Morgunblaðið - 20.01.1985, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1985
B 25
- liðsforingjum mislíkaði honum
að John hafði starfað of ötullega
og samvizkusamlega með sigur-
vegurunum eftir styrjöldina.
John hafði hjálpað Bretum að
flokka þýzka stríðsfanga eftir
stjórnmálaskoðunum og Gehlen
gramdist að hann hafði ekki
sýnt þýzkum herforingjum úr
röðum fanganna tilhlýðilega
virðingu. Það sem verra var:
John hafði aðstoðað sækjandann
í réttarhöldunum gegn Erich von
Manstein hershöfðingja, sem
Gehlen dáði.
Gehlen hélt uppi andófi gegn
dr. John frá byrjun. Gögn, sem
samtök hans söfnuðu og sendu
Adenauer, ollu því að smám
saman fannst John að honum
væri gert ókleift að starfa.
Gehlen reyndi að sannfæra
„Gehlen og menn hans eru
staðráðnir í að ná yfirráðum yfir
öllum þýzkum leyniþjónustum.
Þú stendur í vegi fyrir honum
eins og ég gerði. Hann gerir líka
út af við þig.“
Andófið gegn John fékk svo
mikið á hann að talið er að hann
hafi brotnað andlega. Með því að
brjóta John niður náði Gehlen
gífurlegum völdum.
„SJÁLFVIUUGURM
Það fyrsta sem benti til þess
að dr. John væri flúinn var að
hann mætti ekki í kvöldverðar-
veizlu, sem haldin var í Hotel
Gehrhus í Vestur-Berlín 20. júlí
1954 til að minnast þess að tíu ár
voru liðin frá samsærinu gegn
Hitler.
Austur-þýzka ríkisöryggisráðuneytið í Bsrlin-Lichtsnbsrg.
Bandaríkjamenn um að John
hefði haft samúð með samtökun-
um „Die Rote Kapelle", sem
njósnuðu fyrir Rússa og börðust
gegn Hitler, og hélt því m.a.
fram að hann væri á mála hjá
Bretum.
Adenauer var einnig lítt hrif-
inn af dr. John, þótt hann sam-
þykkti skipun hans. Snemma árs
1952 bað kanzlarinn Gehlen að
kanna hvað hæft væri í sögum
um að John stæði i sambandi við
menn á sovézka hernámssvæð-
inu, hefði samstarf við austur-
þýzk fyrirtæki og ætti mikið fé á
bönkum í Sviss.
Menn Gehlens virðast hafa
orðið einskis vísari. John vissi
sennilega ekkert af þessu, en það
sem hann frétti um fundi Gehl-
ens og Adenauers fékk mikið á
hann.
Þannig tókst Gehlen að gera
John tortryggilegan og yfirmað-
ur gagnnjósna í Amt Blank, Fri-
edrich Wilhelm Heinz undirof-
ursti — sem sjálfur gegndi
grunsamlegu hlutverki í innri
baráttu njósnastofnananna —
sendi John svohljóðandi viðvör-
un í bréfi 30. marz 1953:
„Vertu á verði gegn djöfullegu
laumuspili leyniþjónustunnar.
Drekktu aldrei úr eitruðum bik-
ar gagnnjósnanna, það eitur er
banvænt..."
Þ e g a r Heinz hafði verið
rekinn nokkrum mánuðum síðar
sendi hann John aðra viðvörun:
John fannst ekki. Hann lá í
móki í húsi í eigu sovézku leyni-
þjónustunnar í Karlshorst
skammt frá Austur-Berlín.
Seinna sögðu vinir Gehlens að
hann hefði verið dauðadrukkinn.
Sjálfur sagði hann síðar að
deyfilyfi hefði verið sprautað í
sig.
Vinur hans, læknirinn Wolf-
gang Wohlgemuth, fór með hon-
um austur. Síðan hefur verið tal-
ið að annað hvort hafi Wohlge-
muth sprautað deyfilyfi í John
eða talið hann á að flýja austur
fyrir til þess að hefja rauðan
byltingarfána á loft gegn
meintri endurvakningu nazisma
í Vestur-Þýzkalandi.
Observer segir að þótt nokkur
brezk skjöl um málið séu horfin
séu þó til nógu mörg plögg, sem
sýni að Breta hafi grunað frá
byrjun að dr.John hefði flúið.
Grunsemdirnar komu m.a. fram
í skeytum til brezka utanríkis-
ráðuneytisins frá brezka sendi-
herranum í Bonn, Sir Frederick
Hoyer Millar.
í þessum skeytum sagði að
sögn blaðsins að dr. John hefði
sennilega farið af fúsum og
frjálsum vilja yfir landamærin
með vini sínum dr. Wohlgemuth,
sem vitað var að hafði samúð
með kommúnistum og starfaði
fyrir Rússa.
Sir Frederick sagði hins vegar
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Nýjar vís-
bendingar í
máli dr. Ottos
John, yfir-
manns vest-
ur-þýzku ör-
yggisþjónust-
unnar, sem
flúði til Aust-
ur-Þýzkalands
Lærið Bridge
Lærið Bridge
Námskeið Bridgeskólans
janúar — mars 1985
Byrjendur: 22. janúar — 26. mars, 10 þriðju-
dagskvöld kl. 20—23.
Lengra komnir, framhaldsflokkar: 21. jan.—
25. mars, 10 mánudagskvöld kl. 20—23.
Spilaklúbbur öll miðvikudagskvöld.
Kennslustaður: Borgartún 18.
Upplýsingar og skráning í síma 19847.
Bridgeskólinn.
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
5 40
LASEfí
LYKILUNN AO VANDAORI LITPRENTUN
MYNDAMÓT HF
32-ía
resió af
meginþorra
þjóöarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er224 80
Plastprent hf. býður nú
„vacuum“-vélar fyrir pökkun á
hvers konar matvöru, s.s. físki,
kjöti og fleiru.
eykur mjög notagildi þeirra.
Leitið nánari upplýsinga hjá
söludeild okkar.
Vélamar eru Vestur-Þýsk
gæðaframleiðsla frá BOSS
GmbH og eru fáanlegar í
fjölbreyttu úrvali. Hægt er að fá
allar vélamar með loft-
skiptibúnaði (gas-flush), sem
$
Plastprent hf.
Samstilltur hopur i stöðugri sókn
Höfðabakka 9,110 Reykjavik
Simi 685600