Morgunblaðið - 09.01.1985, Page 4

Morgunblaðið - 09.01.1985, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 9. JANÚAR 1985 Girnnar Helgi Hálfdánarson hjá Fjárfestingarfélagi íslands: „Spariskírteinin gefa 5,1 til 7,2 % raunávöxtun“ „Ég tel ekki að hér sé um yfirboð ríkissjóðs að ræða, ef inn í myndina eru tekin skuldabréf bundin til lengri tíma og það að raunvextir bankanna kunna að hækka aftur síðar á árinu,“ sagði Gunnar Helgi Hálfdánarson, framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélags íslands, þegar Mbl. leitaði álits hans á nýju ríkisskuldabréfunum. „Nýju verðtryggðu spariskír- teinin gefa allgóða en fasta raun- ávöxtun sem er á bilinu 5,1 til 1,2% á ári, en krefjast þó eins og íálfs til fimm ára binditíma svo að umræddri ávöxtun sé náð. Bankarnir bjóða hinsvegar mis- munandi kjör, eða 2 til 6,6% raun- ársávöxtun á sex mánaða verð- tryggðum reikningum. Menn verða því að vera reiðubúnir til að eiga spariskírteinin í um það bil níu mánuði, að óbreyttum banka- vöxtun, áður en þau eru seld aftur á verðbréfamarkaðnum en það stafar af söluþóknun verðbréfa- salanna sem dregst frá söluverði," sagði Gunnar Helgi, þegar álits hans var leitað á ávöxtun ríkis- skuldabréfanna í samanburði við aðra ávöxtunarmöguleika. „Af þeim fjórum tegundum rík- isskuldabréfa sem nú er boðið upp á líst mér best á hin hefðbundnu spariskírteini. Þau eru sjálfvirk og krefjast engrar vinnu eða sér- þekkingar af hálfu þess sem þau kaupir. Spariskírteini með vaxta- miðum geta hæft sumum vel, til dæmis fólki sem er komið á eftir- launaaldur og verður að lifa af sparnaði sínum. Þau þarf ekki að selja ef fjárþörfin á ári fer ekki yfir 6,7% af fjárfestingu. Geng- istryggðu spariskírteinin bjóða upp á spákaupmennsku. Að jafn- aði verður að reikna með að eiga þau í tvö til þrjú ár, áður en þau eru seld, nema viðkomandi sjái fyrir gengisfellingu í náinni fram- tíð og selji þau að henni lokinni. Þetta er þó yfirleitt eingöngu á færi sérfræðinga. Mér líst ekki á vaxtaaukaspari- skírteinin, þau bjóða upp á loðin kjör, sem auðvelt er fyrir bankana að eyðileggja. Með hliðsjón af verðlagsþróun og því sem er fram- undan í þeim efnum, hvet ég fólk eindregið til að verðtryggja sparn- að sinn og að líta á kjörin á verð- bréfamarkaðnum. Þar ráðast kjörin meir af hinu raunverulega ástandi á fjármagnsmarkaðnum, en ekki af kerfinu. Þar er um að ræða markaðsraunvexti sem eru sem stendur háir, 14 til 18% á ári á verðtryggðum veðskuldabréfum, en gætu þó lækkað vegna aukinn- ar eftirspurnar," sagði Gunnar Helgi Hálfdánarson. Hafin sala á 4 tegundum ríkisskuldabréfa: Skírteini til 18 mánaða bera 50% hærri vexti en bankarnir bjóða Einnig hafin sala á skírteinum með vaxtamiðum Á MORGUN, Hmmtudaginn 10. janúar, hefst sala á fjórum tegundum spari- skírteina ríkissjóðs. Spariskírteinin voru auglýst í Morgunblaðinu í gær með yfirskriftinni „Lánsöm þjóð... “ Tvær tegundir spariskírteinanna eru nýj- ungar hér á landi. Eru það skírteini með vaxtamiðum annarsvegar en skír- teini með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxtaauka hinsvegar. Hin hefðbundnu verðtryggðu spariskírteini sem nú eru boðin til sölu bera 7% nafnvexti sem greið- ast ásamt vaxtavöxtum og verð- bótum við innlausn. Bréfin eru innleysanleg eftir þrjú ár en lánstími að hámarki 14 ár. Spari- skírteini með vaxtamiðum eru nú gefin út í fyrsta skipti hér á landi. Eru þau verðtryggð og bera heldur lægri nafnvexti en hefðbundnu bréfin, eða 6,71%, en vextirnir reiknast misserislega af verðbætt- um höfuðstóli. Nýjungin felst í því að vextirnir, ásamt verðbótum á þá, greiðast misserislega gegn framvísun vaxtamiða. Þessi skír- teini eru innleysanleg eftir 5 ár en lánstími er að hámarki 15 ár. Þriðja tegund ríkisskuldabréf- anna er einnig nýjung hér á landi: verðtryggð spariskírteini með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxtaauka. Þau eru til tiltölulega stutts tíma, eða 18 mánaða, og greiðast vextir, vaxtavextir, vaxtaauki og verðbætur í einu lagi við innlausn. Nýjungin felst í vaxtaákvörðun á bréfunum. Vext- 99 Ríkissjóður afsalar sér ákvörðunar- valdi um vexti af spariskírteinum“ — segir Valur Valsson, bankastjóri Iðnaðarbankans „ÞAÐ SEM vekur mesta athygli er aó ríkissjóður býöur núna spariskír- teini til 18 mánaða sem beinlínis er ætlað að keppa við bankana og bera 50% hærri vexti en bankarnir bjóða á hverjum tíma. Með þessu er ríkis- sjóður að afsala sér ákvörðunarvaldi um vexti af þessum spariskírteinum sera verður að teljast afar óvenju- legt,“ sagði Valur Valsson, banka- stjóri Iðnaðarbanka íslands, þegar álits hans var leitað á nýjum tegund- um spariskírteina rfkissjóðs. „Þegar svona er í pottinn búið óttast ég að allt tal um vaxtafrelsi sé að verða orðin tóm og stjórn- völd hugsi sér eitthvað annað í þeim efnum. Ríkisstjórnin og Seðlabankinn þrýstu á bankana með ofurþunga til að lækka raun- vextina um áramótin. Nú kemur ríkissjóður og yfirbýður vexti hjá bönkum og sparisjóðum. Það er einsýnt af þessu, eins og raunar gerðist einnig á síðastliðnu ári, hver leiðir vaxtaþróunina í land- inu, það er ríkissjóður. Það vekur einnig athygli að ráðuneytið er hætt að bjóða út ríkisvíxla og spurningar vakna um af hverju. Eg lít á það sem vísbendingu um að vaxtakerfið sé gengið alvarlega úr skorðum," sagði Valur einnig. „Övíst er hversu miklu fjárút- streymi þetta veldur úr bönkunum en við verðum að athuga okkar gang. Þessi spariskírteini eru seld í beinni samkeppni við okkur og við verðum að svara þeim eins og best við getum. Erfitt er um vik fyrir okkur að hækka innlánsvext- ina því útlánsvextirnir setja okkur þröng takmörk," sagði Valur, þeg- ar hann var spurður hver hann teldi að yrðu svör bankanna við samkeppni spariskírteinanna. ir eru ákveðnir sem einfalt meðal- tal vaxta af verðtryggðum sex mánaða reikningum viðskipta- bankanna. Að auki bera þeir vaxtaauka sem er 50% ofan á vextina. Viðskiptabankarnir bjóða nú 2—6,5% vexti af sex mánaða reikningum og er meðaltal þeirra nú 3,43% á ári, en að viðbættum 50% vaxtaaukanum ber þessi teg- und spariskírteina 5,14% ársvexti. Fjórða tegundin er síðan geng- istryggð spariskírteini. Lánstími er 5 ár og vextir 9% á ári. Ríkis- sjóður gaf einnig út slík bréf á síðastliðnu ári. Innlausnarverð, það er höfuðstóll, vextir og vaxta- vextir, er greitt í einu lagi og breytist í samræmi við breytingar á gengisskráningu SDR (Sérstök dráttarréttindi sem er blanda af fimm mikilvægustu viðskipta- gjaldmiðlum heims). I fréttatilkynningu frá fjár- málaráðuneytinu segir að spariskírteinin sk uli skráð á nafn og að þau séu framtalsskyld. Vext- ir og verðbætur af þeim eru þó ekki skattlagðar hjá mönnum utan atvinnurekstrar. Sama fólki er heimilt að draga skírteinin aft- ur frá eignum að því marki, sem þær eru umfram skuldir. Sölu- staðir bréfanna eru: Seðlabanki íslands, viðskiptabankarnir, sparisjóður og nokkrir verðbréfa- salar. I bi3€a.i)mr 'msssmÆ> áLw'u* Föstudags- og laugardagskvöld Framreiddur veröur Ijúffengur þríréttaöur kvöldveröur frá kl. 19.00. Miða- og borðapantanir daglega í síma 77500 frá kl. 11—19. RÍÓ í Broadway er ein allra besta skemmtun sem sviösett hefur veriö, enda fara þeir félagar á kostum Stórhljómsveit Gunnars Þóröarsonar leikur fyrir dansi. Söngvarar: Björgvin Halldórsson, Sverrir Guö- jónsson og Þuríöur Siguröardóttir. Velkomin velklædd í Broadwsy-reisu Flug- leiða. Flug, gisting í 2 nætur og aðgöngumiði. Frá Akureyri kr. 3.932,- Frá Egilsstöðum kr. 4.609,- Frá ísafirði kr. 3.798,- Leitið frekari upplýsinga á söluskrifstofum Flugleiða, umboðsmönnum og ferðaskrif- stofum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.