Morgunblaðið - 09.01.1985, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 1985
FH gegn Herschi
á sunnudagskvöldið
Stórleikur veróur á handknatt-
leikssviðinu næstkomandi
sunnudagskvöld en þá leika
FH-ingar fyrri leik sinn í átta liða
úrslitum í Evrópukeppni meist-
araliða í handknattleik. Leikurinn
fer fram í Laugardalshöllinni og
hefst kl.21.30. Aö sögn Valgarós
Sigurðssonar formanns hand-
knattleiksdeildar FH þá hafa litlar
sem engar upplýsingar borist um
hollenska liðið Herschi sem eru
mótherjar FH. En þó er vitað aó
liðinu hefur gengið vel í hol-
lensku deildarkeppninni að und-
anförnu.
Leikmenn FH hafa æft mjög vel
aö undanförnu og eru í góöri æf-
ingu. Um síöustu helgi vann liöiö
stóran sigur á Stjörnunni. Leik-
menn FH eru staöráönir í því aö
komast í 4 liöa úrslit keppninnar
og meö því hugarfari munu þeir
fara í leikinn gegn hollenska liöinu
á sunnudagskvöldiö. Síöari leikur
liöanna fer svo fram í Hollandi
sunnudaginn 27. janúar. í kvöld
leika FH-ingar gegn Þrótti í
iþróttahúsinu í Hafnarfiröi og hefst
leikurinn kl. 20.00.
íslandsmótið í handknattleik:
• Kjartan K. Friöþjófsson og Guðni Magnússon sjást hér í Broad
way Hollywood-keppninni.
Verður móta-
fyrlrkomu-
laginu breytt?
Á blaðamannafundi sem Arnar-
flug hélt í gærdag lýsti formaður
HSI, Jón Hjaltalín Magnússon, því
yfir aö hann myndi á næsta árs-
þingi HSÍ leggja fram ásamt fleir-
um tillögu um breytt fyrirkomu-
lag á 1. deildar keppninni í hand-
knattleik. „Um þessar mundir er
verió aö kanna hvort ekki sé
hægt að koma á keppni sex lióa f
úrvalsdeild og leika fjórar um-
feröir sem myndu þá gilda sem
meistaramót," sagói Jón.
Hann sagöi þaö jafnframt vera
mjög nauðsynlegt aö breyta fyrir-
komulagi á keppni 1. deildar. Þaö
er lítill áhugi á leikjum liöanna i
dag og sagöi Jón réttilega aö þaö
væri mjög slæmt fjárhagslega fyrir
iþróttina. Þá hafa leikmenn sýnt lít-
inn áhuga og oft á tíöum er eins og
leikirnir skipti litlu sem engu máli.
Vonandi veröur meiri áhugi á for-
keppninni eftir þau glæsilegu verö-
laun sem Arnarflug gefur til keppn-
innar í ár.
Bjarni Jónsson, stjórnarmaöur í
handknattleiksdeild Vals, sagöi á
fundinum aö fyrri hluti 1. deildar
keppninnar heföi veriö hreint ótrú-
lega siakur og leikmenn, þjalfarar
og þeir sem aö keppninni stæöu
yröu aö sameinast um aö gera nú
stórátak í aó lyfta undankeppninni
uppúr lægöinni. Hann bætti viö aö
mjög bagalegt væri hvernig lands-
leikjum væri bætt inná keppnis-
tímabiliö meö stuttum fyrirvara og
riöiaöi þannig keppnisfyrirkomu-
laginu. Þaö væri varla á þaö bæt-
andi eftir þaö sem á undan væri
gengiö.________
Körfubolti
EINN leikur verður í bikarkeppni
Körfuknattleikssambandsins í
kvöld — b-liö Keflavíkur mætir
úrvalsdeildarliöi Hauka í íþrótta-
húsinu í Keflavík og hefst leikur-
inn kl. 21.
Morgunblaöiö/Skapti Hallgrímsson.
• Þeir kynntu samning Arnarflugs og 1. deildarfélaganna í gær. Frá vinstri Bjarni Jónsson, stjórnarmaóur í
handknattleiksdeild Vals, Stefán Halldórsson, fulltrúi Arnarflugs, og Jón Hjaltalín Magnússon, formaöur
Handknattleikssambands íslands.
Arnarflug gefur 16
farseðla í verðlaun
— gerir samning við 1. deiidar félögin í handknattleik
Bjarni keppir
í Japan um
næstu helgi
BJARNI Friðriksson júdókappi og
verðlaunahafí á sumarólympíu-
leikunum í Los Angeles fór í
fyrradag til Japans í boói jap-
anska júdósambandsins.
Bjarni mun um næstu helgi
keppa á stóru móti sem fram fer í
minningu um einn þekktasta júdó-
frömuö Japans, sem náöi því aö
veröa 10 Dan.
Með Bjarna í förinni er þjálfari
hans, Gísli Þorsteinsson. Feröin er
þeim félögum alveg aö kostnaöar-
lausu. Þetta sýnir vel hversu
þekktur Bjarni er orðinn í heimi
júdóiþróttarinnar. En honum hafa
borist boö víöa úr heiminum aö
undanförnu.
„MEÐ ÞESSUM auglýsingasamningi vill Arnarflug leggja sitt af
mörkum til handknattleiksíþróttarinnar á íslandi," sagöi Stefán
Halldórsson, fulltrúi hjá félaginu, í gærdag á blaóamannafundi
sem Arnarflug boóaöi til í samráöi vió 1. deildarfélögin í hand-
knattleik. Þar kom fram að Arnarflug mun veita því líöi sem sigrar
í undankeppninni í handknattleik 16 farseóla í verðlaun í milli-
landaflugi félagsins.
Þá mun Arnarflug veita ýmsa
bikara til þeirra leikmanna sem
skara framúr. En auglýsingasamn-
ingurinn sem Arnarflug gerir viö 1.
deildarfélögin er svohljóðandi:
Arnarflug og handknattleiks-
deildir FH, KR, Stjörnunnar, UBK,
Vals, Víkings, Þórs og Þróttar gera
með sér svohljóöandi samning:
Arnarflug veitir sigurvegurunum
í undankeppni 1. deildar karla í ís-
landsmótinu í handknattleik
1984— 85 verölaun sem eru 16
farseölar í millilandaflugi Arnar-
flugs (og skal stefnt aö þvi aö þeir
veröi notaðir í keppnisferö í Evr-
ópukeppni í handknattleik veturinn
1985— 86).
Arnarflug fær í staöinn heimild
til aö auglýsa þjónustu sína á
margvíslegan hátt í tengslum viö
leiki í undankeppninni, m.a. í
keppnissölum, viö inn- og út-
göngudyr, í hátalarakerfum, í fjöl-
miölum og á hvern þann hátt ann-
an sem samkomulag næst um viö
fulltrúa handknattleiksdeildanna.
Arnarflug auglýsir leiki undan-
keppninnar í fjölmiölum í samráöi
viö fulltrúa handknattleiksdeild-
anna.
Arnarflug fær forgang aö öllum
flugflutningum á vegum hand-
• Bjarni Friöriksson
knattleiksdeildanna aö ööru jöfnu,
þ.e. ef verö og þjónusta standast
jöfnuö viö þaö sem deildirnar eiga
völ á hjá öörum flugfélögum.
Arnarflug fær forgang aö aug-
lýsingasamningi vegna lokakeppni
jslandsmótsins veturinn 1984—85.
Arnarflug veitir bikara sem hér
segir: Sigurvegurum í undan-
keppninni. Besta leikmanni móts-
ins, aö vali leikmanna 1. deildar.
Besta unga leikmanni mótsins, aö
vali leikmanna 1. deildar. Tveir síö-
asttöldu bikararnir veröa veittir í
hófi aö loknu islandsmótinu og ef
óskaö er flytur Arnarflug gest til
landsins aö vali deildanna til aö
veita verölaunin í hófinu.
Handknattleiksdeildirnar veita
alla þá aöstoö sem þeim er unnt
viö framkvæmd auglýsinga Arnar-
flugs samkvæmt þessum samn-
ingi. Deildirnar kjósa þriggja
manna framkvæmdanefnd til aö
sjá um tengsl viö Arnaflug vegna
samningsins og til aö sjá um fram-
kvæmd hans fyrir og á leik-
dögum.“
Guðni sigraði i Broad-
way-Hollywood-keppninni
BROADWAY-Hollywood-
keppnín 1984 í billiardleik fór
fram nú á dögunum. í keppninni
voru 32 keppendur, keppt var
meó útsláttarfyrirkomulagi.
Keppnin stóó yfir í þrjá daga og
voru mjög gíæsileg peninga-
verölaun í boði.
Síöasta daginn voru fjórir
keppendur taplausir. Þaö voru
annarsvegar þeir Ásgeir Guö-
bjartsson og Guöni Magnússon
og vann Guöni í annars mjög
spennandi viöureign, 6—7, eftir
aö Ásgeir haföi komist í 5—2, en
Guöni náöi aö jafna, vann svo
síöasta leikinn á síöustu kúlunni.
i hinum leiknum léku þeir Kjartan
Kári Friöþjófsson og Óli Guö-
mundsson. Kjartan vann þennan
leik með yfirburöum, 6—1. Til úr-
slita léku síöan þeir Kjartan og
Guöni og vann Kjartan í góöum
og spennandi leik, 6—5. Staöan
var 5—4 fyrir Guöna og tveir
leikir eftir og vann Kjartan þá
báöa.
Röö efstu manna var sem hér
segir:
1. Kjartan K. Friöþjófsson.
2. Guöni Magnússon.
3. Ásgeir Guöbjartsson.
4. Óli Guömundsson.