgað hann nokkru viðunandi
verði, engin furða þó íslendingúm
gangi illa að selja. Það tekur
óumflýjanlega nokkurn tíma að
aðlaga landbúnaðinn nauðsynleg-
um breytingum. En hvað sem öllu
öðru líður má landsbyggðin ekki
fara í eyði, það er þjóðar voði.
Leifur Sveinsson á þakkir skild-
ar fyrir sitt skynsamlega og
skemmtilega „Rabb“ í síðustu
Lesbók. Morgunblaðið hefur
stundum í seinni tíð tekið undir
með apakórnum til ófrægingar
landbúnaðinum. Það ætti að láta
það vera.“
Þingmenn, breyt-
ið um hugarfar
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Mig langar til að bera fram þá
fyrirspurn til ráðherra og annarra
þingmanna, hver sé tilgangurinn
með því að fara í guðshús og
hlusta á sendiboða guðs við þing-
setningu og ganga síðan nokkra
metra út I Alþingishús þar sem
þeir taka til við að svívirða hver
annan?
Ég fæ ekki skilið að þetta séu
trúaðir menn. Heldur ættu þeir að
leysa vandamál þjóðarinnar í
anda frelsarans og með trú á
hann. Oft hefi ég setið á þingpöll-
um, en aldrei heyrt einn einasta
þingmann vitna í orð guðs. Ég er
nú kominn á áttræðisaldur og er
heilsuhraustur og skammast mín
ekki fyrir að segja það, að ég
þakka það guði. Oft bið ég til guðs
og er oftast bænheyrður.
Góðir þingmenn, breytið nú um
hugarfar og biðjið til guðs um að
ykkur megi takast að leysa vanda-
mál íslensku þjóðarinnar, með
kurteisi og sáttfýsi en ekki með
illdeilum. Með bestu kveðjum.
íslenskt mál látið
víkja fyrir eriendu
Ásgeir Magnússon, Kópavogi
skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Er ég um daginn las í dagskrá
útvarpsins að fjalla ætti um rann-
sóknarstarf Einars Pálssonar á
norsku, blöskraði mér að íslenskt
mál væri látið víkja fyrir erlendu.
Er ég síðan hlustaði á þennan
dagskrárlið íslenska Ríkisútvarps-
ins, sem allur var á norsku og án
nokkurra skýringa á íslensku,
þótti mér það slík móðgun við ís-
lenskt þjóðerni að óhjákvæmilegt
Ólympíuleikar
Kæri Velvakandi.
Þar sem mér virðist að ýmsir
séu þeirrar skoðunar að
frammistaða íslendinga hafi
verið góð á síðustu ólympíu-
leikum, vil ég láta í ljós þá
skoðun mína að svo hafi ekki
verið, þrátt fyrir allan kepp-
enda- og fararstjórafjöldann.
Því finnst mér við hæfi að birt
verði hið fræga ljóð próf. Jóns
Helgasonar er um þetta efni
fjallar. Guðmundur Guð-
mundsson.
Undir blaktandi fánum og herlúðrum
hvellum og gjöllum
sig hrópaði þjóðanna safn,
þangað fór og af íslandi flokkur af
keppendum snjöllum
og fékk á sig töluvert nafn:
í þeirri íþrótt að komast aftur úr öllum
var enginn í heimi þeim jafn.
væri að átelja það harðlega. Mér
vitanlega hefur norska ekki verið
kennd almenningi á íslandi enda
óþarft. Ekki fékk ég neina heildar-
mynd af því efni sem flutt var þó
að ég skildi dálítið í málinu. Tel ég
víst að svo muni hafa verið um
flesta þá er hlustuðu.
Þó að þetta muni vera einsdæmi
hjá útvarpinu tel ég ekki við hæfi
að það sé látið óátalið. Skora ég nú
á ráðamenn þessarar íslensku
menningarstofnunar að láta snúa
þættinum yfir á íslensku og flytja
hann aftur við fyrsta tækifæri. Is-
lenska ríkisútvarpinu ber skylda
til að hlúa sem best að íslenskri
tungu. Því er þetta ritað í einlægri
von um að slíkt endurtaki sig aldr-
ei.“
Þessir hringdu . . .
Góð þjónusta við sjúklinga
Guðfinna Magnúsdóttir, sem
dvelst á sjúkradeild Hrafnistu i
Hafnarfirði, hringdi. Vill hún
koma á framfæri kærum þökkum
til stjórnenda stofnunarinnar
fyrir allt það, sem þeir hafa gert tl
þess að stytta vistmönnum stund-
irnar og þeim til afþreyingar nú
síðustu vikurnar í blaðaleysi, út-
varpsleysi og sjónvarpsleysi.
Sagði hún að vistmönnum hafi
verið það ómetanlegt. — Þá vill
hún og þakka öllu starfsfólki fyrir
sérstaklega góða umönnun.
V
\
Hrafnista f Hafnarflrði.
PlaslmoO
lakrennur og fylgihlutir
10 ára ábyrgð.
NÝ ÞJÓNUSTA
PL0S7UM VINNUTEIKNtNGAR,
verklvsingar. vottorð.
MATSEÐtA VERÐLIST A.
KENNSLULEI06EININGAR.
TILBOO. BLAÐAURKLIPPUR,
VKHJRKENNINGARSKJOL. UOSRITUNAR-
FRUMRIT OG MARGT FLEIRA.
STJ0)D: 8REIOO ALLT AÐ 63 CM
lengd otakmorkuð
0PK) KL. 9-12 OG 13-18.
□I
k HJARÐARHAGA27 S22680.
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
Viötalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Borgartulltrúar Sjálfstæöisflokksins veröa til viötals i Valhöll, Héalelt-
isbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekiö á mótl hvers
kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö aö
notfæra sér viötalstíma þessa.
bevKf
Loft- og veggklæðnmgar, límtré, smíðaplötur,
parket. - A/lt úr Beyki,
því það er óskaviðurinn I dagl
Allar upplýsingar veittar í síma 25150.
BJÖRNINN HF
Skúlatúni 4 - Slmi 25150-Reykjavik