Morgunblaðið - 07.12.1984, Side 21

Morgunblaðið - 07.12.1984, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984 21 BOK GRÆTIR, BOK KÆTIR,MAGNAR SPENNU, VEITIR HVILD. BÓK ER BEST VINA ÖSKRIÐ Nýr höfundur, Lilja K. Möller, kveður sér hljóðs í sterkri og bersögulli frásögn af átakamikilli atburðarás í lífi ungrar konu sem sjálf vill fá að móta líf sitt, springa út og sprengja af sér fjötra: „Öskra: Þú hefur engan rétt til að aðskilja líkama minn og sálu! Ég er líka til inni í þess- um líkama. Ég er! Ég er ekki bara nautn holdsins, þvi fyrir innan brjóstin og kynfærin er manneskja sem sér hvað fram fer.“ Öskrið er áhrifamikil skáldsaga, í senn átakanleg og spaugileg, um unga og draumlynda konu. Hún leitar að ást og skilningi í tilfinningasnauðum heimi og berst fyrir því að halda einstaklingseðli sínu. 188 bls. Verð kr. 697,- TÖLVUBÓK AB_______________________________ Það er tölva.í þinni framtíð, enginn vafi á því. Reyndar notar þú nú þegar ýmsan tölvubúnað, s.s. í þvottavélinni, símtækinu, útvarps-, sjón- varps- eða myndbandstækinu og nýtur hans í margvíslegri þjónustu fyrirtækja og opinberra aðila. Tími er því til kominn að þú kynnist fyrirbærinu betur en orðið er - bæði einkatölvum og hinum stærri og afkastameiri. Þeim fjölgar sífellt sem þurfa að kunna nokkur skil á tölvum til að geta innt starf sitt af hendi, sem og þeim sem virkja tölvu til bætts rekstrar fyrirtæki sínu, stóru eða litlu. Sem betur fer eru tölvufræði ekki flókin, síst þeg- ar þau eru skýrð á svo einfaldan og alþýðlegan hátt sem í Tölvubók AB. 236 bls. Verð kr. 784,- UÓNIÐ, NORNIN OG SKÁPURINN______________________________ er skemmtileg og spennandi ævintýrabók. Fjögur Lundúnabörri, Pétur, Súsanna, Lúsía og Játvarður, dveljast úti í sveit. Þau rekast á leiðina til töfralandsins Narníu með því að fara í gegnum fataskápinn. í Narníu er alltaf vetur því að þar ríkir nornin með harðri hendi og hún þarf einmitt á tveimur drengjum og tveimur stúlkum að halda til að geta framkvæmt galdra sína. Og það er að undirlagi hennarsem börnin eru komin inn í þetta töfraland. En margt fer öðruvísi en ætlað er, og börnin verða hættulegri norninni en hún hafði gert ráð fyrir, en ævintýrin sem þau lenda í eru mikil og hætturnar margar. Höfundur þessarar skemmtilegu ævintýrabókar, C.S. Lewis (1898-1963), var prófessor í Cambridge í Englandi. Hann var heimsfrægur rithöfundur og þá ekki síst fyrir ævintýrabækur sínar sem hann skrifaði fyrir börn. 189 bls. Verð kr. 494,- eítir Kristján Karlsson einni af fyrri Ijóðabókum sínum segir Kristján Karlsson að „kvæði sé hús sem hreyfist.“ Hann hefur ennfremur látið svo um mælt að „kvæði eigi hvorki að vera flöt rökræða né blaut dula, það verður að rísa af pappírnum af eigin rammleik. Ef það gerir það ekki væri efni þess betur komið í öðru formi. Hugsun kvæðisins og tilfinning er ekkert annað en kvæðið sjálft: Hús þess.“ Kristján Karlsson er eitt af sérstæðustu skáldum samtímans, ef til vill nokkuð seintekinn, en þeim mun stórkostlegri við nánari kynni. Ljóðagerð hans verður sennilega ekki lýst öllu betur í ör- fáum orðum en með þessum Ijóðlínum úr síðustu bók hans, - NEW YORK: Ljóðið ræður, þess ræða er frjáls þess rök skulu geyma yður litla stund. 90 bls. Verð kr. 617,- A FERÐ UM ÍSLAND Danska skáldið Martin A. Hansen ferðaðist í jeppa víðsvegar um (sland ásamt málaranum Sven Havsteen-Mikkelsen vorið og sumarið 1952. Þá varð bókin Á FERÐ UM ÍSLAND til -einhver skilningsríkasta og viðfelldnasta bók sem útlendingur hefur ritað um þetta land. ísland er stórbrotið, en ekki broshýrt við fyrstu sýn, og fólkið jafnvel ekki heldur. En skáldið Martin A. Hansen vissi vel að það var aðeins skel. Hann þekkti þetta land og þetta fólk, ekki af því að hann hefði verið hér áður, heldur af því að hann var heima í íslenskum bókmenntum. Enda átti viðmótið eftir að hlýna. ísland kringum 1950, fjöll þess og fólk, dýr og blóm, rís upp af síðum bókarinnar, og í baksýn birtast persónur íslendingasagna - saga og nútími rennasaman í einaglitrandi heild. Enda var sagt um bókina við útkomu hennar: Sjaldan hafa höfundur og land tekist svo innilega í hendurog ísland og Martin A. Hansen í þessari bók. 243 bls. Verð kr. 988,- Ritgerðasafn, sígildar úrvalsgreinar ellefu höf- unda um íslensk efnahagsmál, þannig valdar að þær spanni sem víðast svið. Hver sem áhuga hefur á hagfræði og íslenskum efnahagsmálum getur haft af bókinni full not, enda er í henni að finna margt af því besta sem skrifað hefur verið um þjóðarbúskap (slendinga. Einkum er þó bókin ætluð til kennslu í íslenskri haglýsingu við Háskóla íslands. Höfundar ritgerðanna eru þessir: Ásmundur Stefánsson Björn Matthiasson Bolli Þór Bollason Eiríkur Guðnason Guðmundur Magnusson Jóhannes Nordal Jón Sigurðsson Jónas Haralz Ólafur Björnsson Þórður Friðjónsson Þráinn Eggertsson 237 bls. Verð kr. 988,- ífli SVEINN EINARSSON I mjþ NTU AR I NEÐRA eítir Svein Einarsson Sveinn Einarsson var leikhússtjóri í Iðnó á gróskuárum Leikfélags Reykjavíkur 1963-1972. Þá voru tekin til sýningar hin margvíslegustu leikverk, sum sannarlega mikils háttar, og leikhúsið var afar vel sótt. Sveinn segir hér frá þessum ágætu 9 árum sín- um í hinu þrönga en vinalega leikhúsi, árum sem einkenndust af framsækni og bjartsýni. Hann segir frá kynnum sínum og samvinnu við leikara, lífinu á vinnustaðnum Iðnó og lýsir því hvernig leikverkiiftilutu þá ásýnd sem leikhúsgestirfengu að sjá. Að baki þeirri ásýnd lágu oft mikil átök, stundum brosleg, en umfram allt mikil vinna. Níu ái í neðra fjallar um þá Iðnó sem leik- husgestum er ekki sýnd. „Þegar líða tók á æfingatímann, var Haraldur Björnsson, sem leika átti hrepp- stjórann, eitthvað laslegur í nokkra daga. Hann kom þó á æfingar, enda með afbrigðum samviskusamur. Einn daginn segir Helgi, leikstjórinn, eitthvað sísona: „Haraldur minn, þú skalt bara taka það rólega í dag, þú skalt bara markera" (þetta er leikhússlangur og táknar að leika ekki út). Það hnusaði eitthvað í Haraldi, en þó þannig að skilja mátti, að hann ætlaði að taka þessari áskorun kurteislega og hlífa sér á þessari æfingu. Haraldur lék síðan af slíkum fítonskrafti, að undir tók um Iðnó alla. Helgi segir á eftir eitthvað á þá leið: „Þetta var nú óþarfi, Haraldur minn, ég var búinn að segja að þú skyldir hlífa þér, það væri allt í lagi mín vegna í dag“. Haraldur svarar: „Óþarfi. Ég vildi láta það hljóma. Þetta er svanasöng- urinn". Um kvöldið lék hann Jón bónda, Guðmundur Pálsson ók honum heim að aflokinni sýningu og tveim tímum síðar var hann allur.“ 220 bls., auk mynda Verð kr. 988,-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.