Morgunblaðið - 07.12.1984, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 07.12.1984, Qupperneq 49
49 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DKSEMBER 1984 um eitthvað smáraeði í kaupstað. Þannig mátti oft sjá Valdemar ganga milli hannyrðaverslana og vefnaðarvörudeildar KEA, sækj- andi örlítinn tvinna eða efnisbút. Ekki svo að skilja að bændur hafi ekki líka sent hann í Véladeildina eða í „Mjólkurbúðina" sem kölluð var. Allt þetta gerði Valdemar með mestu ánægju og taldi það raunar hlutaf af vinnu sinni í þágu bænda. Þó Valdemar hafi alla tíð unnið geysilega mikið og dagarnir sjald- an reynst nægilega langir tókst honum að reisa parhús á Grenivík í félagi við bróður sinn Indriða. Með húsi þessu varð sá draumur hans að veruleika að búa sem best í haginn fyrir fjölskyldu sína. í húsi þessu bjuggu þau í 15 ár. Valdemar var mikill friðarsinni og alls staðar vildi hann reyna að laga og bæta ef deilumál komu upp innan fjölskyldunnar. Alltaf gat hann talað um fyrir deiluaðil- um, enda með afbrigðum geðgóður og lipur. Eftir að Valdemar hætti mjólk- urflutningum fór hann til sjós og gerðist kokkur. Hann var m.a. á Olafi Magnússyni, björgunarskip- inu Goðanum og Hallveigu Fróða- dóttur svo einhver séu nefnd. Hann var dáður kokkur, bæði fyrir vel tilbúinn mat og fyrir nýtni hráefna. Samviskusemi var jú hans æðsta dyggð. f Kópavog fluttu þau hjónin ár- ið 1965, ásamt sjö börnum, en elsta dóttirin var þá farin að búa á Grenívík. Þau festu kaup á húsinu Melgerði 13, því nú var fjölskyldan orðin stór. Þegar hér var komið sögu var Valdemar orðinn þreyttur á sjó- mennskunni og hugðist leita létt- ari starfa. Hann réðst til starfa hjá Bifreiðum & Landbúnaðarvél- um hf. við reynsluakstur nýrra bifreiða. í því starfi var hann allt til ársins 1974 er hann fékk at- vinnuleyfi til aksturs leigubifreið- ar. Hann gerðist bílstjóri hjá Bif- reiðastöð Reykjavíkur og gegndi því starfi til dauðadags. Sem leigubílstjóri kunni hann vel við sig, enda ekki erfiðisvinna af því tagi sem hann vel þekkti frá fyrri tíð. Hann var ánægður með vinnu- staðinn BSR og þar eignaðist hann ágæta félaga, bæði í hópi bílstjóra og starfsfólks, svo og í hópi við- skiptavina. Þannig eignaðist hann marga fasta viðskiptavini sem oft hringdu hvenær sem var sólar- hrings, og ekki taldi hann það eft- ir sér að klæða sig upp, þó kannski væri hann nýgenginn til náða. Árið 1981 fluttu þau Valdemar og Guðbjörg til Þorlákshafnar. Að Lýsubergi 5 komu þau sér upp fal- legu heimili, ánægð yfir rólegheit- um staðarins og ein eftir í „hreiðr- inu“, því öll börnin farin að heiman og búin að koma sér upp heimilum annars staðar. Valdemar Gestur var jarðsung- inn frá Þorlákskirkju, Þorláks- höfn þann 9. okt. sl. að viðstöddu miklu fjölmenni, sem kvaddi góð- an^dreng. Já, góður drengur er genginn, en eftir stendur stór hóp- ur af mannvænlegu fólki sem Kveðjuorð: Páll Guðjónsson trésmíðameistari Fæddur 22. nóvember 1904 Dáinn 14. október 1984 Örfá kveðjuorð til Páls frænda míns. Bernskuminningarnar á ég margar og góðar um hann. Ein sú fyrsta, er ég 5 ára gamalt stelpukorn, skondraði í ýmsum spennandi barnaleikjum á eyrun- um neðan við túnið á Gestsstöð- um. Páll kemur þar að ríðandi á einum hesti föður míns, gefur sig á tal við krakkakrílið og kippir því upp á hnakknefið og við verðum samferða heim. í barnshuganum var enginn efi. Hann var góður maður Páll frændi. Önnur minning er sú að stúlkan er orðin 10 ára gömul. Faðir henn- ar er sjúkur á spítala. Páll frændi er kominn frá Reykjavík í heim- sókn. Það verður að ráði að hann taki dömuna með sér suður og hún dvelji hjá honum og konunni hans, henni Döddu, komandi vetur. Nú var verið að yfirgefa bernskuheimilið í fyrsta sinn. Það var eftirvænting og kvíði í huga, en þar á ofan bættist mikil bíl- veiki. Allt ráð var lagt í hendi Páls frænda og hann stóð fyllilega und- ir því trausti sem til hans var bor- ið. Dadda tók vel á móti barninu þegar til Reykjavíkur kom, þó hún ætti ekki fyrirfram von á þessari sendingu. Dvölin hjá þeim hjónum þennan vetur var einstaklega góð. Minnisstætt er, að er eitthvað syrti að í barnshuganum, hve gott var að fara til Páls frænda og setj- ast á hnéð á honum. Eftir þetta áttu þau bæði stóran „kvóta“ í þessum stelpukrakka. Páll Jakob Blöndal Guðjónsson hét hann fullu nafni og var fædd- ur á Gestsstöðum í Sanddal í Norðurárdalshreppi 22. nóvember 1904. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Daðadóttir og Guðjón Guðmundsson bóndi á Gestsstöð- um. Börn þeirra hjóna voru 8 tals- ins. Elstur var Guðmundur, fæddur 1893, hann drukknaði er hann var á vertíð á Suðurnesjum árið 1915. Elís Kristinn, fæddur 1895, dó aðeins þriggja vikna gamall. Elín Kristín, fædd 1897, dó úr berklum 1922. Gunnar Daðmar, fæddur 1899, síðar bóndi á Gestsstöðum, hann dó 1949. Hallvarður, fæddur 1901, dó 1903. Næstur var Páll, fæddur 1904 sem fyrr segir. Gunnhildur, fædd 1907, hún er klæðskerameistari og var lengi verkstjóri á saumastofu Últímu hf. Þórdís Ingveldur er yngst, fædd 1909. Hún er saumakona og hefir lengst af starfað hjá Sjóklæða- gerðinni og Max hf. Páll ólst upp við öll algeng sveitastörf á heimili foreldra sinna. Snemma hneigðist hugur hans til smíða og vann hann að slíkum verkum á ýmsum stöðum í Borgarfirði á yngri árum. Fer hann síðan í trésmíðanám og lauk prófi trésmíðameistara rúmlega tvítugur. 10. sept. 1932 giftist Páll einkar hugljúfri stúlku, Theódóru Sigur- jónsdóttur. Hún átti þá heima í Fornahvammi, en ættir henar báðar eru úr Vestur-Húnavatns- sýslu. Nafnið Theódóra mun vera komið úr grísku og útleggst „Guðs gjöf“. Páll talaði stundum um Guðs gjöfina sína, enda hjóna- band þeirra með þeim hætti að þar ríkti ást og eindrægni. Mér er það í barnsminni hve augljós kær- leikur ríkti á milli þessara hjóna. Páll keypti húsið Laugarnesveg 77 og settu þau þar saman heimili sitt. Síðar byggði hann á Kirkju- teigi 13, þar hafa þau búið síðan. Foreldrar Theódóru voru á heimili þeirra síðustu ár ævinnar til dauðadags. Auk þess dvaldi fleira fólk á heimilinu bæði skylt og vandalaust um lengri og skemmri tíma. Gestkvæmt var þar og gest- risni mikil. Þau hjónin eignuðust einn son, Guðmund Þórarin, arkitekt, sem giftur er Ragnhildi Auði Vil- hjálmsdóttur. Auk þess tóku þau í fóstur litla stúlku, Hrafnhildi Valgarðsdóttur kennara. Umhyggja þeirra og elska til hennar var engu síðri en til þeirra eigin sonar. Hrafnhildur er gift Karli Vernharðssyni. Páll stundaði iðn sína um langt árabil og sá um byggingu fjölda syrgir föður, tengdaföður, afa og langafa. Ég hef með þessum fátæklegu orðum stiklað á nokkrum stað- reyndum úr lífshlaupi Valdemars Gests. Hans stærsta hamingja var eig- inkona hans, sem stóð sem klettur við hlið hans í blíðu og stríðu. Og hans fyrsta og síðasta hugsun var að hún og börnin hefðu það sem best. Til þess gerði hann svo sann- arlega allt sem í hans valdi stóð. Megi góður Guð senda aldraðri móður hans, Sigrúnu Jóhannes- dóttur, og eiginkonu hans, Guð- björgu Óskarsdóttur, styrk til að umbera þá sorg sem á þær hefur verið lögð. Megi Drottinn blessa börn hans öll og aðra ættingja á erfiðri stund. Vér þökkum þér höfðingi haldkvæmust ráð er hvarvetna reyndust oss best. Og Ijúfmennsku, rausn þina, dugnáð og dáð og djörfung og víðsýni um flest. Vér elskum þig faðir og fræðara vorn sem fundum við árin þín skjól, er börnunum greiddir til blessunar spor við blikstarf frá kærleikans sól. (Guðmundur Guðmundss. ljóðsk.) Við öll sem þekktum hann kveðjum hann og þökkum honum fyrir líf hans og störf. Við þökkum fyrir það sem hann var okkur. Við vonum að ný störf bíði hans, bak við hið óþekkta. Blessuð sé minning hans. S.G.M. húsa í Reykjavík og nágrenni, meðal annars byggði hann hús Nóbelsskáldsins Gljúfrastein í Mosfellssveit. Hann var með lærl- inga undir sínum handarjaðri og margt verkamanna. Ég hygg að hann hafi þótt harð- ur og vandlátur húsbóndi, en læri- sveinar og verkamenn mátu hann mikils. Vandvirkni og hagkvæmni voru honum efst í huga i starfi. Vildi hann hag viðskiptavinarins sem mestan. Á síðustu starfsárum sínum var Páll hættur húsbyggingum, en rak trésmíðaverkstæði sem framleiddi húsainnréttingar. Allra síðustu æviárin hrakaði heilsu Páls mjög og reyndi þá mik- ið á Theódóru, en hún annaðist hann af stakri elskusemi til hins síðasta. Hann lést 14. okt. sl. Að lokum sendi ég og mín fjöl- skylda Theódóru, Guðmundi Þór og Hrafnhildi og þeirra fjölskyld- um innilegar samúðarkveðjur. Fari Páll frændi I friði og Guð fylgi honum. Guðrún Gunnarsdóttir Sanyo er með á nótunum. GXT200 ötrúleg tóngæði og fallegt útlit fyrir breakara á öllum aldri Magnari 2X10 sln wött Útvaip með FM sterió (rás 2) MW-LW. Plötuspilari, hálÉsJálfviricur með moving magnet, pick-up og demantsnál Segulband með DOLBY Nr og METAL stíQingu. 50 watta hátalarar og stórglæsilegur viðar skápur með reyklitðum glerhurðum og loki. VERÐ AÐEINS KR. 22.123.- stgr. SHG Sjálfvirkar kaffikönnur. Verð frá kr. 1.313,-. Sjálfvirkir eggjasjóðarar fyrir 1—7 egg. Verð kr. 1.571,-. Gunnar Ásgeirsson hf. StKVirUtvjsty.itit 16 Scnv 91 35300 Snjóhjólbarðar Heilsólaðir snjóhjólbardar á fólksbíla, vestur- þýskir, allar stærðir, bæöi Radial og venjulegir, meö mjög góöu gripi. Einnig nýir snjóhjólbaröar á mjög lágu veröi. Allir bílar teknir inn ókeypis. Snöggar hjólbaröaskiptingar. Jafnvægisstillingar. Kaffisopi til hressingar, meðal staldraö er viö. Barðinn hf. Skútuvogi 2 (nálægt Miklagaröi). Símar: 30501 og 84844.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.