Morgunblaðið - 26.10.1984, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
61
• Geir Sveinsson skorar af línu { leiknum gegn Tékkum é mótinu í
V-Þýskalandi.
Þrír mættu á úr-
tökumót fyrír HM
— slæmt ástand í lyfjamálum lyftingamanna í Svíþjóö
Lundi í Mptambw. Fré MagmM Þorvaldasyni, (réttamanni Morgunblaéaina.
f SEPTEMBER fór fram hér í
Svíþjóó úrtökumót fyrir heims-
meistarakeppnina í kraftlyfting-
um í Texas i Bandaríkjunum.
Búist var vió 14 keppendum é
mótiö, en aóeins þrir létu sjé
sig. Vitað var aó lyfjapróf yróu
framkvœmd á mótinu.
Formaöur sœnska lyftinga-
sambandsins sagöi i blaöaviötali
hér aö ástandlð i lyfjamálum væri
orðiö mjög slæmt. „Eftir mót eru
keppendur farnir aö stinga af áð-
ur en tyfjapróf fer fram, þeir fara
út um neyöarútganga til að
sleppa," sagöi hann.
Þekktur kraftlyftingakappi,
Johnny Vejle, lét hafa eftir sér aö
allir kraftlyftingamenn Svíþjóðar
notuðu „Bolann“ svokallaöa
meira eöa minna, en þaö er
hormónalyfiö anabolic steriods.
„Menn nota lyflö meira og
minna en hætta noktun þess í
tæka tíö fyrir mót, þannig aö þaö
kemur ekki fram á lyfjaprófi,"
sagöi hann. Vejie sagöíst elga
tvo syni, og hann teldi það sjálf-
sagt aö jjeir myndu nota „Ðol-
ann" í framtíöinni ef þeir færu út
i kraftlyftingar.
Forráöamenn lyftingamála i
Svíþjóð og Finnlandi hafa lýst því
yfir aö eftirlit meö lyfjanotkun
keppenda veröi hert til mikilla
muna, þeir hafa sagt aö minni
kröfur verði geröar til lyftinga-
mannanna i þeirri von aö þeir
hætti lyfjanotkun.
ísland í 3. sæti í
Vestur-Þýskalandi
ÍSLENSKA unglingalandsliöiö i
handknattleik 21 éra og yngri tók
nýverið þétt í handknattleiksmóti
í V-Þýskalandi ésamt landsliöum
fré Tékkóslóvakíu, Danmörku og
V-Þýskalandi. islenska liöiö hafn-
aöi í þriója sæti í mótinu. Tékkar
sigruóu, V-Þjóöverjar uröu í ööru
sæti og Danir í fjóróa.
Úrslit leikja í mótinu uröu þessi:
V-Þýskaland — Danmörk 14—19,
staöan í hálfleik var 11—10. ísland
tapaöi fyrir Tékkum 13—17. Leik-
ur liöanna var mjög jafn í fyrri hálf-
leik og í hálfleik var aöeins eins
marks munur á liöunum, Tékkar
leiddu, 7—6. i síöari hálfleik voru
Tékkar sterkari og sigruöu meö 4
marka mun.
V-Þjóðverjar sigruöu svo Islend-
inga meö tveimur mörkum,
18—16, í jöfnum og spennandi
leik. í hálfleik var staöan 9—8 fyrir
Þjóöverja. islensku piltarnir léku
vel i þessum leik. Tékkar sigruöu
Dani örugglega 29—21, t hálfleik
var staöan 12—10.
Besti leikur íslenska liösins i
mótinu var leikurinn gegn Dönum.
islenska liöiö sigraöl örugglega,
27—22, eftir aö staöan í hálfleik
haföi veriö 11 — 12 Dönum i hag.
Urslitaleikur mótsins var á milli
V-Þjóöverja og Tékka og sigruöu
Tékkar með fimm marka mun,
15—20. Hálfleikstölur voru 9—5.
Lokastaöan í mótinu varö þessi.
Tékkar 3 66—49 6—0
V-Þjóöv. 3 52—55 3—3
island 3 56—57 2—4
Danir 3 62—75 1—5
„Landsliðsmaður
með höndum og fótum“
Þaö hefur veriö nóg aö gera
hjé Jóni Ragnarssyni, tvítugum
íþróttamanni úr Hafnarfiröi, aö
undanförnu. Þessi ungi íþrótta-
maður, sem er bæöi landsliös-
maður í handknattleik og
knattspyrnu í liöum 21 érs og
yngri, hefur veriö é feró og flugi.
Jón var í landsliðshópi 21 árs
og yngri sem lék gegn Skotum í
Glasgow á dögunum og varö aö
sætta sig viö 0—1 tap. Síöan
flaug Jón til London og þaöan til
Osló. Þar lék Jón meö liöi sinu
FH í Evrópukeppni meistaraliöa
gegn Kolbotn og stóö sig vel.
Þegar þeirri viöureign var lokiö
mátti Jón enn drífa sig af staö og
nú var feröinni heitiö til Frankfurt
þar sem Jón lék með landsliöi 21
árs og yngri í handknattleik í
móti því sem frá er greint á síö-
unni.
Þess má aö lokum geta aö Jón
er sonur hins kunna handknatt-
leiksmanns Ragnars Jónssonar
sem geröi garöinn frægan hér á
árum áöur. Epliö fellur því ekki
langt frá eikinni.
Meöfylgjandi mynd birtist af
Jóni í þýsku íþróttablaöi — undir
fyrirsögninni „Landsliðsmaður
meö höndum og fótum" eins og
sjá má.
Nationalspieler mit
Hánden und Fiifien“
Nationalspieler bei FuBballem und
Handballern: Jon Ragnarsson.
Hermundur
skoraði
sjo i röð!
Hermundur Sigmundsson,
leikmaöur Stjörnunnar, var í
miklum ham undir lok leiksins
við Dani { Þýskalandi. i hélfleik
höföu Danir yfir, 12:11, og er tíu
mín. voru eftir höföu þeir enn yfir.
Þá tók Hermundur til sinna ráöa
og skoraöi sjö af síöustu tíu mörk-
um íslands, og réöu Danir ekkert
við hann.
Islensku strákarnir léku mjög vel
í þessum leik — og fengu hrós í
blöðum. Sérstaklega Hermundur.
„íslendingar græddu mikið á Sig-
mundssyni, sem skoraöi ellefu
mörk — þar af aðeins eitt úr viti.
Hann er gríöarlega skotfastur,"
sagöi í einu blaöanna.
Stewart staðráöinn í
að verða markahæstur
Fré Bob Honnouy, Mttamannl MorgunblaMna i KngtandL
Ray Stewart, hægri bakvöröur
West Ham, er staóréóinn í því aö
né þeim éfanga aó veröa marka-
hæsti bakvörðurínn í sögu ensku
knattspyrnunnar.
Stewart, sem er 25 ára aö aldri,
hefur skoraö 49 mörk fyrir West
Ham á þeim fimm árum sem hann
hefur leikiö meö liöinu. Þar af hefur
hann gert 42 úr vítaspyrnum. Af
þeim bakvöröum sem enn leika í
Englandi er Phil Neal, fyrirliöi
meistara Liverpool, markahæstur.
Hann hefur gert 67 mörk — en er
oröinn 33 ára, þannig aö Stewart
ætti aö eiga möguleika á aö kom-
ast upp fyrir hann ef hann heldur
áfram aö skora jafn mikiö og und-
anfarin ár.
Markahæsti bakvöröur í 96 ára
sögu ensku knattspyrnunnar er
David Peach, sem lengi lék vinstra
megin í vörn Southampton. A sín-
um ferli skoraöi hann 72 mörk.
• Ray Stewart
- \
Uppskeruhátíð
knattspyrnudeildar
Vals
Sunnudaginn 28. október nk. verður haldiö lokahóf
knattspyrnudeildar Vals í Veitingahúsinu Y, Kópa-
vogi, og hefst það kl. 15. Veittar verða viðurkenn-
ingar fyrir góöan árangur til allra flokka deildarinnar.
Nokkur stutt ávörp veröa flutt og ýmislegt veröur til
skemmtunar.
Allir Valsmenn eru boðnir velkomnir í hófiö en sér-
staklega eru leikmenn yngri flokka félagsins og for-
eldrar þeirra boönir velkomnir.
Vegna lokahófsins falla æfingar 6. og 7. flokks niöur
sunnudaginn 28. október.
Stjórn knattspyrnudeildar Vals.