Morgunblaðið - 20.01.1985, Side 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1985
Skógar eru farnir aó láta und-
an aiga fyrir aúru ragni. Fyrir
Svía væri þaó ajálfaagt avipaó
aó miaaa akógana og atrakat-
ur þeirra eina og ef vió eydd-
um fiakiatofnunum vió laland.
Súrt regn er mikið notað
hugtak um þessar mundir.
Forsætisráðherrar Norður-
landa kvörtuðu á fundi sín-
um í Reykjavík undan súra
regninu, sem berist til
þeirra frá Bretlandi og saka
Breta um að vilja ekki gera
nóg í málinu. Breska ríkisstjórnin telur
aftur á móti að Bretar hafi verið búnir að
draga úr þessari mengun álíka mikið áður
en um tugur EB-landa stofnaði „30%
klúbbinn" þar sem þjóðirnar áforma að
draga á 10 árum 30% úr mengun er veldur
súru regni í hverju landi fyrir sig. Auk
þess ganga mengandi raforkuver Breta
ekki úr sér fyrr en eftir næstu aldamót og
þeir vilja ekki leggja út í kostnaðinn við að
leggja þau öll niður nú þegar. Enda berst
mengaða loftið með súru regni mest frá
þeim austur yfir Norðurlöndin og nokkuð
til Skotlands. Þótt áhyggjur Norðurland-
anna standi okkur kannski næst og is-
lenskur ráðherra þurfi fyrir hönd þeirra
að mótmæla við Breta, er vandinn ekki
bara bundinn við þennan heimshluta. Til
Kanada berst til dæmis mikið súrt regn
frá iðjuverunum í Bandaríkjunum. Og í
Þýskalandi eru menn orðnir verulega
skelkaðir vegna afleiðinga súra regnsins
frá iðjuverunum þar.
Á þessum stöðum eru sjúkdómseinkenn-
in komin fram. Það eru skógarnir og
stöðuvötnin sem verka eins og hitamælir á
sjúkling og sýna hættumerkin. Hinir fal-
legu gömlu skógar eru að deyja og það eru
stöðuvötnin líka. Trén í Svíþjóð, Kanada
og í Svörtuskógum eru farin að hrynja
niður. Þetta hefur skotið mönnum veru-
lega skelk í bringu og sýnt að róttækra
viðbragða er þörf ef sjúkdómurinn á ekki
að ríða sjúklingi Jörðu að fullu eða a.m.k.
gera hann að vesalingi. Það eru nefnilega
skógarnir sem framleiða súrefnið fyrir
okkur mannanna börn. Þótt ekki sé hugsað
svo langt, heldur bara til stundarhags-
muna einstakra þjóða eins og Norðurlanda
nú, er aðvörunin af skemmdum skógum
býsna alvarleg. Ætli það sé ekki til dæmis
álíka alvarlegt mál fyrir Svía ef skógarnir
þeirra deyja og allur sá iðnaður sem þeim
fylgir hverfur eins og ef við eyðum fiski-
stofnunum kringum ísland. Svíar selja
nefnilega tré fyrir um 200 milljarða ísl.
króna á ári og skógarnir standa undir
miklu af iðnaði þeirra. Þess vegna kunna
þessi skaðlegu áhrif súra regnsins á skóga
öflugra skógariðnaðarríkja eins og Sví-
þjóðar, Kanada og Þýskalands nú að hafa
sinar björtu hliðar líka, þar sem þau
skapa að minnsta kosti harkaleg viðbrögð
frá þeirra hlið og sanna á áhrifamikinn
hátt skjóta þörf fyrir samvinnu milli
þjóða og það á alþjóðlegum grundvelli.
Hvað er súrt regn?
Hvað er það svo sem veldur þessu? Súrt
regn er regn sem mettað er brennisteins-
Skógar þekja aóeina 5J% landa í Evr-
ópu og má akkl minna vera. Nú eru
þeir farnir aó iáta áajáog eru aumir aó
ayóaat.
Súra
regnið
virðir ekki
landamæri
og nítrógenoxíðum, sem dælt er upp úr
verksmiðjustrompum iðnaðarlandanna.
Brennsluefnin, sem notuð eru í gífurlegu
magni á nútíma vélaöld, klofna niður fyrir
Orkuver i Bretlandi, aem brennir kolum og aendir mengunina upp
í háloftin. En hún kemur víaaat nióur aem aúrt regn á Noróurlönd-
um eóa á akoaka hálendinu.