Morgunblaðið - 09.01.1985, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANtJAR 1985
30
Afmæliskveðja:
__
Olafur Tryggvason
frá Kirkjubóli
Það stendur mér nær að senda
vini mínum ólafi Tryggvasyni
kveðju mina og minna á áttatíu
ára afmæli hans. í húsi okkar
Grétu hefir hann lengi verið mik-
ill vinur og frændi, þótt samveru-
stundunum hafi þvf miður fækkað
um hrið.
ólafur er fæddur 9. janúar 1905
á Skálanesi i A-Barðastrandar-
sýslu, sonur Kristjönu Sigurðar-
dóttur og Tryggva A. Pálssonar er
þar bjuggu þá og siðar á Vals-
hamri í Geiradal og i Gufudal til
1914 að þau flytja búferlum að
Kirkjubóli í Skutulsfirði, þar sem
Tryggvi bjó til ársins 1938 að
ólafur tekur við búforráðum á
Kirkjubóli. Hafði ólafur fyrir
þann tima stundað landbúnað-
arstðrf í Eyjafirði og um nokkur
ár bjó hann búi sinu i Hnífsdal
vestra.
Árið 1946 bregður ólafur búi og
flyzt búferlum til Reykjavíkur,
þar sem hann hefir átt heimili sið-
an. Hann hóf þá þegar störf hjá
Rafmagnsveitum rikisins og vann
þeim meðan starfsævin entist.
Árið 1928 gekk hann að eiga
Jensinu Gunnlaugsdóttur, fallega
stúlku úr sveitinni i Skutulsfirði,
og reyndust þau hvort öðru góðir
lifsförunautar. Þau eignuðust sex
börn: Sverri, verkfræðing í
Reykjavík, Eddu, hjúkrunarkonu,
sem fórst af slysförum i Banda-
ríkjunum i blóma lífsins, Þórhall,
verktaka og byggingameistara í
Bandaríkiunum, ólaf, garðyrkju-
bónda í Olfusi, Brynju, húsfreyju
og kennara á Akranesi, og Snorra,
rafvirkjameistara á Selfossi. Allt
mannvænt fólk og þeirra afkom-
endur. Jensina andaðist í desem-
ber fyrir rúmu ári, 76 ára að aldri,
og hafði ekki gengið heil til skógar
í nokkur ár, þótt þeim hjónum
tækist að eiga heimili sitt saman
til endadægurs hennar. Að svo
búnu tók ólafur sér inni á Hrafn-
istu og unir dável hag sinum.
Fyrir nokkrum árum varð ólaf-
ur fyrir miklu sjúkdómsáfalli og
virtist hætt kominn. Sætir furðu
hversu vel hann hefir komizt til
heilsu á ný, enda er þeim gamla
ekki fisjað saman, en honum varð
það eitt sinn að orði við mig að elli
kerling væri grimm.
Hér hefir verið stiklað á því
allra stærsta í lífshlaupi ólafs
Tryggvasonar. Margs er fyrir mig
að minnast frá liðnum samveru-
stundum og mikið að þakka. Ég
minnist fyrstu laxveiðiferðar
okkar saman í ágústbyrjun 1957.
Þá var ólafur 52 ára, hið mesta
hraustmenni og vígreifur vel.
Allra manna glaðbeittastur á góð-
um stundum í vinafagnaði og dró
þá ekki af sér í neinu. Ævintýrin á
laxveiðum áttum við saman sumar
hvert að kalla í hartnær fjórðung
aldar. Þegar gamli vinurinn minn
hafði beðið heilsutjón sitt um árið
lét ég þess einhverju sinni getið að
nú myndi fækka ferðum okkar
saman, og svaraði hann þá i sínum
stillta stfl: Þetta er nú búið að
vera gott.
Og víst er um það að ólafur lít-
ur yfir farinn veg sáttur við allt og
alla. Hann hefur verið gæfumaður
í lífi sínu og skilað drjúgu dags-
verki með sóma. Á þessum heið-
ursdegi veit ég að honum er efst í
huga þakklæti og vinsemd í garð
samferðafólks. Hann er sjálfur
þeirrar gerðar að gott er að eiga
að vini. Megi ævikvöld hans verða
fagurt og friðsælt.
Sverrir Hermannsson
★
Ólafur ætlar að taka á móti gest-
um í veitingahúsinu Hrafninum vid
Skipholt milli kl. 16.30 og 19.00 í
dag.
HITAMÆLAR
Vesturgötu 16,
sími 13280.
| raðauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 38., 41. og 44. tbl. Lögbirtlngablaöslns 1984 á
eignlnni Góuholtl 6, Isaflröi, þingleslnnl elgn Arnviöar U. Marvlnsson-
ar fer fram eftir kröfu bSBjarsjóös Isafjarðar og Útvegsbanka Islands á
elgninni sjálfri flmmtudaginn tO. januar 1985 kl. 10.00.
Bæjarlógetinn é Isafiröi.
húsnæöi óskast
Húsnæði óskast
Óskum eftir að taka á leigu litla 2ja herb.
íbúð, eöa gott herbergi meö aögang aö eld-
húsi og snyrtingu. Má vera búin húsgögnum.
Helst í austurbænum t.d. í Háaleitis- eöa
Heimahverfi.
Upplýsingar á skrifstofunni í síma 687117 frá
kl. 9.00—17.00 virka daga.
Auglýsingastofan
örkinC^
Sidumula 51. 105Beyktav*. sani687n7
Verslunarhúsnæöi
óskast
250—300 fm húsnæöi fyrir verslun, skrifstofu
og lager óskast til leigu. Kaup geta komiö til
greina. Skilyröi er aö aökeyrsla sé góö og
bilastæði a.m.k. 1000 fm.
Tilboö sendist til Verkfræöistofu Stanleys
Pálssonar hf., Skúlatúni 4, 105 Reykjavík.
Uppl. ekki gefnar í síma.
fundir —- mannfagnaöir
Fundarboö
Aðalfundur Stálfélagsins hf. veröur haldinn
fimmtudaginn 24. janúar 1985 á Hótel Esju
og hefst kl. 18.30.
Dagskrá samkvæmt 17. gr. samþykkta fé-
lagsins. Lagabreytingar.
Til þessa fundar er boöaö í staö aðalfundar,
sem halda átti 28. desember 1984 og ekki
varö lögmætur vegna ónógrar fundarsóknar.
Reykjavík, 7. janúar 1985.
Stjórnin.
Þorrablót
Austfiröingafélags Suöurnesja veröur í Stapa
laugardaginn 12. janúar.
Miðasala í Stapa fimmtudaginn 10. janúar
milli kl. 17.00 og 20.00.
Mætum öll meö gesti.
Upplýsingar hjá Nönnu í síma 92-2605 og
Laulu í síma 92-1161.
Skemmtinefnd.
kennsla
Bón — Bón
Þvottur — Þvottur
Fallegur bíll á aöeins þaö besta skiliö og þaö
fær hann hjá okkur. Viö þvoum og bónum aö
innan sem utan. Notum aöeins bestu fáan-
legu efni, vanir menn sjá um aö öll vinna og
frágangur sé til fyrirmyndar. Sækjum og skil-
um bílnum ef óskaö er.
Viö erum á Smiöjuvegi 56, kjallara.
Tímapantanir eru í síma 79428.
Geymiö auglýsinguna.
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
STOFNAÐUR 1905
Innritun í starfsnám
Á vormisseri verða haldin eftirtalin námskeið
fyrir starfandi fólk í atvinnulífinu og aöra þá
sem bæta vilja þekkingu sína.
Bókfærsla I
Bókfærsla II
Ensk verslunarbréf
Rekstrarhagfræði
Tölvufræöi
Tölvuritvinnsla
Vélritun 60t.
Vélritun 24 t.
Verslunarreikningur
Verslunarréttur
Innritun er hafin. Ekki komast fleiri en 25 aö
á hverju námskeiöi.
Kennsla fer fram á kvöldin, nema tölvurit-
vinnsla og vélritun 24 t. sem eru á morgnana
frá kl. 8.05—9.30.
Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
skólans.
Sjálfstæðismenn Njarðvík
Fótag ungra sjállstæölsmanna, Njarövík, heldur aöalfund j húsi
fólagsins mlövlkudaginn 16. janúar kl. 20.00.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Stjórnin.
Stefnir
Hafnarfirði
Hádegisveröarfundur i veltlngahúsinu Gafl-lnn, annarri hæö, laugar-
daginn 11. janúar kl .12.00.
Gestlr fundarins: Albert Már Stelngrímsson, formaöur æskulýösráös,
og Þorgeir Haraldsson, æskulýös- og tómstundafulltrúl. Spjalla þeir
vlö fundarmenn um æskulýösstarf í Hafnarfirö! og verkefni í tllefnl af
Ári æskunnar 1985.
Fólagar fjölmenniö og takiö meö ykkur gestl. Nýlr fólagar velkomnir.
Verslunarskóli íslands,
Grundarstíg 24, Reykjavík,
sími 13550.
Norræni Healer-skólinn
tekur til starfa 12. jan. kl. 10 í fólagsheimili Kópavogs. Skóllnn veltir
innsýn í hinar margvislegu leiölr sem stefna aö heilbrlgöu Itfl og
andlegu jafnvægi. Getum enn bætt vlö nokkrum nemendum sími
40198 kl. 9—11 og eftir kl. 20.00.
Stjórnin.
Þorgeir Haralds Albert Mir