Morgunblaðið - 09.01.1985, Síða 39
MORGUNBLAÐID, MIDVIKUDAGUR 9. JANÚAR 1985
39
KRAKKAVESTRI
Kvikmyndír
Árni Þórarinsson
Austurbæjarbíó: Hættuför —
Across the Great Divide ☆i/j
Bandarísk. ÁrgerÖ 1977. Handrit
og leikstjórn: Stewart Raffill. Aðal-
hlutverk: Robert Logan, Heather
Rattray, Mark Edward Hall.
Across the Great Divide er
barna- og unglingamynd upp á
gamla móðinn, enda dálítið kom-
in til ára sinna, þrátt fyrir aug-
lýsingu bíósins um hið gagn-
stæða. Þar er henni á hinn bóg-
inn réttilega líkt við myndir
Disney-félagsins. Eins og í
mörgum fjölskyldumyndum þess
félags eru söguhetjurnar hér
tápmiklir krakkar, sem lenda i
spennandi mannraunum. Það er
ekki verið að flagga tæknibrell-
um fyrir tugmilljónir, engin
stjörnustríð og engir stælar.
Bara gamaldags ævintýri með
geðslegu fólki.
Hetjur okkar eru ung systkini,
Holly og Jason, sem eru á leið
yfir óbyggðir og torfærur
Klettafjalla að innheimta arf
eftir afa sinn og þurfa að takast
á við hættur villta vestursins, —
úlfa, skógarbirni og önnur villi-
dýr jafnt sem indíána og tilfall-
andi ribbalda og rumpulýð. Til
liðs við þau systkinin gengur
ungur skálkur, Coop að nafni,
Heather Rattray og Mark Edward
Hall glíma við villta vestrið i
Across the Great Divide.
eftir stormasöm fyrstu kynni.
Þetta er hvorki mjög átaka- né
tilþrifamikið en myndin er
prýdd jákvæðri stemmningu,
fallegu landslagi og hæfilegri
spennu, sem leikstjórinn Stew-
art Raffill átti eftir að halda enn
betur á í síðari hasarmyndum
sínum eins og High Risk. Mál-
leysingjarnir standa sig vel og
fámennur leikhópur þokkalega;
einkum er Robert Logan
skemmtilegur sem skelmirinn
Coop og gaman væri að sjá
meira til hans. Across the Great
Divide er sumsé ágæt fjölskyldu-
afþreying á lágu nótunum.
KRAMHUSIÐ
DANS- OG LEIKSMIÐJA
Bergstaðastræti 9B — Bakhús
Innritunarsími 15103
Frá jólatrésskemmtuninni.
Neskaupstaður:
Rauð jól
NeskupsUi, 30. desember.
FYRIR jól afhentu félagar í
Lionsklúbbi Norðfjarðar elli-
heimilinu myndsegulbandsDeki
að gjöf. Stefán Þorleifsson, for-
stöðumaður sjúkrahússins, veitti
gjafabréfinu viðtöku. Vonast
Lionsfélagar til að þetta framtak
þeirra geti að einhverju leyti
stytt stundir þeirra er þar dvelja.
í gær bauð Lionsklúbbur Norð-
fjarðar eldri borgurum til kaffi-
samsætis í Egilsbúð. Söng kór
Lionsmanna við góðar undirtekt-
ir áheyrenda og er mál manna að
kórnum hafi ekki tekist betur upp
í annan tíma. Skemmtun þessi er
orðin árlegur viðburður hér og
kunna eldri borgarar vel að meta
þetta starf Lionsmanna.
Kvenfélagið Nanna stóð fyrir
hinni árlegu jólatrésskemmtun
yngstu borgaranna í Egilsbúð í
dag og fór hún fram með hefð-
bundnum hætti. Jólasveinar
komu í heimsókn, dansað var i
kringum jólatré og jólasöngvar
sungnir, boðið var upp á kaffi-
veitingar. Að lokum stigu börn og
unglingar dans. Jólahátiðin fór
friðsamlega fram hér í Neskaup-
stað og blíðskaparveður hefur
verið hér jóladagana. Það telst
tíðindum sæta að hér hefur verið
snjólaust um jólin að undanskil-
inni smá snjóföl, sem gerði hér á
jóladag. í dag hefur verið hér
logn og 5—6 stiga hiti. Að venju
var allur floti Norðfirðinga í höfn
um jólin.
Sigurbjörg
Ignis — Janúartilboö
10% staðgreiðsluafsláttur.
Kæliskápar — Eldavélar — Frystiskáp-
ar — Þvottavélar — Frystikistur —
Eldhúsviftur.
IGNIS
Rafiðjan s.f.
Ármúla 8, sími 91-19294.