Morgunblaðið - 07.12.1984, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984
21
BOK GRÆTIR, BOK KÆTIR,MAGNAR SPENNU, VEITIR HVILD.
BÓK ER BEST VINA
ÖSKRIÐ
Nýr höfundur, Lilja K. Möller,
kveður sér hljóðs í sterkri
og bersögulli frásögn af
átakamikilli atburðarás
í lífi ungrar konu sem sjálf
vill fá að móta líf sitt, springa út
og sprengja af sér fjötra:
„Öskra: Þú hefur engan rétt til að aðskilja
líkama minn og sálu! Ég er líka til inni í þess-
um líkama. Ég er! Ég er ekki bara nautn
holdsins, þvi fyrir innan brjóstin og kynfærin
er manneskja sem sér hvað fram fer.“
Öskrið er áhrifamikil skáldsaga, í senn átakanleg
og spaugileg, um unga og draumlynda konu.
Hún leitar að ást og skilningi í tilfinningasnauðum
heimi og berst fyrir því að halda einstaklingseðli
sínu. 188 bls. Verð kr. 697,-
TÖLVUBÓK AB_______________________________
Það er tölva.í þinni framtíð, enginn vafi á því.
Reyndar notar þú nú þegar ýmsan tölvubúnað,
s.s. í þvottavélinni, símtækinu, útvarps-, sjón-
varps- eða myndbandstækinu og nýtur hans í
margvíslegri þjónustu fyrirtækja og opinberra
aðila.
Tími er því til kominn að þú kynnist fyrirbærinu
betur en orðið er - bæði einkatölvum og hinum
stærri og afkastameiri. Þeim fjölgar sífellt sem
þurfa að kunna nokkur skil á tölvum til að geta
innt starf sitt af hendi, sem og þeim sem virkja
tölvu til bætts rekstrar fyrirtæki sínu, stóru eða
litlu.
Sem betur fer eru tölvufræði ekki flókin, síst þeg-
ar þau eru skýrð á svo einfaldan og alþýðlegan
hátt sem í Tölvubók AB. 236 bls.
Verð kr. 784,-
UÓNIÐ, NORNIN
OG SKÁPURINN______________________________
er skemmtileg og spennandi ævintýrabók.
Fjögur Lundúnabörri, Pétur, Súsanna, Lúsía og
Játvarður, dveljast úti í sveit. Þau rekast á leiðina
til töfralandsins Narníu með því að fara í gegnum
fataskápinn. í Narníu er alltaf vetur því að þar
ríkir nornin með harðri hendi og hún þarf einmitt
á tveimur drengjum og tveimur stúlkum að halda
til að geta framkvæmt galdra sína. Og það er
að undirlagi hennarsem börnin eru komin inn í
þetta töfraland. En margt fer öðruvísi en ætlað
er, og börnin verða hættulegri norninni en hún
hafði gert ráð fyrir, en ævintýrin sem þau lenda
í eru mikil og hætturnar margar.
Höfundur þessarar skemmtilegu ævintýrabókar,
C.S. Lewis (1898-1963), var prófessor í
Cambridge í Englandi. Hann var heimsfrægur
rithöfundur og þá ekki síst fyrir ævintýrabækur
sínar sem hann skrifaði fyrir börn.
189 bls.
Verð kr. 494,-
eítir Kristján Karlsson
einni af fyrri Ijóðabókum sínum segir Kristján
Karlsson að „kvæði sé hús sem hreyfist.“
Hann hefur ennfremur látið svo um mælt að
„kvæði eigi hvorki að vera flöt rökræða né blaut
dula, það verður að rísa af pappírnum af eigin
rammleik. Ef það gerir það ekki væri efni þess
betur komið í öðru formi. Hugsun kvæðisins og
tilfinning er ekkert annað en kvæðið sjálft: Hús
þess.“
Kristján Karlsson er eitt af sérstæðustu skáldum
samtímans, ef til vill nokkuð seintekinn, en þeim
mun stórkostlegri við nánari kynni. Ljóðagerð
hans verður sennilega ekki lýst öllu betur í ör-
fáum orðum en með þessum Ijóðlínum úr síðustu
bók hans, - NEW YORK:
Ljóðið ræður, þess ræða er frjáls
þess rök skulu geyma yður litla stund.
90 bls. Verð kr. 617,-
A FERÐ UM ÍSLAND
Danska skáldið Martin A. Hansen ferðaðist í
jeppa víðsvegar um (sland ásamt málaranum
Sven Havsteen-Mikkelsen vorið og sumarið
1952. Þá varð bókin Á FERÐ UM ÍSLAND til
-einhver skilningsríkasta og viðfelldnasta bók
sem útlendingur hefur ritað um þetta land.
ísland er stórbrotið, en ekki broshýrt við fyrstu
sýn, og fólkið jafnvel ekki heldur. En skáldið
Martin A. Hansen vissi vel að það var aðeins
skel. Hann þekkti þetta land og þetta fólk, ekki
af því að hann hefði verið hér áður, heldur af
því að hann var heima í íslenskum bókmenntum.
Enda átti viðmótið eftir að hlýna.
ísland kringum 1950, fjöll þess og fólk, dýr og
blóm, rís upp af síðum bókarinnar, og í baksýn
birtast persónur íslendingasagna - saga og
nútími rennasaman í einaglitrandi heild. Enda
var sagt um bókina við útkomu hennar: Sjaldan
hafa höfundur og land tekist svo innilega í
hendurog ísland og Martin A. Hansen í þessari
bók.
243 bls.
Verð kr. 988,-
Ritgerðasafn, sígildar úrvalsgreinar ellefu höf-
unda um íslensk efnahagsmál, þannig valdar að
þær spanni sem víðast svið.
Hver sem áhuga hefur á hagfræði og íslenskum
efnahagsmálum getur haft af bókinni full not,
enda er í henni að finna margt af því besta sem
skrifað hefur verið um þjóðarbúskap (slendinga.
Einkum er þó bókin ætluð til kennslu í íslenskri
haglýsingu við Háskóla íslands.
Höfundar ritgerðanna eru þessir:
Ásmundur Stefánsson
Björn Matthiasson
Bolli Þór Bollason
Eiríkur Guðnason
Guðmundur Magnusson
Jóhannes Nordal
Jón Sigurðsson
Jónas Haralz
Ólafur Björnsson
Þórður Friðjónsson
Þráinn Eggertsson
237 bls.
Verð kr. 988,-
ífli
SVEINN EINARSSON
I mjþ
NTU AR I NEÐRA
eítir Svein Einarsson
Sveinn Einarsson var
leikhússtjóri í Iðnó á
gróskuárum Leikfélags
Reykjavíkur 1963-1972.
Þá voru tekin til sýningar hin margvíslegustu
leikverk, sum sannarlega mikils háttar, og
leikhúsið var afar vel sótt.
Sveinn segir hér frá þessum ágætu 9 árum sín-
um í hinu þrönga en vinalega leikhúsi, árum sem
einkenndust af framsækni og bjartsýni. Hann
segir frá kynnum sínum og samvinnu við leikara,
lífinu á vinnustaðnum Iðnó og lýsir því hvernig
leikverkiiftilutu þá ásýnd sem leikhúsgestirfengu
að sjá. Að baki þeirri ásýnd lágu oft mikil átök,
stundum brosleg, en umfram allt mikil vinna.
Níu ái í neðra fjallar um þá Iðnó sem leik-
husgestum er ekki sýnd.
„Þegar líða tók á æfingatímann, var
Haraldur Björnsson, sem leika átti hrepp-
stjórann, eitthvað laslegur í nokkra daga.
Hann kom þó á æfingar, enda með afbrigðum
samviskusamur. Einn daginn segir Helgi,
leikstjórinn, eitthvað sísona: „Haraldur
minn, þú skalt bara taka það rólega í dag, þú
skalt bara markera" (þetta er leikhússlangur
og táknar að leika ekki út). Það hnusaði
eitthvað í Haraldi, en þó þannig að skilja
mátti, að hann ætlaði að taka þessari
áskorun kurteislega og hlífa sér á þessari
æfingu. Haraldur lék síðan af slíkum
fítonskrafti, að undir tók um Iðnó alla. Helgi
segir á eftir eitthvað á þá leið: „Þetta var nú
óþarfi, Haraldur minn, ég var búinn að segja
að þú skyldir hlífa þér, það væri allt í lagi
mín vegna í dag“. Haraldur svarar: „Óþarfi.
Ég vildi láta það hljóma. Þetta er svanasöng-
urinn". Um kvöldið lék hann Jón bónda,
Guðmundur Pálsson ók honum heim að
aflokinni sýningu og tveim tímum síðar var
hann allur.“
220 bls., auk mynda Verð kr. 988,-