Morgunblaðið - 09.01.1985, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 1985
41
Ratsjár kynntar
í Bolungarvík
Ratsjárnefnd vamarmáladeildar utanrík-
i.sráðuneytisins efndi til almenns kynn-
ingarfundar í Bolungarvík á dögunum. Til
athugunar er hvort reisa beri nýja ratsjárstöð
á Stigahlíð við Bolungarvík.
Hátt á annað hundrað manns sóttu fund-
inn. Gunnar Hallsson, fréttaritari Morgun-
blaðsins í Bolungarvík, tók meðfylgjandi
myndir á fundinum.
Þeir þrír sem sitja við háborðið eru frá
vinstri: Ólafur Kristjánsson, forseti biejar-
stjórnar, 1‘orgeir Pálsson, dósent, og Sverrir
Haukur Gunnlaugsson, deildarstjóri varn-
armáladeildar.
Gæjar
og Píur
á svið
aftur
Næstkomandi fóstu-
dagskvöld hefjast sýningar
að nýju á leikritinu „Gejar
og píur“. Ljósmyndari Mbl.
Bjarni leit við á efingu eins
og sjá má og smellti nokkr-
um myndum af leikurunum.
Að sögn Gísla Alfreðssonar
munu sýningar ekki verða
margar m.a. vegna þess að
leikhúsið verður leigt út í
mars fyrir þing Norðurlanda-
ráðs.
Flestir leikarar eru hinir
sömu og í fyrra.
COSPER
— Nú hefi ég dregið neyðarfána að húni. Ertu þá ánægð?
Auglýsing
um próf fyrir skjala-
þýðendur og dómtúlka
Þeir sem öölast vilja réttindi sem skjalaþýöendur
og dómtúlkar, eiga þess kost aö gangast undir
próf, er haldin verða í febrúar nk., ef næg þátttaka
fæst.
Umsóknir skal senda dóms- og kirkjumálaráöu-
neytinu fyrir 20. janúar 1985 á sérstökum eyöu-
blööum, sem þar fást.
Viö innritun í próf greiði próftaki gjald er nemur
helmingi gjalds fyrir löggildingu til aö veröa dóm-
túlkur og skjalaþýðandi. Gjaldiö er óafturkræft
þó próftaki komi ekki til prófs eöa standist þaö
ekki.
Dóms- kirkjumálaráöuneytiö 7. janúar 1985.
Krem og lotion
taktu bestu kosti hvors um sig
og þá hefuröu: CREMEDAS
Jafnvel bestu lotion og bestu
hörundskrem hafa ekki eiginleika
Cremedas.
Cremedas er nefnitega „bæði-og
hörundskrem og bodylotion I
einu.
1 Cremedas hefur mýkjandi,
nærandi og verndandi eiginleika
kremsins. Þá eiginleika, sem halda húðinni mjúkri og þjálli.
Cremedas er ekki feitt eins og krcm og leggst þess vegna
ekki í lag utan á húðinni.
2 Cremedas er þœgilegt I notkun. Það er auðvelt að hera á
sig og það hverfur fljótt inn í húðina, eins og lotion. Það
gefur húðinniþann raka, sem hún þarfnast til að sporna við
þurrki, ertingu og sárindum. Hin góðu áhrif haldast lengur
en af venjulegu lotion.
Cremedas mýkir og verndar eins og krem,
smýgur fljótt inn í húðina, eins og lotion.
JOPCO h.f. Vatnagörðum 14, simi39130