Morgunblaðið - 07.12.1984, Síða 19

Morgunblaðið - 07.12.1984, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984 19 DVERGRÍKI í DEIGLUNNI/Jon Óttar Ragnarsson Lífið er leikhús Helsti talsmaður hreinlínu- stefnu í efnahagsmálum, Milton Friedman, vill banna stjórnmála- mönnum að styðja við bakið á listum og leikhúsum. Sýnir þetta betur en flest annað hvað Ameríkanar eiga, þrátt fyrir allt, margt ólsert af Evrópubúum og um leið hversu hættulega braut hugmyndafrseði öfgamanna til hsegri er að beinast Listin blómstrar Mitt í kreppu og hallæri eru það leikhúsin sem fara með sig- ur af hólmi um þessar mundir, jafnt þau frjálsu sem hin ríkis- reknu. Eru þau eitt af því fáa sem gengur vel í þjóðfélaginu. Held ég satt að segja að fátt standi hjarta íslendingsins nær en vel heppnuð leikhúsferð. Hef- ur framboð á slíku sjaldan verið meiri en einmitt nú þegar efna- hagslifið er í rústum. Frjáls leikhús Þetta haust er ekki hið fyrsta sem frjálsu leikhúsin slá þeim ríkisreknu við. Besta sýningin í höfuðborg- inni um þessar mundir er tví- mælalaust á Kjarvalsstöðum að mínu viti. Er það leikrit Fass- binders um lesbíuna óhamingju- sömu, Petru von Kant. Enga ábyrgð tek ég á því að Marfa Sigurðardóttir f hlutverki lesbfunnar ógæfusömu, Petru von KanL siðferðisvitund betri borgara verði ekki fyrir hnjaski. Hitt get ég fullyrt að hér er komið eitt- hvert magnaðasta leikhúsverk síðari ára. Sýning þessi er sigur fyrir Al- þýðuleikhúsið og þó sérstaklega fyrir leikstjórann Sigrúnu Val- bergsdóttur og Maríu Sigurðar- dóttur (Petra von Kant) sem fer með aðalhlutverkið. Það eina sem skyggir á er hús- næðisleysi leikhússins (með fullri virðingu fyrir Kjarvalsstöð- um). Að vísu er mjög hentugt húsnæði til: Gamla Sigtún (Sjálf- stæðishúsið við Austurvöll. En Gamla Sigtún er notað undir (haldið ykkur) mötuneyti Pósts og síma. Það er samt og fyrr: glæsilegt leikhús enn þann dag í dag, notað undir matar- og kaffitíma fyrir brot þess fjölda sem það rúmar. Er hér komið ennþá eitt dæm- ið um það bruðl og þann hroka sem skriffinnar íslenska ríkis- báknsins hafa tamið sér gagn- vart fólkinu i landinu: Leikhús fyrir mötuneyti! Ekki nema það þó! Enn eru nú nokkrar sýningar eftir af annarri frábærri sýn- ingu, en það er verkið „Skjald- bakan kemst þangað líka“ í EGG- leikhúsinu. Þar sannar Viðar Egg- ertsson enn einu sinni hvílíkur snillingur hann er orðinn. Ríkisleikhúsin Þjóðleikhúsið er nú óðum að rétta úr kútnum eftir lægð síð- ustu ára. Ris hispurslaust hæst leikrit Ólafs Hauks Sfmonarson- ar Milli skinns og hörunds. Verk þetta er að vísu alls ekki gallalaust, en engu að síður stór- brotin tilraun til þess að fjalla um fjölskylduvandamál velferðarríkis- ins á þann hátt sem seint mun gleymasL A fjölum Iðnós er annað raf- magnað verk, Dagbók önnu Frank, ennþá ein kærkomin áminning um þau myrkraverk sem fasistar og hreinlínumenn hafa framið á saklausu fólki frá upphafi vega. íslenska óperan Íslenska óperan hefur enn styrkt sig í sessi með sýningu sinni á Carmen. Að þessu sinni er það Sigríður Ella Magnúsdóttir sem hrífur áhorfendur með söng sínum og sjarma. Tekst henni að gefa þessari frægustu sígaunastúlku í heimslistinni það líf sem hún verðskuldar. Þessi sýning sannar eina ferð- ina enn hversu vel þeim Garðari, Ólöfu og félögum hefur tekist að beina þessu vandasama fyrir- tæki inn í farveg sem öll íslenska þjóðin kann að meta. Lokaorð Það er hljótt um stjórnmála- menn okkar um þessar mundir, enda ekki glæsilegt um að litast þegar glápt er yfir efnahagslífið. En þegar skóinn kreppir áttar fólk sig loks á því hvað skiptir máli og hvað ekki. Og eitt er víst: f því uppgjöri hugans verður listin og leikhúsin þar ofarlega á blaði. Vonandi verður þetta blómlega starf til þess að þjóðin fær að eign- ast fleiri þau leikritaskáld sem geta fyllt öll þessi svið því Iffi sem slær í takt við okkar erfíðu tfma. Snorra-Edda í Uglukilju MÁL OG MENNING hefur sent frá sér fyrstu Sígildu Ugluna í nýjum flokki af pappírskiljum; Eddu Snorra Sturiusonar eftir handriti Konungsbókar sem mun geyma upp- haflegustu gerð textans. Heimir Pálsson annaðist útgáfuna, skýr- ingar og nafnaskrá fylgja. I formála segir Heimir: „Þessi útgáfa Snorra-Eddu er ekki fræði- leg útgáfa í þeim skilningi að sér- stakar rannsóknir handrita hafi verið gerðar til undirbúnings henni. Hún er lestrarútgáfa ætluð íslenskri alþýðu og því er allur texti færður sem næst nútíma- stafsetningu og frágangi." Edda skiptist í fjóra hluta. í Prologus eða formála er sagt frá sköpun heims að heiðnum átrún- aði, í Gylfaginningu er goðafræðin sett fram, í Skáldskaparmálum segir frá heitum og kenningum í skáldskap og í Háttatali skilgrein- ir Snorri eina hundrað bragar- hætti. Bókin er 258 bls. Heimir Páls- son setti textann en að öðru leyti var bókin unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. Kápu gerði Sigurður Ármannsson. CORDA, nýtt matar- og kaffistell. Hönnuðurinn HERTHA BENGTSON er sænsk og tekst henni hér mjög vel að sam- eina léttleika og dæmigert skandinavískt útlit. Nýjungar. svo sem lengri börð á diskum og skálum, falla vel að heildarsvip og auka á notagildi. CORDA er eldfast og hentar vel til notkunar í örbylgjuofnum. CORDA er fagurt og notadrjúgt matar- og kaffistell. HERTA BENGTSON hefur einnig hannað dúka, diskamottur, servíetturog servíettuhringi í stíl við CORDA. Gullfalleg Rosenthal vara, — matarstell ídrapplitu, rauðu eða gulu. SCANDIC stellið sameinar gæðaframleiðslu, fallega hönnun og frábæran stíl SCANDIC stellið er kjörið fyrir þá, sem kunna að meta fagra hluti og notadrjúga SCANDIC er dæmigerð vara frá Rosenthal. ARCTA ER AÐDÁUNARVERT ARCTA matar- og kaffistellið vekur óskipta athygli og aðdáun hvar sem það sést; — fyrir fal- legar línur, frábæra hönnun og skemmtilega áferð. ARCTA fæst aðeins hjá okkur. Nýja línan í matar- og kaffistellum trá Thomas er Holiday. Holidayer sérlega létt og meðfærilegt og þess vegna á allan hátt notadrjúgt við hvers kyns heimilishald Leikandi létt og hrífandi, þannig er Holiday^alveg eins og sumar- fríið á að vera. Svo við minnumst á veðrið, — nei verðió, þá er það sérlega hag- stætt. Komið og skcðið Holiday. studio-linie Á.EINARSSON & FUNK HF Laugavegi 85 SÍMI18400

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.