Morgunblaðið - 07.12.1984, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 07.12.1984, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984 Reglur um uppgjör við bændur: 55 % verðskerðing á mjólkur- framleiðsiu umfram búmark Landbúnaöarráðuneytið hefur samþykkt tillögur Framleiðsluráös landbúnaðarins um ákveðnar vinnu- reglur við uppgjör afurða nautgripa og sauðfjár á síðasta verðlagsári, það er frá 1. september 1983 til 31. ágúst sl. Við uppgjör mjólkur gildir sú meginregla að á mjólkurfram- leiðslu frá 90% búmarks og upp að búmarki fá bændur 10% verðskerð- ingu en 55% verðskerðingu á það sem umfram er búmark. Engin verðskerðing verður reiknuð á kindakjötsframleiðslu á lögbýlum innan búmarks en 25 %á framleiðslu umfram búmark með nokkrum und- antekningum. Um uppgjörið skulu gilda eftir- farandi almennar reglur: a) Bú með 200 ærgilda framleiðslu eða minni verði undanþegin verð- skerðingu ef þau eru aðaltekjuöfl- unarþáttur viðkomandi framleið- enda að mati Framleiðsluráðs landbúnaðarins, þó framleiðslan Kökubasar Systrafélags Ffladelfíu SYSTRAFÉLAG Fíladelfíu heldur árlegan kökubasar sinn og kaffi- sölu laugardaginn 8. desember klukkan 14 í Hátúni 2. Að þessu sinni verða einnig á boðstólum prjónavörur, svo sem lopapeysur, sokkar og vettlingar. í fréttatilkynningu frá systrafé- laginu segir, að sérstakt söluborð fari fram úr búmarki. b) Réttur er til að færa 15% á milli kindakjöts og mjólkur svo sem verið hefur áður. Um verðskerðingu kindakjöts gilda eftirfarandi reglur: a) Engin verðskerðing verði reiknuð á kindakjöt innan búmarks hjá framleiðendum á lögbýlum. Reikna skal 25% verðskerðingu á það kjöt, sem er umfram búmark á lögbýlum, en þó skal felld niður verðskerðing á ærkjöti, ef fram- leiðendur hafa fellt allan stofninn haustið 1983 og hafa tilkynnt það til Framleiðsluráðs. Heimilt er að reikna aðeins 5% verðskerðingu á ærkjöt umfram búmark hafi menn fækkað mikið en ekki fellt allan stofninn, þó þeir framleið- endur hafi ekki tilkynnt það til Framleiðsluráðs landbúnaðarins. b) Framleiðendum í þéttbýli sem hafa búmark verði reiknuð 10% Hirkja Ffladelfíusafnaðarins. verði með kertum til styrktar barnaheimili fyrir heimilislaus börn í Argentínu. verðskerðing á kjötframleiðslu innan búmarks, en 25% á kjöt um- fram búmark. 25% verðskerðing verði reiknuð á alla kjötfram- leiðslu hjá þeim sem ekkert bú- mark hafa. Eftirfarandi reglur gilda um verðskerðingu mjólkur: a) Á mjólkurframleiðslu frá 90% bú- marks upp að búmarki, að teknu tilliti til tilfærsluréttar sam- kvæmt b-lið almennu reglnanna faí 10% verðskerðingu, þó ekki á minni búum en 300 ærgildi eða minna skipt í hlutfalli við fram- leiðslu eins og á síðasta verðlags- ári. b) Mjólkurframleiðslan um- fram búmark, sbr. þó b-lið al- mennu reglnanna, fái 55% verð- skerðingu. c) Undanskilin allri verðskerðingu er mjólkurfram- leiðsla hjá eftirtöldum mjólkur- samlögum: Mjólkursamlag Vest- ur-Barðstrendinga á Patreksfirði (817.361 lítri), Mjólkursamlag ís- firðinga á ísafirði (1.497.439 1), Mjólkursamlag Kaupfélags Lang- nesinga á Þórshöfn (261.113 1.), Mjólkursamlag Kaupfélags Vopnfirðinga (673.385 1), Mjólk- ursamlag Kaupfélagsins Fram í Norðfirði (567.371 1) og Mjólkur- samlag Kaupfélags Berufjarðar á Djúpavogi (385.813 1). Samtals hafa þessi undanþágusamlög heimild til að framleiða 4.202.482 lítra án verðskerðingar. Framleið- endur á þessum svæðum sem framleiða mjólk umfram búmark fái hana undanþegna verðskerð- ingu þetta verðlagsár, en geta ekki vænst þess að slíkt verði viðtekin venja eftirleiðis, segir í samþykkt Framleiðsluráðs. &■ Frumsýning á morgun Sjáumst! BÍLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 MorgunbU6i9/Árni Sæberg Hans Kristian Olesen og Magnús Friðgeirsson með saltaða nauta- skinku og reykt svið. Unnið að endurskipu- lagningu kjötiðnaðar- stöðvar SÍS Ýmsar nýstáriegar nýjungar á markaðinn FRÁ ÞVÍ f sumar hefur verið unnið að endurskipulagningu kjötiðnað- arstöðvar Sambandsins á Kirkjusandi í Reykjavík. Að skipulagningunni hefur Hans Kristian Olesen, tæknilegur ráðgjafi frá Slátrunarskólanum í Hróarskeldu, unnið. Hann hefur jafnframt unnið að ýmsum nýjungum sem stöðin hefur verið að senda á markað. Meðal nýjunga sem hann hef- ur gert eru Graflamb og Reykja- víkurpylsa sem voru kynnt á Bú- vörusýningunni í haust. Graf- lambið er dilkakjöt, nánar til- tekið innanlærisvöðvi, sem er grafið á sama hátt og graflax. Magnús Friðgeirsson, fram- kvæmdastjóri búvörudeildar SÍS, sagði í samtali við Mbl. að Graflambið hefði fengið frá- bærar viðtökur neytenda og selst ótrúlega vel. Sagði hann að það nýttist best sem forréttur. Reykjavíkurpylsan er hrein kjötpylsa, reykt og soðin. Magn- ús sagði að hún hefði einnig lík- að vel. Nýlega komu reykt svið á markaðinn, eins og fram hefur komið í Mbl., og nautaskinka og á næstunni kemur söltuð nauta- skinka á markaðinn frá kjötiðn- aðarstöðinni. Báðar tegundir nautaskinkunnar eru seldar í áleggsbréfum. Þá er kjötiðnað- arstöðin með söluumboð fyrir nýjar vörur úr hrossakjöti sem kjötiðja Kaupfélags Skagfirð- inga á Sauðárkróki framleiðir. Eru það soðin Eyrarpylsa og reyktur trippavöðvi. Eru Skag- firðingarnir að reyna að koma hrossakjötinu í verð, en eins og kunnugt er hefur verið offram- leiðsla á hrossakjöti í landinu og erfiðleikar í sölu þess á erlend- um mörkuðum. Nýtt hefti af Hár & fegurð komið út ÚT ER komið þriðja tölublaðið HÁR OG FEGURÐ, fjórði ár- gangur. Meðal efnis blaösins að þessu sinni er heimsmeistara- keppnin í Las Vegas þar sem sam- band hárgreiðslu- og hárskera- meistara gerist aðili að heimssam- bandinu þannig að íslendingar hafa keppnisrétt á næsta heims- meistaramóti. Og þar með er tímaritið Hár og fegurð einnig komið inn í heimspressuna. Kynntur er fatnaður frá tískuhúsi Stellu, Maríunum Klapparstíg, mokkafatnaður frá Framtíðinni, Laugavegi og leðurfatnaður frá Leður og rúskinn. Hártískan frá Sanrizz London, hártíska frá Al- exandre de Paris. Kynntar eru kápur frá Kápusölunni Borgar- túni. Hártíska frá Allan Internat- ional London. Efni frá intercoiff- ure París. Grein um París. Litið inn hjá Orkubót og hugað að læra- pokunum. Efni frá Irvine Rusk, Glasgow. Grein eftir Armand Tanny, Kynþokki og vaxtarrækt. Bobby Miska í New York. Léttir þættir um ýmislegt. Efni frá Tony Guy. (Úr frcUatilkynningu.)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.