Morgunblaðið - 07.12.1984, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984
Siglufjörður:
Aðventuhátíð í
Siglufjarðarkirkju
SighiQörður, 6. desember.
NÆSTKOMANDI sunnudag, annan
sunnudag í aðventu, verður haldin
aðventuhátíð í Siglufjarðarkirkju og
hefst hún kl. 20.30.
Þetta er í áttunda skipti sem
slík hátíð er haldin í Siglufirði og
hefur ávallt verið vandað til
dagskrár. Þetta framlag safnaðar-
ins hefur safnaðarfólk kunnað að
meta og oft hefur kirkjan vart
rúmað þá sem sótt hafa hátíðina. í
þetta sinn flytur kirkjukórinn
jólalög undir stjórn Anthony Ral-
eys organleikara. Barnakór syng-
ur undir stjórn Elíasar Þorvalds-
sonar, ræðumaður kvöldsins er
Einar Sveinsson framkvæmda-
stjóri, en hann hefur unnið mikið
að kirkjumálum í Víðistaðasókn í
Hafnarfirði. Lúðrasveit Siglu-
fjarðar leikur undir stjórn Anth-
onys Raley og samleikur verður á
flautu og píanó. Fluttir verða
stuttir þættir úr bókinni „Af
hverju afi“ og „Börnin skrifa
Guði“.
Það er von allra, sem að kvöld-
inu standa, að það megi færa
okkur nær jólunum, færa okkur
nær sjálfu Jesúbarninu, sem helg-
ar tilgang aðventu og jóla.
Fréttaritari.
FYRSTU íslensku jólatrén eru nú komin í bæinn og
hefst sala á þeim víðast hvar í dag. Hjá Skógræktar-
félagi Reykjavíkur á Fossvogsbletti við Reykjanes-
braut voru starfsmenn í óða önn að hengja upp jóla-
tré er ljósmyndara bar þar að garði í gær.
Að sögn Ásgeirs Svanbergssonar, verkstjóra í
Fossvogsstöðinni, bárust þeim hátt á annað þúsund
tré, bæði úr Haukadal og Þjórsárdal. Eru þau að
mestu leyti rauðgreni en einnig er talsvert af staða-
furu, og er stærðin á trjánum á bilinu einn til tveir
metrar. Aðspurður sagði Ásgeir að islensku jólatrén
hefðu hækkað um 30—40% frá því í fyrra, en verðið
á þeim er miðað við verð á innfluttum trjám. Meðal-
stórt rauðgrenitré kostar því í ár um sjö hundruð
krónur og meðalstór staðafura um eitt þúsund krón-
ur.
íslensku jólatrén komin í bæinn
Morgunblaðið/Júlíus
Starfsmenn Skógræktarfélags Reykjavíkur í óða önn vid að hengja upp jólatré, frá vinstri Reynir A. Sveinsson og
Helgi Laustsen.
Eyjapeyjar og Hvera-
píur í Hveragerði
Nýr fslenzkur söng-
leikur frumsýndur
NEMENDIJR Gagnfræðaskólans
í Hveragerði frumsýna nýjan ís-
lenzkan söngleik í Félagsheimili
Ölfusinga í kvöld, (ostudaginn 7.
desember, klukkan 20.30.
Stjörnubíó
sýnir „Drauga-
banana“
STJÖRNUBÍÓ hefur hafið sýningar
á bandarísku kvikmyndinni
„Draugabanar", sem á frummálinu
heitir „Ghostbusters". Frumsýning
myndarinnar hér á landi er um leið
Evrópufrumsýning, en hún hefur
ekki áður verið sýnd í Evrópu.
Titillag myndarinnar hefur ver-
ið mjög vinsælt og er ofarlcga á
vinsældalistum um þessar mund-
ir. Myndin er grínmynd og aðal-
hlutverk leika þeir Bill Murray,
Dan Aykroyd, Sigourney Weaver
og fleiri.
Nefnist söngleikurinn „Eyja-
peyjar, Hverapíur, eldgos, ástir
og allt hitt“. Höfundar eru fjór-
ir kennarar við Gagnfræða-
skólann í Hveragerði, þeir Ró-
bert Darling, Hjörtur Jó-
hannsson, Sigurður Davíðsson
og Valgarð Runólfsson. Leik-
stjóri er Guðfinna Margrét
Óskarsdóttir frá ísafirði. Leik-
ritið fjallar um fjölskyldu sem
flyst frá Vestmannaeyjum til
Hveragerðis í Heimaeyjargos-
inu 1973, samskipti hennar við
heimafólk, um skólalífið og
unglingaástir.
Önnur sýning verður annað
kvöld, laugardag, klukkan 20.30
og þriðja og síðasta sýning í
Hveragerði klukkan 16.30 á
sunnudag. Auk þess vonast
leikhópurinn til að geta sýnt
verkið í Vestmannaeyjum.
e éé
i ó ö*
C ~5Ke®5É ÖÉ
$ % oií &m
Hjartagæzlutæki eins og safnað er fyrir.
Merkjasala til stuðn-
ings hjartveikum
Mormónakirkjan:
Markaður og
kökubasar
Mormónakirkjan á íslandi
verður með kökubasar og flóa-
og bókamarkað í húsi sínu á
Skólavörðustíg 46 á morgun,
laugardaginn 8. desember. Á
boðstólum verða heimabakaðar
kökur ásamt mörgum munum,
mest fatnaði. Andvirði þess sem
selst rennur óskipt til Ætt-
fræðisafns „Kirkju Jesú Krists
hinna siðari daga heilögu".
LIONS-klúbburinn Víðarr mun nú
um helgina standa fyrir merkjasölu
til stuðnings hjartveikum. Víðarr er
yngsti Lions-klúhburinn í Reykjavík
og hefur ákveðið að helga sig barátt-
unni gegn hjartasjúkdómum.
Á síðastliðnu vetri voru félagar
klúbbsins með sams konar
merkjasölu og þrátt fyrir hríðar-
veður og kulda tókst salan mjög
vel. Andvirði merkjasölunnar var
látið renna til söfnunar Lands-
samtaka hjartasjúklinga til kaupa
á hjartasónarrita.
Það markmið er með merkjasöl-
unni nú um helgina að safna fyrir
hjartagæzlutæki til notkunar við
gjörgæzlu sjúklinga í hjartadeild
Landspítalans. t fréttatilkynn-
ingu, sem Morgunblaðinu hefur
borizt, er skorað á borgarbúa að
sýna rausn og kaupa merki. Með
þessu átaki vilja félagar klúbbsins
ganga á hólm við þann sjúkdóm,
sem mannskæðastur er í dag.
Barnaguðs-
þjónusta í
Fríkirkjunni
SÍÐASTA barnaguðsþjónustan
fyrir jól í Fríkirkjunni í Reykja-
vík verður á morgun, sunnudag-
inn 9. desember, klukkan 11.
Kvenfélagskonur í söfnuðinum
færa börnum jólaglaðning í
barnaguðsþjónustunni.
(Jr myndinni „Draugabanar".
Félag íslenzkra iðnrekenda:
Ánægt með viðbrögð
Innkaupastofnunar-
innar og borgarráðs
MORGIJNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá Félagi íslenzkra
iónrekenda:
„Þann 3. desember síðastliðinn
ritaði Félag íslenskra iðnrekenda
Innkaupastofnun Reykjavíkur-
borgar bréf varðandi útboð á
skrifstofuhúsgögnum í bókasafn í
menningarmiðstöðinni við
Gerðuberg. í bréfinu var fram-
kvæmd útboðsins mótmælt þar
sem í því voru beinar tilvísanir í
framleiðslu tiltekins erlends
fyrirtækis og aðeins einum ís-
lenskum framleiðanda var boðin
þátttaka í útboðinu.
Daginn eftir barst félaginu
bréf Innkaupastofnunar þar sem
óskað var eftir ábendingum fé-
lagsins um fleiri innlenda fram-
leiðendur, sem til greina koma
við útboðið. Var sú ósk Innkaupa-
stofnunar staðfest af borgarráði.
Félag íslenskra iðnrekenda lýs-
ir ánægju sinni yfir skjótum
viðbrögðum Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar og borgarráðs
og fagnar því að þessir aðilar hafi
fallist á að ræða þann möguleika
að framlengja tilboðsfrest og
gefa innlendum framleiðendunr
tækifæri til að taka þátt í útboð-
Tveggja daga jóla-
basar Sjálfsbjargar
JÓLABASAR Sjálfsbjargar, félags
fatlaóra í Reykjavík og nágrenni,
veröur haldinn laugardag og sunnu-
dag 8. og 9. desember nk. í Sjálfs-
hjargarhúsinu, Hátúni 12,1. hæð, og
hefst sala kl. 14.00 báða dagana.
Á basarnum verður úrval varn-
ings á hagkvæmu verði, til dæmis
jólaskreytingar og margs konar
aðrar jólavörur, útsaumaðir mun-
ir, prjónafatnaður, púðar, kökur
og margt fleira.
Jafnframt verður efnt til happ-
drættis og kaffisölu eins og und-
anfarin ár.