Morgunblaðið - 07.12.1984, Síða 29

Morgunblaðið - 07.12.1984, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984 29 Níu manns drepnir á Nýju-Kaledóníu í átökum hvítra manna og innfæddra Noumea, Nýju-Kmledóníu, 6. denember. AP. NÍU meðlimir Sjálfstæðisfylkingar- innar í Nýju Kalcdóníu voru drepnir í átökum við hvíta menn í dag. Leið- togar hreyfingarinnar segjast hins vegar halda fast við þá ákvörðun að hefja friðsamlegar viðræður við Frakka um sjálfstæði eyjarinnar. Frakkar hafa sent sérstakan fulltrúa sinn, Edgard O. Pisani, til eyjarinn- ar og hefur hann heitið því að koma þar á röð og reglu. Mennir níu voru drepnir í bæn- um Hienghene á austurströndinni samkvæmt frásögn yfirstjórnar Frakka á eynni. Margir menn til viðbótar særðust alvarlega í þess- um átökum. Þeir, sem biðu bana, voru allir af kynstofni innfæddra. Landnemar af evrópskum upp- runa gefa þá skýringu á þessum átökum, að hinir innfæddu hafi gert árás á þá og ætlað að kveikja í húsum þeirra. Hafi þeir þvi verið tilneyddir til þess að beita skot- vopnum í sjálfsvarnar skyni. Af hálfu Sjálfstæðisfylkingar- innar er því hins vegar haldið fram, að mennirnir hafi verið að snúa heim til sín á tveimur bílum af pólitískum útifundi, er þeir urðu að nema staðar við götuvirki, sem hvítir menn höfðu komið upp. Hafi hvítu mennirnir síðan kastað dínamitsprengjum að bílunum með þeim afleiðingum, að fyrst sprakk annar þeirra í loft upp og síðan kveiktu logarnir úr honum í hinum bilnum. Er hinir innfæddu reyndu að flýja út úr brennandi bílunum, hófu hvítu mennirnir skothríð á þá og drápu og særðu marga þeirra. Þá fannst brunnið lík eins hinna innfæddu í brakinu af öðrum bílnum. Júgóslavía: Fangelsaður fyrir flótta frá Búlgaríu Belgrad, 6. desember. AP. BÚLGARSKUR maður hefur ver- ið dæmdur í 7 mánaða fangelsi fyrir að hafa farið með ólöglegum hætti yfir landamæri Júgóslavíu í því skyni að smygla fjölskyldu sinni burt frá Búlgaríu. Skýrði blaðið Politika frá þessu í dag. Kom þar fram, að maðurinn, sem heitir Dimitar Patinov og er fimmtugur að aldri, hefði haft með sér riffil og skotfæri og vetr- arútbúnað til þess að dveljast langdvölum úti undir beru lofti. Fékk hjartaáfall eftir yfirheyrslu Pólskur prestur ber lögreglunni illa söguna Var.sjá, 6. desember. AP. PKESTUK, sem er úr hópi stuðningsmanna Samstöðu í Póllandi, segist hafa verið lagður á sjúkrahús í sex daga vegna hjarta- áfalls, sem hann hlaut í 10 klukkustunda yfirheyrslu pólsku lögreglunnar. Maðurinn, sem heitir séra Jan llminski, segist hafa verið handtekinn og yfirheyrður, er hann sneri heim frá messu, sem haldin var í Varsjá til þess að minnast hins látna prests, séra Jerzy Popieluszkos, sem var á meðal fremstu for- ystumanna Samstöðu. Uminski, sem hefur þjáðst af hjartasjúkdómi um langt skeið, var fluttur á sjúkrahús 28. nóv. sl. frá lögreglustöðinni í Piotrkow Trybunalski, þar sem hann var m.a. yfirheyrður um, hvort hann ætti skotvopn í fórum sínum. „Hjartaáfallið hlaut ég vegna allt of langrar yfirheyrslu, sem stóð í 10 klukkustundir," sagði Uminski í dag. Kvaðst hann vera þeirrar Austur-Þýzkaland: 350 millj. marka fyrir flóttamenn Bonn, 5. denember. AP. VE.STUR-I»ýzkaland hefur greitt Austur-Þýzkalandi um 350 millj. mörk á þessu ári fyrir heimildir handa þúsundum Austur-Þjóðverja til þess að (lytjast vestur á bóginn. í þessum hópi er Ingrid Berg, frænka Willis Stoph, forsætisráð- herra Austur-Þýzkalands. Á tímabilinu janúar til nóv- ember sl. fluttust 38.010 Aust- ur-Þjóðverjar til Vestur-Þýzka- lands og er það því þrisvar sinn- um meira en allt árið 1983. skoðunar, að handtaka sín væn þáttur í vaxandi aðgerðum pólskra stjórnvalda gegn óbreyttum prest- um í landinu. Þrjú fengu Jabotinsky- verðlaunin New York, 6. de«. AP. ANATOLI Shcharansky, hinn þekkti andófsmaður sem situr í nauðung- arvinnubúðum í Sovétríkjunum fékk í dag Jabotinsky-verðlaunin frægu ásamt Yehuda Blum, fyrrverandi sendiherra, og þriðji verðlaunahaf- inn var Beate Klarsfeld, sem hefur getið sér orð fyrir að hafa hendur í hári stríðsglæpamanna nasista í heimsstyrjöldinni síðari. Verðlaunaafhendingin fór fram í Gyðingasafninu í Jabotinsky- stofnuninni í New York og voru Blum og Klarsfeld bæði viðstödd. Fyrir hönd Shcharanskys tók Avital, kona hans við verðlaunun- um. Avital fékk að fara frá Sov- étríkjunum til ísraels fyrir nokkr- um árum, en þrátt fyrir mikinn þrýsting á stjórn Sovétríkjanna að leyfa Shcharansky að fara til ísra- els hefur það leyfi ekki fengist. MetsöluNcu) á hverjum degi! Síðasta bók Desmond Bagley M Desmond Bagley skrifaði söguna / næturvillu um svipað leyti og hann skrifaði metsölu- bækur sínar: Gullkjölinn, Fjallvirkið og Fellibyl. Þessi bók var þó ekki gefin út strax, þar sem höfundurinn vildi gera á henni nokkrar endurbætur. Og þar sem önnur viðfangsefni tóku við hjá dróst útgáfa bókarinnar á langinn. Síðan eru liðin tuttugu ár og nú hafa þær endurbætur loks verið gerðar, sem höfundurinn óskaði, samkvæmt athugasemdum hans sem fylgdu handritinu, og þar með er hún komin í sinn réttmæta sess meðal Bagleybókanna. Atburðarrásin er spennandi og vel uppbyggð eins og í öllum bókum þessa frábæra höfundar. - Ósvikin Bagieybók. Verð krónur 592,80 með söluskatti SUÐRI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.