Morgunblaðið - 09.01.1985, Side 30

Morgunblaðið - 09.01.1985, Side 30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANtJAR 1985 30 Afmæliskveðja: __ Olafur Tryggvason frá Kirkjubóli Það stendur mér nær að senda vini mínum ólafi Tryggvasyni kveðju mina og minna á áttatíu ára afmæli hans. í húsi okkar Grétu hefir hann lengi verið mik- ill vinur og frændi, þótt samveru- stundunum hafi þvf miður fækkað um hrið. ólafur er fæddur 9. janúar 1905 á Skálanesi i A-Barðastrandar- sýslu, sonur Kristjönu Sigurðar- dóttur og Tryggva A. Pálssonar er þar bjuggu þá og siðar á Vals- hamri í Geiradal og i Gufudal til 1914 að þau flytja búferlum að Kirkjubóli í Skutulsfirði, þar sem Tryggvi bjó til ársins 1938 að ólafur tekur við búforráðum á Kirkjubóli. Hafði ólafur fyrir þann tima stundað landbúnað- arstðrf í Eyjafirði og um nokkur ár bjó hann búi sinu i Hnífsdal vestra. Árið 1946 bregður ólafur búi og flyzt búferlum til Reykjavíkur, þar sem hann hefir átt heimili sið- an. Hann hóf þá þegar störf hjá Rafmagnsveitum rikisins og vann þeim meðan starfsævin entist. Árið 1928 gekk hann að eiga Jensinu Gunnlaugsdóttur, fallega stúlku úr sveitinni i Skutulsfirði, og reyndust þau hvort öðru góðir lifsförunautar. Þau eignuðust sex börn: Sverri, verkfræðing í Reykjavík, Eddu, hjúkrunarkonu, sem fórst af slysförum i Banda- ríkjunum i blóma lífsins, Þórhall, verktaka og byggingameistara í Bandaríkiunum, ólaf, garðyrkju- bónda í Olfusi, Brynju, húsfreyju og kennara á Akranesi, og Snorra, rafvirkjameistara á Selfossi. Allt mannvænt fólk og þeirra afkom- endur. Jensina andaðist í desem- ber fyrir rúmu ári, 76 ára að aldri, og hafði ekki gengið heil til skógar í nokkur ár, þótt þeim hjónum tækist að eiga heimili sitt saman til endadægurs hennar. Að svo búnu tók ólafur sér inni á Hrafn- istu og unir dável hag sinum. Fyrir nokkrum árum varð ólaf- ur fyrir miklu sjúkdómsáfalli og virtist hætt kominn. Sætir furðu hversu vel hann hefir komizt til heilsu á ný, enda er þeim gamla ekki fisjað saman, en honum varð það eitt sinn að orði við mig að elli kerling væri grimm. Hér hefir verið stiklað á því allra stærsta í lífshlaupi ólafs Tryggvasonar. Margs er fyrir mig að minnast frá liðnum samveru- stundum og mikið að þakka. Ég minnist fyrstu laxveiðiferðar okkar saman í ágústbyrjun 1957. Þá var ólafur 52 ára, hið mesta hraustmenni og vígreifur vel. Allra manna glaðbeittastur á góð- um stundum í vinafagnaði og dró þá ekki af sér í neinu. Ævintýrin á laxveiðum áttum við saman sumar hvert að kalla í hartnær fjórðung aldar. Þegar gamli vinurinn minn hafði beðið heilsutjón sitt um árið lét ég þess einhverju sinni getið að nú myndi fækka ferðum okkar saman, og svaraði hann þá i sínum stillta stfl: Þetta er nú búið að vera gott. Og víst er um það að ólafur lít- ur yfir farinn veg sáttur við allt og alla. Hann hefur verið gæfumaður í lífi sínu og skilað drjúgu dags- verki með sóma. Á þessum heið- ursdegi veit ég að honum er efst í huga þakklæti og vinsemd í garð samferðafólks. Hann er sjálfur þeirrar gerðar að gott er að eiga að vini. Megi ævikvöld hans verða fagurt og friðsælt. Sverrir Hermannsson ★ Ólafur ætlar að taka á móti gest- um í veitingahúsinu Hrafninum vid Skipholt milli kl. 16.30 og 19.00 í dag. HITAMÆLAR Vesturgötu 16, sími 13280. | raðauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar nauöungaruppboö Nauðungaruppboð sem auglýst var 38., 41. og 44. tbl. Lögbirtlngablaöslns 1984 á eignlnni Góuholtl 6, Isaflröi, þingleslnnl elgn Arnviöar U. Marvlnsson- ar fer fram eftir kröfu bSBjarsjóös Isafjarðar og Útvegsbanka Islands á elgninni sjálfri flmmtudaginn tO. januar 1985 kl. 10.00. Bæjarlógetinn é Isafiröi. húsnæöi óskast Húsnæði óskast Óskum eftir að taka á leigu litla 2ja herb. íbúð, eöa gott herbergi meö aögang aö eld- húsi og snyrtingu. Má vera búin húsgögnum. Helst í austurbænum t.d. í Háaleitis- eöa Heimahverfi. Upplýsingar á skrifstofunni í síma 687117 frá kl. 9.00—17.00 virka daga. Auglýsingastofan örkinC^ Sidumula 51. 105Beyktav*. sani687n7 Verslunarhúsnæöi óskast 250—300 fm húsnæöi fyrir verslun, skrifstofu og lager óskast til leigu. Kaup geta komiö til greina. Skilyröi er aö aökeyrsla sé góö og bilastæði a.m.k. 1000 fm. Tilboö sendist til Verkfræöistofu Stanleys Pálssonar hf., Skúlatúni 4, 105 Reykjavík. Uppl. ekki gefnar í síma. fundir —- mannfagnaöir Fundarboö Aðalfundur Stálfélagsins hf. veröur haldinn fimmtudaginn 24. janúar 1985 á Hótel Esju og hefst kl. 18.30. Dagskrá samkvæmt 17. gr. samþykkta fé- lagsins. Lagabreytingar. Til þessa fundar er boöaö í staö aðalfundar, sem halda átti 28. desember 1984 og ekki varö lögmætur vegna ónógrar fundarsóknar. Reykjavík, 7. janúar 1985. Stjórnin. Þorrablót Austfiröingafélags Suöurnesja veröur í Stapa laugardaginn 12. janúar. Miðasala í Stapa fimmtudaginn 10. janúar milli kl. 17.00 og 20.00. Mætum öll meö gesti. Upplýsingar hjá Nönnu í síma 92-2605 og Laulu í síma 92-1161. Skemmtinefnd. kennsla Bón — Bón Þvottur — Þvottur Fallegur bíll á aöeins þaö besta skiliö og þaö fær hann hjá okkur. Viö þvoum og bónum aö innan sem utan. Notum aöeins bestu fáan- legu efni, vanir menn sjá um aö öll vinna og frágangur sé til fyrirmyndar. Sækjum og skil- um bílnum ef óskaö er. Viö erum á Smiöjuvegi 56, kjallara. Tímapantanir eru í síma 79428. Geymiö auglýsinguna. VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS STOFNAÐUR 1905 Innritun í starfsnám Á vormisseri verða haldin eftirtalin námskeið fyrir starfandi fólk í atvinnulífinu og aöra þá sem bæta vilja þekkingu sína. Bókfærsla I Bókfærsla II Ensk verslunarbréf Rekstrarhagfræði Tölvufræöi Tölvuritvinnsla Vélritun 60t. Vélritun 24 t. Verslunarreikningur Verslunarréttur Innritun er hafin. Ekki komast fleiri en 25 aö á hverju námskeiöi. Kennsla fer fram á kvöldin, nema tölvurit- vinnsla og vélritun 24 t. sem eru á morgnana frá kl. 8.05—9.30. Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans. Sjálfstæðismenn Njarðvík Fótag ungra sjállstæölsmanna, Njarövík, heldur aöalfund j húsi fólagsins mlövlkudaginn 16. janúar kl. 20.00. Venjuleg aöalfundarstörf. Stjórnin. Stefnir Hafnarfirði Hádegisveröarfundur i veltlngahúsinu Gafl-lnn, annarri hæö, laugar- daginn 11. janúar kl .12.00. Gestlr fundarins: Albert Már Stelngrímsson, formaöur æskulýösráös, og Þorgeir Haraldsson, æskulýös- og tómstundafulltrúl. Spjalla þeir vlö fundarmenn um æskulýösstarf í Hafnarfirö! og verkefni í tllefnl af Ári æskunnar 1985. Fólagar fjölmenniö og takiö meö ykkur gestl. Nýlr fólagar velkomnir. Verslunarskóli íslands, Grundarstíg 24, Reykjavík, sími 13550. Norræni Healer-skólinn tekur til starfa 12. jan. kl. 10 í fólagsheimili Kópavogs. Skóllnn veltir innsýn í hinar margvislegu leiölr sem stefna aö heilbrlgöu Itfl og andlegu jafnvægi. Getum enn bætt vlö nokkrum nemendum sími 40198 kl. 9—11 og eftir kl. 20.00. Stjórnin. Þorgeir Haralds Albert Mir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.