Morgunblaðið - 02.11.1984, Qupperneq 1
64 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
212. tbi. 71. árg.
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins -
Símamynd/ AP.
INDLAND — Frá óeirðunum í Nýju Delhí í gær. Hús í miðborginni stendur í björtu báli og óbreyttir borgarar flýja undan eldtungunum.
Blóðug átök hindúa
og sí kha á Indlandi
Hundruð þúsunda gengu fram
hjá líkbörum Indiru Gandhi
Nýju Delhí, I. nóvember AP.
ÚTGÖNGUBANN var sett á í Nýju Delhí og fleiri borgum á
Indlandi í dag eftir að til blóðugra bardaga kom milli
hindúa og síkha í kjölfar morðsins á Indiru Gandhi forsæt-
isráðherra. Upplýsingar um fjölda fallinna og særða stang-
ast á, en talið er að a.m.k. 115 manns hafí látið lífíð og
nokkur hundruð slasast í átökum víðs vegar um landið, þar
af um sex hundruð í höfuðborginni.
Sonur Indiru, Rajiv, sem tekið
hefur við embætti forsætisráð-
herra, flutti útvarpsávarp til þjóð-
arinnar i gærkvöldi og hvatti til
stillingar. Lögreglumönnum hefur
verið skipað að skjóta á þá óeirða-
seggi, sem ekki hlýða fyrirmælum
þeirra.
Að sögn Wali, innanríkisráð-
herra Indlands, hafa sveitir her-
manna verið kallaðar út til að að-
stoða lögregluna við að bæla
óeirðirnar niður. „Við munum
ekki líða ástand af þessu tagi,“
sagði hann á blaðamannafundi í
dag. Hann kvaðst vongóður um, að
á morgun, föstudag, yrði kyrrð
komin á víðast hvar í landinu.
Morðingjar Indiru Gandhi, tveir
síkhar í öryggissveitum hennar,
voru nafngreindir í dag. Þeir eru
Beant Singh, sem skotinn var til
bana eftir ódæðisverkið, og Satw-
ant Singh. Þeir notuðu hríðskota-
riffil og skammbyssu til að myrða
forsætisráðherrann. Fjölskyldu-
fólk þeirra Beants og Satwants,
feður þeirra, bræður og systur,
var handtekið í dag, en kona Be-
ants og börn voru horfin á braut
þegar lögregla kom á heimili hans
í Nýju Delhí.
í morgun gengu hundruð þús-
unda manna framhjá líki Gandhi,
sem liggur á viðhafnarbörum á
heimili föður hennar, Nehrus, sem
var fyrsti forsætisráðherra Ind-
lands. Á tímabili var fjölmennið
slíkt, að lögregla varð að beita
táragasi til að halda aftur að fólki.
Margir reiðir hindúar í röðinni,
sem var rúmlega þriggja kíló-
metra löng, hrópuðu á hefndir
fyrir víg leiðtogans. „Blóð fyrir
blóð,“ heyrðist víða kallað .Útför
Gandhi verður gerð á laugardag
og munu helstu þjóðhöfðingjar og
stjórnmálaleiðtogar heims fylgja
henni til grafar.
Símamynd/ AP.
HUNDRUÐ þúsunda gengu fram hjá líkbörum Indiru Gandhi í gær og
vottuðu hinum látna leiðtoga virðingu sína.
Andófsmenn í Gdansk
hvetja til verkfalls
Walesa andvígur aðgerðunum
VnrNjá, 1. nóvember. AP.
HÓPUR andófsmanna í borginni
Gdansk í Póllandi hvatti í dag til
þess, að vinna yrði lögð niður í eina
klukkustund til að mótmæla morð-
inu á séra Jerzy Popieluszko, sem
var einn helsti málsvari óháðu
verkalýðshreyfingarinnar í klerka-
stétt landsins. Lech Walesa, fyrrum
leiðtogi Samstöðu, segist ekki taka
undir þessa hvatningu þar eð að-
stæður séu ekki heppilegar til slíkra
aðgerða nú.
Þá hafa fyrrum forystumenn
Samstöðu í Varsjá hvatt til
þriggja mínútna þagnarstundar í
öllum verksmiðjum landsins á há-
degi á laugardaginn, þegar séra
Popieluszko verður borinn til
grafar.
Andófsmennirnir í Gdansk
leggja til að verkfallið verði annað
hvort á laugardaginn eða 9. nóv-
ember, ef frí verður gefið frá
vinnu á útfarardaginn.
í hópnum í Gdansk er m.a. And-
rzej Gwiazda, sem á sínum tíma
keppti við Walesa um forystuhlut-
verk í Samstöðu. Hann var, ásamt
sjö öðrum foringjum óháðu verka-
lýðshreyfingarinnar, náðaður í
júlí sl. þegar pólitískum föngum
voru gefnar upp sakir.
Veggurinn umhverfis kirkju
heilags Stanislas í Varsjá, þar sem
séra Popieluszko þjónaði og útför
hans verður gerð, var þakinn log-
andi kertum og skrýddur blómum
í dag, Allra heilagra messu, sem
er helgidagur í Póllandi. Þar gat
einnig að líta myndir af prestinum
og spjöld með pólitískum vígorð-
um. Stöðugar messur hafa verið í
kirkjunni allan daginn og hefur
mannfjöldi streymt að án afláts
Bretland:
Er ógerlegt
að semja við
Scargill?
London, 1. nóvember. AP.
STJÓRNENDUR ríkisreknu
kolanámanna í Bretlandi
segja, aö þeir sjái ekki nokk-
urn möguleika á því að sam-
komulag takist, sem bindi
enda á verkfall kolanámu-
manna, meöan marxistinn
herskái, Arthur Scargill, er í
forystu fyrir samtök þeirra.
í gær slitnaði upp úr samn-
ingafundi í vinnudeilunni, sem
staðið hefur í sjö mánuði. Ian
MacGregor, formaður stjórnar
kolanámamanna, sagði að ekki
virtist neinn grundvöllur fyrir
frekari viðræðum.
Arthur Scargill sagði aftur á
móti, að samkomulag gæti tek-
ist ef stjórn kolanámamanna
félli frá þeirri fyrirætlan sinni
að loka námum, sem ekki skila
arði. Hann kvaðst ekki ætla að
falla frá andstöðu sinni við lok-
un náma af fjárhagslegum
ástæðum. Eina réttlætingin
fyrir lokun náma væri, að
verkamönnum væri hætta búin í
þeim.
Svetlana
farin til
Rússlands?
London, 1. nóvember. AP.
SVKl LANA Peters, dóttir Jósep
Stalíns, fyrrum leiðtoga Sovétríkj-
anna, hefur snúið til Rússlands ó
ný eftir 17 ára útlegð ó Vestur-
löndum, að því er skólastjóri í
skóla þeim í Essex ó Englandi,
sem 13 óra gömul dóttir hennar
hefur sótt, greindi fró í kvöld.
„Svetlana hringdi í mig 22.
október," sagði skólastjórinn,
„og sagðist vera á förum til
Moskvu. Olga, dóttir hennar,
myndi því ekki koma aftur í
skólann.“
Svetlana Peters, sem er 59
ára að aldri, yfirgaf Sovétríkin í
mars 1967 þegar hún var á
ferðalagi á Indlandi. Hún fékk
pólitískt hæli í Bandaríkjunum
og giftist þar bandarískum ark-
itekt, William Peters, sem er
faðir Olgu. Þau slitu samvistum
árið 1973. Þá fluttist Svetlana
til Cambridge á Englandi.
Nánir vinir Svetlönu á Bret-
landi hafa lýst furðu sinni á
þessum fréttum og segjast eiga
erfitt með að trúa þeim. Hvorki
sovéska sendiráðið í London né
útlendingaeftirlitið hafa vilja
staðfesta fregnina.
Svetlana á son og dóttur frá
fyrsta hjónabandi sínu og eru
þau búsett í Sovétríkjunum. I
viðtali við Lundúnablaðið The
Observer í mars sl. sagði hún,
að það væri „nánast ofurmann-
legt að streitast við að kasta
ekki öllu frá sér, hlaupa á brott,
ná í farseðil og fara og hitta
þau“.