Morgunblaðið - 07.12.1984, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984
ULLARIAKKAR
Opinn fundur hjá
AA-samtökunum
AA-DGILDIRNAR I Reykjavík munu halda opinn kynningarfund í
Háskólabíói laugardaginn 8. desember næstkomandi klukkan 14. A
fundinum verður leitast við að gefa mynd af starfseminni og þeim
aðferðum, sem AA-menn beita til þess að losna úr viðjum alkóhóíism-
ans.
I fréttatilkynningu frá sam-
tökunum segir aö AA-samtökin
séu félagsskapur karla og
kvenna sem samhæfi reynslu
sína, styrk og vonir, svo að þau
megi leysa sameiginlega vanda-
mál sitt og séu fær um að hjálpa
öðrum til að losna frá áfengis-
bölinu. Til þess að gerast AA-
félagi þarf aðeins eitt: Löngun
til að hætta að drekka.
Inntöku- og félagsgjald er
ekkert, en með innbyrðis sam-
skotum sjá AA-félagar sér far-
borða. AA-samtökin eru sjálf-
stæð heild, segir ennfremur í
fréttinni, óháð hvers kyns fé-
lagsskap öðrum. Þau halda sig
utan við þras og þrætur og taka
ekki afstöðu til opinberra mála.
„Höfuðtilgangur okkar er að
vera ódrukkin og að styðja aðra
alkóhólista til hins sama,“ segir í
fréttatilkynningunni.
„Þarablöð“
— ný bók eftir
Bergsvein Skúlason
KOMIN ER út ný bók eftir Berg-
svein Skúlason, „Þarablöð", þættir
úr Breiðafirði.
Á kápusíðu segir m.a.: 1 Þara-
blöðum er að finna m.a. frásögn af
breiðfirskum konum, sem stund-
uðu sjóinn öðrum fremur á seinni
öldum og árum, bæði sem hásetar
og formenn, og fórst það hlutverk
vel úr hendi. Þá eru margvíslegir
þættir og sögur og í bókarlok er
langur þáttur sem heitir: Slætt
upp af minnisblöðum Jóns Krist-
ins Jóhannessonar.
Jón Kristinn var fæddur í Skál-
eyjum 1903 og ólst þar upp og var
bundinn Breiðafirði alla tíð. Hann
var bókhneigður og skáldmæltur
vel. Eftir hann liggja þrjú ljóða-
sögn og smásagnasafn. Síðustu ár
ævi sinnar var hann vistmaður á
Hrafnistu og þar áritaði hann
þessa minningaþætti, sem eru
sannarlega þess virði að koma
fyrir almenningssjónir. Frásögnin
er fjörleg og gamansöm og gefur
sanna mynd af höfundi og sam-
ferðafólki.
Bókin er 180 bls. að stærð. Út-
gefandi er Víkurútgáfan.
Fundur fyrir
áhugafólk
um semiotik
SEMIOTIK-hópurinn í Norræna
sumarháskólanum heldur opinn
fund fyrir áhugafólk um semiotik f
fundarherbergi Norræna hússins
laugardaginn 8. desember klukkan
14 til 16.
Á fundinum fer fram kynning á
starfi hópsins og verður gerð grein
fyrir sumarmóti Norræna sumar-
háskólans i Finnlandi 1984.
Hver hreppir
FIATUNO?
Um þessar mundir verður 20.000. SODA STREAM vélin
seld hérálandi.
í tilefni af þessum tímamótum hefur Sól hf. ákveðið að
færa einhverjum SODA STREAM eignda FIAT UNO bíl
að gjöf. Það er ekki ónýtt að fá slíkan farkost í nýársgjöf.
Nafn hins heppna verður dregið úr ábyrgðarskírteinum
allra SODA STREAM eigendamillijólaog nýársn.k.og
mun nafn hans birtast í dagblöðunum í byrjun janúar.
EIGIR ÞÚ SODASTREAM VÉL ÁTT ÞÚ KOST Á
ÓKEYPISBÍL!