Morgunblaðið - 07.12.1984, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984
Stundin
nálgast
w
Inæstsíðustu grein minni um
blessaða ríkisfjölmiðlana
minntist ég lauslega á þá hættu,
er ég taldi persónulega stafa af
svæðisbundnum sjónvarpsstöðv-
um hér á landi, en ég óttast mjög
að slíkar stöðvar geti fest hér ræt-
ur í krafti þeirra útvarpslaga, er
senn sjá dagsins ljós á hinu háa
Alþingi. Það þykir ekki góð latína
að höggva stöðugt í sama knérunn,
en ég svara á móti, með hinu al-
kunna orðtaki, að aldrei er góð
vísa of oft kveðin. Og nú er lag að
hafa áhrif á alþingismenn, áður en
þeir taka að bítast um útvarpslög-
in svona rétt fyrir jólasteikina. Eg
vil leyfa mér, sem óbreyttur lýð-
ræðisþegn, að benda háttvirtum
þingmönnum á þá inenningarlegu
vá, er steðjar að landi voru, nái
samþykkt um svæðisbundnar
sjónvarpsstöðvar fram að ganga.
Hættan er ekki samfara litlum
sjónvarpsstöðvum sem starfrækt-
ar eru heima í fjórðungi, þar er
aðeins um að ræða eðilega menn-
ingarlega sjálfsbjargarviðleitni
landbyggðarfólks. Hin menning-
arlega vá fylgir þeim sjónvarps-
stöðvum, er takmarka geisla sinn
við Reykjavíkursvæðið.
Hin menningarlega vá
Þetta liggur í augum uppi, eða
eru ekki allir sammála um, að
landsbyggðin búi við fábreytni í
menningarlegu tilliti? Sumir telja
eina höfuðástæðu fólksflóttans til
Reykjavíkursvæðisins einmitt af
menningarlegum toga spunna,
ekki siður en efnahagslegum. Það
láta sér nefnilega ekki allir nægja
Sumargleðina, einu sinni á ári, að
viðbættri léttklassík Sinfóníunn-
ar, og hvað halda ménn að verði
um þetta fólk, þegar fimm til sex
sjónvarpsstöðvar verða teknar til
starfa á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu. Auðvitað snýr það sér til
sinnar stöðvar heima í héraði...
kunna sumir að segja. Hvílíkur
barnaskapur, eða halda menn að
landsbyggðarstöðvarnar geti
keppt við sjónvarpsstöðvar er
sækja fjármagn til auglýsinga-
markaðar Stór-Reykjavíkursvæð-
isins?
Hin efnahagslega vá
Ég bið háttvirta alþingismenn
að hafa í huga, þá þeir rétta upp
hönd á „útvarpslagaþingi", að þeir
eru ekki bara að greiða atkvæði
um menningarlega framtíð lands-
byggðarinnar, heldur ekki síður
um efnahagslega framtíð þessarar
þjóðar. Eða hvar skal finna það
vinnuafl, er dugir til að reka fisk-
iðjuverin, álverin, málmbræðsl-
urnar og aðrar þær verksmiðjur
fljótandi eða á föstu landi, er mala
gull þessari þjóð — þá hér verða
tvær þjóðir innanstokks, önnur
pakksödd af vitundarfóðri en hin
svelt í menningarlegu tilliti? Auð-
vitað má leysa vandann með því
að flytja inn suðurálfubúa. Slíkt
vinnuafl múðrar víst lítt svona
fyrst í stað.
I fúlustu alvöru kæru alþing-
ismenn við höfum ekki efni á að
missa fólkið úr sveitum landsins.
Verði landsbyggðarfólkið sett hjá
í menningarlegu tilliti er næsta
öruggt að marga fleytuna verður
erfitt að manna, svo ekki sé dýpra
tekið í árinni. Minnist þess að
glugginn til umheimsins, í þröng-
um firði eða afskekktum dal, er
skjárinn í stássstofunni. Hann er
lífakkeri fólksins á harðbýlli
strönd, þar sem áður var bókin.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/ SJÓNVARP
Stuðmenn
í Skonrokki
■i Skonrokk er á
20 dagskrá sjón-
varpsins í
kvöld. Umsjónarmenn
þáttarins eru þær Anna
Hinriksdóttir og Anna
Kristín Hjartardóttir.
Meðal efnis í Skonrokki
í kvöld er lag af nýútkom-
inni plötu Stuðmanna
„Hvítir mávar“. Platan
kom út í vikunni og er
með lögum úr samnefndri
kvikmynd. Sýningar
myndarinnar hefjast þó
ekki fyrr en um mánaða-
mótin febrúar-mars.
Stuðmenn gáfu einnig út
plötu með lögum úr fyrstu
kvikmynd sinni „Með allt
á hreinu" og seldist hún í
u.þ.b. 10.000 eintökum.
Lagið sem flutt verður í
Skonrokki heitir „Gó-gó
partí".
„Það er svo margt
að minnast á“
Á dagskrá út-
Tónlistarkrossgátan, no. 13
er á dagskrá rásar 2 á sunnudaginn kl. 15.00. Lausnir
sendist til Ríkisútvarpsins, rás 2, Hvassaleiti 60,108
Reykjavík, merkt: Tónlistarkrossgátan.
Listapopp á rás 2
45 varps í dag er
þátturinn „Það
er svo margt að minnast
á“. Torfi Jónsson sér um
þáttinn. Hann sagði, að í
þættinum í dag yrði fjall-
að um Sigurð Birkis,
fyrsta söngmálastjóra
Þjóðkirkjunnar.
„Fyrst mun ég lesa
frásögn Sigurðar af ferða-
lagi hans tii Kaupmanna-
hafnar, þegar hann fór
þangað til náms. í þessu
ferðalagi lenti hann í
miklum hrakningum, þar
sem síldarbáturinn, sem
hann fór með, lenti í
árekstri og lenti hann í
sjónum ásamt fleiri
mönnum.
Sigurður mun hafa flutt
þessa frásögn sjálfur í út-
varpi á árunum milli 1940
og 1950 og mun ég lesa
upp úr handriti hans
sjálfs.
Einnig verða í þættin-
um flutt kveðjuorð frá
vinum hans, sem birtust
að honum látnum.
Þessi frásögn er mjög
sérstök, því Sigurður lýsir
þeim áhrifum sem hann
varð fyrir er hann lenti í
þessum hrakningum,"
saði Torfi að lokum.
Lesari með Torfa er
Hlín, dóttir hans.
■i Listapopp,
00 þáttur Gunnars
Salvarssonar,
er á dagskrá rásar 2 í dag.
Þáttur þessi var áður á
rás 1 á laugardögum, en
var síðan fluttur í mið-
næturútvarp.
Stjórnandi þáttarins
sagði að þessi tími hefði
ekki hentað fyrir þátt sem
slíkan og er hann nú flutt-
ur á föstudagseftirmið-
dögum á rás 2. Þegar
reglulegar útsendingar
hefjast á rás 2 á laugar-
dögum má gera ráð fyrir
að þátturinn verði fluttur
á þann tíma.
Gunnar Salvarsson
sagði að þátturinn væri
byggður upp á breskum og
bandarískum vinsælda-
listum og væru nýjustu
lögin af þeim spiluð. List-
ar þessir birtast vikulega
og sagði Gunnar að hann
hefði það fyrir reglu að
spila hraðskreiðustu og
vinsælustu lögin.
Sigurður Birkis,
fyrsti söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar.
ÚTVARP
FÖSTUDAGUR
7. desember
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn. A virkum degi. 7.25
Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Sigurðar G.
Tómassonar frá kvöldinu áð-
ur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15-
Veöurfregnir. Morgunorð —
Jóhanna Sigmarsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Músin I Sunnuhllð og vinir
hennar" eftir Margréti Jóns-
dóttur. Sigurður Skúlason les
(5).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10.45 „Það er svo margt að
minnast á“
Torfi Jónsson sér um þátt-
inn.
11.15 Morguntónleikar
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12^0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
14.00 A bókamarkaðinum
Andrés Björnsson sér um
lestur úr nýjum bókum.
Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
14.30 A léttu nótunum
Tónlist úr ýmsum áttum.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
16.20 Slödegistónleikar
Rudolf Serkin og Cleveland-
sinfónluhljómsveitin leika
Planókonsert nr. 1 I d-moll
op. 15 eftir Johannes
Brahms; Georg Szelt stj.
17.10 Slödegisútvarp
Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.15 A döfinni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir.
19.25 Veröld Busters
Fimmti þáttur.
Danskur framhaldsmynda-
flokkur I sex þáttum. Þýð-
andi Ölafur Haukur Slmon-
arson. (Nordvision —
Danska sjónvarpið)
19.50 Fréttaágnp á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Kastljós
20.40 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra
Björg Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka
a. Frá safnamönnum. Kirkja
Þorvarðs Spak-Bðövarsson-
ar. Þór Magnússon þjóð-
minjavörður segir frá.
b. Söguleg skólastofnun.
Torfi Guðbrandsson flytur
slðari hluta erindis slns um
upphaf skólahalds I Trékyll-
isvlk.
c. Svitadropar fátæklings.
Þorsteinn Matthlasson flytur
FÖSTUDAGUR
7. desember
Umsjónarmaður Sigurveig
Jónsdóttir.
21.20 Skonrokk
Umsjónarmenn: Anna Hin-
riksdóttir og Anna Kristln
Hjartardóttir.
22.00 Hláturinn lengir llfiö
Fimmti þáttur.
Breskur myndaflokkur l
þrettán þáttum um gaman-
semi og gamanleikara (fjöl-
miðlum fyrr og slðar. Þýð-
andi Guðni Kolbeinsson.
22.35 Húsið við 92. stræti
(The House on 92nd Street)
kveðskapar- og frásðguþátt.
Umsjón: Helga Agústsdóttir.
21.30 Hljómbotn
Tónlistarþáttur I umsjón Páls
Hannessonar og Vals Páls-
sonar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Djassþáttur
— Tómas Einarsson.
23.15 A sveitallnunni
Umsjón: Hilda Tortadóttir.
(RÚVAK)
Bandarlsk blómynd frá
1945. S/h.
Leikstjóri Henry Hathaway.
Aðalhlutverk: William Eythe,
Lloyd Nolan, Signe Hasso
og Leo G. Carroll.
Myndin gerist I New Vork á
strlðsárunum.
Ungur maður leikur tveim
skjöldum l þjónustu njósnara
Þjóðverja I Bandarlkjunum
sem meðal annars eru á
höttunum eftir kjarnorku-
leyndarmálum.
00.00 Fréttir I dagskrárlok
24.00 Söngleikir I Lundúnum
9. þáttur: „Singing in the
Rain.“ Umsjón: Arni Bland-
on.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá rás 2 til kl.
03.00.
RÁS 2
FÖSTUDAGUR
7. desember
10.00—12.00 Morgunþáttur
Fjörug danstónlist. Viðtal,
gullaldarlög, ný lög og vin-
sældalisti.
Stjórnendur: Páll Þorsteins-
son og Siguröur Sverrisson.
14.00—16.00 Pósthólfið
Lesin bréf frá hlustendum og
spiluð óskalög þeirra ásamt
annarri léttri tónlist.
Stjórnandi: Valdls Gunnars-
dóttir.
16.00—17.00 Listapopþ
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
17.00—18.00 Léttir sprettir
Stjórnandi: Jón Ólafsson.
Hlé.
23.15—03.00 Næturvakt á Rás
2
Stjórnendur: Vignir Sveins-
son og Þorgeir Astvaldsson.
Rásirnar samtengdar aö lok-
inni dagskrá rásar 1.
SJÓNVARP