Morgunblaðið - 07.12.1984, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984
23
að vera 90—95% og baktryggt af
ríkinu sem viðurkenna þyrfti að
fiskurinn væri það mikilvægur
gjaldmiðill að þess virði væri að
ganga í ábyrgð fyrir hann.
Lækkun olíukostnaðar væri
mikilvægur þáttur og benti Árni á
þann möguleika að stofnað yrði
innflutningsfyrirtæki með aðild
atvinnuveganna til að flytja inn
olíu, þannig mætti hugsanlega ná
fram þeirri 30—40% lækkun olíu-
kostnaðar sem þyrfti.
Eggert Haukdal ræddi stöðu
rikisstjórnarinnar og hið pólitíska
ástand í landinu undanfarna mán-
uði. Hann lagði áherslu á það að
nauðsynlegt væri að formaður
flokksins tæki sæti í ríkisstjórn-
inni, þannig fengist fram meiri
festa í störf stjórnarinnar og hún
gæti unnið að málum á breiðari
grundvelli.
Eggert benti á í máli sínu
hvernig afurðasölumálum bænda
mætti betur við koma með því að
aðskilja rekstur vinnslustöðva og
bænda þannig að vinnsla skili
bóndanum verði framleiðslunnar
en ekki eftir að rekstur stöðvanna
hefði verið gerður upp og gengið á
kjör bændanna án þess að þeir
hefðu þar áhrif á.
Eggert ræddi nokkuð sam-
göngumál í kjördæminu og benti á
nauðsyn þess að bygging þriggja
brúa yrði framkvæmd í náinni
framtíð, Ölfusárbrúar við Óseyr-
arnes, Markarfljótsbrúar og brúar
á Kúðafljót. Hann sagði hugsan-
legt að bjóða þessar þrjár brýr út
í einu og ná þannig fram lækkun á
kostnaði.
Á fundinum var kosin stjórn
kjördæmisráðsins, óli Már Ar-
onsson formaður, aðrir í stjórn:
Ingibjörg Johnsen, óskar Magn-
ússon, Einar Kjartansson og Aðal-
björn Kjartansson.
sig. jóns.
Fræðsla
verði
um sölu-
mennsku
Á aðalfundi kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Suðurlands-
kjördæmi sem haldinn var á Hellu
um sl. helgi, kom fram í máli Árna
Johnsen alþingismanns að væntan-
leg er þingsályktunartillaga um að
sölumennska verði tekin upp í
menntakerfinu sem kennslugrein.
Sem dæmi um nauðsyn þessa
sagði Árni að nú væru starfandi
um eitt þúsund fyrirtæki í inn-
flutningi en burðarmikil útflutn-
ingsfyrirtæki væru ekki nema í
kringum tíu. Þessu sagði hann að
þyrfti nauðsynlega að breyta og
gera þyrfti pólitískt átak í því að
gera sölumennsku hærra undir
höfði en gert hefði verið. Öflun
nýrra markaða byggðist á sölu-
mennsku og áróðri.
arútvegs. Samhliða þarf að efla
nýiðnað og auka þjónustustarf-
semi.
Úrbætur í orkumálum er Ieitt
gætu til lægra raforkuverðs hafa
mikla þýðingu fyrir atvinnuþróun
í kjördæminu. Áframhaldandi
markvissar aðgerðir í varanlegri
vegagerð ráða einnig úrslitum í
stjórnvöld á að fylgja fram áætl-
unum um þessi efni.
Aðalfundurinn telur stjórnar-
samstarf Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins hafa skilað
umtalsverðum árangri og rétt sé
að halda því áfram að því tilskildu
að málefnaleg samstaða náist um
nýjar aðgerðir gegn verðbólgu
fyrir atvinnuuppbyggingu og
bættum lífskjörum.
Lambsdorff ákærð-
ur fyrir skattsvik
— til viðbótar því að hafa þegið mútur
Bonn, 5. desember. AP.
OPINBER saksóknari í Bonn í Vestur-Þýzkalandi skýrði svo frá f dag, að
ákæra hefði verið gefin út á hendur Otto Lambsdorff, fyrrverandi efna-
hagsmálaráðherra, fyrir hlutdeild í skattsvikum. Áður var búið að ákæra
hann fyrir mútuþægni. Hefur sakóknarinn farið þess á leit við Sambands-
þingið, að þinghelgi Lambsdorffs verði aflétt, svo að unnt verði að sækja
hann til ábyrgðar fyrir rétti.
Lambsdorff vísaði ákærunni á
bug í dag og sagði það vera „und-
arlegt réttarfar", að hann skyldi
vera ákærður fyrir hlutdeild 1
skattsvikum, á meðan þeir, sem
eiga að hafa komizt hjá því að
greiða skatt, hafa ekki verið
ákærðir.
Haft var eftir heimildum í Bonn
í dag, að Sambandsþingið myndi
veita leyfi af sinni hálfu fyrir jól
til þess að kalla Lambsdorff fyrir
rétt, en þingið verður að veita
heimild sína um sérhvert sjálf-
stætt ákæruatriði. Áður var það
búið að heimila að hann yrði kall-
aður til ábyrgðar fyrir meinta
mútuþægni.
Otto
Lambsdorff
Angola:
31 þús. manns
í liði Kúbu
Loodon, 5. desember. AP.
í herliði Kúbu í Angola eru nú
31.000 manns, sem eru mjög vel
búnir vopnum og hefur verið fjölgað
í þessu liði um 6.000 manns frá því í
fyrra. Skýrir tímaritið Jane’s De-
fense Weekly frá þet-su í gær.
Blaðið segir, að með tilliti til
langrar og umfangsmikillar her-
þjálfunar þessa liðs þá sé ekki
hægt að gera of mikið úr þeirri
„ógnun“, sem stafi frá Kúbu. Árið
1976 hafi kúbanska herliðið í Ang-
ola verið 1.400 manns, en 19.000
1979, 23.000 1982 og 25.000 1983.
Enn eykst gildi
KJÖRBÓKARINNAR
V ísitöluuppbót.
Ársvextir kjörbókarinnar eru 28% frá því að lagt er inn.
Nú er það nýmæli í reglum Kjörbókar Landsbankans
að kjör bókarinnar verða borin saman
ávöxtun á 6 mánaða vísitölutryggðu
reikningi í lok hvers árs. Sé ávöxtun
Kjörbók lakari, er greidd uppbót sem
nemur mismuninum. Þannig verða
kjörin a.m.k.jafngóð verðtryggingu
aðviðbættum gildandi ársvöxtum
vísitölutryggðs reiknings.
Hagstæð ávöxtun.
Hafir þú hug á að ávaxta fé þitt til lengri tíma en 2ja
mánaða, hentar KJÖRBÓKIN þér prýðisvel. Kynntu þér
KJÖRBÓKINA betur á næsta afgreiðslustað.
KJÖRBÓK LANDSBANKANS - bók sem þarf ekki að gylla!
LANDSBANKINN
Græddur er geymdur eyrir