Morgunblaðið - 12.01.1985, Page 33

Morgunblaðið - 12.01.1985, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1985 33 sé á Suðurnesjum, en í minning- unni finnst mér að svo hafi ekki verið, heldur að þar hafi verið grænt og blómlegt. Bíbí stundaði nám í heimabyggð sinni og einnig var hún í Hús- mæðraskólanum að Laugarvatni. Ég veit að henni sóttist námið vel og hafði haga og listræna hönd. Hún hafði yndi af að taka þátt i félagslífi og hafði sérstakan áhuga á söng og dansi. Bíbí giftist ung eftirlifandi manni sínum, Hreiðari Guð- mundssyni sem einnig er Suður- nesjamaður, ættaður úr Vogum. Með þeim var strax mikið jafn- ræði og kærleikur, sem kom vel í ljós í veikindum Bíbíar. Hreiðar stóð alltaf við hlið hennar sem bjarg, og held ég að ekki sé ofmælt að leitun sé á slíkri elsku og þol- inmæði, sem hann lét henni í té í stríðinu langa. Þau höfðu bæði gaman af að ferðast og alltaf þeg- ar birti upp í veikindunum, reyndu þau að komast út úr bænum, eða í heimsóknir til vina og ættingja. Þau áttu sér fallegt hús, sem þau byggðu á fyrstu búskaparárunum i Vogunum og virtust ætíð sam- stillt í að prýða það og umhverfi þess, enda bæði næm fyrir fegurð umheimsins. Þau eignuðust þrjá mannvæn- lega syni, Ómar Snorra, sem lést sviplega fyrir réttum 9 árum að- eins 10 ára gamall, Magnús Hlyn, sem er 15 ára, og Snorra, sem er 9 ára. Ómar Snorri var þeim og öll- um aðstandendum mikill harm- dauði og lengi var hann ofarlega í huga þeirra. Sagt er að tíminn lækni öll sár og drengirnir tveir eru og voru þeim sannir sólar- geislar í þessari þungu raun. Undanfarin misseri hefur sú hugsun oft leitað á mig, hvers- vegna ástvinamissir og erfiðir sjúkdómar eru lagðir á herðar ungu fólki, þegar lífið virðist í sagði hann. Þetta tilsvar lýsti vel þeirri hjálpsemi sem var svo rík í fari hans. Sigurvin aðstoðaði okkur einnig mjög mikið á árunum ’77 og ’78. Vinátta okkar var mikil þessi ár og reyndar æ síðan þó þau skipti yrðu færri sem fundum bar saman þar sem við stunduðum báðir sömu atvinnugrein og langur veg- ur var á milli okkar. Ég geymi áfram í huga mér mynd af þessum hugumprúða drenglyndismanni. Mér kemur í hug lítil samverustund sem við áttum sumarið ’82. Við stóðum á grunni að hlöðu sem Sigurvin var þá að byggja á Brekku, hlaðan stendur efst í heimatúninu og sér vel niður yfir túnið og til fjalla- hringsins um fjörðinn. Sigurvin sagði mér frá fyrirætl- unum sínum um framkvæmdir á jörðinni og öðrum búskapar- áformum, ræddum við það nokkra stund, ég mun hafa leitt talið að því hvort honum hefði ekki komið í hug að fá sér jarðnæði annars staðar þar sem túnræktun væri auðveldari og ef til vill öll þjón- usta auðfengnari. Hann leit á mig, síðan leit hann niður yfir túnið, renndu augum yf- ir fjallahringinn um fjörðinn sem var í sumarbúningi, síðan sagði hann, nei, ég held ég vilji vera hér. Ég fann að hér hafði fleira verið vegið en túnstækkunarmöguleikar og ýmis þægindi. Hér var ræktar- semi og hlýja hjartans til æsku- stöðvanna með í ákvarðanatöku hjá mínum góða vini. Ég sleit talinu, en nú vermir til- hugsunin um það að Sigurvin skyldi auðnast að dvelja á þessum stað sem honum var svo kær. Fáein minningabrot hafa verið fest á blað, hitt lifir í huga og hjarta mér — minningin um mæt- an og góðan vin er mér fjársjóður nú þegar ég kveð Sigurvin hinstu kveðju svo miklu fyrr en mig hafði nokkru sinni órað fyrir. Föstudagurinn 28. desember sl. var örlagadagur i lífi fjölskyldu vinar míns, skroppið hafði verið bæjarleið, en úr þeirri för átti Sig- urvin ekki afturkvæmt. Óveður skall á án fyrirvara, stormurinn æddi milli vestfirsku fjallanna eins og hann gerir svo oft, kraftur hans er ógurlegur, hann hreif litla bílinn með sér, Minning: Guðríður Jóns- dóttir Fljótshólum miðjum blóma. Einnig hversu ótrúlegur styrkur og rólyndi virð- ist gefinn fólki sem á um sárt að binda. Ég minnist þess ekki að hafa hitt frænku mína öðruvísi en glaða og vongóða eftir að hún veiktist. Undir niðri fann maður að óvissan og kvíðinn nagaði, en samt virtist enginn biturleiki ná taki á henni. Lífslöngunin var svo sterk að alltaf talaði hún um hvað hún ætlaði að taka sér fyrir hend- ur þegar hún kæmist heim til ástvinanna á ný. Síðustu mánuðina þegar Bíbí þurfti að dvelja næstum óslitið í Landspítalanum, leitaði hún huggunar í að kynnast vegi Drott- ins og sótti reglulega bænastundir í spítalanum og ræddi við prest- ana um það sem henni lá á hjarta. Þetta virtist veita henni ótrúlegan styrk og gleði og gaf henni nýja von. Hún hafði hjá sér bók, sem hún skrifaði í ýmsa viðburði dag- anna og lét gjarnan þá sem vitj- uðu hennar skrifa nöfn sin i hana. Ég veit að í þessari bók er að finna margt gullkornið, því þakklæti til eiginmannsins, sona, systkina, starfsfólks og þeirra sem fylgdust með henni virtist henni alltaf efst í huga. Nú þegar leiðir okkar skilur um sinn, vil ég þakka fyrir að hafa átt svo góðar stundir með Bíbí frænku minni, sem munu ætíð lifa í endurminningunni. Ég veit að all- ir sem þekktu hana og áttu að vini trega hana mjög. Kæru feðgar og systkin, þið haf- ið misst mikið við fráfall hennar en það er huggun til þess að vita að hún hafði undirbúið sína hinstu för vel. Ykkur öllum sendi ég og fjölskylda mín innilegar samúð- arkveðjur. Minningin um góða konu lifir. Kristín V. Richardsdóttir Fædd 1. janúar 1903. Dáin 4. janúar 1985. Eftir því sem aldurinn færist yfir okkur, fjölgar þeim samferða- mönnum, sem hverfa yfir móðuna miklu. Eins þeirra, Guðríðar Jónsdóttur á Fljótshólum, vil ég minnast hér í fáum fátæklegum orðum. Guðríður Jónsdóttir fædd- ist á Fljótshólum (vesturbænum) í Gaulverjabæjarhreppi í Árness- ýslu á nýársdag árið 1903. For- eldrar hennar voru Jón Hall- dórsson á Fljótshólum og Jórunn Pálsdóttir, fædd í Ferjunesi í Vill- ingaholtshreppi. Ung að árum, þ.e. 1920, missti Guðríður föður sinn langt fyrir aldur fram. Fluttu þær mæðgur þá til Reykjavíkur, en föðursystir Guðríðar, Þuríður, sem bjó á háíf- um vesturbænum á Fljótshólum ásamt ráðsmanni, tók við búi þeirra mæðgna. Er til Reykjavík- ur kom, unnu þær við þau störf sem þá buðust. Síðustu ár þeirra í Reykjavík vann Guðríður við hjúkrun á Landakotsspítala, og munu þau störf hafa átt vel við hana, enda hygg ég að hún hefði orðið upplögð hjúkrunarkona, vegna atgervis og mannkosta hennar. En örlögin höguðu því þannig til, að hún fór aðra leið. Árið 1927 fluttu þær mæðgur aftur að Fljótshólum og hófu þær búskap. Ástæðan til þess mun í og með hafa verið sú, að hætta var á að jörðin gengi úr ættinni, en ætt Guðríðar hafði búið á Fljótshólum síðan fyrir aldamótin 1800 og var Guðríður fimmti ættliðurinn. Að visu átti hún einn bróður, Halldór að nafni, en hann kom ekki til greina, þar sem hann var vanheill frá fæðingu. Bjuggu þær mæðgur fyrstu árin með tveim vinnumönnum, Sigurði og Pétri Sæmundssonum, en Jón faðir Guðríðar tók Pétur í fóstur sem ungbarn. Árið 1930 fór Guðríður að búa með manni sínum, Tómasi Tóm- assyni. Tómas var sveitungi henn- ar frá Efri-Gegnishólum. Guðríð- ur og Tómas bjuggu rausnarbúi, því bæði voru dugleg og hagsýn. Tómas lést í júní 1973. Eftir það bjó Guðríður með Jóni, elsta syni sínum, meðan kraftar entust, en hún var orðin mjög farin að heilsu síðasta árið. Guðríður var að mörgu leyti gæfumanneskja. Maður hennar var natinn og góður bóndi. Hún bjó við mikið barnalán, sem var mikil gæfa. Þau hjónin eignuðust 5 börn, er upp komust, en eitt barn misstu þau í fæðingu. Þau eru Jóna Sigríður, fyrri maður hennar var Valur J. Hlíðberg vélstjóri, en hún missti hann frá þremur ung- um börnum. Seinni maður hennar er Bjarni Guðmundsson rafvirki og eiga þau einn son. Þau búa á Seltjarnarnesi. Jón, bóndi á Fljótshólum, ókvæntur. Gunnar Yngvi, múrari, kona hans, Guð- laug H. Þorbergsdóttir. Þau slitu samvistir, eiga þjú börn og býr hann á Selfossi. Bjarni, rafvirki, kona hans er Hjördís Þorsteins- dóttir og eiga þrjú börn, búa á Sel- fossi, Þuríður Sigurbjörg, maður hennar er Kristján Þórisson, sjó- maður, eiga þau fimm börn og búa á Eyrarbakka. Guðríður hafði yndi af blóma- rækt og átti hún fallegan blóma- garð. EFtir að kraftarnir tóku að þverra, stundaði hún mikið út- saum og er til margur fallegur hluturinn eftir hana. Guðríður var glæsileg kona, fríð og fönguleg. Maður tók alltaf eftir henni innan um fólk. Hún hafði yfir sér svo mikinn gerðarþokka. Guðríður var geðrík, en hreinlynd og þótt henni þætti við einhvern, erfði hún það ekki stundinni lengur. Aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkrum manni á bakið og ef henni fannst hallað á einhvern, tók hún ætíð svari hans. Hvers kyns söguburð- ur var henni til ama. Blessuð sé minning hennar. Gestur Sturluson frá Fljótshólum hörmulegt slys hafði átt sér stað. Telpurnar litlu og Hugrún sluppu að mestu ómeiddar frá þessum hildarleik, fyrir það skal almættinu þakkað. Hugrún sýndi á þessari reynslu- stund í lífinu mikinn hugarstyrk og þrautseigju. Hún bauð stormin- um birginn og barðist á móti hon- um til næsta bæjar að leita hjálp- ar, langa og stranga leið, það tókst guði sé lof, hún sigraði í þeirri lotu. Hugrúnu og telpunum litlu votta ég mína dýpstu samúð og bið þeim guðs blessunar. í annað sinn á stuttum tíma gengur móðir Sigurvins með sín- um nánustu síðasta spölinn, það eru þung spor. Ég sendi Ólafíu samúðarkveðju og bið guð að gefa henni styrk, svo og öllu hans fólki öðru. Við leiðarlok þakka ég Sig- urvin mæt kynni og vináttu, nú þegar hann hefur lagt í ferð yfir móðuna miklu. Þau kynni og sú vinátta verma og veita birtu á köldum, dimmum vetrardögum þar sem minningin mæt merlar fram á veginn. Blessuð sé minning míns góða vinar Sigurvins Baldvinssonar. Ástþór Agústsson Þann 28. desember sl. lést af slysförum mágur minn, Sigurvin Helgi Baldvinsson, er bíll hans fauk út af veginum i Gilsfirði í aftakaveðri. Var hann með konu sinni og tveimur börnum á leið í kaupfélagið til að versla fyrir ára- mótin. Sigurvin var sonur hjónanna Baldvins Sigurvinssonar og ólavíu Magnúsdóttur. Mjög náin kynni komust á okkar á milli er ég kom í fyrsta sinn að Brekku, æskuheim- ili Sigurvins og konu minnar, og hefur samband okkar síðan verið mjög náið og kært. Oft dáðist ég að því, hversu mikill dugnaðar- forkur Sigurvin var, í öllum þeim störfum, sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var ávallt fljótur til að rétta hjálparhönd og skipti ekki máli, hvort beiðnin barst frá nánasta nágranna eða öðrum, sem lengra voru í burtu. Sigurvin stundaði ýmsa vinnu, bæði til lands og sjávar, og kom fljótt í ljós dugnaður hans við að koma sér áfram i lífinu. Fyrir um það bil áratug siðan fluttist Sigur- vin að Miðhúsum i Strandasýslu og var þar um skeið með góðu fólki. Síðan flytur hann aftur heim til föðurhúsa til að hjálpa föður sínum, sem þá var orðinn sjúkur. Eftir andlát hans árið 1982 keypti Sigurvin jörð föður síns og hóf strax uppbyggingu á húsakosti jarðarinnar. Jafnframt hóf hann ræktun þess Iands, sem ræktað varð. Framkvæmdasemi Sigur- vins, er hann hóf búskap á Brekku, sýnir vel þann mikla stórhug og dugnað, sem í honum bjó, og þá trú, sem hann hafði á lífinu. Árið 1979 kvæntist Sigurvin eft- irlifandi konu sinni, Hugrúnu Ein- arsdóttur, og eignuðust þau tvær dætur, Sigríði sem nú er 5 ára og Ólavíu sem er 3 ára. Eins og fyrr getur var öll fjölskyldan saman í bílnum, þegar hinn hörmulegi at- burður gerðist. Á þeirri örlaga- stundu sýndi Hugrún þá miklu mannkosti, sem í henni búa. Með Guðs hjálp hélt hún fullri stillingu með þeim árangri, að henni tókst með frábæru hugrekki og einstök- um dugnaði að bjarga börnum þeirra hjóna og sjálfri sér úr þeim háska, sem við þeim blasti. Lítil voru þægindin á Brekku, er Sigurvin hóf búskap þar með konu sinni, ekkert rafmagn og því ekk- ert þeirra heimilistækja, sem rafmagn gefur kost á. Ekki þótti Sigurvini sæmandi að bjóða fjöl- skyldu sinni slíkan aðbúnað á tækniöld. Var því strax hafist handa og fékkst Brekka tengd við veitukerfi Orkubúsins fyrri part- inn í nóvember sl. Birti þá á heim- ili ungu hjónanna og var þá litið björtum augum á framtíðina. En enginn veit hvenær Drottinn tek- ur í taumana og aldrei verður fengin skýring á því, hvers vegna hann kvaddi Sigurvin svo fljótt og snögglega til sín. En enginn fær forðast örlög sín og víst er um það, að hann er nú í góðum höndum og nýtur að eilífu ljóssins, sem hann svo mjög kappkostaði að skapa sér og sínum. Ég og fjölskylda mín vottum Hugrúnu, dætrum hennar og for- eldrum svo og eftirlifandi móður dýpstu samúð með ósk um bjarta framtíð. „Endur fæðast eigum við eins og líka blómin fríðu sem á haustin falla í friði og fá upp rísa í vorsins bliðu.“ (ÓSÓ) Helgi Guðmundsson ^Dale . Larnegie námskeiðið Kynningarfundur veröur haldinn mánudaginn 14. janúar kl. 20.30 aö Síðumúla 35, uppi. Allir velkomnir. Námskeiöiö getur hjálpaö þér: • Aö öðlast meiri trú á sjálfan þig og hæfileika þína. • Aö byggja upp jákvæöara viöhorf gagnvart líf- inu. • Aö ná betri samvinnu viö starfsfélaga, fjöl- skyldu og vini. • Aö þjálfa minniö á nöfn, andlit og staðreyndir. • Aö læra aö skipuleggja og nota tímann betur. • Aö byggja upp meira öryggi viö ákvaröanatöku og lausn vandamála. • Aö skilja betur sjálfan þig og aöra. • Aö auka hæfileika þína, aö tjá þig betur og meö meiri árangri. • Aö ná betra valdi á sjálfum þér í ræðumennsku. • Aö öðlast meiri viöurkenningu og viröingu sem einstaklingur. • Aö byggja upp meira öryggi og hæfni til leiö- togastarfa. • Aö eiga auöveldara meö aö hitta nýtt fólk og mæta nýjum verkefnum. • Aö veröa hæfari í því aö fá örvandi samvinnu frá öörum. • Aö ná meira valdi yfir áhyggjum og kvíöa í daglegu lífi. • Aö meta eigin hæfileika og setja þér ný, per- sónuleg markmiö. 82411 Einkaleyfi á Islandi STJÓRNUNARSKÓLINN Konráð Adolphsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.