Morgunblaðið - 30.01.1985, Qupperneq 56
MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Kjaradeilan á kaupskipaflotanum á miðnætti:
Allar líkur
á verkfalli
Skipafélögín bjóöa 15% hækkun, undirmenn vilja 23%
MIKLAR líkur veru taldar á því er Morgunblaðið fór í prentun í nótt, að boðað
verkfall undirmanna á kaupskipum ka mi til framkvæmda klukkan 11 í dag.
Að sögn talsmanna samningsaðilja bar mikið á milli en í nótt var meðal annars
verið að reða ýmsar breytingar á launakerfi, en umreður um beinar launa-
hækkanir voru settar til hliðar. I*ar skilja nú 8%á milli.
Jón Magnússon, formaður samn-
inganefndar skipafélaganna, sagði
í samtali við Morgunblaðið, að
hann hefði ekki góðar vonir um, að
samkomulag tækist áður en af
verkfalli yrði. Töluvert bæri á milli
samningsaðila. Farmönnum hefði
* verið boðin sama launahækkun og
félagar í ASl hefðu fengið í siðustu
samningum, en þeir færu fram á
töluvert meira. Nú væri hins vegar
aðallega verið að ræða um einföld-
un á launakerfi undirmanna á svip-
aðan hátt og orðið hefði hjá yfir-
mönnum árið 1979.
Guðmundur Hallvarðsson, for-
maður Sjómannafélags Reykjavík-
ur, sagði í samtali við Morgunblað-
ið, að staða samningamála væri
nánast óbreytt og sér sýndist því
allar líkur á því, að verkfall hæfist
á áður boðuðum tíma, klukkan 11
árdegis. Farmenn færu fram á um
8% meira en samizt hefði um í
ASl-VSÍ-samkomulaginu í haust.
Auk þess vildu þeir ræða við skipa-
félögin um frídaga og sérstakar
bónusgreiðslur fyrir losun og lest-
un.
Fyrstu skipin stöðvast væntan-
/ega í dag og á morgun er þau koma
til Reykjavíkur og síðan hvert af
öðru við komuna til landsins. í gær
var unnið af kappi við að koma öll-
um skipum, sem hér voru stödd,
utan fyrir verkfall og var reiknað
með því, að það tækist. Strand-
ferðaskipin stöðvast við komuna til
Reykjavíkur og millilandaskipin
munu Ijúka losun í áður ákveðnum
höfnum áður en þau stöðvast.
Benzínverð hækkar
um allt að 70 aurum
BENZÍNVERÐ mun hækka á næstu
dögum vegna nýrra útreikninga á
byggingarvísitölu, en samkvæmt lög-
um fylgir hluti benzíngjalds bygg-
ingarvísitölunni. I'essi hækkun er því
ekki í tengslum við beiðni olíufélag-
anna um verðhækkanir, því benzín-
gjaldið rennur í ríkissjóð.
Samkvæmt heimildum Mbl. mun
einn lítri af benzíni hækka um allt
að 70 aurum. Er þá miðað við að
benzíngjaldið sjálft hækki um allt
að 57 aurum, en að viðbættum sölu-
skatti nemi hún allt að 70 aurum.
Lítri af benzíni kostar í dag 25,90
kr. og myndi því kosta 26.60 kr., ef
hækkunin næmi 70 aurum.
Forsætisráðherra, Steingrímur
Hermannsson, sagði í viðtali við
Mbl. í gærkvöldi það rétt vera, að
benzínverð hækkaði á næstu dögum
af framangreindum ástæðum, en
þar væri gert ráð fyrir að fylgt yrði
forsendum laga og fjárlaga. Hann
kvaðst ekki geta tilgreint hversu
hækkunin yrði mikil, en hún væri
reiknuð út frá hinni nýju bygg-
ingarvísitölu.
•< - - ^ ,.v ~
ísnjónum á Egilsstöðum
Undanfarna viku hefur hið fegursta vetrarveður ríkt á Egilsstöðum og segir Olafur Guðmundsson, fréttaritari
Mbl. þar, að skíðamenn hafi ekki þurft að leita iangt, því snjórinn sé hvað mestur innan þorpsmarka eða í næsta
nágrenni. En það má nota snjóinn til fleiri hluta en skíðaiðkana og þessir ungu Egilsstaðabúar voru önnum
kafnir við hleðslu snjóhúss, þegar Ólafur átti leið framhjá þeim.
ÍSTAK og Vegagerð ríkisins:
Kanna verkmögu-
leika á V-Indíum
VERKTAKAFYRIRT/EKIÐ ÍSTAK hefur kannað möguleika á því að taka
að sér framkvæmdir við vegalagningu og hafnagerð á eyjum í Karabíska
hafinu. Fóru Ólafur Gíslason, byggingaverkfræðingur hjá ÍSTAKI, og Jón
Birgir Jónsson, verkfræðingur hjá Vegagerð ríkisins, þangað fyrir skömmu í
verkefnaleit en Vegagerðin er hugsanlegur samstarfsaðili ÍSTAKS.
Ólafur sagði í samtali við blaða-
mann Mbl. að þeir hefðu séð nokk-
ur álitleg verkefni á þessum slóð-
um sem í athugun væri að gera
tilboð í. Sagði hann að verkefnin
fælust í vegalagningu og hafna-
gerð, einkum á Jamaica, en þeir
fóru til fjögurra eyja í ferð sinni,
m.a. Barbados og Grenada. Sagði
hann að aðstæður á þessum eyjum
væru ekki ósvipaðar því sem við
þekktum, eyjarnar væru fjöllóttar
og fremur fámennar, en íbúarnir
væru að vísu lausir við frost-
vandamálin sem hér þekktust.
Sagði hann að hlutverk Vega-
gerðar ríkisins yrði að endur-
skipuleggja vegakerfi viðkomandi
eyja og þær stofnanir þjóðanna
sem eiga að fara með vegamál, því
þessi lönd væru öll í frumbernsku
hvað vegamál snerti. Verkin sem
ÍSTAK hefur hug á að bjóða í
verða boðin út í vor og sumar og
bjóst Ólafur við að samkeppni yrði
um þau við bandarísk fyrirtæki
sem þarna hafa boðið í fram-
kvæmdir. Ef ÍSTAKI tekst að fá
verkefni á þessum slóðum sagði
hann að héðan færi hópur verk-
fræðinga og verkstjóra en verkin
unnin sem mest með innfæddum
verkamönnum.
Tilboði Eim-
skipafélags-
ins tekið
STJÓRN Sölumiðstöóvar hraðfrysti-
húsanna hefur ákveðið að ganga að
tilboði Eimskipafélagsins í freðfisk-
flutninga sína til ('ambridge í Banda-
„Miðuðu á okkur og
heimtuöu peninga“
— segir Guðjón Árnason, handknattleiks-
maður í FH, sem var ógnað í Amsterdam
„I*Að ER heldur óhugnanlegt að standa frammi fyrir svona náungum,"
sagði Guðjón Árnason, handknattlciksmaður úr FH, sem varð fyrir þeirri
óskemmtiíegu reynslu að vera ógnað af þremur vopnuðum mönnum í
Amsterdam, er hann var þar á keppnisferðalagi með liði sínu um síðustu
helgi. Atvikið átti sér stað á götu úti að kvöldlagi, þar sem Guðjón var á
gangi ásamt Braga Kort Guðmundssyni, sem var í Amsterdam með ferða-
hópi á vegum Samvinnuferða. „I'eir höfðu nú lítið upp úr krafsinu, náðu
eitthvað um 700 krónum íslenskum af Braga,“ sagði Guðjón ennfremur.
„Við vorum á gangi þarna um ákváðum við að hætta við að fara,
kvöldið og hittum þá þrjá unga
menn, sem ætluðu að vísa okkur á
ákveðið diskótek, sem var þarna
skammt frá hótelinu. Þegar við
höfðum gengið nokkurn spöl
enda leist okkur ekki nema meira
en svo á þessa náunga. Þá skipti
engum togum að þeir stoppuðu
okkur og einn þeirra miðaði á
okkur byssu og þeir skipuðu okk-
ur að láta alla peninga af hendi.
Ég var ekki með neina peninga í
veskinu, en hins vegar var ég með
eitthvað i brjóstvasanum, en ég
var bara svo hræddur að ég
gleymdi þeim, þannig að ég
missti ekkert af minum pening-
um.
Eftir á fórum við að velta því
fyrir okkur hvort þetta hefði í
rauninni verið alvörubyssa sem
þeir voru með. Þeir voru nú hálf-
álkulegir greyin og voru greini-
lega skíthræddir sjálfir. þeir
hlupu svo í burtu eins og andskot-
inn væri á eftir þeim eftir að hafa
tekið þetta litla sem þeir fundu.
Guðjón Árnason
En þú getur rétt ímyndað þér
hvernig tilfinning þetta er, ég var
með hjartað í buxunum, alveg
skíthræddur, enda vissi maður
ekkert við hverju mátti búast,"
sagði Guðjón.
ríkjunum á þessu ári, samtals um
18.000 lestir. Telur SH að öllu athug-
uðu, tilboð Eimaskipafélagsins vera
2,5 til 4,5 milljónum króna lægra en
næstlægsta tilboðiö, sem var frá
Skipafélaginu Víkur. Með útboðum
SH á freðfiskflutningum sínum á
þessu ári er talió að lækkun flutn-
ingskostnaðar frá síðasta ári nemi
rúmum 100 milljónum króna.
í frétt frá SH segir, að lægstu
tilboðin hafi verið mjög svipuð, en
það, sem réði úrslitum sé eftirfar-
andi:
• Tíðni ferða. Eimskip afskipar
fiski á 10 til 14 daga fresti. Víkur
hf. afskipar fiski á 30 til 35 daga
fresti.
• Eimskip hefur mun meiri skipa-
kost, eða 2 gámaskip og eitt frysti-
skip. Víkur hf. gerir ráð fyrir að
leigja eitt erlent frystiskip í ár.
• Eimskip er þegar með söfnun á
freðfiski í gáma fyrir Evrópumark-
að. Það er veruleg hagkvæmni fólg-
in í því að samræma þessa söfnun.
• Veruleg hagkvæmni er fólgin í
því, að fá smærri farma til Cam-
bridge í Bandaríkjunum vegna
geymslu- og vaxtakostnaðar.