Morgunblaðið - 07.12.1984, Side 33

Morgunblaðið - 07.12.1984, Side 33
32 MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984 33 fto&vgm Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavlk. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fróttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 25 kr. eintakið. Orkuiðnaður og orkuverð Tvaer meginstaðreyndir blasa við í atvinnu- og efna- hagsmálum á líðandi stund: í fyrsta lagi að þjóðartekjur og lífskjör hafa skerzt síðastlið- in ár og standast ekki saman- burð við það sem bezt þekkist meðal ríkustu þjóða heims, sem búa að hvað mestri verðmæta- sköpun á hvern vinnandi mann. Skerðing kaupmáttar var að vísu að stærstum hluta komin fram í tíð fyrri ríkisstjórnar, en hefur þrengzt áfram undir stjórn nýrr- ar. í annan stað er sýnt, að tug- þúsundir einstaklinga bætast á íslenzkan vinnumarkað á næstu áratugum. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið, segir máltækið, og það hlýtur að verða meginverkefni landsmanna næstu árin að leggja grundvöll að hvoru tveggja, framtíðaratvinnuöryggi og auknum þjóðartekjum, sem risið geti undir sambærilegum lífskjörum hér og bezt þekkjast í V-Evrópu og N-Ameríku. Ljóst er að hefðbundnar at- vinnugreinar, sjávarútvegur, iðnaður og landbúnaður verða um langa framtíð burðarásar í íslenzkum þjóðarbúskap. Jafn- ljóst er að margs konar „hliðar- búgreinar" þurfa að koma til: orkuiðnaður, fiskrækt, lífefna- iðnaður, ylrækt og ýmiss konar starfræksla, sem byggist á hug- viti, þekkingu og örri tækni- framvindu. Orkuiðnaður, það að breyta vatnsföllum okkar í vinnu og verðmæti til útflutnings, mætir engan veginn til fulls framtíðar- þörfum okkar, varðandi nauð- synlegt vinnuframboð og æski- legan bata í lífskjörum. En hann er engu að síður ein af þeim leið- um, sem fara þarf, m.a. til að beizla vannýtta auðlind, sem for- sjónin hefur lagt okkur upp í hendur til framfærslu. Ekki er fjarri lagi að gera ráð fyrir því að þessi atvinnugrein geti þróazt í að gefa fjórðung gjaldeyris- tekna okkar í fyrirsjánlegri framtíð. Takmarkaður almennur sparnaður og lítil eiginfjár- myndun í atvinnulífinu -- um langt árabil — valda því m.a., að nýsköpun íslenzks atvinnulífs, sem brýn þörf er á, hlýtur að verulegum hluta að byggjast á fjármögnun erlendis frá. Slæm skuldastaða okkar við umheim- inn þrengir möguleika okkar á þessu sviði. Orkuiðnaður er hinsvegar fjárfrek atvinnugrein og háð hráefnaöflun erlendis og afurðasölu á heimsmarkaði, sem er mjög sveiflukenndur. Sú stefna var því mótuð í upphafi, varðandi orkuiðnað, að íslend- ingar ættu einir orkuverin, þ.e. tækju sitt á þurru í orkusölu, sköttum og vinnulaunum; en létu erlent áhættufé um fjármögnun orkuiðnaðarfyrirtækja, a.m.k. á meðan þau væru að festa rætur og komast yfir byrjunarörðug- leika. Þegar Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga var reist var horfið frá þessari stefnu, þann veg, að íslenzka ríkið gerðist eignaraðili að meirihluta. Járn- blendiverksmiðjan skilaði veru- legum rekstrarhalla 1979—1983, sem að sjálfsögðu hefur bitnað á íslenzka ríkinu og þar með skattborgurum. Horfur eru hins vegar á hagnaði í ár, sem er ánægjuefni, og verður vonandi varanlegur. Járnblendiverksmiðjan er vel rekið og vel mannað fyrirtæki, sem gegnir mikilvægu hlutverki í orkumarkaði og gjaldeyris- og viðskiptastöðu okkar við um- heiminn. A það ber þó að líta, að orkuverð til hennar er mun lægra en til álversins. Sama máli gegnir raunar um Aburðar- verksmiðjuna. Þessi tvö fyrir- tæki, sem lúta ríkiseign að meirihluta í öðru tilfellinu en að öllu leyti í hinu, greiða mun lægra orkuverð en álverið, í eigu útlendinga, og hafa síður en svo haft jákvæðari áhrif á þróun al- menns orkuverðs í landinu. Atvinnulíf á Norðurlandi vestra Norðurland vestra hefur engan veginn haldið sínum hlut í vexti þjóðarinnar á næst- liðnum árum. Meðaltekjur fólks í þessum landshluta hafa um árabil verið lægri en í öðrum skattumdæmum. Skýringin kann að vera margþætt, en hluti hennar er einhæft atvinnulíf, sem tekið hefur litlum breyting- um í tímans rás. Afkoma fólks á þessu svæði hefur byggzt í rík- ara mæli en annarsstaðar á frumframleiðslugreinum, land- búnaði og fiskveiðum. Þessar at- vinnugreinar hafa átt í vaxandi erfiðleikum, m.a. vegna sóknar- takmarkana fiskiskipaflotans og framleiðslutakmarkana búvöru. Framkvæmdir eru nýlega hafnar við virkjun Blöndu. Þær munu á næstu árum kalla eftir töluverðu vinnuafli í landshlut- anum, enda gert ráð fyrir að við þær vinni u.þ.b. 500 manns. En hvað tekur við þegar þeim fram- kvæmdum lýkur undir lok þessa áratugar? Það er því meir en tímabær tillaga sem þingmerin kjördæm- isins hafa lagt fram á Alþingi, þess efnis, að ríkisstjórnin láti kanna nú þegar, hverjar leiðir verði líklegastar til að tryggja vinnuframboð á Norðurlandi vestra er framkvæmdum við Blönduvirkjun lýkur. Fjórar fisk- eldisstöðvar í Grindavík Áform um mörg þúsund tonna framleiðslu Fyrsti hluti fiskeldisstöðvar Fiskeldis Grindavíkur hf. en stöðin er skammt vestan við kaupstaðinn. MorKunblaðið/Guðfmnur. í GRINDAVÍK er nú starfrækt ein fiskeldisstöð, ein í uppbyggingu og undirbúningur er í gangi vegna tveggja í viðbót. Stöðvarnar eru með áætlanir um nokkur hundruð tonna framleiðslu fyrst í stað, en tvær þeirra með möguleika til stækkunar upp í eitt til tvö þúsund tonna framleiðslu síðar. Ekki er vitað um áform eins fyrirtækisins, Sambands íslenskra samvinnufélaga. Blaðamaður Mbl. hafði samband við forsvarsmenn fisk- eldisfyrirtækjanna og leitaði upplýs- inga um áform þeirra. Eldi hf. Sigurður St. Helgason, sjávar- líffræðingur, hefur rekið fiskeld- isstöðina Eldi hf. á Húsatóftum vestan Grindavíkur í um 5 ár. Ný- lega var hlutafé stöðvarinnar aukið og útgerðarfyrirtækið Gunnvör hf. á ísafirði, sem gerir út skuttogar- ann Júlíus Geirmundsson, og nokkr- ir einstaklingar þar í bæ gengu í félagið. Gunnar Þórðarson, fram- kvæmdastjóri Rækjuverksmiðjunn- ar Vinaminni, er nú stjórnarfor- maður Eldis hf. Hann sagði í sam- tali við blaðamann Mbl. að fram- leiðslugeta stöðvarinnar nú væri 46 tonn af laxi og þætti það heldur lít- ið. Væru menn nú að velta því fyrir sér að stækka hana í 200 tonn, sem vonandi yrði hægt að ráðast í næsta ár. Gunnar sagði að nú væri beðið eftir niðurstöðum rannsókna en sagði að helst strandaði á peninga- leysi. Hér á landi væri ekkert sjóða- kerfi sem lánaði í fiskeldi, og hvergi hægt að fá lán til uppbyggingar. „Það er tómt gaspur í stjórnmála- mönnunum þegar þeir eru að standa upp og benda á fiskeldið sem væn- lega atvinnugrein. Þeir hafa ekki gert neitt til að byggja það upp. Það er til dæmis hreinasta svívirða hvernig þeim 20 milljónum sem ný- lega var veitt til fiskeldis var út- hlutað," sagði Gunnar. Eldið á Húsatóftum byggist á því að 10 gráðu heitum jarðsjó er dælt upp úr borholum í kör á landi þar sem lax- inn er alinn í sláturstærð. Gunnar sagði að kostnaður við að auka framleiðslugetu stöðvarinnar í 200 tonn væri áætlaður um 30 milljónir kr. Fiskeldi Grindavíkur hf. Fiskeldi Grindavíkur hf., sem er í eigu velflestra útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækjanna í Grindavík auk einstaklinga þar og tveggja verktakafyrirtækja í Hafnarfirði, er að byggja laxeldisstöð vestan Grindavíkur. Jónas Matthíasson verkfræðingur, sem er fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði í samtali við Mbl. að nú væri unnið að byggingu stöðvar með 100 tonna framleiðslugetu, sem stefnt væri að taka að fullu í notkun á næsta ári. Nú eru 50 þúsund seiði í eldi í bráðabirgðaaðstöðu í stöðinni. Þau verða væntanlega orðin hálft kíló að þyngd næsta sumar og verða þá flutt í eldistankana sem byggðir verða í vetur. Jónas sagði að fyrir hendi væru áætlanir um uppbyggingu stöðvar með 1.000 tonna framleiðslugetu á ári, sem fyrirhugað væri að byggja á næstu árum ef rekstur minni stöðvarinnar gengi vel. Sagði Jónas erfitt að fjármagna uppbygginguna. Menn hlypu ekki í neina sjóði og svo virtist sem fiskeldi ætti hvergi heima í kerfinu. Þá sagðist hann vera farinn að hafa áhyggjur af markaðsmálunum. Framboðið hefði vaxið svo mikið á undanförnum ár- um að hætta væri á að verðið héld- ist ekki nema átak væri gert í mark- aðsöflun. Beinn frjárfestingarkostnaður við 100 tonna stöðina er áætlaður um 30 milljónir kr. auk rekstrarkostnaðar í fyrstu en kostnaður við 1.000 tonna stöðina er áætlaður 180 millj- ónir til viðbótar að sögn Jónasar. Eldið hjá Fiskeldi Grindavíkur byggist á að ala fiskinn frá 20—60 gramma stærð upp í sláturstærð í kerjum á landi sem í er dælt volgu sjávarblönduðu vatni úr gjá sem þar er. Fiskeldisstöðin Sjávargull hf. Fyrirtæki að nafni Fiskeldisstöð- in Sjávargull hf. hefur tekið á leigu spildu úr landi Hrauns, austan Grindavíkur, og undirbýr byggingu fiskeldisstöðvar þar. Hlutafélagið var stofnað í október sl. og eru eig- endur norskt fyrirtæki og íslenskir aðilar. Nordic Seagold í Noregi, sem er ráðgjafarfyrirtæki á sviði laxeld- is og Valdimar Valdimarsson er að- aleigandi að, á 49% hlutafjár en einstaklingar og fyrirtæki á Islandi 51%. Valdimar, sem er íslendingur búsettur í Noregi, er aðalforgöngu- maður stofnunar Sjávargulls hf. og er stjórnarformaður þess en fram- kvæmdastjóri er Valdimar Þorvarð- arson. Valdimar Þorvarðarson sagði í samtali við Mbl. að á næstunni yrði gengið frá endanlegum áætlunum um uppbyggingu stöðvarinnar en ákvarðanir yrðu teknar á grundvelli þeirra. Sagði hann að hugmyndir hefðu verið uppi um að fyrst yrði ráðist í byggingu stöðvar með 500 tonna framleiðslugetu á ári sem væri með möguleika til stækkunar upp í 2.000 tonn. Eldið mun fara fram í kerjum á landi með sjó sem dælt verður úr brunni. Sagði Valdi- mar að gert væri ráð fyrir að fram- kvæmdir gætu hafist næsta vor og stæðu yfir í eitt ár. Sagði Valdimar að samkvæmt grófum kostnaðaráætlunum yrði heildarfjárfestingarkostnaður ásamt rekstri fram að fyrstu tekj- um um 180 milljónir. Fyrirhugað er að fjármagna fyrirtækið með lánsfé og almennu hlutafjárútboði þegar endanlegar áætlanir liggja fyrir. íslandslax hf. Samband íslenskra samvinnufé- laga hefur fengið viiyrði fyrir lóð undir fiskeldisstöð ásamt nauðsyn- legum vatnsréttindum fyrir heitt og kalt vatn í landi Staðar, sem er ríkisjörð vestast í Grindavík. SÍS hefur gengist fyrir stofnun hlutafé- lags um fiskeldi, tslandslax hf. Þorsteinn Ólafsson, framkvæmda- stjóri hjá SÍS, vildi ekki tjá sig um málið þegar leitað var til hans vegna þessara fregna, en það kom fram í Mbl. í júní, þegar skýrt var frá athugunum SÍS á laxeldi á þess- um stað, að áætlanir væru um bygg- ingu stórrar stöðvar í Staðarlandi og að hún yrði reist í samvinnu við norska aðila. Þorsteinn sagði að ekki hefði verið gengið frá stofnun hlutafélagsins tslandslax og Mbl. er kunnugt um að enn hefur ekki verið leitað til bæjaryfirvalda í Grindavík eins og þó var áskilið í bréfi land- búnaðarráðuneytisins þegar vilyrði fyrir lóðinni var veitt. A lóð SÍS eru hafnar lítilsháttar framkvæmdir, meðal annars hefur verið iagður vegur um svæðið og þar hafa farið fram rannsóknir á vatni. Laxeldisstöðin Eldi hf. í Staðahverfi í Grindavík. Nýir aðilar hafa gengið í félagið og er nú unnið að endurskipulagningu þess. Iðnaðarbankinn hlaut ársskýrsluverðlaunin í GÆR voru ársskýrsluverðlaun Stjórnunarfélags íslands veitt í fjórða sinn. í ár tóku 16 fyrirtæki þátt í samkeppninni. Iðnaðarbanki íslands hf. hlaut ársskýrsluverðlaunin að þessu sinni en Olíuverslun íslands hf. og Kaupfélag Austur-Skaftfellinga hlutu einnig viðurkenningar fyrir vandaðar ársskýrslur. Á fundi sem haldinn var á Hótel Holti af þessu tilefni var forráða- mönnum Iðnaðarbankans afhentur sérstakur verðlaunagripur. Stefán Svavarsson, löggiltur endurskoð- andi, sem er formaður ársskýrslu- nefndar Stjórnunarfélagsins, af- henti Ragnari Önundarsyni aðstoð- arbankastjóra verðlaunin með þeim orðum að í heild væri ársskýrsla Iðnaðarbankans fyrir árið 1983 framúrskarandi vel úr garði gerð. Ragnar þakkaði viðurkenninguna fyrir hönd bankans. Gat hann þess að Sveinn Jónsson, löggiltur endur- skoðandi bankans; Kristín Guð- mundsdóttir, endurskoðandi Iðnað- aðarbankans, og Jónína Mikaels- dóttir, ráðgjafi í útbreiðslumálum, ættu mestan 'heiður af gerð árs- skýrslunnar. Sigurður R. Helgason, formaður Stjórnunarfélags Islands, sagði í ávarpi á fundinum að markmiðið með þessu starfi félagsins væri að stuðla að betri frágangi og fram- setningu ársskýrslna, þannig að þær gefi sem réttasta mynd af stöðu viðkomandi fyrirtækis. Af reynslu síðustu ára megi fullyrða að þetta starf hafi skilað árangri, bæði beinum ogóbeinum. Flugleiðir hf. unnu ársskýrsluverðlaunin árið 1981, þegar þau voru fyrst veitt, en það var fyrir ársskýrslu fyrir árið 1980. Árið 1982 fékk Landsbanki ís- lands verðlaunin og Eimskip í fyrra. Jafnframt hafa Landsvirkj- un, Iðnaðarbanki fslands hf. og Johan Rönning hf. fengið viður- kenningar fyrir vandaðar árs- skýrslur. í ársskýrslunefnd Stjórnunarfé- lagsins sitja: Stefán Svavarsson, löggiltur endurskoðandi, formaður; Árni Vilhjálmsson, prófessor við Háskóla íslands, og Helgi Back- mann, deildarstjóri hagdeildar Landsbanka fslands. Á fundinum, sem verðlaunin voru afhent á flutti Ólafur Nilsson, löggiltur endur- skoðandi, fyrirlestur um efnið „Áhrif nýrra skatta- og hlutafjár- laga á ársreikningagerð". liV-ÍA: V\:«V\NKI !SJ.ANJ\N HF 1983 Morgunblaðift/Árni Sæberg Ragnar önundarson aðstoðarbankastjóri (Lv.) tekur við viðurkenningu fyrir bestu ársskýrsluna fyrir árið 1983 úr hendi Stefáns Svavarssonar, formanns dómnefndar. Sigurður R. Helgason, formaður Stjórnunarfélags lslands situr, lengst til vinstri en Ólafur Nilsson, löggiltur endurskoðandi, lengst til hægri á myndinni. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir GUÐM. HALLDÓRSSON U ppreisnarástand á Nýju Kaledóníu ÁSTANDID á frönsku eynni Nýju Kaledóníu á Suður-Kyrrahafi veldur vaxandi áhyggjum í París. Innfæddir Kanakar hafa að heita má einangrað evrópska íbúa í höfuðborginni Noumea og á suðurhluta eyjunnar. Um 1.000 lögreglumenn hafa verið sendir á vettvang til að aðstoða öryggis- sveitir eyjunnar til viðbótar 300, sem voru sendir áður en kosn- ingarnar fóru fram. Franska stjórnin hefur neyðzt til að senda þangað aðstoðarmann Pierre Joxe innanríkisráðherra, Charles Barbeau. Óeirðirnar hófust 18. nóvember þegar Kanakar reyndu að trufla kosningar til þings eyjunnar, sem er 2.000 km austur af Ástralíu. Meirihluti Kanaka neitaði að taka þátt í kosningunum og stöðvaði eða truflaði atkvæða- greiðslu á um 50 kjörstöðum af 133, einkum á afskekktum svæð- um. Víða voru kjörkassar eyðilagðir og kveikt var í kjörseðlum. Eldur var lagður að tveimur ráðhúsum og lögregla varð að beita táragasi til að flæma burtu Kanaka, sem lögðu undir sig ráðhús. Víða lok- uðu þeir vegum til að koma í veg fyrir að kjósendur kæmust á kjörstað. Tveimur bæjarstjórum var vikið frá störfum um stund- arsakir, öðrum vegna þess að hann kveikti í kjörskrá, hinum vegna þess að hann æsti til ofbeldis. Aðeins helmingur 80.000 at- kvæðisbærra eyjarskeggja tók þátt í kosningunum. Flokkur gaullista, Lýðveldisflokkurinn (RCPR), sem nýtur aðallega stuðnings hvítra manna og berst gegn sjálfstæði, vann því auð- veldan sigur. Hann hlaut 34 þing- sæti af 42 alls og 71% greiddra atkvæða. Flokkur hófsamra Kan- aka, sem vill semja við Frakka, hlaut sex þingsæti, hægri flokkar tvö. Síðan kosningarnar fóru fram hafa Kanakar haldið áfram bar- áttu sinni í sveitahéruðum. Þeir hafa komið fyrir vegatálmum á nokkrum stöðum, kveikt í húsum og lagt undir sig lögreglustöðvar og aðrar opinberar byggingar. Matvælabirgðir eru víða á þrot- um vegna aðgerðanna. Nýlega fannst lík gamals manns af evrópskum ættum, sem Kanakar höfðu skotið til bana eftir árás á heimili hans. Hjón særðust þegar árás var gerð á býli þeirra skammt frá Ouegoa. Landstjóra nálægrar eyjar, Tryggðareyjar, Jean-Claude Demare, er haldið í gíslingu. Hvítir eyjarskeggjar eru ugg- andi út af ástandinu. Stjórn ný- lendunnar er ekki síður uggandi og hefur bannað mótmælaaðgerð- ir og sölu á áfengi. Noumera hef- ur einangrazt frá öðrum lands- hlutum vegna aðgerða Kanaka og hvítir landnemar krefjast þess að franska stjórnin beiti þá hörðu. Frakkar gera ráð fyrir þeim möguleika að óeirðirnar haldi áfram og hafa sett vopnaðan vörð við flugvelli og önnur mikilvæg mannvirki. Vopnaðir lögreglu- menn hafa verið sendir til allra hluta nýlendunnar. Engar opin- berar tölur eru til um fjölda þeirra sem hafa slasazt í átökun- um, en samkvæmt heimildum í Noumea eru þeir ekki margir. íbúar Nýju Kaledóníu, sem hef- ur verið frönsk nýlenda síðan 1843, eru 145.000 og þar af eru Kanakar 63.000, franskir land- nemar (Caldoches) 55.000 og Pólynesíumenn 17.000. Þar við bætast kínverskir, indverskir, víetnamskir, indónesískir og aðr- ir innflytjendur. Margir hinna hvítu landnema eru afkomendur sakamanna, sem sendir voru frá Frakklandi þegar Nýja Kaledónía var fanga- nýlenda. Sumir þeirra eru emb- ættismenn og landnemar frá fyrrverandi nýlendum Frakka í Áfríku. Á Nýju Kaledóníu eru þriðju mestu nikkelnámur í heimi og hvítu landnemarnir fást við námugröft og búskap, en margir reka smáfyrirtæki. Flestir þeirra eru andvígir sjálfstæði og berjast gegn þeirri kröfu Kanaka að þeir einir fái sjálfstæði. Þjóðfrelsisfylking Kanaka (FLNKS), sem aðhyllist sósíal- isma og fjórir af fimm helztu flokkum Kanaka standa að, hefur hingað til forðazt meiriháttar átök við öryggissveitir og virðist ekki hyggja á uppgjör. Frelsisfylkingin hefur skorað á frönsku stjórnina að ógilda úrslit kosninganna og flýta fyrir því að eyjan fái sjálfstæði á þann hátt að tryggt verði að Kanakar ráði lögum og lofum. Franska stjórnin hefur hafnað þessum kröfum og Georges Lemoine nýlendumála- ráðherra segir: „Frakkar munu ekki breyta stefnu sinni á Nýju Kaledóníu." Fylkingin hefur hafnað lögum um takmarkaða heimastjórn, sem franska þingið samþykkti í júlí. í lögunum er gert ráð fyrir þjóðaratkvæði um sjálfsákvörð- unarrétt eyjarskeggja 1989. Lemoine hefur sagt að þjóðar- atkvæðinu verði flýtt, ef meiri- hluti eyjarskeggja vilji það. Fylkingin segir að ef efnt yrði til þjóðaratkvæðis mundi hún bíða ósigur fyrir bandalagi Frakka, Pólynesíumanna og ann- arra minnihlutahópa, sem eru andvígir sjálfstæði. Hún vill það skilyrði fyrir því að menn fái að kjósa að þeir hafi búið á eynni i 18 ár. Jafnframt krefst frelsisfylking Kanaka þess að eyjan fái sjálf- stjórn á næsta ári. Kanakar halda því fram að þeir einir, hinir innfæddu íbúar, hafi rétt til að ákveða framtíð eyjunnar, sem þeir kalla Kanaky (Land fólks- ins). Blað á eynni hermir að hvítir eyjarskeggjar undirbúi allsherj- arverkfall og mótmælaaðgerðir til að leggja áherzlu á kröfur um að franska stjórnin láti til skarar skríða gegn Kanökum. Landstjór- inn, Jacques Roynette, hefur forðazt hvers konar ráðstafanir, sem gætu valdið miklu mann- tjóni. Francois Mitterrand forseti hét íbúum Nýju Kaledóníu sjálfstæði áður en hann kom til valda og afstaða Kanaka hefur harðnað vegna þess hve hægt hefur miðað. Meirihluti Kanaka greiddi Mitt- errand atkvæði í siðustu forseta- kosningum, en yfirgnæfandi meirihluti hvítra manna kaus Valery Giscard d’Estaing. Ástralíumenn, Ný-Sjálend- ingar og margar aðrar þjóðir við Kyrrahaf hafa lýst yfir stuðningi við sjálfstæði Kanaka, en lítið hefur borið á stuðningi þeirra við Kanaka síðan óeirðirnar hófust. Frakkar eru óvinsælir á Suður- Kyrrahafi vegna kjarnorkutil- raunanna á Mururoa, en dregið hefur úr stuðningi við Kanaka, þar sem nokkrir kunnir leiðtogar frelsisfylkingarinnar fóru til Li- býu og sömdu um það í síðasta mánuði að 18 ungir Kanakar fengju hernaðarþjálfun þar. I síðustu viku skýrði frelsis- fylkingin frá myndun bráða- birgðarstjórnar undir forsæti Jean-Marie Tjiabou og hún neitar að taka þátt í stjórnmálalífi ný- lendunnar. Frakkar geta tæplega gengið að kröfum Kanaka um að ógilda úrslit kosninganna, en hins vegar getur orðið erfitt að stjórna ný- Íendunni án þátttöku frelsisfylk- ingar þeirra. Stjórn eyjunnar getur lamazt, eða grípa verður til kúgunarráðstafanna. Ljóst er að sósíalistastjórn Mitterrands neyðist til að styðja við bakið á þingi eyjarskeggja, þótt andstæð- ingar sósíalista ráði þar lögum og lofum, og reyna um leið að stemma stigu við uppreisn reiðra Kanaka. O, } -%<s BouraMX 0 NEW\ Ncumea % CALEDONIA ^ v. 50Mi. '•Vanuatu t FIJI AUSTRALIA Uo MiIís SOUTH PAC/FIC OCEAN NEW ZEALAND( 4 Nýja Kaledonía

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.